Stöðvalaus rafhlaupahjól í Reykjavík

Að minnsta kosti þrír aðilar, þar af einn erlendur, hefur óskað ef eftir því að starf­rækja stöðvalausa hjóla­leigu í Reykja­vík. Verk­lags­reglur um þjón­ust­una voru sam­þykktar í byrjun júlí í borg­ar­ráði.

Gríð­ar­leg aukn­ing hefur orðið á stöðvalausum hjólum í evr­ópskum borgum að und­an­förnu, bæði hjólum og raf­hlaupa­hjólum. Hjólin hafa notið vin­sælda sem umhverf­is­vænn kostur og þykja nýt­ast vel sem sam­göngu­bót. Í Reykja­vík munu borg­ar­búar geta von bráðar ferð­ast um á raf­hlaupa­hjólum sem þeir taka tíma­bundið á leigu. Borg­ar­ráð Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti í síð­ustu viku verk­lags­reglur um starf­semi stöðvalausa hjóla­leiga. Að minnsta kosti þrír þjón­ustu­að­ilar hafa óskað eftir að starf­rækja stöðvalausar hjóla­leigur í borg­inni, þar á meðal einn erlendur aðili.

Má ekki skilja þau eftir hvar sem er

Umhverfis og skipu­lag­s­við Reykja­vík­ur­borgar lagði fram verk­lags­reglur fyrir starf­semi stöðvalausa hjóla­leigu á borg­ar­landi Reykja­víkur í byrjun júlí. Til­gangur verk­lags­regln­anna er að tryggja gagn­sætt og opið verk­lag þegar þjón­ustu­að­ili óskar eftir að starf­rækja stöðvalausa hjóla­leigu með reið­hjólum, hlaupa­hjólum eða öðrum sam­bæri­legum léttum far­ar­tækjum, án fastra hjóla­stöðva innan borg­ar­lands Reykja­víkur.

Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulag- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar.
Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lag- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar.

Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lag- og sam­göngu­ráðs Reykja­vík­ur­borgar segir að það séu spenn­andi tímar um þessar mundir í borg­inni þar sem fólk og fjöl­breytt­ari far­ar­mátar fái sífellt meira vægi. „Frábært dæmi um það er sú göngu­götu­væð­ing sem hafin er og svo það að von bráðar geta borg­ar­búar ferð­ast um á raf­magns­hjólum og raf­magns­hlaupa­hjólum sem þeir eiga ekki sjálfir heldur taka tíma­bundið á leigu,“ segir Sig­ur­borg Ósk í frétta­til­kynn­ingu Reykja­vík­ur­borgar um verka­lags­regl­urnar.

Í verk­lags­regl­unum er tekið fram að í lok hvers mán­aðar skal þjón­ustu­að­ili upp­lýsa Reykja­vík­ur­borg um nýt­ingu á flot­anum fyrir við­kom­andi mánuð. Ef nýt­ing flot­ans er undir tveimur ferðum á dag að með­al­tali þrjá mán­uði í röð án eðli­legra útskýr­inga áskilur borgin sér rétt til að aft­ur­kalla afnota­leyfið. Við þetta skil­yrði telur Reykja­vík­ur­borg að land­svæðið nýt­ist betur í aðrar athafnir.

Jafn­framt er greint frá því í verk­lags­regl­unum hvernig skilja megi við hjólin. „Reglunar eru settar til að hjólin valdi ekki hættu eða óþarfa óþæg­indum fyrir aðra umferð og að almennt gildir sú regla að sýna verði til­lit­semi og almenna skyn­semi þegar skilið er við hjól,“ segir í regl­unum.

Í regl­unum segir meðal ann­ars að ekki skuli skilja við hjól á grasi eða möl lengra en 2 metra frá næsta stíg. Þá má ekki skilja hjólin eftir í gróð­ur­beðum eða á vernd­ar­svæðum eða innan við 50 metra frá strand­línu, tjörn eða árbakka, til að hindra að þriðji aðili varpi ekki hjól­inu í vatnið. Verk­lags­regl­urnar voru sam­þykktar í borg­ar­ráði í byrjun júlí en Reykja­vík­ur­borg áskilur sér rétt til að end­ur­skoða verk­lags­regl­urnar með hlið­sjón af reynslu og nýjum upp­lýs­ingum.

Vonandi fyrstu 100 hjólin í lok sumars

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá umhverfis- og skipu­lags­viði Reykja­vík­ur­borgar hafa að minnsta kosti þrír aðilar, þar af einn erlendur lýst yfir áhuga um að starf­rækja stöðvalausar hjóla­leigur í Reykja­vík. Einn þeirra er fyr­ir­tækið Hopp.

Eiríkur Nílsson, einn af stofn­endum Hopps, vinnur nú að því ásamt sam­starfs­fólki sínu í hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Aranja að koma á lagg­irnar leigu stöðvalausa raf­hlaupa­hjóla. Raf­hlaupa­hjól Hopp verða ekki inn­flutt hjól frá öðru erlendu fyr­ir­tæki heldur sér­hönnuð hjól sem Aranja hefur hannað í sam­starfi við fram­leið­endur hjól­anna.

