Mynd: ALBERT ZAWADA / EPA-EFE

Vinna að því alla daga að koma Úkraínumönnum frá Póllandi

Pólskur sjálf­boða­liði sem vinnur með sænskum sam­tökum að því að skipu­leggja ferðir flótta­fólks frá Póllandi til Sví­þjóðar segir Pólland ekki geta hýst fleiri. Koma þurfi fólki í burtu svo Pólland hafi pláss fyrir aðra stóra bylgju flótta­fólks frá Úkraínu.

Þegar flótta­fólk frá Úkraínu kemur inn á lest­ar­stöðvar í stærstu borgum Póllands bíða þeirra skilti, þar sem þeim er tjáð að tæki­færin í Póllandi bíði þeirra fremur í litlum borgum en þeim sem stærri eru.

„Smærri borgir í Póllandi veita meiri mögu­leika á því að fá hús­næði, lægri fram­færslu­kostnað og auknar líkur á því að fá starf. Stórar borgir í Póllandi eru þegar ofsetnar. Ekki vera hrædd við að fara til minni bæja: þeir eru frið­sælir, með góða inn­viði og henta vel,“ segir á skilti við afgreiðsl­una á lest­ar­stöð í aust­ur­hluta Varsjár, sem blaða­maður Kjarnans heim­sótti á dög­unum.

Þar, rétt eins og á lest­ar­stöð­inni í mið­borg­inni, er nokkuð stöð­ugur straumur flótta­fólks frá Úkraínu að koma frá suð­ur­hluta lands­ins. Mörg þeirra hafa litla hug­mynd um hvert væri best að leita í fram­hald­inu, en í grunn­inn má segja að flótta­fólkið frá Úkraínu skipt­ist í tvo hópa.

Annars vegar eru það þau sem eiga ein­hver tengsl í Póllandi eða öðrum löndum, fjöl­skyldu eða vini sem hægt er að dvelja hjá um hríð, og svo þau sem búa ekki við þann munað og eru komin út í algjöra óvissu. Og þurfa aðstoð.

Hve lengi endist velvilji almennings?

Í Varsjá rétt eins og flestum borgum og bæjum Póllands opn­aði sam­fé­lagið arma sína við upp­haf inn­rásar Rússa í Úkraína og fjöl­margir íbúar tóku fólk á flótta inn á heim­ili sín. En það kom­ast ekki allir fyrir inni á heim­ilum og í höf­uð­borg­inni er búið að koma upp all­nokkrum mið­stöðvum þar sem flótta­fólk getur dvalið tíma­bundið.

Heima­menn sem Kjarninn ræddi við í Varsjá síð­ustu vik­una segja flestir að þeir sem á annað borð hafi ætlað sér að hjálpa til og taka inn flótta­fólk séu nú þegar búnir að því, auk þess sem margir hafi álitið að það að hýsa flótta­fólkið inni á heim­ilum yrði tíma­bundið.

Lítil merki eru þó um að pólska rík­is­stjórnin, sem á und­an­förnum árum hefur verið afar andsnúin því að taka á móti flótta­fólki, sé reiðu­búin undir það sem margir ótt­ast að sé framundan – að tíma­bundin og eft­ir­tekt­ar­verð bylgja góð­vildar hund­ruða þús­unda almennra borg­ara í garð flótta­fólks frá Úkraínu fjari smám saman út.

Og hvað ef átökin í Úkraínu harðna enn og fleiri flótta­menn þurfa á skjóli að halda?

Hjálp­ar­sam­tök víða að úr Evrópu eru að reyna að létta undir með Pól­verjum og hjálpa fólki áleiðis til ann­arra ríkja, sum í nánu sam­starfi við sveit­ar­fé­lög í sínum heima­löndum. Kjarninn ræddi við full­trúa nokk­urra slíkra sam­taka í Varsjá á dög­unum.

Fólk þreytist á að gista með þúsundum annarra

Ein stærsta mið­stöðin sem sett hefur verið upp fyrir flótta­fólk í Varsjá er í ráð­stefnu­mið­stöð­inni PTAK Expo, sem liggur sunnan við borg­ina. Þar eru all­nokkrar risa­stórar bygg­ingar, hver um sig álíka stór og Korpu­torg. Tvær þeirra hafa und­an­farnar vikur verið helg­aðar mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu og tíma­bund­inni gisti­að­stöðu fyrir allt að tíu þús­und manns verið vippað upp.

Nóttina áður en blaða­maður Kjarnans heim­sótti mið­stöð­ina höfðu um fjögur þús­und manns, aðal­lega konur og börn, gist á þessum stað. Búið er að koma upp bráða­birgð­ar­útu­stöð í hluta einnar bygg­ing­ar­innar, þar sem sam­tök sem skipu­leggja rútu­ferðir til ann­arra ríkja í Evrópu voru búin að koma upp skrán­ing­ar­básum. Hinir ýmsu þjóð­fánar blöstu við á skjáum á veggj­unum – sá danski, eist­neski, spænski og franski auk ann­arra.

Lucie, sjálfboðaliði á vegum franskra samtaka sem skipuleggja rútuferðir frá Varsjá.
Lucie, sjálf­boða­liði á vegum franskra sam­taka sem skipu­leggja rútu­ferðir frá Varsjá.
Franskur sjálfboðaliði afmarkar brottfararsvæði fyrir þau sem höfðu skráð sig í rútu sem átti að halda beina leið til borgarinnar Tours.
Franskur sjálf­boða­liði afmarkar brott­far­ar­svæði fyrir þau sem höfðu skráð sig í rútu sem átti að halda beina leið til borg­ar­innar Tours.

Blaða­maður gaf sig á tal við sjálf­boða­liða frá frönskum sam­tökum sem voru að störfum við að skrá fólk í rútu sem stefndi til borg­ar­innar Tours í Frakk­landi, en borg­ar­yf­ir­völd þar hafa lýst sig til­búin til þess að taka á móti fólki beint frá Varsjá. „Þar bíða þeirra stuðn­ings­fjöl­skyldur og borg­ar­yf­ir­völd munu veita þeim aðstoð sál­fræð­inga, og félags­ráð­gjafa, frönsku­nám­skeið fyrir börnin og síðan mun sveit­ar­fé­lagið útvega þeim íbúðir til lengri tíma,“ sagði Lucie, franskur sjálf­boða­liði sem búsett er í Varsjá, við blaða­mann.

En afhverju er fólk að velja að fara til Frakk­lands? „Það er mis­jafnt, sum hafa ein­hver tengsl og lærðu til dæmis frönsku í skóla og þekkja til tungu­máls­ins, en sumir aðrir eru búnir að vera hérna í tvær vikur að sofa í sal með allt að tíu þús­und öðrum og eru orðin þreytt á því, vilja bara kom­ast eitt­hvert annað,“ sagði Lucie.

Flýr til Spánar en foreldrarnir ætla til Rússlands

Á lest­ar­stöð­inni í mið­borg Varsjár eru ungir spænskir sjálf­boða­liðar, sem flest eru Erasmus-skiptinemar í borg­inni, búin að sitja frá morgni til kvölds und­an­farnar vikur við að halda utan um skrán­ingu flótta­fólks í rútur til Spánar fyrir hönd spænskra hjálp­ar­sam­taka.

Spænskir sjálfboðaliðar sem standa vaktina í Varsjá.
Spænskir sjálf­boða­liðar sem standa vakt­ina í Varsjá.

„Við erum búin að flytja um tvö þús­und manns héðan,“ sagði Alex, einn sjálf­boða­lið­anna, við Kjarnann. Er blaða­maður leit við á lest­ar­stöð­inni á mánu­dags­kvöld var 17 ára strákur frá Úkraínu með spænsku ung­menn­unum.

Hann var búinn að skrá sig í rútu til Spánar dag­inn eftir, var einn á ferð og ætl­aði einn spænsku sjálf­boða­lið­anna að skjóta yfir hann skjóls­húsi yfir nótt, í stað þess að beina honum í Expo-mið­stöð­ina með þús­undum ann­arra.

Úkra­ínu­mað­ur­inn ungi var að flýja heim­ili sitt og í reynd for­eldra sína líka, en þau styðja Vladimír Pútín og vildu flytja frá Úkraínu til Rúss­lands.

Verandi sam­kyn­hneigður sá hann ekki bjarta fram­tíð fyrir sjálfan sig í áformum for­eldr­anna um flutn­inga til Rúss­lands Pútíns og kaus að halda til Spánar, með ekk­ert nema eina íþrótta­tösku með­ferðis.

Heildarpakki inn í nýtt líf í Svíþjóð

Á hót­eli í mið­borg Varsjár hafa sænsku sam­tökin A Demand for Action verið með aðstöðu undir starf­semi sína, en á annað þús­und manns hafa nú þegar fengið far með rútum sam­tak­anna til Sví­þjóðar.

Tveir sjálf­boða­liðar sam­tak­anna, Jakub frá Póllandi og Olena frá Úkraínu, ræddu við blaða­mann Kjarnans um starfið á laug­ar­dag. „Við erum þegar búin að hjálpa yfir 1.300 manns til Sví­þjóðar. Við erum að skipu­leggja ferð­irnar okkar í sam­starfi við sveit­ar­fé­lög og flótta­manna­stofnun Sví­þjóðar, svo að þau eru til­búin að taka á móti þeim. Við erum ekki bara að flytja fólkið, heldur mætti kalla þetta heild­ar­pakka hjálpar, það er það sem þau þurfa,“ segir Jakub.

Olena og Jakub eru sjálfboðaliðar á vegum sænsku samtakanna A Demand for Action.
Olena og Jakub eru sjálf­boða­liðar á vegum sænsku sam­tak­anna A Demand for Action.

Hann bætir því við að flest þau sem kjósi að fara til Sví­þjóðar geri það ekki vegna þess að þar eigi þau eigi þar ein­hverjar teng­ingar, heldur séu ein­ungis að leita að besta staðnum fyrir sig og fjöl­skyldu sína.

„Í Póllandi erum við núna að hýsa um tvær millj­ónir flótta­manna. Pólland ein­fald­lega ræður ekki við þennan fjölda, við þurfum að finna þeim öruggt skjól utan Póllands. Þetta var fyrsta bylgjan sem kom hingað og miðað við gang stríðs­ins mun því ekki ljúka fljót­lega. Við verðum að sjá til þess að það sé laust pláss í Póllandi til þess að við getum tek­ist á við næstu bylgju, sem ég held að því miður muni koma,“ segir Jakub.

Olena er frá Úkraínu en var þegar komin til Varsjár í atvinnu­leit þegar inn­rás Rússa hófst. „Þegar stríðið hófst gat ég ekki hugsað um að leita mér að vinnu, mig lang­aði að hjálpa Úkra­ínu­mönnum og land­inu mínu eins mikið og ég gat. Og þess vegna fór ég að vinna með A Demand for Action“.

Olena og Jakub segja blaða­manni að þau kjósi að vera með starf­semi sína og skrán­ingar í rútur í ró og næði á hót­el­inu, en ekki í stærri mót­töku­mið­stöðvum flótta­fólks í Varsjá, þar sem ringul­reið ríki. „Þar er ekki hægt að veita fólki neitt öryggi, við viljum hitta fólk hér, kynna þau fyrir Svíþjóð og útskýra hvernig allt ferlið þeirra verður,“ segir Jakub.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannamál

Mest lesið undanfarið ár