Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjölmiðlar seldir fyrir rimlagjöldum án vitundar stærsta eiganda

Nær allir fjöl­miðlar Pressunnar voru seldir í byrjun viku fyrir um nokkur hund­ruð millj­ónir króna. Kaup­verð­inu var ráð­stafað í van­greidd opin­ber gjöld og greiðslu krafna með sjálf­skuld­ar­á­byrgð. Stærsti eig­andi Pressunnar vissi ekk­ert.

Flestir fjöl­miðlar Pressu­sam­steypunnar hafa verið seldir til nýs félags, Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Um er að ræða DV, DV.is, Pressuna, Eyjuna, Bleikt, ÍNN og tengda vefi. Eftir í gamla eign­ar­halds­fé­lag­inu voru skildir hér­aðs­frétta­miðlar og nokkur hund­ruð millj­óna króna skuldir sem erfitt er að sjá hvernig eigi að fást greiddar.

For­svars­menn Dalsins, þess félags sem meiri­hluta í Pressu­sam­stæð­unni (alls 68 pró­sent) segja að þeir hafi ekki vitað um að Sigurður hefði gert kauptil­boð í nær allar eignir sam­stæð­unnar fyrr en eftir að stjórn Pressunnar hefði sam­þykkt það til­boð. Dalurinn, félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja við­skipta­fé­laga þeirra, hafði opin­ber­lega eign­ast félagið að mestu í lok ágúst. Hins vegar hafði ekki verið hald­inn hlut­hafa­fundur eða stjórn­ar­fundur þar sem Dalurinn gat fengið stjórn­ar­menn í takti við eign sína. Það var því stjórn Pressunnar, sem í sitja meðal ann­ars Björn Ingi Hrafns­son og Arnar Ægisson, stærstu minni­hluta­eig­endur sam­stæð­unnar, sem sam­þykkti kauptil­boðið.

Skornir niður úr snörunni

Fjár­mun­unum sem greiddir voru fyrir fjöl­miðla Pressunnar, einu raun­veru­legu verð­mæti félags­ins, hefur þegar verið ráð­stafað. Ekkert af sölu­and­virð­inu er eftir til að mæta öðrum skuld­bind­ingum Pressu­sam­stæð­unnar. Greiddar voru upp opin­berar skuldir Pressunnar við Toll­stjóra sem hlupu á hund­ruðum millj­óna króna. Um var að ræða van­greidda stað­greiðslu skatta, van­skil á virð­is­auka­skatti og öðrum opin­berum gjöldum sem félagið hafði ekki staðið skil á á und­an­förnum árum. Toll­stjór­inn í Reykja­vík hafði lagt fram gjald­þrota­beiðni á hendur Press­unni fyrir hér­aðs­dómi vegna þess og átti að taka hana fyrir í gær­morgun. Sú beiðni var hins vegar aft­ur­kölluð eftir að Sigurður G. Guð­jóns­son gerði upp opin­beru gjöldin. Slík gjöld eru oft kölluð rimla­gjöld, enda þýða van­skil á þeim vana­lega að ábyrgð­ar­menn félaga sem halda eftir fjár­munum sem eru með réttu rík­is­ins hljóta refsi­dóma fyrir vikið, sem gæti jafn­vel þýtt fang­els­is­vist. Skyndi­leg kaup Frjálsrar fjöl­miðl­unar á fjöl­miðlum Pressunnar komu í veg fyrir að ábyrgð­ar­menn félags­ins þyrftu að mæta þeim örlögum.

Til við­bótar voru gerðar upp kröfur þar sem Björn Ingi Hrafns­son, fyr­ir­svars­maður Pressunnar, var í sjálf­skuld­ar­á­byrgð og prent­skuldir við Árvakur, sem prentar og dreifir DV.

Aðrar skuldir, meðal ann­ars við­skipta­skuldir, krafa fyrr­ver­andi eig­enda DV upp á 91 milljón króna sem er verið að reyna að sækja fyrir dóm­stólum, ein­hverjar líf­eyr­is­sjóða­skuldir og tug millj­óna króna skuldir við sænskt mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tæki eru sem stendur enn inni í Pressu­sam­stæð­unni og óupp­gerðar. Þær hlaupa sam­tals á hund­ruð millj­óna króna enda voru sam­eig­in­legar skuldir Pressunnar og tengdra fyr­ir­tækja orðnar rúm­lega 700 millj­ónir króna í byrjun sum­ars, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans sem komu að málum hennar á þeim tíma.

Einn við­mæl­andi Kjarnans orð­aði það þannig að Frjáls fjöl­miðlun hafi greitt nákvæm­lega þá upp­hæð sem þurfti til að „skera Björn Inga niður úr snör­unni“. Annað hafi verið skilið eftir.

Þá hafi ekk­ert komið fram um hvort Frjáls fjöl­miðlun ætli sér að fjár­festa meira fé í upp­bygg­ingu fjöl­miðla­rekst­urs­ins. En ljóst sé að sú fjár­hæð sem greidd var fyrir fjöl­miðla Pressu­sam­stæð­unnar sé „sokk­inn kostn­aður“. Þ.e. hún fór öll í að hreinsa upp skuldir en ekki að neinu leyti í að fjár­festa í eign­unum.

Vita ekkert hver borgaði fyrir miðlana

Dalurinn fékk engar upp­lýs­ingar um að kaupin væru að fara að eiga sér stað, og vissi ekki að þeim fyrr en þau voru um garð gengin. Sala eigna Pressunnar, félags sem Dalurinn á meiri­hluta í, fór því fram án vit­undar og vilja stærsta eig­anda félags­ins.

Í yfir­lýs­ingu sem Dalurinn sendi frá sér í dag segir: „Kaup­samn­ingur Frjálsrar Fjöl­miðl­unar um kaup á nán­ast öllum eignum Press­unar og tengdum félögum var kynntur fyrir eig­endum Dalsins eftir að hann var frá­geng­inn. Ef marka má yfir­lýs­ingar kaup­anda þá verða allar skuldir félags­ins gerðar upp og þá sér­stak­lega skuldir við toll­stjóra og líf­eyr­is­skuld­bind­ingar starfs­manna. Við fögnum því ef þetta verður nið­ur­staðan.

Björn Ingi Hrafnsson er stjórnarformaður Pressunnar og minnihlutaeigandi í félaginu ásamt viðskiptafélaga sínum.
Björn Ingi Hrafns­son er stjórn­ar­for­maður Pressunnar og minni­hluta­eig­andi í félag­inu ásamt við­skipta­fé­laga sínum.

Dalurinn er áfram eig­andi að 68 pró­sent hlut í Press­unni og ekki er ákveðið hvað verður um þann eign­ar­hlut. En í ljósi umræddra við­skipta má telja að sá hlutur hafi lítið verð­mæti þar sem eignir hafa verið seldar úr félag­inu. For­svars­menn Dalsins eru jafn for­vitnir og aðrir um að heyra hverjir standi að baki kaup­unum.“

Sitja uppi með Svarta Pétur

Í raun má segja að Dalurinn sitji uppi með Svarta Pétur. Félagið hafði ætlað sér að eign­ast alla Pressu­sam­stæð­una og fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Birting, ásamt með­fjár­festum, í vor. Raunar var til­kynnt um yfir­tök­una og á sama tíma greint frá því að Björn Ingi Hrafns­son myndi að mestu hverfa frá fyr­ir­tæk­inu. Þegar Dalurinn und­ir­bjó yfir­tök­una kom hins vegar í ljós að staða Pressu­sam­stæð­unnar var mun verri en af hafði verið látið. Mörg hund­ruð millj­óna króna skuldir komu í ljós auk þess sem launa­kjör æðstu stjórn­enda, sér­stak­lega Björns Inga og Arnars, komu vænt­an­legum nýjum hlut­höfum í opna skjöldu. Um var að ræða margar millj­ónir króna á mán­uði á meðan að sam­stæðan var öll rekin í tapi og fjöl­miðl­arnir sjálfir voru veru­lega und­ir­mann­aðir. Dalurinn dró sig á end­anum út úr yfir­tök­unni og lét nægja að eign­ast Birting, sem gefur út þrjú tíma­rit. Dalurinn hafði hins vegar þegar sett millj­ónir króna í Pressuna til að gera upp við­kvæm­ustu skuldir hennar. Og eign­að­ist með því, að eigin mati, kröfu sem var umbreyt­an­leg í hlutafé. Auk þess töldu Dalsmenn reyndar að þeir ættu alls­herj­ar­veð í öllum helstu eignum félags­ins, t.d. DV og Eyjunni.

Í ágúst­lok var til­kynnt um að hlutur Dalsins í Press­unni væri 68 pró­sent.

Ber að upplýsa Fjölmiðlanefnd um eignarhaldið

Við­mæl­endur Kjarnans telja nær ómögu­legt að Sigurður G. Guð­jóns­son hafi greitt þá upp­hæð sem var greidd var fyrir fjöl­miðl­anna sem nú hafa verið færðir á nýja kenni­tölu úr eigin vasa. Ekkert hefur hins vegar verið upp­gefið um hverjir það séu sem lögðu til það fjár­magn.

Í 22. grein laga um fjöl­miðla er fjallað um til­kynn­ing­ar­skyldu um eig­enda­skipt­i að fjöl­miðla­veitu. Þar seg­ir: „Við sölu á hlut í fjöl­miðla­veitu bera selj­and­i og kaup­andi ábyrgð á því að til­kynn­ing um söl­una sé send fjöl­miðla­nefnd. Til­kynn­ing um söl­una skal hafa borist fjöl­miðla­nefnd innan tveggja virkra daga frá gerð kaup­samn­ings“.

Róbert Wessman og viðskiptafélagar hans sitja uppi með Svarta Pétur.
Róbert Wessman og við­skipta­fé­lagar hans sitja uppi með Svarta Pétur.

Í lög­unum segir einnig að Fjöl­miðla­nefnd skuli leggja ­stjórn­valds­sekt á bæði selj­anda og kaup­anda komi í ljós að þeir hafi van­rækt að til­kynna um eig­enda­skipti á hlut í fjöl­miðli.

Frjáls fjöl­miðlun hefur ekki verið skráð hjá Fjöl­miðla­nefnd. Til að vera í sam­ræmi við lög ætti slík skrán­ing að eiga sér stað í dag eða á morgun.

Birni Inga gríðarlega létt

Starfs­menn Pressu­sam­stæð­unnar vita lítið sem ekk­ert um hvernig starf­semin verður héðan í frá, né hverjir komi til með að stýra henni. Í tölvu­pósti sem Björn Ingi sendi þeim fyrr í dag sagði hann að með við­skipt­unum væri tryggt að DV og Pressan myndu greiða „allar sínar helstu skuldir, t.d. við Toll­stjóra og líf­eyr­is­sjóði. Jafn­framt tryggja við­skiptin á sjötta tug starfa og treysta mik­il­væga fjöl­miðla áfram í sessi.“ Ekki er skil­greint sér­stak­lega hvað sé átt við með helstu skuldir.

Í tölvu­pósti hans kemur einnig fram að á næstu dögum verði greint frá helstu breyt­ingum sem hið nýja sam­komu­lag hafi í för með sér. „Á per­sónu­legum nótum vil ég segja að, að baki er gríð­ar­leg vinna og and­vökunætur. Að ljúka þessu með far­sælum hætti er gríð­ar­legur léttir og umfang þess­ara við­skipta sýnir hve mik­il­vægir fjöl­miðl­arnir eru og hve mögu­leikar þeirra eru miklir til fram­tíðar,“ segir hann enn fremur í póst­inum.

Viðbót 8.9.2017

Í upp­runa­legu skýr­ing­unni stóð að Dalurinn hefði greitt inn 155 millj­ónir króna. Það var ekki nákvæmt og hefur verið leið­rétt. Þar stóð líka að Dalurinn hafi upp­runa­lega átt 89 pró­sent en sá hlutur síðar minnkað í 68 pró­sent. Í ljós hefur komið að um ranga til­kynn­ingu til Fjöl­miðla­nefndar var að ræða og því hefur þetta verið leið­rétt. Þá kom fram að Sigurður G. Guð­jóns­son hefði fundað með for­svars­mönnum Dalsins, og var það sam­kvæmt heim­ilda­mönnum Kjarnans. Slíkt hefur verið borið til baka og frétta­skýr­ing­unni breytt í sam­ræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár