„Sársaukinn við dæluna“ eykst: Lítrinn orðinn 72 prósentum dýrari en fyrir tveimur árum

Verð á lítra af bens­íni á Íslandi er í dag frá tæpum 320 krónum upp í rúmar 350 krónur, þar sem það er dýr­ast. Olíu­fé­lögin eru ein­ungis að taka til sín tæp 11 pró­sent af krón­unum sem greiddar eru fyrir hvern seldan lítra um þessar mundir.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi er nú 341 krónur á lítra og stekkur lítra­verðið upp um 33,9 krónur frá fyrri mán­uði. Það er stærsta stökk sem orðið hefur á milli mán­aða, að minnsta kosti frá árinu 2007, sam­kvæmt því sem lesa má út úr nýj­ustu bens­ín­vakt Kjarnans.

Verðið á bens­íni hefur aldrei verið hærra á Íslandi í krónum talið og kostar bens­ín­lítr­inn nú 72 pró­sentum meira en fyrir tveimur árum og 27 pró­sentum meira en í jan­ú­ar­mán­uði.

Hlutur rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 155,4 krónur krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 45,6 pró­sent af hverjum lítra fer í rík­is­sjóð. Hlutur rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra hefur aldrei verið hærri í krónum talið.

Mik­il­vægt er að hafa í huga að við­mið­un­­ar­verðið sem hér er gengið út frá, 341 króna á lítra, miðar við næst­lægstu verð­­­­­­tölu í yfir­­­­­­lit­i síð­­­­­unnar Bens­ín­verð.is, sem hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tækið Seiður heldur úti, til að forð­­­­­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­­­­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­­­­­ar­verðið er þó ætíð með lægstu verð­­­­­um.

Hæstu verð á bens­íni í dag er nú 352 krónur á bens­ín­lítra, á ýmsum bens­ín­­stöðvum N1, en lægsta verðið er 318,7 krónur á lítra, á bens­ín­­stöð Costco. Verðið er svo ögn hærra eða tæpar 321 krónur á völdum bens­ín­stöðvum Orkunnar, ÓB og Atl­antsolíu.

Það munar því sem stendur stendur 10,4 pró­­sentum á hæsta og lægsta verð­i bens­ín­líters­ins á Íslandi.

Olíufélögin að taka til sín tæp 11 prósent af hverjum seldum lítra

Inn­kaupa­verð á bens­ín­lítr­anum ræðst einkum af tveimur þáttum: heims­mark­aðs­verði á olíu og gengi krón­unnar gagn­vart banda­ríkja­dal. Báðir þessir þættir hafa sveifl­ast mjög á und­an­förnu.

Samkvæmt því sem fram kemur í bens­ín­vakt Kjarnans er lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna á lítr­anum í dag 148,53 krónur, sem sam­svarar 17 pró­sent hækkun á milli mán­aða. Til sam­an­burðar var lík­legt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna ein­ungis 69,1 króna á líter­inn í des­em­ber­mán­uði og hefur því hækka um 114 pró­sent síðan þá.

Miðað við það er hlutur olíu­fé­lag­anna af hverjum seldum lítra að rísa aðeins á milli mán­aða og er nú 37,07 krónur á hvern seldan lítra. Inni í þess­ari tölu er álagn­ing, auk kostn­aðar við flutn­inga og trygg­ingar, en þær upp­lýs­ingar liggja ekki opin­ber­lega fyrir og því er ekki hægt að reikna álagn­ingu olíu­fé­lags­ins sér­stak­lega.

Vís­bend­ingar eru þó um að olíu­fé­lögin séu enn ekki búin að skila hækk­unum á inn­kaupa­verði að fullu út í sína eigin verð­lagn­ingu, en olíu­fé­lögin eru um þessar mundir að taka um 10,9 pró­sent af verði hvers lítra til sín, sem er við lægri mörk þess sem verið hefur raunin á und­an­förnum árum, en algengt hefur verið að olíu­fé­lögin taki til sín um 15-20 pró­sent af krón­unum sem bens­ín­lítr­inn kostar.

Ný útfærsla umferðargjalda á leiðinni

Eins og fjallað var um í vik­unni hafa stjórn­völd ákveðið að flýta inn­leið­ingu nýrra gjalda vegna umferðar og elds­neytis. Gert er ráð fyrir því að þessum nýju gjöldum skili 3,4 millj­örðum í rík­is­kass­ann, strax á næsta ári, en þessi nýja skatt­lagn­ing á akstur hefur ekki verið útfærð nákvæm­lega.

Ljóst er þó að henni sé ætlað að ná að ein­hverju fé í rík­is­sjóð þeim sem í dag keyra um á raf­bíl og láta sér þær miklu bens­ín­verðs­hækk­anir sem nú ganga yfir í léttu rúmi liggja.

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar lagði til í nefnd­ar­á­liti sínu að við breytta skatt­lagn­ingu að meðal ann­ars yrði horft til þyngdar öku­tækja og lagði það fyrir rík­is­stjórn­ina að láta breyt­ingar sem end­ur­spegla notkun allra öku­tækja á vega­kerf­inu.

Samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, er tekju­öfl­un­ar­kerfið „í smíðum“ og með því „horft til þess að gera gjald­töku ein­fald­ari og aðgengi­legri og að fyr­ir­komu­lagið mið­ist í auknum mæli við notkun og sam­ræm­ist þörf á áfram­hald­andi útgjöldum við nýfram­kvæmdir, við­hald og rekstur vega­kerf­is­ins“.

Við lok síð­asta árs voru um 292 þús­und bensín- og dísel­bílar á Íslandi en rúm­lega 21 þús­und bílar sem ganga fyrir raf­magni eða eru með raf­tengi.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­ur­staða útreikn­inga og áætl­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­ar­verð er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­falls­leg­ir. Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­legt inn­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­stand­andi mán­uði frá Seðla­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­punkti vegna lag­er­stöðu, skamm­tíma­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­upp­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­um. Mis­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­stærð enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­ber­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­ar­við­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­upp­lýs­ingar mið­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­færð mán­að­ar­lega í kringum 15. hvers mán­að­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­ur, lag­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið undanfarið ár