Sjálfstæðisflokkurinn mælist með lægsta fylgi sitt í sögunni en meirihlutinn rígheldur

Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist í fyrsta sinn með mann inni, Sam­fylk­ingin nálg­ast kjör­fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn heldur áfram að dala. Hörð bar­átta er milli Sós­í­alista­flokks­ins, Flokks fólks­ins, Fram­sóknar og Við­reisnar um tvo síð­ustu menn inn.

Sam­fylk­ingin er stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar. Fylgi flokks­ins mælist 30,8 pró­sent sem myndi skila honum átta borg­ar­full­trúum. Sam­fylk­ingin er mun nær því að ná inn níunda manni á lista en að tapa þeim átt­unda. Fylgi flokks­ins hefur ekki mælst meira frá því í byrjun apríl, en borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fara fram eftir rúma viku, laug­ar­dag­inn 26. maí. Það er nú mjög nálægt því fylgi sem Sam­fylk­ingin fékk í kosn­ing­unum 2014, þegar hún fékk 31,9 pró­sent.

Á meðan að fylgið hefur verið að aukast hjá Sam­fylk­ingu hefur það verið að dala nokkuð hratt hjá hinum stóra flokknum í Reykja­vík, Sjálf­stæð­is­flokki. Nýjasta kosn­inga­spáin mælir 25 pró­sent fylgi við flokk­inn. Það er sex pró­sentu­stigum minna en það mæld­ist í byrjun mars og það lægsta sem fylgið hefur mælst í spánni það sem af er ári. Ef þetta yrði nið­ur­staðan myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sína verstu nið­ur­stöðu í Reykja­vík í sög­unni. Það met var sett 2014 þegar flokk­ur­inn fékk 25,7 pró­sent atkvæða með Halldór Hall­dórs­son sem odd­vita. Nú hefur Eyþór Arnalds tekið við því kefli.

Fylgi framboða í Reykjavík samkvæmt kosningaspánni 17. maí 2018.
Fylgi fram­boða í Reykja­vík sam­kvæmt kosn­inga­spánni 17. maí 2018.

Fjórð­ungs­fylgi myndi skila Sjálf­stæð­is­flokknum sjö borg­ar­full­trúum en fylgið má ekki lækka mikið til að flokk­ur­inn missi einn í við­bót og sitji eftir með sex full­trúa.

Meirihlutinn heldur

Vinstri græn og Píratar myndu fá tvo borg­ar­full­trúa hvor ef kosið yrði í dag. Báðir flokkar hafa þó verið að tapa fylgi á und­an­förnum vikum og mæl­ast nú með minnsta fylgi sem þeir hafa mælst með frá því að kosn­inga­spáin hóf mæl­ingar fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Alls segj­ast 8,7 pró­sent kjós­enda að þeir ætli að kjósa Vinstri græn, sem er mjög svipað fylgi og flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum 2014, sem var 8,3 pró­sent.

Píratar fengu þá 5,9 pró­sent fylgi og í fyrsta sinn mann kjör­inn í borg­ar­stjórn. Nú mælist fylgið 8,9 pró­sent og ljóst að Píratar eru á hrað­leið í átt að því að bæta vel við sig á milli kosn­inga. Raunar er flokk­ur­inn sá flokkur á meðal þeirra sem eiga nú þegar borg­ar­full­trúa sem bætir mestu við sig, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Sitjandi meiri­hluti myndi því halda nokkuð örugg­lega ef kosið yrði í dag með tólf borg­ar­full­trúa gegn ell­efu og er nær því að bæta við sig einum en að meiri­hlut­inn falli.

Sósíalistaflokkurinn næði manni inn

Þau merki­legu tíð­indi eiga sér nú stað að Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist í fyrsta sinn með borg­ar­full­trúa inni, sem yrði þá Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti flokks­ins. Alls segj­ast 3,1 pró­sent að þeir ætli að kjósa flokk­inn. Það er sama fylgi og Flokkur fólks­ins mælist með sem myndi skila Kolbrúnu Bald­urs­dóttur í borg­ar­stjórn.

Sætaspá kosn­inga­spár­innar, sem er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var 17. maí, sýnir að þær tvær eru næsta til að detta út. Það þarf því ekki að skeika miklu til að hvor­ugur flokk­ur­inn nái inn manni og mun það lík­ast til ráð­ast á kosn­inga­þátt­töku hvort af því verði.

Mið­flokk­ur­inn myndi einnig ná inn einum manni inn, sem yrði Vigdís Hauks­dóttir. Fylgi við flokk­inn mælist sex pró­sent sem er minnsta fylgi sem mælst hefur við Mið­flokk­inn í tæpan mánuð.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokks Íslands, mælist nú inni í borgarstjórn.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, mælist nú inni í borg­ar­stjórn.

Viðreisn hefur mælst með nokkuð stöðugt fylgi á bil­inu 6,6-7,6 pró­sent í þeim kosn­inga­spám sem gerðar hafa verið í vor. Fylgið er nú við lægri mörk þess bils sem myndi skila Þórdísi Lóu Þór­halls­dóttur í borg­ar­stjórn en skilja Pawel Bartozcek eftir utan hennar.

Pawel er þó á meðal tveggja næstu manna inn ásamt Ingvari Mar Jónssyni, fyrsti maður á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins. Framsókn fær þann vafa­sama heiður að vera sá flokkur sem tapar mestu fylgi á milli kosn­inga, ef Björt fram­tíð sem er ekki í fram­boði er frá­talin. Flokk­ur­inn fékk 10,7 pró­sent árið 2014 en mælist nú með 2,9 pró­sent fylgi. Það er mjög nálægt versta kjör­fylgi Fram­sóknar í Reykja­vík frá upp­hafi árið 2010, þegar Einar Skúlason leiddi flokk­inn með þeim afköstum að 2,7 pró­sent kjós­enda kusu hann.

Átta flokkar – átta flokkar úti

Alls skil­uðu 16 fram­boð inn gildum fram­boðs­listum þegar frestur til slíks rann út. Fram­boðin hafa aldrei verið fleiri. Eins og staðan er í dag segj­ast 7,8 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa flokka sem ekki myndu ná inn manni. Inni í þeirri tölu er fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Það hlut­fall var 1,5 pró­sent í kosn­inga­spánni 5. apríl.

Af þeim fram­boðum sem hafa ekki verið nefnd hér er Kvenna­hreyf­ingin að mæl­ast með mest fylgi. Alls segj­ast 1,7 pró­sent kjós­enda að þeir myndu kjósa hana ef kosið yrði í dag.

Eins og staðan er í dag myndu borg­ar­full­trú­arnir skipt­ast með eft­ir­far­andi hætti:

  • Sam­fylk­ing myndi fá átta borg­ar­full­trúa
  • Sjálf­stæð­is­flokkur myndi fá sjö borg­ar­full­trúa
  • Píratar myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Vinstri græn myndu fá tvo borg­ar­full­trúa
  • Viðreisn myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Mið­flokk­ur­inn myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Flokkur fólks­ins myndi fá einn borg­ar­full­trúa
  • Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá einn borg­ar­full­trúa

„Snjókornin“ í sterkri stöðu

Það virð­ist því, eins og staðan er í dag rúmri viku fyrir kosn­ingar, mjög lík­legt að flokkar sem til­heyra mengi sem skil­greinir sig annað hvort sem frjáls­lynda eða til vinstri, muni mynda næsta meiri­hluta í Reykja­vík. Inni í því mengi eru sitj­andi meiri­hluti og Viðreisn. Þessir flokkar hafa lagt hafa áherslu á þétt­ingu byggðar, auknar almenn­ings­sam­göngur á borð við Borg­ar­línu og greið­ari umferð fyrir hjólandi veg­far­endur, jafnt út frá lífs­gæða­sjón­ar­miðum sem umhverf­is­legum. Innan þessa hóps er það nokkuð almenn skoðun að Reykja­vík­ur­flug­völlur eigi að víkja úr Vatns­mýr­inni fyrir byggð. Fylk­ingin er með sterkar félags­legar áherslur sem end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í útþenslu stjórn­kerf­is­ins og upp­kaupum á félags­legu hús­næði langt umfram það sem þekk­ist í nágranna­sveita­fé­lög­unum. Þetta myndi fá þrettán borg­ar­full­trúa ef kosið yrði í dag.

