Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þeim sem ætla að kjósa „önnur“ framboð fjölgar hratt

Meiri­hlut­inn í Reykja­vík myndi halda, Sam­fylk­ingin yrði stærsti flokk­ur­inn en Viðreisn gæti lent í odda­stöðu. Þeim fjölgar hratt sem ætla að kjósa aðra flokka en þá sem eiga full­trúa á Alþingi í dag. Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu kosn­inga­spár­innar.

Fylgi meiri­hlut­ans í Reykja­vík dalar örlítið sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Þeir þrír flokkar sem standa að honum mæl­ast nú með 47,5 pró­sent fylgi en voru með 48,2 pró­sent um miðja síð­ustu viku. Breyt­ingin er þó vart mark­tæk. Sam­fylk­ingin mælist nú með 29 pró­sent fylgi og yrði áfram stærsti flokk­ur­inn í höf­uð­borg­inni ef kosið yrði í dag. Fylgi hennar hefur verið nokkuð stöðugt und­an­farnar vikur sam­kvæmt spánni, mæld­ist lægst 28,5 pró­sent en hæst 31,1 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með 9,5 pró­sent fylgi og Píratar með níu pró­sent. Báðir flokkar eru að mæl­ast með minnsta fylgi sem þeir hafa mælst með í kosn­inga­spánni frá því í byrjun mars.

Fylgi framboða í Reykjavík samkvæmt kosningaspánni 27. apríl 2018.
Fylgi fram­boða í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spánni 27. apríl 2018.

Þrátt fyrir að vera með minni­hluta atkvæða ætti meiri­hlut­inn að geta haldið í ljósi þess að sífellt fleiri atkvæði eru að deil­ast á ný fram­boð sem mæl­ast ekki inni með borg­ar­full­trúa. Í byrjun mars sögð­ust 1,8 pró­sent kjós­enda að þeir ætl­uðu að kjósa aðra flokka en þá átta sem eiga full­trúa á Alþingi. Nú er það hlut­fall komið upp í fimm pró­sent. Alls hafa 17 fram­boð lýst því yfir að þau ætli fram í höf­uð­borg­inni í lok næsta mán­aðar. Það þarf vart að taka það fram að þau hafa aldrei verið fleiri. Mörg þeirra hafa þó enn ekki kynnt full­mann­aða lista né skilað inn nægj­an­legum fjölda með­mæl­enda til að telj­ast gild. Öll fram­boð sem mæl­ast með undir tveggja pró­senta fylgi flokk­ast sem „aðrir“ í kosn­inga­spánni.

Miðflokkurinn á öruggri siglingu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði áfram næst stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík ef kosið yrði í dag. Fylgi hans mælist nú 28 pró­sent sem er við lægri mörk þess sem það hefur mælst í kosn­inga­spánni und­an­farnar vikur. Fylgið er þó, líkt og hjá Sam­fylk­ingu, nokkuð stöðugt á þessum slóðum.

Mið­flokk­ur­inn virð­ist ætla að taka við hlut­verki Fram­sókn­ar­flokks­ins í borg­inni og fylgi hans er stöðugt á upp­leið. Í byrjun mars var það 4,2 pró­sent, 10. apríl var það 5,1 pró­sent en er nú 6,6 pró­sent. Á sama tíma mælist fylgi Fram­sókn­ar­flokks 3,2 pró­sent og virð­ist nokkuð fast þar, sem myndi tæp­lega skila flokknum manni inn í borg­ar­stjórn.

Annar flokkur sem er með stöðugt fylgi í kringum þrjú pró­sent er Flokkur fólks­ins. Líklegt verður að telj­ast að annar hvort þess­ara flokka, Framsókn eða Flokkur fólks­ins, nái inn manni en hinn ekki, miðað við stöð­una eins og hún er nú. Saman eru þessir fjórir flokkar, sem eiga að hluta til mál­efna­lega sam­leið, sér­stak­lega í skipu­lags­málum, með 40,8 pró­sent fylgi. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra hefur verið þar í kring síð­ustu tvo mán­uði, sem bendir mjög til þess að færsla fylgi flokk­anna sé fyrst og síð­ast innan þessa mengis.

Sá flokkur sem gæti verið í lyk­il­stöðu að loknum kosn­ingum er Viðreisn. Fylgi flokks­ins mælist nú 6,7 pró­sent sem myndi gera hann að fjórða stærsta flokki lands­ins.

Hafna samstarfi við Sjálfstæðisflokk

Þeir flokkar sem skipa meiri­hluta í Reykja­vík í dag hafa allir úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki eftir kosn­ingar. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ingar, sagði í sjón­varps­þætti Kjarnans fyrir tíu dögum síðan að það sé mjög lít­ill munur á mál­flutn­ingi Eyþóri Arn­alds, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna, og Vig­dísi Hauks­dótt­ur, odd­vita Mið­flokks­ins, þegar kemur að helstu borg­ar­mál­um. Hann sagð­ist ekki sjá fyrir sér að Sam­fylk­ingin geti unnið með þeim flokkum né öðrum sem leggj­ast gegn gild­andi skipu­lagi í Reykja­vík. Dagur hefur einnig kallað Sjálf­stæð­is­flokk­inn í borg­inni „Morg­un­blaðs­arm“ flokks­ins.

Líf Magneu­dóttir, odd­viti Vinstri grænna, setti stöðu­upp­færslu á Facebook í gær þar sem hún sagð­ist ánægð með að Dagur væri búinn að taka undir áherslur Vinstri grænna um að halda meiri­hluta­sam­starf­inu áfram og „hafna sam­starfi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og önnur fram­boð sem vilja bein­línis vinna gegn auknum lífs­gæðum í Reykja­vík með því að koma í veg fyrir þróun umhverf­is­vænni og hag­kvæm­ari sam­göngu­máta.“

Hún gagn­rýndi einnig harka­lega kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að afnema fast­eigna­skatt á íbúa yfir 70 ára og sagði flokk sem væri að „lofa því að taka með ólög­legum hætti hund­ruð millj­óna úr sam­eig­in­legum sjóðum borg­ar­búa, sem hægt væri að nýta til upp­bygg­ingu leik­skóla og ann­arra mik­il­vægra mála, til að setja í vasa auð­ug­ustu íbúa borg­ar­innar, ekk­ert erindi í borga­stjórn. Það á ekki að bjóða kjós­endum upp á þannig stjórn­mál og eðli­leg­ast væri að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn drægi þetta lof­orð til baka og bæði kjós­endur afsök­unar á því að hafa farið fram með það.“

Stundin greindi frá því 10. apríl síð­ast­lið­inn að Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, hefði hitt Eyþór Arnalds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks, á fundi þann dag til að ræða borg­ar­mál. Í umfjöll­un­inni greindi Dóra Björt frá því að fund­ur­inn hafi meðal ann­ars snú­ist um mögu­lega sam­starfs­fleti.„Ég sagði honum bara eins og er að það getur bara eng­inn unnið með Sjálf­stæð­is­mönnum fyrr en þeir taka til hjá sjálfum sér[...]Í stuttu máli þá sagði ég bara við hann að sam­starf Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks strand­aði ein­fald­lega á þeim sjálfum. Fyrst taka þeir til hjá sér og svo má skoða þetta. Eyþór vildi þá meina að hann væri mað­ur­inn sem myndi breyta þessum flokki. Við Píratar bíðum bara eftir að sjá þess merki og þá eru allir vegir færir. Það er samt ágætt að muna að margir góðir menn hafa ætlað sér að breyta þessum flokki með því að ganga í hann.“

Viðreisn, sem kynnti áherslur sínar í kosn­inga­bar­átt­unni í vik­unni, virð­ist síðan vera mun nær sitj­andi meiri­hluta en núver­andi minni­hluta og öðrum flokkum sem deila áherslum með honum. Það má t.d. sjá á því að í nýj­ustu könnun Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir Morg­un­blaðið kom fram að 53,9 pró­sent kjós­enda Við­reisnar vildu sjá Dag B. Egg­erts­son sem næsta borg­ar­stjóra. Einungis 4,9 pró­sent þeirra vildu fá Eyþór Arnalds í emb­ættið.

Á meðal helstu mála Við­reisnar voru að við­halda þétt­ingu byggðar með nýjum hverfum við Elliða­ár­vog, Ártúns­höfða og á Keldum og tengja þau hverfi við fyrsta áfanga borg­ar­línu sem fram­boðið styður að verði byggð upp. Þá vill Viðreisn að flug­vell­inum verði fund­inn nýr staður utan Vatns­mýrar og fjölfa félags­legu leigu­hús­næði um 350 á kjör­tíma­bil­inu. Stefna Við­reisnar skar­ast hins vegar á við meiri­hlut­ann þegar kemur að fjár­mála­stjórnun borg­ar­innar, sem Viðreisn hafnar og telur óábyrga.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (25. apríl) eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 4. apríl (vægi 14,8 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 9. apríl (vægi 15,5 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins og fretta­bla­did.is 25. apríl (vægi 23,3 pró­sent)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23 - 25. apríl. (vægi 46,5,4 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár