Aðili

Sigurður Ingi Jóhannsson

Úttekt

Náttúru­passi, ívilnanir og aðstoðar­menn í kosningaham

Staða Ragn­heiðar Elínar Árna­dóttur, iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, innan Sjálfstæðis­flokksins er veikari en nokkru sinni fyrr. Hvert vandræða­málið á fætur öðru hefur sett svip á ráðherra­feril hennar. Eftir að tilkynnt var um haust­kosningar réði ráðherrann sér nýjan aðstoðar­mann sem lætur ekki sitt eftir liggja í kynningar­málum fyrir prófkjörs­baráttu Ragn­heiðar Elínar.
Úttekt

Síðustu dagar Sigmundar

Forystu­menn í Framsóknar­flokknum reyna nú hvað þeir geta að gera Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni ljóst að hann eigi þann eina kost vænstan að stíga til hliðar sem formaður flokksins. Hann er sagður hafa gert afdrifarík mistök þegar hann talaði ítrekað niður loforð Sigurðar Inga Jóhanns­sonar forsætis­ráðherra um haust­kosningar. Ekkert hefur heyrst frá formanninum síðan Lilja Alfreðs­dóttir og Gunnar Bragi Sveinsson funduðu með honum á heimili Sigmundar.

23 mín. lestur

Fréttir

Hnattræn hlýnun eykst – ríkis­stjórnin gerir minna

Síðustu þrjú ár hafa öll verið þau heitustu síðan mælingar hófust. Vísinda­menn vara við því að afleiðingar hnattrænnar hlýnunar muni þýða hamfarir á hnattrænum skala jafnvel þótt allri losun gróðurhúsa­lofttegunda yrði hætt samstundis. Núverandi ríkis­stjórn og umhverfis- og auðlinda­ráðherrar hennar hafa enga stefnu boðað vegna ástandsins, en settu þó saman „sóknar­áætlun í loftslags­málum“ fyrir ráðstefnuna sem haldin var í París í fyrra.

Mest lesið undanfarið ár