Heimsmarkaðsverð á olíu ekki lægra síðan 2002 – Verð á lítra hér lækkað um nokkrar krónur

Heims­mark­aðs­verð á olíu hefur verið í frjálsu falli á síð­ustu vikum. Frá ára­mótum hefur það lækkað um 68 pró­sent. Á Íslandi hefur við­mið­un­ar­verð á seldum bens­ín­lítra lækkað um 3,4 pró­sent frá því um miðjan jan­úar.

Heims­mark­aðs­verð á Brent hrá­olíu féll í gær um tíma niður fyrir 22 dali á tunnu, en enda dag­inn í 22,15 dölum á tunnu. Þann 21. febr­úar síð­ast­lið­inn var það 58,5 dalir og hefur því lækkað um 62 pró­sent á rúmum mán­uði.

Þegar miðað er við stöð­una í byrjun árs, þegar tunnan kost­aði 68,6 dali, þá hefur verðið lækkað um rúm­lega tvo þriðju.

Verðið á Brent hrá­olíu hefur ekki verið lægra frá árinu 2002. Verð á hrá­olíu í Banda­ríkj­unum er komið vel undir 20 dali á tunnu og grein­endur virð­ast flestir sam­mála um að lækk­un­ar­hrinan sé ekki yfir­staðin. Hún muni halda áfram í apríl.

Ástæðan fyrir þessum miklu lækkum eru tví­þættar. Sú fyrri er miklu minni eft­ir­spurn, meðal ann­ars vegna þess að flug­ferðir hafa að mestu verið aflagðar. Raunar er um að ræða mesta sam­drátt í eft­ir­spurn á olíu sem átt hefur sér stað, nokkru sinni.

Hin ástæðan er ákvörðun Sádí-Arabíu, stærsta olíu­fram­leið­anda í heimi, í byrjun mán­aðar að stór­auka fram­leiðslu sína í stað þess að draga úr henni til að reyna að ná verðum aftur upp. Þetta gerður Sádar til að meðal ann­ars vegna þess að ekki náð­ist sam­komu­lag við Rússa um að þeir myndu tak­marka olíu­fram­leiðslu sína.

Sádí-Arabía getur fram­leitt olíu fyrir miklu minni til­kostnað en flest önnur ríki og er því í stöðu til að taka á sig slíkan skell í verði. Áhrifin á fram­leiðslu í Banda­ríkj­unum, Kanada, Kína og Noregi eru hins vegar mikil, þar sem sárs­auka­mörkin í kostn­aði við fram­leiðslu þar eru mun hærri.

Viðviðunarverð þokast hægt niður á við hérlendis

Þessi gríð­ar­lega lækkun hefur sann­ar­lega ekki skilað sér í elds­neyt­is­verð á Íslandi enn sem komið er. Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hefur lækkað um 3,4 pró­sent frá miðjum jan­úar 2020 og fram í miðjan yfir­stand­andi mars­mánuð. Við­mið­un­ar­verðið var 217,1 krónur á lítra í jan­úar en var 209,8 krónur á lítra 15. mars síð­ast­lið­inn.

Þetta má sjá í nýlega birtri Bens­ín­vakt Kjarn­ans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is.

Bens­ín­verð var á mjög svip­uðum slóðum um miðjan jan­úar og það var á sama tíma fyrir ári, þegar bens­ín­lítr­inn kost­aði að jafn­­aði 215,5 krón­­ur. Gengi krónu gagn­vart Banda­­ríkja­dal ­hækk­aði lít­il­lega á árinu 2019, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­neyt­is­verðs hér­lendis þar sem að inn­kaup á elds­neyti fara fram í döl­u­m.

Á þessu ári hefur gengi krón­unnar fallið hratt, alls um 15,5 pró­sent, gagn­vart dal. Heims­­­mark­aðs­verð á olíu hefur hins vegar fallið um 68 pró­sent það sem af er ári, líkt og áður var rakið. Hin mikla lækkun á olíu­verði skiptir miklu máli í þeirri þróun hér­lendis að þótt krónan hafi fallið hratt þá hefur verð­bólga ekki látið á sér kræla. Þvert á móti hefur hún hjaðnað.

Algengasta verð lækkað lítið

Þegar horft er á verð­þróun hjá hverju fyr­ir­tæki fyrir sig frá því um síð­ustu ára­mót þá hefur verðið lækkað lang­mest hjá Costco. Þar var verðið í byrjun jan­úar 198,8 krónur á lítra en er nú 180,9 krónur á lítra. Verðið hefur því lækkað um níu pró­sent.

Næst ódýrasta bens­ínið er á völdum stöðvum Orkunnar, þar sem það er 193,8 krónur, og á völdum Atl­antsolíu og ÓB, þar sem það er 193,9 krónur á lítra.

Dýrast er verðið á ýmsum stöðvum Orkunnar, sér­stak­lega á lands­byggð­inni, þar sem það er 222,6 krónur. Skammt utan kemur algeng­asta verð hjá N1 og Atl­antsolíu, á sumum stöðvum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en flestum á lands­byggð­inni, þar sem það er 221,9 krónur á lítra.

Algeng­asta verðið hjá N1, sem rekur flestar elds­neyt­is­stöðvar allra á land­inu, hefur lækkað um átta pró­sent á þessu ári.

Vert er að taka fram að töl­urnar um verð hjá hverjum elds­neyt­is­sala fyrir sig eru aðeins nýrri en við­mið­un­ar­verðið í Bens­ín­vakt­inni og miða við fram­sett verð 29. mars eins og það er birt í sam­an­burð­art­öflu á síð­unni Aurbjörg.is.

Hlutur rík­­is­ins í hverjum lítra 57,7 pró­­sent

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 21,02 pró­­­sent af verði hans um miðjan mars í sér­­­stakt bens­ín­gjald, 13,4 pró­­­sent í almennt bens­ín­­­gjald og 3,93 pró­­­sent í kolefn­is­­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­­ur.

Sam­an­lagt fór því 121,05 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­­is­ins, eða 57,7 pró­­­sent. Hæstur fór hlutur rík­­­is­ins í 60,26 pró­­­sent í júlí 2017.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar einnig út lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­­punkti vegna lag­er­­­stöðu, skamm­­­tíma­­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­­upp­­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­­um. Mis­­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­­­leitt mjög lít­ill.

Lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð í síð­­­­­ustu birtu Bens­ín­vakt var 50,6 krónur á lítra. Um miðjan jan­úar var það 57 krónur á lítra.

Hlut­­fall olíu­­­fé­laga fer lækk­­andi

Bens­ín­vaktin reiknar loks út hlut olíu­­­­­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­­­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­­­ar­liði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíu­­­­­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 38,85 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Í maí 2017 fengu olíu­­­­­fé­lög­in, til sam­an­burð­ar, 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra.

Olíu­­­­­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 18,52 pró­­­sent af hverjum seldum olíu­­­lítra, sem er með því lægra sem þau hafa tekið til sín á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið undanfarið ár