Maður klýfur flokk

Djúp­stæður ágrein­ingur um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son hefur klofið hinn 100 ára gamla Fram­sókn­ar­flokk. Átökin virð­ast ekki snú­ast að neinu leyti um mál­efni heldur um per­sónu Sig­mundar Davíðs. Hann ætlar að stofna flokk utan um þá per­sónu.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er klof­inn í herðar niður eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður hans, sagði sig úr honum í fyrra­dag og til­kynnti að hann ætl­aði að fara fram á öðrum vett­vangi. Sá vett­vangur er, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans, sá sem Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi útgef­andi Pressu­sam­stæð­unnar, hefur unnið að. Sig­mundur Davíð hefur ekki viljað gang­ast við því opin­ber­lega en ljóst þykir að þeir tveir, sem tengj­ast í gegnum marga sam­eig­in­lega banda­menn, eru ekki að fara að setja á fót sitt hvort fram­boðið.

Þeim hefur tek­ist að halda athygl­inni á hinu vænt­an­lega fram­boði með því að segja ekki af eða á og draga það að segja frá því hvað fram­boðið eigi að heita. Björn Ingi skráði sig fyrir lén­inu sam­vinnu­flokk­ur­inn.is þann 22. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og í gær, 25. sept­em­ber, skráði bróðir Sig­mundar Davíðs sig fyrir lén­inu mid­flokk­ur­inn.is. Þar fyrir utan var Fram­fara­fé­lag Sig­mundar Davíðs form­lega skráð hjá fyr­ir­tækja­skrá í byrjun sept­em­ber. Það er skráð til heim­ilis hjá Hólm­fríði Þór­is­dóttur og Sigurði Þ. Ragn­ars­syni veð­ur­fræð­ingi, best þekktum sem Sigga Stormi.

Annað hvort aðal eða ekki með

Síð­ast­liðið ár hefur legið fyrir að ein­ungis tveir mögu­leikar voru fyrir hendi í þeirri stöðu sem upp var komin í Fram­sókn­ar­flokknum: annað hvort næði Sig­mundur Davíð for­mennsku í honum á ný á flokks­þingi eða hann myndi fara úr flokknum og stofna nýtt fram­boð í kringum sjálfan sig.

Frá því að Sigurður Ingi Jóhanns­son sigr­aði Sigmund Davíð í æsispenn­andi for­manns­kjöri í Fram­sókn­ar­flokknum í byrjun októ­ber í fyrra, nokkrum vikum fyrir þing­kosn­ingar, hefur Sig­mundur Davíð ekki starfað með þing­flokki Fram­sókn­ar­flokks að neinu ráði. Hann hefur raunar tekið lít­inn sem engan þátt í þing­störfum á því ári sem liðið er frá upp­gjör­inu.

Í maí stofn­aði Sig­mundur Davíð svo Fram­fara­fé­lagið í kringum sig. Um tvö hund­ruð manns mættu á stofn­fund þess, þar af margir áhrifa­menn innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þeir sem sitja nú í for­ystu flokks­ins litu á stofnun félags­ins sem fyrsta skref Sig­mundar Davíðs í átt að stíga út úr flokknum. En þeir áttu þó fyrst von á því að hann myndi gera loka­til­raun til að ná for­mennsku aftur á flokks­þingi sem fyr­ir­hugað var í jan­úar 2018. Ef það gengi ekki eftir myndi hann yfir­gefa Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Vegna und­ir­bún­ings fyrir það hafi Fram­fara­fé­lagið verið form­lega stofnað 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt stofn­gögnum er Sig­mundur Davíð for­maður félags­ins. Aðrir aðal­menn í stjórn eru Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, Sveinn Hjörtur Guð­finns­son (fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Reykja­víkur), Anna Kolbrún Árna­dóttir (for­maður Lands­sam­bands fram­sókn­ar­kvenna), Hólm­fríður Þór­is­dóttir (fyrr­ver­andi jafn­rétt­is­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Fé­lags Fram­sókn­ar­kvenna í Garðabær og Hafnar­f­irði), Gunnar Þór Sig­ur­björns­son (fyrr­ver­andi for­maður Kjör­dæm­is­sam­bands Fram­sókn­ar­fé­lag­anna í Norðaust­ur­kjör­dæmi), og Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir, systir Sig­mundar Davíðs. Í vara­stjórn eru Regína Helga­dóttir (for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Akur­eyrar og nágrennis), Jón Pét­urs­son (fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Mos­fells­bæjar), og Gunnar Kristinn Þórð­ar­son (fyrr­ver­andi for­maður sam­taka með­lags­greið­enda).

Í upp­haf­legri skrán­ingu félags­ins var Gunnar Bragi Sveins­son skráður í stjórn Fram­fara­fé­lags­ins. Hólm­fríður Þór­is­dóttir, sem sá um skrán­ingu félags­ins, segir að um ranga til­kynn­ingu hafi verið að ræða sem send hafi verið inn fyrir mis­tök. Nú hafi það verið leið­rétt. Hólm­fríður er einnig skráð fyrir heima­síðu Fram­fara­fé­lags­ins.

Nýjar kosningar flýta áformum

Hin skyndi­legu stjórn­ar­slit, og boðun kosn­inga í lok októ­ber næst­kom­andi, hafi hins vegar breytt þeirri áætlun skyndi­lega. Innan Fram­sókn­ar­flokks­ins voru öfl sem vildu gera allt til að koma í veg fyrir að inn­an­flokksá­tök myndu lita kosn­inga­bar­áttu flokks­ins annað árið í röð. Við­mæl­endur Kjarnans innan flokks­ins segja að þessi hópur hafi lagt alla áherslu á að stillt yrði upp á lista flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar og að sú upp­still­ing myndi taka mið af þeim listum sem boðnir voru fram í fyrra. Þannig myndi Sig­mundur Davíð leiða í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og Gunnar Bragi í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Forysta flokks­ins, Sigurður Ingi og þing­flokks­for­mað­ur­inn Þórunn Egils­dóttir, voru hins vegar á meðal þeirra sem lögð­ust gegn þessu. Í Norð­vest­ur­kjör­dæmi verður tvö­falt kjör­dæm­is­þing þar sem Ásmundur Einar Daðason hefur skorað Gunnar Braga á hólm. Og í Norð­aust­ur­kjör­dæmi stefndi allt í að slíkt færi fram líka, þar sem Þórunn til­kynnti að hún ætl­aði að berj­ast við Sigmund Davíð um odd­vita­sætið.

Lilja Alfreðsdóttir hefur stundum verið kölluð skilnaðarbarnið í Framsókn. Hún er varaformaður flokksins í dag en vann náið með Sigmundi Davíð þegar hann var forsætisráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir hefur stundum verið kölluð skiln­að­ar­barnið í Framsókn. Hún er vara­for­maður flokks­ins í dag en vann náið með Sigmundi Davíð þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra.

Sig­mundur Davíð, og fylg­is­menn, litu á þetta sem enn eina aðför­ina per­sónu­lega gegn honum. Það varð til þess að hann til­kynnti, með birt­ingu um 3.500 orða bréfs á heima­síðu sinni, á sunnu­dag að hann ætl­aði að yfir­gefa Fram­sókn­ar­flokk­inn. Bréfið var birt 90 mín­útum áður en að auka­kjör­dæm­is­þing Fram­sókn­ar­manna, þar sem taka átti ákvörðun um val á lista, hófst. Eftir að Sig­mundur Davíð hætti var ákveðið að stilla upp á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjör­dæm­inu og mun Þórunn leiða hann.

Enginn sitjandi þingmaður elti Sigmund

Fjöldi manns sagði sig úr Fram­sókn­ar­flokknum með Sigmundi Davíð. Á meðal þeirra sem hafa ákveðið að segja skilið við flokk­inn eru fyrr­ver­andi þing­maður, for­menn Fram­sókn­ar­fé­laga, mið­stjórn­ar­menn og með­limir í félögum ungra Fram­sókn­ar­manna. Þá sagði öll stjórn Fram­sókn­ar­fé­lags Mos­fells­bæjar af sér vegna þess sem hún kall­aði „aðför­ina sem gerð var að fyrr­ver­andi for­manni flokks­ins á síð­asta Flokks­þingi“. Það verður hins vegar að hafa í huga að þótt þessar úrsagnir hafi verið fyr­ir­ferða­miklar í fjöl­miðlum und­an­farna daga, meðal ann­ars vegna þess að sér­stakar til­kynn­ingar hafa verið sendar í hrönnum á fjöl­miðla til að greina frá þeim, þá er um brota­brot af því fólki sem gegnir trún­að­ar­stöðum fyrir flokk­inn, enda aðild­ar­fé­lög hans um land allt lið­lega hund­rað tals­ins.

Enginn sitj­andi þing­maður hefur hins vegar fylgt Sigmundi Davíð út úr Fram­sókn­ar­flokknum. Helst var búist við því að Gunnar Bragi Sveins­son, odd­viti flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, gæti farið þá leið enn hann hefur nú gefið það út að af því verði ekki.

Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur staðið á milli fyrr­ver­andi for­manns og þess sem nú heldur um stjórn­ar­taumanna, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar. Lilja starf­aði náið með Sigmundi Davíð þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra og tók sæti í rík­is­stjórn sem utan­þings­ráð­herra þegar hann vék úr henni eftir að Panama­skjölin voru gerð opin­ber í apríl í fyrra. Hún ætlar hins vegar að halda áfram að starfa innan Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ekkert hefur verið opin­berað um hverjir verði á lista hins nýja fram­boðs Sig­mundar Davíðs, að öðru leyti en það að Þor­steinn Sæmunds­son hefur lýst því yfir að hann hafi hug á því að vera á lista og Svein­björn Birna Svein­björns­dóttir, fyrr­ver­andi odd­viti Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík, hefur ekki úti­lokað fram­boð.

„Meginmarkmið að drepa mig“

Erfitt er að sjá að klofn­ing­ur­inn í Framsókn snú­ist um margt annað en per­són­una Sigmund Davíð Gunn­laugs­son. Hann vill leiða flokk­inn og vera í áhrifa­stöðu í rík­is­stjórn. Í bréf­inu sem hann birti á heima­síðu sinni á sunnu­dag fer hann í löngu máli yfir atlögur gegn sér. Sig­mundur Davíð sagð­ist hafa treyst Sigurði Inga „fyrir fjöregg­inu mínu“ þegar hann sam­þykkti að segja af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl 2016 og taldi sig hafa lof­orð upp á vas­ann um að Sigurður Ingi myndi ekki fara gegn honum. Í kjöl­farið hafi hins vegar verið gerðar sex til­raunir til að fella hann, og það hafi loks tek­ist í byrjun októ­ber 2016.

Ein slík atlaga hefði verið í sept­em­ber það ár á mið­stjórn­ar­fundi, þar sem Sig­mundur Davíð hélt eft­ir­minni­lega ræðu sem sett var fram með mynd­rænum hætti. Á þeim fundi til­kynnti Sigurður Ingi einnig að hann myndi ekki starfa áfram sem vara­for­maður flokks­ins að óbreyttu. Sig­mundur Davíð segir í bréfi sínu að þessi ræða Sigurðar Inga hefði verið „und­ar­leg“ og að hann hafi ekki veitt sér „neinar vís­bend­ingar í þessa veru fyrir fund­inn og raunar komið sér hjá því að funda með mér allt frá því að ég hleypti honum í Stjórn­ar­ráðið.“ Sig­mundur Davíð heldur því svo fram í bréf­inu að lög og reglur Fram­sóknar hafi ítrekað verið brotin til að losna við hann.

Sigurður Ingi Jóhannsson tók við sem forsætisráðherra þegar Sigmundur Davíð sagði af sér vegna Wintris-málsins. Hann gegndi þeirri stöðu þar til ný ríkisstjórn var mynduð í janúar og hefur verið formaður Framsóknar í tæpt ár.
Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra þegar Sig­mundur Davíð sagði af sér vegna Wintris-máls­ins. Hann gegndi þeirri stöðu þar til ný rík­is­stjórn var mynduð í jan­úar og hefur verið for­maður Fram­sóknar í tæpt ár.

Í bréf­inu er hins vegar ekk­ert fjallað um mál­efna­á­grein­ing. Einungis ágrein­ing um hvort að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son eigi að stýra, eða yfir höfuð að vera í fram­boði fyrir, Fram­sókn­ar­flokk­inn. Því eru það átök um per­sónur sem klofið hafa flokk­inn, ekki mál­efna­á­grein­ingur. Í við­tali við Frétta­blaðið sagði Sig­mundur: „Til hvers að berj­ast fyrir því að þú getir starfað áfram með fólki sem lítur á það sem meg­in­mark­mið að drepa þig?“

Lítið gefið upp um helstu stefnumál

Raunar liggur ekk­ert fyrir hver helstu stefnu­mál nýs fram­boðs Sig­mundar Davíðs verða. Í við­tölum á sunnu­dag sagði hann að það þyrfti að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið á Íslandi, gera upp við eldri borg­ara og aðra sem eigi „inni hjá okkur“ og að ráð­ast þyrfti í stór­sókn í byggða­málum. Að öðru leyti hefur Sig­mundur Davíð ein­ungis talað um að vilja fram­hald af því „hvernig við unnum hlut­ina á árunum 2009-2016.“

Allt eru þetta mál sem eru ofar­lega á baugi í stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Lilja Alfreðs­dóttir hefur til að mynda ítrekað sagt að það sé eitt af stærstu verk­efnum stjórn­mál­anna að fara í heild­ar­end­ur­skoðun á fjár­mála­kerf­inu og útfæra fram­tíð­ar­stefnu þess efnis. Fátt skil­greinir Fram­sókn­ar­flokk­inn jafn ræki­lega og öflug byggða­stefna og í nýbirtum áherslum flokks­ins fyrir kom­andi kosn­ingar, sem Sigurður Ingi greindi frá í bréfi til flokks­manna, var mjög sterk áhersla á vel­ferð­ar­mál og aukin jöfnuð, meðal ann­ars með álagn­ingu hátekju­skatts.

Eitt mál aðskilur Sigmund Davíð frá Fram­sókn­ar­flokki dags­ins í dag. Það er mál sem hann fjall­aði um í aðsendri grein sem birt var í Við­skipta­blað­inu í lok ágúst. Þar kall­aði hann eftir þori til að ræða flótta­manna­mál. Í nið­ur­lagi grein­ar­innar sagði hann: „Ef stjórn­­­mála­­menn, emb­ætt­is­­menn, fjöl­mið­l­­ar, fræð­i­­menn og aðrir sem hafa það hlut­verk að ræða lausnir, horfa til fram­­tíðar og móta stefnu þora ekki að ræða stærstu úrlausn­­ar­efni sam­­tím­ans eru þeir að eft­ir­láta öfga­­mönnum umræð­una og lausn­irn­­ar.“

Sig­mundur Davíð skrif­aði svo stutta grein í Frétta­blaðið í morgun þar sem hann boð­aði enn og aftur komu hins nýja flokks síns. Þar segir hann að það muni „þurfa stjórn­mála­flokka sem hafa þol­gæði og festu. Flokka sem nálg­ast úrlausn­ar­efnin af opnum hug en eru svo reiðu­búnir til að beita sér fyrir skyn­sam­leg­ustu lausn­unum af krafti. Flokka sem eru reiðu­búnir til að verja rétt­lætið bæði þegar það er auð­velt og þegar það er erfitt. Á næstu dögum birt­ist slíkur flokkur.“

Sá flokkur verður búinn til utan um per­són­una Sigmund Davíð Gunn­laugs­son.

Árétting

Frétta­skýr­ingin var upp­færð klukkan 11:50 eftir að Hólm­fríður Þór­is­dóttir kom því á fram­færi að Gunnar Bragi Sveins­son sé ekki í stjórn Fram­fara­fé­lags­ins heldur hafi röng til­kynn­ing, með hans nafni, verið send til Rík­is­skatt­stjóra. Hið rétta sé að Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, sem var aðstoð­ar­maður Gunnars Braga á meðan að hann gegndi ráð­herra­emb­ætti, sé hins vegar skráð í stjórn­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár