Aðili

Þorsteinn Már Baldvinsson

FréttirSamherjaskjölin

Norska lög­manns­stofan segir rekstri Samherja í Namibíu hafa verið „sjálf­stýrt“ þar en ekki frá Íslandi

Tals­maður norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, Geir Swiggum, segir að rann­sókn fyr­ir­tæk­is­ins á mútu­greiðslum Samherja í Namibíu ljúki brátt. Wikborg Rein stillir Namib­íu­rekstri Samherja upp sem sjálf­stæðum og stjórn­endur hans beri ábyrgð á honum en ekki yfir­stjórn Samherja á Íslandi. Hann segir fjöl­miðlaum­fjöllun um mútu­greiðsl­urnar hafa verið „skipu­lagða árás“.
FréttirSamherjaskjölin

Sam­herj­a­málið í Namibíu: Fékk greitt með 28 millj­óna fram­kvæmdum við hús sitt

Einn af sak­born­ing­unum sex í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, Ricardo Gustavo, fékk greitt fyrir þátt­töku sína í við­skiptum namibísku ráða­mann­anna og Samherja með greiðslu á reikn­ingum vegna fram­kvæmda við hús sitt. Gustavo reynir nú að losna úr fang­elsi gegn tryggg­ingu á meðan beðið er eftir að rétt­ar­höld yfir sex­menn­ing­unum hefj­ist.
FréttirSamherjaskjölin

Meðferð Sam­herj­a­máls­ins tefst hjá ákæru­vald­inu út af COVID-far­aldr­inum

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari segir að með­ferð allra mála tefj­ist hjá emb­ætt­inu út af COVID-far­aldr­inum. Meðal þess­ara mála er Sam­herj­a­málið, rann­sókn á mútu­greiðslum Samherja í Namibíu upp á vel á annan millj­arð króna. Þor­steinn Már Bald­vins­son hefur ekki verið yfir­heyrður enn sem komið er.
GreiningSamherjaskjölin

Samherji hefur farið í hring í málsvörn sinni á tveimur mán­uðum

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji hóf málsvörn sína í mútu­mál­inu í Namibíu á að segja að lög­brot hafi átt sér stað en að þau hafi verið Jóhann­esi Stef­áns­syni einum að kenna. Þegar sú málsvörn gekk ekki upp hafn­aði Björgólfur Jóhanns­son því að nokkur lög­brot hafi átt sér stað. Svo til­kynnti Samherji um inn­leið­ingu nýs eft­ir­lits­kerfis út af mis­brestum á starf­semi félags­ins í Namibíu og virt­ist þannig gang­ast við sekt að ein­hverju leyti.

10 mín. lestur

FréttirSamherjaskjölin

Skýr­ingar Samherja stang­ast á við orð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu

Yfir­lýs­ingar rík­is­sak­sókn­ar­ans í Namibíu, Oliva Martha Iwalva, um Sam­herj­a­málið í Namibíu segja allt aðra sögu en yfir­lýs­ingar starf­andi for­stjóra Samherja. Björg­ólfs Jóhanns­sonar. Sak­sókn­ar­inn lýsti meintum brotum namibísku ráða­mann­anna sex sem sitja í gæslu­varð­haldi og þátt­töku Samherja í þeim fyrir dómi.
FréttirSamherjaskjölin

Björgólfur segir að Namib­íu­málið muni fá skjótan endi eins og Seðla­banka­málið

Samherji heldur áfram að gagn­rýna fjöl­miðla sem fjallað hafa um Namib­íu­málið. Björgólfur Jóhanns­son ýjar að því að sam­særi eigi sér stað gegn Samherja sem snú­ist um að valda félag­inu skaða. For­stjór­inn segir að lyktir máls­ins verði lík­ega þau sömu og í Seðla­banka­mál­inu þrátt fyrir að sex ein­stak­lingar hafi nú þegar verið ákærðir í Namibíu.

Mest lesið undanfarið ár