Mynd: EPA

„Klasi 5“ ógnar lýðheilsu dönsku þjóðarinnar

Þegar í sumar greind­ist minkur á dönsku búi með kór­ónu­veiruna. Í haust var stökk­breytt afbrigði minka­veirunnar greint en það var ekki fyrr en í fyrra­dag að ákveðið var að aflífa alla minka og ein­angra sveit­ar­fé­lögin þar sem það hefur greinst í mönnum.

Ekki er grunur um að kór­ónu­veirusmit hafi komið upp á minka­búum á Íslandi en í ljósi smita af stökk­breyttu afbrigði kór­ónu­veiru úr minkum í fólk í Danmörku ætlar Mat­væla­stofnun að hefja skimun meðal dýr­anna fyrir veirunni á íslenskum minka­búum.

Þegar fregnir bár­ust af kór­ónu­veirusmiti úr fólki í minka í sumar sendi Mat­væla­stofnun til­mæli til íslenskra minka­bænda um hertar sótt­varnir á búunum og að ein­stak­lingar með sjúk­dóms­ein­kenni haldi sig fjarri þeim. Tilkynna skal grun um veik­indi í minkum til Mat­væla­stofn­unar. Reglu­lega hefur verið minnt á þessi til­mæli en engar til­kynn­ingar hafa borist.

Danir hafa ákveðið að aflífa alla minka á búum í land­inu, um 15-17 millj­ónir tals­ins, vegna kór­ónu­veirusmita sem bár­ust úr minkum í fólk. Um stökk­breytt afbrigði veirunnar er að ræða sem talið er að hafi borist upp­runa­lega úr fólki í minka. Hætta er á að þau bólu­efni sem eru í þróun gegn kór­ónu­veirunni virki ekki á stökk­breytt afbrigði veirunnar.

214 manns á Jótlandi hafa greinst með kór­ónu­veiru sem rakin er til minkanna frá því í sumar og hafa dönsk yfir­völd hert aðgerðir í norð­ur­hluta lands­ins af þessum sökum. Eru íbúar sjö sveit­ar­fé­laga á Norður-Jótlandi beðnir að halda sig innan sinna sveit­ar­fé­laga og sömu­leiðis eru aðrir beðnir að ferð­ast ekki til þeirra. Íbúar í sveit­ar­fé­lög­unum sjö verða allir skimaðir fyrir veirunni.

Sýkingin á svæð­inu er kölluð „klasi 5“ og segir for­sæt­is­ráð­herr­ann Mette Frederik­sen „örlaga­stund“ runna upp, rétt eins og hún sagði um 11. mars síð­ast­lið­inn er gripið var til hörð­ustu aðgerða sem þá höfðu þekkst í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Minkalæður eignast um 65 þúsund hvolpa árlega á íslenskum minkabúum.
Minka­læður eign­ast um 65 þús­und hvolpa árlega á íslenskum minka­búum.

Danir eru stærstu fram­leið­endur minka­skinna í heim­inum og á dönskum búum eiga um 40 pró­sent heims­fram­leiðsl­unnar upp­runa sinn. Í fyrri bylgjum COVID-19 voru um 1,2 millj­ónir dýra aflíf­aðar á um 400 búum en í Danmörku eru 1.139 minkabú og þar starfa um 2.600 manns.

Tage Pedersen, for­maður sam­bands loð­dýra­fram­leið­enda í Danmörku, segir að aðgerð­irnar nú muni ganga að grein­inni dauðri. „Þetta er svartur dagur fyrir okkur öll. Auðvitað viljum við ekki valda öðrum far­aldri en ákvörðun stjórn­valda er skelfi­leg fyrir okkar iðnað í Danmörku.“ Sagði hann aðgerð­irnar í raun marka „enda­lok skinna­iðn­að­ar­ins“.

Frá júní til nóvember

Í júní greind­ist kór­ónu­veiran í mink í Danmörku. Allir minkar á því búi voru aflífaðir. Fleiri til­felli greindust, aðal­lega á Norður-Jótlandi en einnig á Vestur-Jótlandi, bæði í minkum og mönnum.

Í sept­em­ber var „sér­stakt minka­af­brigði“ veirunnar greint í fólki á Norður-Jótlandi. Meðal sýktra var barn sem tengd­ist einu búinu.

Milljónir minka verða felldar í Danmörku á næstu dögum.
Millj­ónir minka verða felldar í Danmörku á næstu dögum.

Tveimur vikum síðar var hið nýja afbrigði veirunnar greint í fólki og minkum á sex minka­búum. Nokkrum dögum síðar skrif­uðu sér­fræð­ingar við Háskól­ann í Kaup­manna­höfn skýrslu þar sem fram kom að hið stökk­breytta afbrigði veirunnar gæti „hugs­an­lega“ haft í för með sér að bólu­efni gegn COVID-19 virki ekki á það.

Á blaða­manna­fundi 1. októ­ber sagði Kåre Mølbak, fram­kvæmda­stjóri hjá dönsku sótt­varna­stofn­un­inni, að það væri hættu­legra að vera minka­rækt­andi en að starfa í heil­brigð­is­kerf­inu hvað smit­hættu varð­aði. „Við vitum fyrir víst að menn geta smitað minka og mink­arnir svo menn.“ Smit hafði þá verið stað­fest á 41 minka­búi.

Um miðjan októ­ber kom það í fyrsta sinn fram opin­ber­lega að hið stökk­breytta afbrigði gæti verið ónæmt fyrir þeim bólu­efnum sem eru í þróun. Áhyggjur yfir­valda af því að afbrigðið gæti orðið „lýð­heilsuógn“ voru orðnar miklar. Í áhættu­mati heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „áfram­hald­andi minka­rækt á meðan far­aldur COVID-19 gengur yfir hafi í för með sér veru­lega áhættu“.

Í fyrra­dag til­kynnti svo for­sæt­is­ráð­herr­ann loks að ákveðið hefði verið að fella alla minka í land­inu.

Hol­lend­ingar felldu minka í 68 búum í júní og til­kynntu í kjöl­farið að lokun allra búa fyrir fullt og allt, sem stefnt var að árið 2024, hefði verið flýtt til vors­ins 2021. Rannsókn leiddi í ljós að um helm­ingur starfs­manna á minka­búum í Hollandi hafði smit­ast af afbrigði kór­ónu­veirunnar sem var að finna í mink­unum og sú ályktun var dregin að þeir hefðu smit­ast af dýr­unum.

Banvænt gas

Níu minkabú eru enn starf­rækt á Íslandi. Á þeim eru 15 þús­und eld­is­dýr og eign­ast læð­urnar um 65 þús­und hvolpa á ári. Þegar þeir hafa náð ákveðnum aldri eru þeir drepnir í sér­út­búnum aflíf­un­ar­kössum með ban­vænu gasi. Er það gert í sam­ræmi við kröfur í reglu­gerð um vernd dýra við aflífun. Að því loknu eru þeir „pels­aðir“ eins og það er kallað, og skrokkum þeirra fargað, t.d. með urðun.

„Ef í ljós kæmi smit af COVID-19 á íslensku minka­búi yrðu aðgerðir ákveðnar í sam­ráði við sótt­varn­ar­yf­ir­völd,“ segir Sigríður Gísla­dóttir, dýra­læknir loð­dýra­sjúk­dóma hjá MAST, við Kjarnann. Spurð hvort skrokk­unum verði fargað án þess að skinnin verði tekin segir hún að upp­lýs­ingar séu enn ekki fyr­ir­liggj­andi um hvaða ráð­staf­anir verða hjá Dönum varð­andi hræ af sýktum dýrum „en að öllum lík­indum verður þeim fargað líkt og öðrum sótt­meng­uðum dýra­af­urðum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár