Mynd: EPA

Örvun bólusetninga: Óvissuferð sem eykur ójöfnuð

Á annan tug Evr­ópu­ríkja eru ýmist byrjuð eða í start­hol­unum að gefa full­bólu­settum örv­un­ar­skammta þótt Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin og Sótt­varna­stofnun Evrópu mæli almennt gegn slíku. Ísland er í þessum hópi.

Það er fyrst og fremst eitt sem getur stöðvað far­aldur COVID-19 í heim­inum og það eru ekki örv­un­ar­skammtar. Það er þó ekki þar með sagt að þeir gagn­ist ekki ákveðnum og afmörk­uðum hópum. En til að hægt verði að kveða far­ald­ur­inn í kút­inn þarf helst að bólu­setja alla – alls staðar. Það ætti að vera for­gangs­mál okkar allra.

Þessi var­úð­ar­orð Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar (WHO) hafa ómað mán­uðum saman, byggð jafnt á rétt­lætis- og vís­indarökum. Á þau hefur lítið verið hlustað miðað við þá stöðu sem nú er uppi.

Þjóðríki gripu í upp­hafi far­ald­urs COVID-19 til heima­varna þar sem borg­arar hvers og eins þeirra voru settir í for­gang. Þegar bólu­efnin voru í sjón­máli upp­hófst svo kapp­hlaup sem skipta má í þrennt: Í fyrsta lagi um for­gangs­röðun innan hvers lands. Átti að byrja á heil­brigð­is­starfs­fólki eða öldruðum? Hvenær kæmi röðin að kenn­urum?

Í öðru lagi var það innan hvers heims­hluta. Þá umræðu þekkjum við Íslend­ingar einnig mæta vel. Átti að halla sér að Evr­ópu­sam­band­inu í samn­ings­gerð eða átti að fara „bresku leið­ina“?

Umræðan um kapp­hlaupið milli heims­hluta var hins vegar að sama skapi lítil. „Við vorum of upp­tekin við að ríf­ast um hvernig við ættum að tryggja okkur sjálfum bólu­efni,“ segir Henry Alex­ander Henrys­son heim­spek­ingur. „En það lá alltaf ljóst fyrir hvert stóra vanda­málið yrði: Að dreifa efn­unum jafnt um allan heim svo að hægt yrði að stöðva far­ald­ur­inn.“

Hann líkir við­brögð­unum við hnatt­ræna hlýnun og fjölgun flótta­fólks. „Ætlum við að taka á þeim málum á for­sendum ein­stakra þjóða? Nei, við getum það ekki. En við endum samt alltaf ein­hvern veg­inn þar.“

Og rúm­lega einu og hálfu ári eftir að far­ald­ur­inn byrj­aði og meira en átta mán­uðum eftir að bólu­setn­ingar hófust er heima­varn­ar­stefna enn víð­ast í fyr­ir­rúmi, nú síð­ast með þeirri ákvörðun sífellt fleiri ríkja að bjóða full­bólu­settu fólki örv­un­ar­skammta af bólu­efni sem enn er utan seil­ingar fyrir stærstan hluta mann­kyns.

Ungt fólk bíður í röð eftir bólusetningu í Brasilíu.
Ungt fólk bíður í röð eftir bólu­setn­ingu í Brasilíu.

„Það er skilj­an­legt og full­kom­lega verj­an­legt að sótt­varna­læknir, sem er með sitt skil­greinda og afmark­aða starfs­svið sem er að vernda heilsu Íslend­inga, leggi fram áætlun um hvernig best sé að gera einmitt það,“ segir Arnar Pálsson erfða­fræð­ingur. „En kannski, og von­andi, viljum við sem sam­fé­lag ekki aðeins hugsa um okkur sjálf. Það má spyrja: Hvaða gildi skipta máli? Er fyrst og fremst mik­il­vægt að verja Íslend­inga og hags­muni okkar, eða bjarga manns­lífum á heims­vísu? Og ef að þú stefnir að því að bjarga manns­lífum er þetta nokkuð aug­ljóst. Þá viljum við bólu­setja sem flesta í heim­inum sem hrað­ast. Yrði sú stefna ofan á væri eðli­legt að bíða með örv­un­ar­skammta. Mark­miðin þurfa hins vegar að vera skýr og um þau þarf að ríkja sátt í sam­fé­lag­inu.“