Til við­bótar eru Sós­í­alista­flokk­ur­inn að mæl­ast með einn borg­ar­full­trúa. Telja verður lík­legra að ofan­greindir flokkar myndu verða álit­legri sam­starfs­flokkar hans en aðrir sem nú mæl­ast með nægj­an­legt fylgi til að kom­ast í borg­ar­stjórn, hafi Sós­í­alista­flokk­ur­inn yfir höfuð áhuga á að taka þátt í meiri­hluta­sam­starfi.

Ofan­greindir flokkar mæl­ast nú með 58,1 pró­sent atkvæða.

Litlar líkur á að Sjálfstæðisflokkur komist í meirihluta

Þegar Eyþór Arnalds sigr­aði í leið­toga­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks í lok jan­úar síð­ast­lið­ins sagði hann við Vísi að hann teldi „góðar líkur á að hann kom­ist í meiri­hluta og vinni kosn­inga­sigur í vor.“ Það virð­ist þó ólík­legt eins og staðan er nú.

Eyþór Arnalds kynnti kosningaloforð Sjálfstæðisflokks fyrir mánuði síðan. Fylgi flokksins hefur dalað nokkuð síðan þá.
Eyþór Arnalds kynnti kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks fyrir mán­uði síðan. Fylgi flokks­ins hefur dalað nokkuð síðan þá.


Ástæðu þess er ekki ein­ungis að leita í sögu­lega litlu fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, heldur einnig í því að þegar hafa nokkrir flokkar hafnað því að starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum eftir kom­andi kosn­ingar.

Nú þegar hafa Sam­fylk­ingin, Vinstri græn og Píratar, sem mynda saman meiri­hluta í borg­inni eins og er, sagt að þeir muni ekki vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum. Miðað við kosn­inga­á­herslur Við­reisnar þá virð­ast þær ríma mun betur við áherslur sitj­andi meiri­hluta en áherslur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þótt efsta fólkið á lista Við­reisnar hafi ekki úti­lokað sam­starf við gamla móð­ur­flokk­inn opin­ber­lega. Borð­leggj­andi er að Sós­í­alista­flokkur Íslands muni ekki starfa með Sjálf­stæð­is­flokknum undir neinum kring­um­stæðum.

Þeir flokkar sem nefndir hafa verið hér að ofan mæl­ast sem stendur með 14 borg­ar­full­trúa af 23.

Þá standa eftir Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins.

Þessi fylk­ing hefur lagt meg­in­á­herslu á betra umferð­ar­flæði þar sem einka­bíll­inn er í fyr­ir­rúmi, bygg­ingu stór­tækra umferð­ar­mann­virkja á borð við mis­læg gatna­mót, frek­ari upp­bygg­ingu hús­næðis í útjaðri borg­ar­innar, straum­línu­lögun rekstrar, lækkun skulda og skatta. Þar er nokkuð almenn and­staða við það að Reykja­vík­ur­flug­völlur víki og Borg­ar­línu­verk­efnið er veru­lega tor­tryggt. Henni finnst að meg­in­á­herslan eigi að vera á að bæta grunn­þjón­ustu á borð við dag­vistun barna og betri umhirðu í borg­ar­land­inu. Sam­an­lagt mælist hún með níu borg­ar­full­trúa og tveir þeirra eru í umtals­verðri hættu á að detta út. Ef Fram­sókn­ar­flokknum yrði bætt við fylk­ing­una, þar sem áherslur hans eru um margt svip­aðar, er fylgi hennar ein­ungis 37 pró­sent.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni (17. maí) eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23. – 25. apríl (32,3 pró­semt)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 7. maí (25,5 pró­sent)
  • Gallup fyrir Við­skipta­blaðið 2. – 14. maí (42,2 pró­sent)

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár