Þungt fyrir fæti Baráttan við Covid-19 veiruna hefur reynst þung og erfið. Í fram­lín­unni hefur heil­brigðs­starfs­fólk staðið af ótrú­legum dug og hörku. Á sama tíma hafa þau sýnt veiku fólki og aðstand­endum þeirra mildi og kær­leika. Fyrir þeirra fram­lag eru aðstand­endur þeirra sem lát­ist hafa ævin­lega þakk­lát. Mynd: Landspítali / Þorkell Þorkelsson

Fólkið sem við höfum misst

Íslenskt sam­fé­lag hefur þurft að takast á við missi og sorg af völdum COVID-19 kór­óna­veirunnar. Tíu manns sem greinst hafa með veiruna eru látin. Aðstand­endur hafa haft tak­mörkuð færi á að kveðja fólkið sitt og lýsa sorg yfir að það hafi verið eitt þegar það skildi við.

Tíu manns sem greinst hafa með COVID-19 kór­óna­veiruna hafa lát­ist á Íslandi. Ætt­ingjar þeirra sem fallnir eru frá lýsa óraun­veru­leika­til­finn­ingu, því hvernig þeim finnst þau ekki hafa haft færi á að kveðja fólkið sitt og hversu sorg­legt það sé að ætt­ingjar þeirra hafi verið einir þegar þeir skildu við þennan heim. Þau lýsa miklu þakk­læti í garð heil­brigð­is­starfs­fólks sem þau lýsa sem óeig­in­gjörnum hetjum. Þau syrgja fólkið sitt en hugga sig við góðar minn­ingar.

Fyrsta dauðs­fallið sem tengt hefur verið veiru­faldr­inum var and­lát átralsks ferða­manns sem kom mikið veikur á Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands á Húsavík og lést þar skömmu eftir kom­una. Einkenni veik­inda manns­ins voru þó ekki dæmi­gerð fyrir COVID-19. Stundin hafði sam­band við unn­ustu manns­ins, sem var á fer­tugs­aldri og búsettur í Melbourne. Hún þakk­aði fyrir hjálp­semi Íslend­inga og vel­vild en baðst undan við­tali, þar eð ekki væri að fullu ljóst að unnusti hennar hefði lát­ist af völdum COVID-19 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár