Flokkur

Sjávarútvegur

ErlentSamherjaskjölin

Namibískur lög­maður segir for­set­ann aðal­mann­inn í Sam­herj­a­mál­inu

Namibíski lög­mað­ur­inn Maren de Klerk segir að for­seti Namibíu Hage Geingob hafi verið aðal­mað­ur­inn í spill­ing­ar­mál­inu sem kallað er Sam­herj­a­málið á íslensku. Ef de Klerk segir rétt frá er málið, sem hófst með því að sagt var frá mútu­greiðslum Samherja í land­inu, dýpra og stærra en áður hefur verið talið og snýst meðal ann­ars um æðsta ráða­mann þjóð­ar­innar.
Nærmynd

Þrjátíu ára stuðn­ingur Krist­jáns Þórs við hags­muni Samherja

Kristján Þór Júl­í­us­son, núver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri á Dalvík, Ísafirði og Akureyri, hefur í 30 ár verið sagður hygla útgerð­ar­fé­lag­inu Samherja. Á síð­ast­liðnum ára­tugum hefur Kristján Þór verið stjórn­ar­for­maður Samherja, unnið fyrir útgerð­ina sem sjó­maður, umgeng­ist Þorstein Má Bald­vins­son við mýmörg til­felli, verið við­staddur sam­komur hjá útgerð­inni, auk þess sem eig­in­kona hans hann­aði merki fyr­ir­tæk­is­ins.

17 mín. lestur

FréttirSamherjaskjölin

Sam­verka­menn Samherja hætta eftir ára­löng störf

Fram­kvæmda­stjóri þýsks dótt­ur­fé­lags Samherja, Haraldur Grét­ars­son, hefur ákveðið að hætta, en segir ákvörð­un­ina ekki tengj­ast rann­sóknum á Samherja á Íslandi, Noregi og í Namibíu. Baldvin Þor­steins­son tekur við starfi hans. Einn af stjórn­ar­mönnum Samherja, Sigrún Björk Jak­obs­dóttir, er einnig hætt í stjórn Samherja eftir að hafa verið í stjórn­inni frá árinu 2013.
FréttirSamherjaskjölin

Saga höf­uð­paurs­ins í Sam­herj­a­mál­inu: Einn rík­asti maður Namibíu sem tal­inn var eiga tæpa 9 millj­arða

James Hatuikulipi, sak­born­ingur í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu, er sagður vera helsti arki­tekt við­skipt­anna við íslenska útgerð­ar­fé­lagið. Hann hefur sankað að sér eignum upp á 9 millj­arða króna á liðnum ára­tugum og er Sam­herj­a­málið bara eitt af spill­ing­ar­mál­unum sem namibíska blaðið The Namibian segir að hann hafi auðg­ast á.

Mest lesið undanfarið ár