Fréttamál

Samherjaskjölin

Fréttir

Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar

„Það þarf að loka netfanginu hans og endur­stilla lykil­orðið á dropbox reikningnum til að læsa hann úti af því,“ sagði Ingvar Júlíusson, fjármála­stjóri Samherja á Kýpur, í skila­boðum til Örnu McClure, innan­húslögfræðings útgerð­ar­innar, og Aðalsteins Helga­sonar lykil­starfsmanns. Jón Óttar Ólafsson rekur nákvæmlega hvernig hann braust inn á Dropbox uppljóstr­arans í Namibíu­málinu í yfir­lýsingu sinni til dómstóla.
Fréttir

Samherja­menn lýsa sér sem verkfærum í höndum uppljóstr­arans

„Það hefði einfald­lega ekki verið nægur tími, tækifæri né orka fyrir mig að vera á kafi í fjarlægri, lítilli og frekar ómerkilegri starfsemi hinu megin á hnettinum,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í yfir­lýsingu til namibískra dómstóla. Hann og aðrir lykil­starfsmenn útgerð­ar­innar vísa allri ábyrgð á Jóhannes Stef­ánsson uppljóstrara - líka á greiðslum sem gerðar voru eftir að hann hætti störfum.
Fréttir

Þorsteinn svarar engu um dylgjur í afsökunar­beiðni

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segist ekki ætla að svara um efni afsökunar­beiðni sem fyrirtæki hans birti óundirritaða á vefsíðu sinni um helgina. Stundin beindi til hans sömu spurningu og lögmaður fyrir­tækisins hafði krafið Lilju Dögg Alfreðs­dóttur menntamála­ráðherra svara um nokkrum vikum fyrr. Í afsökunar­beiðninni er fullyrt að umfjöllun hafi verið „einhliða, ósann­gjörn og ekki alltaf byggð á stað­reyndum“.

Mest lesið undanfarið ár