Um 5,4 millj­arðar skammtar af bólu­efni gegn COVID-19 hafa verið gefnir á heims­vísu og 40 pró­sent jarð­ar­búa hafa fengið að minnsta kosti einn skammt. Þetta hefur tek­ist að gera á aðeins nokkrum mán­uðum. En þegar töl­fræðin er brotin niður eftir heims­hlutum blasir við óhugn­an­leg stað­reynd: 75 pró­sent allra þess­ara skammta hafa verið gefnir íbúum tíu rík­ustu þjóða heims. Þær og efna­meiri þjóðir eru margar hverjar komnir vel yfir 50 pró­sent bólu­setn­ing­ar­hlut­fall. Aðeins 1,8 pró­sent íbúa fátæk­ustu ríkj­anna hafa á sama tíma fengið einn skammt eða tvo.

Afríka er föl á þessu korti sem sýnir fjölda bóluefnaskammta á hverja 100 íbúa í löndum heimsins.
Afríka er föl á þessu korti sem sýnir fjölda bólu­efna­skammta á hverja 100 íbúa í löndum heims­ins.

Þessi mis­skipt­ing bólu­efn­anna sem kapp­hlaup vest­ur­veld­anna skil­aði mun ekki aðeins hafa (og hefur þegar haft) hræði­legar afleið­ingar í þeim löndum sem skilin voru útundan. Hún mun einnig koma aftan að Vest­ur­landa­búum. Harmsagan frá Indlandi, þar sem delta-afbrigðið varð til í óbólu­settu sam­fé­lagi, strá­felldi þar fólk og dreifð­ist svo á leift­ur­hraða um ver­öld víða, gæti átt eftir að end­ur­taka sig – að minnsta kosti í ein­hverri mynd.

„Afbrigðin komu, sáu og sigr­uðu,“ segir Arnar. „Meðan far­ald­ur­inn geisar er alltaf mögu­leiki á að það komi fram ný afbrigði með meiri sýki­mátt. Sú hætta verður við­var­andi því okkur virð­ist fyr­ir­munað að lemja veiruna niður. Það eru svæð­is­bundnir far­aldrar að eiga sér stað þar sem tugir þús­unda – jafn­vel millj­ónir manna – eru að smit­ast.“ Og við slíkar aðstæður skap­ast „milljón tæki­færi“ fyrir veiruna til að stökk­breyt­ast.

Deilt með tveimur en niðurstaðan samt röng

„Nú er tím­inn til að sýna sam­stöðu með þeim ríkjum sem hafa enn ekki getað bólu­sett fram­línu­fólk og sína við­kvæm­ustu hópa,“ segir í nýút­gefnu og örvænt­ing­ar­fullu ákalli Ellen Johnson Sirleaf, fyrr­ver­andi for­seta Líberíu og Helen Clark, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, sem fóru fyrir sam­hæf­ing­arteymi WHO um við­brögð við far­aldr­inum. Mark­miðin með COVAX, sam­starfs­vett­vangi ríkja sem átti að tryggja jafnt aðgengi að verk­færum til að fást við far­ald­ur­inn, voru upp­færð í maí þegar bólu­setn­ingar voru vel á veg komnar í hinum vest­ræna heimi: Að efn­að­ari ríki settu að minnsta kosti einn millj­arð bólu­efna­skammta til 92 fátæk­ari ríkja í gegnum COVAX fyrir 1. sept­em­ber. Deilt hafði þá verið með tveimur í eldra og bjart­sýnna mark­mið.

Skemmst er frá því að segja að þetta gekk ekki eftir. Aðeins 99 millj­ónum gjafa­skammta hafði verið dreift í gegnum COVAX í lok ágúst til efna­minnstu ríkj­anna, ríkja þar sem heibrigð­is­kerfi myndu engan veg­inn ráða við útbreiddan far­aldur.

Í byrjun árs ákváðu íslensk stjórn­völd að gefa alla umfram­skammta af bólu­efni sem þau höfðu þá tryggt kaup á til lág­tekju­þjóða. Í lok júlí töldu þau sig svo sjá fram á að gefa allt það bólu­efni sem ekki þyrfti að nýta hér til þró­un­ar­ríkja. „Sem stendur er útlit fyrir að hægt verði að gefa skammta á þessu ári sem nægja til að full­bólu­setja um 200 þús­und manns,“ sagði utan­rík­is­ráðu­neytið.

Ísland lét fyrr í sumar stöðva send­ingar bólu­efna hingað til lands frá AstraZeneca og Janssen til að end­ur­greiða láns­skammta frá Svíþjóð og Noregi. Sam­an­lagt höfðu 40 þús­und skammtar verið fengnir að láni.

125.726 skammtar

Í fram­hald­inu var óskað eftir að umfram­skammtar yrðu gefnir inn COVAX en Svíþjóð ann­ast þar milli­göngu fyrir Íslands hönd, segir í svari heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um efnd­irnar. Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að 125.726 umfram­skammtar af AstraZeneca hafi verið gefnir inn í COVAX og þegar vett­vang­ur­inn fari að taka við Janssen verði 153.500 skammtar af því gefnir. „Ekki liggur fyrir hverjir við­tak­endur bólu­efn­anna verða en þau fara þangað sem þörfin er mest.“

Sam­starfið gengur einnig út á að fjár­magna kaup á bólu­efni. Fyrir ári til­kynntu stjórn­völd að þau ætl­uðu að standa straum af fjár­mögnun 100 þús­und bólu­efna­skammta sem myndu duga til að bólu­setja 50 þús­und manns. Fram­lagið nemur nú rúmum millj­arði króna.

Heil­brigð­is­ráðu­neytið segir að frek­ari „geta Íslands“ til að gefa bólu­efni inn í sam­starfið verði metin á þeim grunni að hér séu hafnar örv­un­ar­bólu­setn­ingar og bólu­setn­ingar barna.

Fólk bíður í röð eftir að fá bóluefni á Indlandi.
Fólk bíður í röð eftir að fá bólu­efni á Indlandi.

„Ef stefnan er sú að vernda fólk og bjarga manns­lífum á heims­vísu ætti mark­miðið að vera að dreifa bólu­efna­skömmtum sem víð­ast,“ segir Arnar. „Hver ein­asti skammtur sem við sendum skiptir máli. Hver dagur, hver vika, hver mán­uður skiptir þar máli.“

Frá því að mark­mið COVAX voru upp­færð í maí hefur ýmis­legt gerst sem skýrt gæti tregðu ríkja til að gefa bólu­efni. Tvennt, sem þó teng­ist ræki­lega, má nefna: Delta-afbrigðið og smit full­bólu­settra. Og þess vegna var tekið til við að örva bólu­setn­ingar, þvert á áskor­anir WHO.

Ísraelar riðu á vaðið og buðu fólki þegar í lok júlí þriðja skammt­inn af bólu­efni Pfizer. Fyrst voru aldr­aðir hvattir til að þiggja hann. Svo sífellt yngra fólk. Nú er svo komið að öllum tólf ára og eldri býðst að fá örv­un­ar­skammt.

Allir eldri en 60 ára geta fengið örvun

Sama dag var ákveðið að hefja örv­un­ar­bólu­setn­ingar hér á landi. Fyrsti hóp­ur­inn voru Janssen-þeg­arnir, fólkið sem hafði fagnað því að þurfa aðeins að fá eina sprautu í stað tveggja en sótt­varna­læknir mælti svo með að léti sprauta sig í annað sinn. Rökin voru fyrst og fremst þau að miðað við töl­fræð­ina í fyrstu vikum fjórðu bylgj­unnar, sem hófst hér á landi í júlí, var smit meðal bólu­settra útbreidd­ast hjá þeim hópi sem að sama skapi var yfir­leitt yngra fólk.

Í dag býðst öllum sem fengu Janssen að fá örvun sem og fólki sex­tíu ára og eldra, óháð því hvaða bólu­efni það fékk. Um 39 þús­und ein­stak­lingar hafa fengið örv­un­ar­skammt.

Góð virkni bóluefnanna gegn delta

„Öll þau bólu­efni sem nú eru á mark­aði voru hönnuð með upp­haf­saf­brigði veirunnar í huga og er það í raun ótrú­legt að þau skuli einnig virka gegn veru­lega umbreyttu delta-formi hennar,“ skrifar Björn Rúnar Lúð­víks­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands og yfir­læknir ónæm­is­fræði­deildar Land­spít­ala, í nýjasta hefti Lækna­blaðs­ins.

Nýlegar nið­ur­stöður sýni að öll bólu­efnin minnki líkur á smitun vegna delta­af­brigð­is­ins um 50-70 pró­sent, líkur á COVID-19 sjúk­dómi um 64-88 pró­sent og öll minnki þau líkur á dauða um 84 pró­sent. Í grein í British Medical Journal (BMJ) kemur m.a. fram að Janssen bólu­efnið virki betur gegn delta-afbrigð­inu en beta – afbrigði sem áður var kennt við Suður-Afríku.

Björn skrifar að árangur bólu­setn­inga hér á landi sé ótví­ræður. Algengi smita meðal óbólu­settra sé 2,6-3 sinnum hærra en meðal bólu­settra og inn­lagnir á Land­spít­ala hafi verið yfir 50 pró­sent færri meðal bólu­settra og 63 pró­sent fátíð­ari á gjör­gæslu­deild. „Þetta er ótrú­lega góður árangur,“ skrifar hann og bætir við að flestir þeir sem lagst hafi inn séu yfir fimm­tugu og oft með aðra und­ir­liggj­andi áhættu­þætti.

Hann segir fyr­ir­liggj­andi gögn um örvun bólu­setn­inga meðal ónæm­is­bældra, sem eru um 3 pró­sent íslensku þjóð­ar­innar, vera nokkuð afger­andi en ekki rann­sökuð til fulls. Hins vegar séu tak­mark­aðar nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi um árangur örv­un­ar­skammts hjá ann­ars heil­brigðu fólki með til­liti til auk­innar verndar gegn delta-afbrigð­inu.

„Meg­in­á­herslan ætti því að mið­ast við að ná til sem flestra til bólu­setn­ingar, með sér­staka áherslu á örv­un­ar­skammt hjá ónæm­is­bældum,“ skrifar hann.

Hjúkrunarfræðingur í Jerúsalem í Ísrael undirbýr bóluefnaskammta.
Hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Jer­úsalem í Ísrael und­ir­býr bólu­efna­skammta.

„Við vitum að þeir sem fengu Janssen, eldra fólk og ónæm­is­bældir ein­stak­lingar mynd­uðu ekki nægi­lega mikið af mótefnum,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir spurður hvort að óyggj­andi gögn um ávinn­ing af örvun bólu­setn­inga liggi fyrir. Hann segir því umdeil­an­legt hvort kalla eigi þær bólu­setn­ingar sem hér er verið að gefa þessum hópum „örv­unar-“ eða „við­bót­ar­bólu­setn­ingar“.

Eiginleg örv­un­ar­bólu­setn­ing sé gefin 3-6 mán­uðum eftir fulla bólu­setn­ingu og Þórólfur segir erlendar rann­sóknir sýna að slíkt örvi mótefna­myndun sem aftur sé talin gefa betri vernd. „Hins vegar hefur ekki liðið nægi­lega langur tími til að svara því hvort mótefna­svör­unin end­ur­pegl­ast í raun­veru­legri vernd.“

Engar ákvarð­anir hafa verið teknar um frek­ari örv­un­ar­bólu­setn­ingar hér á landi og Þórólfur segir leið­bein­ingar Sótt­varna­stofn­unar Evrópu, þar sem ekki er mælt með almennri örvun bólu­setn­inga að svo stöddu, vera í takti við sína sýn á fram­haldið.

Velja ísraelsku-leiðina fram yfir þá íslensku

Þótt óvissa umlyki þann ávinn­ing sem fæst með örvun bólu­setn­inga hafa nokkur ríki haldið í þá óvissu­ferð og sífellt fleiri bæt­ast í hóp­inn. Útlit er fyrir að margir ætli að ganga miklu lengra en Íslend­ingar, fara ísra­elsku leið­ina og hefja örv­un­ar­bólu­setn­ingu allra. Þetta mun hafa áhrif á fram­boð bólu­efna enda fjöl­mennar þjóðir á borð við Þýska­land, Bretland og Banda­ríkin í start­hol­unum að byrja örv­un­ar­her­ferðir.

„Það er ekki hægt að dreifa bólu­efnum sem þú hefur ekki,“ sagði Peter Singer, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri WHO, nýverið um árang­ur­inn af COVAX. Fyr­ir­komu­lagið hafi allt sem þurfi til að dreifa bólu­efnum. Vandinn felist í öðru. Það sé ein­fald­lega of litlu magni til að dreifa.

FJöldabólusetning í Íran.
FJölda­bólu­setn­ing í Íran.

Efnaðari ríki hafa hamstrað efnin, samið um marg­falt magn en þarf til að bólu­setja sína borg­ara og þótt fram­leiðslu­getan hafi einnig marg­fald­ast og eigi enn eftir að aukast ríkir nú hættu­legt milli­bils­á­stand. Ástand sem skapar jarð­veg fyrir far­ald­ur­inn til að blossa upp af ógn­ar­krafti í óbólu­settum sam­fé­lögum fátæk­ustu ríkja heims. Það er þess vegna sem WHO hefur biðlað til ríkja að bíða með örv­un­ar­bólu­setn­ingar. Þó það væri ekki nema í nokkrar vikur.

„Það er hlut­verk sótt­varna­læknis að meta hvort þörf sé á að gefa örv­un­ar­skammta til þess að tryggja að ein­stak­lingar hafi nægi­lega vörn,“ segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra spurð um stefnu stjórn­valda í þessum efnum og hvort hún telji það rétt­læt­an­legt að hefja örvun bólu­setn­inga hér á landi við þessar aðstæður. „Það hefur verið mín stefna hingað til að fylgja hans fag­legu ráð­legg­ingum og það verður stefnan áfram.“

Samhliða sé mik­il­vægt að lönd legg­ist á eitt til að tryggja aðgengi allra jarð­ar­búa að bólu­efni. „Það erum við að gera hér á landi og munum gera áfram, bæði í gegnum COVAX-verk­efnið og með því að gefa umfram­skammta af bólu­efni sem við nýtum ekki hér.“

En hvenær verða til skammtar „umfram“ það sem við ætlum að nýta? 72 pró­sent lands­manna hafa nú verið full­bólu­sett. Auk örv­unar er bólu­setn­ing barna hafin og sam­an­lagt hafa 84 pró­sent 12 ára og eldri verið full­bólu­sett. Um 530 þús­und skammtar hafa verið not­aðir á Íslandi en að minnsta kosti 134 þús­und til við­bótar eru til í land­inu eða á leið hingað á næstu dögum.

Heilbrigðisstarfsmaður að störfum á Indlandi þar sem farið er að ganga hús úr húsi með bóluefni og bjóða fólki bólusetningu.
Heil­brigð­is­starfs­maður að störfum á Indlandi þar sem farið er að ganga hús úr húsi með bólu­efni og bjóða fólki bólu­setn­ingu.

„Ég held að það séu allir sam­mála um að skipt­ing bólu­efna um heim­inn sé órétt­lát,“ segir Henry Alex­ander, „og að við þurfum að gera það sem rétt­látt er. En þegar á hólm­inn er komið verður útkoman alltaf allt önnur. Það er ekk­ert öðru­vísi í þess­ari krísu en þeim fyrri.“

Þeir sem þiggja örv­unar- eða við­bót­ar­skammta hér á landi eru að fara að ráðum yfir­valda og Henry Alex­ander segir rangt að for­dæma það fólk og koma inn hjá því sam­visku­biti. Slíkt beri að var­ast í lengstu lög. „Því þetta er hnatt­rænt vanda­mál sem þarf að taka á af þessum stærstu alþjóð­legu stofn­unum.“

En vand­inn sé sá að það hafi ekki verið hlustað á WHO allt árið. Í stað þess að ganga í takt frá upp­hafi, þegar stóra tæki­færið á því gafst, hafi hvert ríki farið í „heima­varnir“ sem gangi ekki upp. Því það að leyfa far­aldr­inum að „malla“ á ein­hverjum stöðum mun hafa áhrif á alla síðar.

„Mesti áhættu­þátt­ur­inn, sá lang­sterkasti, sem hefur áhrif þegar kemur að COVID-19, er aldur,“ bendir Arnar. „Það er því ekki órök­rétt að horfa á þetta þannig að það borgi sig, til að bjarga sem flestum manns­lífum, að ein­beita sér að bólu­setn­ingum aldr­aðra alls staðar í heim­inum. En það er samt skilj­an­lega erfitt fyrir stjórn­völd í ein­stökum ríkjum að segja: Við ætlum að kaupa fullt af bólu­efni en viljum frekar bólu­setja full­orðið fólk í útlöndum heldur en okkar yngsta fólk.“

Þá komi að mark­mið­unum, hinum sam­eig­in­legu mark­miðum til að vinna á veirunni með vís­indin að vopni.

Karlmaður af Mahmeri-þjóðinni mætti í fjörlegum búningi til bólusetningar í Kuala Lumpur, höfuðborg Malasíu.
Karl­maður af Mahmeri-þjóð­inni mætti í fjör­legum bún­ingi til bólu­setn­ingar í Kuala Lumpur, höf­uð­borg Malasíu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði nýverið, spurð um rétt­mæti örv­un­ar­bólu­setn­inga, að það væri frum­skylda íslenskra stjórn­valda að vernda líf og heilsu sinna borg­ara. Þetta finnst Henry Alex­ander óheppi­legt orða­lag, frum­skylda sé „býsna stórt orð“. Hann minnir á að orð­ræða sem þessi hafi áhrif úti í heimi. „Vest­ur­lönd segja: Við ætlum að passa okkur fyrst og fremst en svo fáið þið rest.“

Umræða um ein­stök bólu­efni rati einnig til fátæk­ari ríkja. Það sé t.d. raunin varð­andi AstraZeneca, bólu­efnið sem nokkur vest­ræn ríki höfn­uðu. Þetta er svo efnið sem sent hefur verið í stórum stíl til Afríku, m.a. vegna þess að það er auð­veld­ara að með­höndla, t.d. geyma, en flest önnur. „En þau fengu þær fréttir að Evr­ópu­lönd vildu ekki þetta bólu­efni. Þeirra upp­lifun er að þau séu að fá það sem mæti afgangi, að það sé ekk­ert átak í gangi í því að koma bólu­efnum til þeirra. Það voru skila­boðin og þau eru hættu­leg.“

Fór í bólusetningu í Afríku öðrum til hvatningar

Henry Alex­ander þekkir þetta frá fyrstu hendi. Hann var í Síerra Leóne í Afríku fyrstu sex mán­uði árs­ins. „Ég ætl­aði alls ekki að fá bólu­setn­ingu þar, ég ætl­aði að bíða þar til ég kæmi heim. En ég lenti í þeirri furðu­legu stöðu að fara í bólu­setn­ingu því ég vildi sýna öðrum að ég væri ekki hræddur við þetta bólu­efni [AstraZeneca] og hvetja þannig aðra til að gera slíkt hið sama.“

Vanda­málið sé ekki lengur aðeins það að koma bólu­efnum til ann­arra heims­hluta heldur að vinna til baka það traust sem grafið hefur verið undan með orð­ræð­unni. „Þetta hefði þurft að ger­ast með ein­hverjum brag og sóma. Og ef við pössum okkur ekki þá gæti þetta endað með því að fólk þiggi ekki bólu­efni.“ Það gæti svo aftur í versta falli endað með for­dæma­lausum aðgerðum, jafn­vel afkvíun heims­hluta, sem hefðu enn skelfi­legri afleið­ingar í för með sér.

Öldruð manneskja fær bólusetningu í Kenía.
Öldruð mann­eskja fær bólu­setn­ingu í Kenía.

Vörn bólu­efna er flókið fyr­ir­bæri. Það er fleira en mótefna­svarið sjálft sem þar skiptir máli. Það er ekki klippt og skorið að gera rann­sóknir á virkn­inni þegar raun­veru­leik­inn tekur við því í honum er hegðun fólks stór breyta. Hegðun, sem ýmsar sam­fé­lags­legar tak­mark­anir sem settar voru á í far­aldr­inum höfðu mikil áhrif á. Einnig skiptir tíðni smita máli, hvaða ald­urs­hópar eru smit­aðir og vit­an­lega afbrigðin.

Þegar yfir­völd í Ísrael ákváðu að gefa örv­un­ar­skammta var hegðun Ísraela breytt frá því nokkrum vikum fyrr. Slíkir þættir gætu að mati margra vís­inda­manna, líkt og rakið er í nýlegri umfjöllun New York Times, haft áhrif á nið­ur­stöður rann­sóknar um dvín­andi virkni bólu­efnis Pfizer og þótti rétt­læta örvun.

Þessar rann­sókn­ar­nið­ur­stöður röt­uðu í fyr­ir­sagnir frétta um allan heim og höfðu áhrif á þá ákvörðun rík­is­stjórnar Joes Biden Banda­ríkja­for­seta að hvetja alla Banda­ríkja­menn til að fara í örv­un­ar­bólu­setn­ingu átta mán­uðum eftir fyrri skammt­ana tvo.

Verndin sem bólu­efnin veita dvínar með tím­anum. Um það er ekki deilt en „það er stór­kost­legur munur á því að þurfa sprautu á sex mán­aða fresti eða fimm ára fresti,“ segir David Dowdy, far­alds­fræð­ingur við John Hopkins-háskóla, við New York Times um hvenær örv­unar gæti orðið þörf. „Enn sem komið er, miðað við þau gögn sem við höfum, þá sé ég ekki miklar sann­anir fyrir því að við séum komin að þeim tíma­punkti.“

Arnar segir minnk­andi vörn með tíma fyr­ir­sjá­an­lega en „óvissan er um hversu mikið og hversu hratt minnkar vörnin. Og minnkar hún meira fyrir vörn gegn smiti, eða vörn gegn alvar­legum ein­kennum?“

Við fyrstu sýn virð­ist nið­ur­staða ísra­elsku rann­sókn­ar­innar nokkuð skýr: Fólk sem var bólu­sett snemma á árinu var lík­legra til að smit­ast en þeir sem höfðu fengið bólu­setn­ingu í vor. En þetta er aðeins rétt ályktun ef hóp­arnir eru sam­bæri­legir og aðstæður þeirra einnig.

Það eru þeir ekki fylli­lega.

Í fyrri hópnum var t.d. mennt­un­ar­stig að með­al­tali hærra og sömu­leiðis tekjur. Þetta gæti þýtt að hann hafi til dæmis verið viljugri til að ferð­ast og þar með orðið útsett­ari fyrir smiti.

„Þetta er einmitt málið með óviss­una sem ein­kennir vís­indin,“ segir Arnar. „Margir þættir hafa áhrif á lík­urnar á smiti, og það er erfitt að greina áhrif þeirra sundur, til dæmis ef þættir eins og atferli og aldur eru sam­tvinnuð. Við erum skyni­bornar skepnur. Við breytum hegðun okkar út frá upp­lýs­ingum sem við fáum. Fólk upp­lifði sig örugg­ara með bólu­setn­ingu og varð félags­lynd­ara og ferða­glað­ara. Með öðrum orðum, það spil­aði þannig oftar í covid-rúl­lett­unni en áður. Og það getur verið stór þáttur í nið­ur­stöðum rann­sókna.“ .

Ung stúlka fær bólusetningu í Kambódíu.
Ung stúlka fær bólu­setn­ingu í Kambódíu.

Þótt hin ísra­elska rann­sókn hafi sýnt að full­bólu­settir væru að smit­ast og veikj­ast þá benda margar rann­sóknir til þess að vörn bólu­efn­anna gegn alvar­legum veik­indum sé enn mjög góð og næstum því á pari við það sem hún var áður en delta-afbrigðið kom til sög­unnar.

„Bólu­efnin sem lækn­is­fræði­leg aðferð eru alveg ótrú­lega góð,“ segir Arnar með áherslu. „En það er áfram full ástæða fyrir bólu­sett fólk að fara gæti­lega.“

Það eru rök fyrir því að gefa við­kvæmum hópum við­bót­ar­bólu­setn­ingu. Um þetta eru bæði Sótt­varna­stofnun Evrópu og Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin sam­mála. Hins vegar mælir hvorug þeirra með örvun bólu­setn­inga heil­brigðs, ungs fólks á þessum tíma­punkti. Síend­ur­tekin bólu­setn­ing fjöl­mennra hópa með nokk­urra mán­aða milli­bili er auk þess kostn­að­ar­söm og eykur álag á þegar önnum kafið heil­brigð­is­starfs­fólk. Hún ætti því ekki að vera for­gangs­mál nema að vís­inda­lega vel athug­uðu máli, sér í lagi á tímum þar sem bólu­efni gegn COVID-19 eru enn af skornum skammti.

Mest vernd með fyrstu skömmtum

„Sú aukna vernd sem heil­brigður ein­stak­lingur fær við örv­un­ar­bólu­setn­ingu er að með­al­tali ein­hver en alltaf lítil miðað við þá vernd sem óbólu­settur ein­stak­lingur fær við einn eða tvo skammta,“ segir Arnar. „Þannig að ef við viljum hámarka vernd­ina sem fæst út úr hverjum bólu­efna­skammti þá er áhrifa­rík­ast að bólu­setja sem flesta með tveimur skömmtum áður en farið er að örva með þeim þriðja.“

Ungur karlmaður fær bólusetningu í Mexíkó.
Ungur karl­maður fær bólu­setn­ingu í Mexíkó.

Fræðileg líkön um þróun líf­vera sem eru að aðlag­ast nýjum aðstæðum eiga við veiruna einnig. Fyr­ir­sjá­an­legt er að fyrstu þró­un­ar­skrefin eru stór en svo minnka þau. Það er því ólík­legt að smit­hæfni kór­ónu­veirunnar sem veldur COVID-19 muni aukast um tugi pró­senta í hverju þró­un­ar­skrefi sem hún tekur. „En hún gæti samt hlaupið á ein­hverjum pró­sentum sem yrði alltaf veru­legt vanda­mál,“ segir Arnar.

Henry Alex­ander seg­ist skilja að sam­fé­lög hafi lokað sig af í upp­hafi far­ald­urs nýs sjúk­dóms „en mars og apríl árið 2020 eru allt aðrir tímar en ágúst og sept­em­ber árið 2021“. Það hafi verið mikið vís­inda­afrek að þróa bólu­efni fljótt. Hins vegar hafi tæki­færið til að ná hámarks­ár­angri í bar­átt­unni ekki verið nýtt. „Það er það veru­lega sorg­lega í þessu.“

Arnar segir að héðan af sé ólík­legt að það tak­ist að útrýma veirunni algjör­lega. „Besta fram­tíð­ar­sýnin er að ná að bólu­setja sem flesta í heim­inum og halda far­aldr­inum stað­bundið í skefjum þannig að það verði ekki til ill­víg­ari afbrigði. Að við náum að beisla hana.

Það er lík­legt en ekki öruggt að með árunum þró­ist hún á þann veg að verða mild­ari og hafi ekki jafn slæm áhrif. Önnur sviðs­mynd er að við verðum eftir ein­hvern tíma næstum öll búin að smit­ast og þá komi upp hjarð­ó­næmi. Hvort verður ofan á er erfitt að spá fyrir um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár