Mynd: Pexels.com

Erlendum ríkisborgurum fjölgað um 5.480 það sem af er ári

Á 21 mán­uði hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 43 pró­sent á Íslandi. Hlut­falls­lega er aukn­ingin mest í Reykja­nesbæ þar sem útlend­ingar er nú nán­ast fjórð­ungur íbúa. Fjöldi þeirra hefur nær fjór­fald­ast á innan við sjö árum.

Í lok árs 2011 voru erlendir rík­is­borg­arar sem bjuggu hér­lendis 20.930 tals­ins. Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru þeir 43.430. Fjöldi slíkra sem búa á Íslandi hefur því auk­ist um 22.500 frá þeim tíma, eða um tæp­lega 108 pró­sent. Erlendir rík­is­borg­ara sem búa hér­lendis hafa aldrei verið fleiri.

Mest hefur aukn­ingin verið á síð­ustu tæpu tveimur árum. Frá árs­lokum 2016 hefur erlendum rík­is­borg­urum á Íslandi fjölgað um 13.050, eða um 43 pró­sent.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum hér­lendis um 5.480 tals­ins. Það eru fleiri en búa í sveit­ar­fé­lag­inu Fjarð­ar­byggð, þar sem íbúa­fjöld­inn er 5.090.

Í lok sept­em­ber voru erlendir rík­is­borg­arar 12,2 pró­sent 355.620 íbúa lands­ins. Til sam­an­burðar voru þeir 6,5 pró­sent íbúa þess í árs­lok 2011.

Þetta má lesa út út nýjum mann­fjölda­tölum frá Hagstofu Íslands.

24,2 prósent íbúa Reykjanesbæjar erlendir

Sem fyrr er mjög mis­skipt hvar erlendir rík­is­borg­arar setj­ast að á land­inu. Hlut­falls­lega búa flestir í Reykja­nesbæ. Í lok árs 2011 bjuggu þar 1.220 erlendir rík­is­borg­arar og voru 8,6 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í dag búa 18.830 manns í Reykja­nesbæ og erlendir rík­is­borg­arar þar eru 4.570. Því eru 24,2 pró­sent íbúa Reykja­nes­bæjar erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það hlut­fall var 20 pró­sent um síð­ustu ára­mót og vex því feiki­lega hratt. Það liggur því fyrir að fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem búa í Reykja­nesbæ hefur nán­ast fjór­fald­ast á innan við sjö árum.

Flestir erlendir rík­is­borg­arar búa í Reykja­vík, eða alls 17.940. Þeim hefur fjölgað um 8.750 frá árs­lokum 2011, eða um 95,2 pró­sent. Þá voru þeir átta pró­sent borg­ar­búa en eru í dag 14 pró­sent þeirra. Frá byrjun árs 2017, eða á 21 mán­uði, hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa í Reykja­vík fjölgað um 5.440 tals­ins. Það eru 810 fleiri en búa á Sel­tjarn­ar­nesi í dag.

60 bæst við á Seltjarnarnesi og í Garðabæ

Talandi um Sel­tjarn­ar­nes þá heldur það sveit­ar­fé­lag áfram, ásamt Garðabæ, að vera þau sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem erlendir rík­is­borg­arar setj­ast síst að í. Alls búa 340 erlendir rík­is­borg­arar á Sel­tjarn­ar­nesi en 690 í Garðabæ. Það þýðir að erlendir rík­is­borg­arar eru 7,3 pró­sent þeirra 4.610 sem búa á Sel­tjarn­ar­nes en 4,2 pró­sent þeirra 16.190 sem búa í Garðabæ.

Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018 hefur erlendum rík­is­borg­urum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað um 3.340 og eru nú 26.540. Það þýðir að 57 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem setj­ast hér að flytja á höf­uð­borg­ar­svæð­ið.

Af þeim 3.340 erlendu rík­is­borg­urum sem bæst hafa við höf­uð­borg­ar­svæðið á árinu hafa ein­ungis 60 sam­an­lagt sest að á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ.

Spá gerir ráð fyrir áframhaldandi aukningu

Lítið lát verður á þessum miklu sam­fé­lags­breyt­ingum ef marka má mann­fjölda­spá Hagstofu Íslands sem birt var í októ­ber. Þar kom fram að búast megi við því að þeim sem flytja til Íslands umfram þá sem flytja á brott verði 20.883 tals­ins frá byrjun árs 2018 og til loka árs 2022, sam­kvæmt mið­spá. Lágspá stofn­un­ar­innar gerir ráð fyrir að aðfluttum fjölgi um 12.252 en háspáin 29.323 á þessu fimm ára tíma­bili.

Hinir aðfluttu verða fyrst og fremst erlendir inn­flytj­endur sam­kvæmt spánni og fleiri íslenskir rík­is­borg­arar munu áfram flytja frá land­inu en til þess. Í byrjun árs 2018 voru erlendir rík­is­borg­arar sem bjuggu hér­lendis, líkt og áður sagði, 37.950 tals­ins. Lágspáin gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 32,3 pró­sent, mið­spáin gerir ráð fyrir að þeim fjölgi um 64,5 pró­sent fram til loka árs 2022 og háspáin gerir ráð fyrir því að þeim fjölgað um 77,2 pró­sent.

Því má búast við að í lok árs 2022 verði erlendir inn­flytj­endur hér­lendis 58.833 til 67.273 tals­ins hið minnsta ef annað hvort mið- eða háspá Hag­stof­unnar verða að veru­leika. Það myndi þýða að erlendir rík­is­borg­arar yrðu 15,6 til 17,4 pró­sent allra íbúa lands­ins. Um síð­ustu ára­mót voru þeir 10,9 pró­sent þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið undanfarið ár