Eiríkur segir í sam­tali við Kjarnann að þetta muni verða stöðva­laus hlaupa­hjól eins og staðan er núna. Skráðir not­endur geta þá með appi séð hvar næsta hjól er stað­sett og hversu mikil hleðsla er eftir á hjól­inu. Not­and­inn finnur hjólið, skannar QR-kóð­ann á hjól­inu og keyrir af stað. Not­and­inn á síðan að geta skilið við hjólið þar sem honum hentar og hjól­unum er síðan safnað saman og hlaðin á nótt­unni eftir þörfum.

Eiríkur segir að mark­miðið hafi verið að fyrstu hund­rað stykkin af hjól­unum kæmu til lands­ins í júli en vegna tafa hjá fram­leið­anda þá sé ólík­legt að hjólin komi í þessum mán­uði og jafn­vel ekki heldur í ágúst. Hjólin eiga að kom­ast um það bil 50 kíló­metra á einni hleðslu og ráða við þyngd upp á 140 kíló. Þau eru einnig vatns­held og byggð til að þola mikið álag.

Að lokum segir Eiríkur það vera frá­bærar fréttir að verk­lags­reglur um hjólin hafi verið sam­þykkt í borg­ar­ráði. Hann bendir hins vegar á að það verði áhuga­vert að sjá hvort að krafan um að minnsta kosti verði farnar að með­al­tali tvær ferðir á hverju hjóli á dag sé raun­hæf. Hann segir að til að mynda hafi WOW hjólin aðeins verið notuð að með­al­tali einu sinni á dag.

Þýska fyritækið Tier er fyrirtæki sem býður nú upp á rafhlaupahjólaleigu í yfir 33 borgum í Evrópu. Fyrirtækið hefur vaxið hratt en á innan við ári hafa verið farnar 3 milljónir ferða á aðeins Tier hlaupahjólum.
Þýska fyri­tækið Tier er fyr­ir­tæki sem býður nú upp á raf­hlaupa­hjóla­leigu í yfir 33 borgum í Evrópu. Fyr­ir­tækið hefur vaxið hratt en á innan við ári hafa verið farnar 3 millj­ónir ferða á aðeins Tier hlaupa­hjólum.

Herða reglur um hlaupahjólin

Síðustu mán­uði hafa stöðvalausar raf­hlaupa­hjóla­leigur skotið upp hausnum í mörgum borgum í Evrópu. Á afar skömmum tíma hafa hjólin orðin stór þáttur í sam­göngu­kerfum borg­anna en hjólin þykja hand­hægur ferða­máti sem flestir ráða við og er oft mark­aðs­sett sem við­bót við aðrar sam­göngur.

Útbreiðslu hjól­anna hefur þó fylgt margs­konar vaxt­ar­verkir. Tak­mark­aðar reglu­gerðir hafa leitt til þess að vegna fjölda nýrra þjón­ustu­að­ila eru of mörg hjól í borg­unum og þau skilin eftir þar sem þau hindra aðra veg­far­endur.

Í frétt danska rík­is­út­varps­ins um málið segir að raf­hlaupa­hjól hafa notið mik­illa vin­sælda í Kaup­manna­höfn síð­ustu mán­uði en í kjöl­far mik­illa kvart­anna hafi nú verið lögð fram reglu­gerð þar sem lagt er til að aðeins verði leyfð 200 raf­hlaupa­hjól í mið­bænum en 3000 raf­hlaupa­hjól í öðrum hverfum í borg­inni. Raf­hlaupa­hjóla­leig­urnar hafa hins vegar kvartað yfir því að þessi reglu­gerð geti veru­lega skert aðgengi not­enda að hjól­unum en mark­miðið er að not­endur geti nán­ast alltaf fundið hjól í nærum­hverfi sínu.

Samkvæmt umfjöllun Euronews hefur ekki aðeins verið kynnt hert­ari lög­gjöf um raf­hlaupa­hjól í Danmörku en í kjöl­far dauða­slyss í París hefur verið kynnt nýtt laga­frum­varp um hjólin í Frakk­landi. Samkvæmt frum­varp­inu verður hámarks­hraði hjól­anna 20 kíló­metrar á klukku­stund og aðeins 8 kíló­metrar á svæðum þar sem mik­inn fjöldi gang­andi veg­far­anda má finna. Auk þess verður bannað að leggja hjól­unum nema á ákveðnum svæðum og bannað verður að keyra hjólin á gang­stéttum.

Í Þýska­landi og Svíþjóð hafa einnig verið sam­þykktar nýjar reglu­gerðir um raf­hlaupa­hjól. Þar á meðal 20 kíló­metra hámarks­hraða og bann við hjól­unum á gang­stéttum. Enn fremur er verið að und­ir­búa svip­aðar reglu­gerðir á Spáni og Ítalíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár