Fréttamál

Samherjaskjölin

RannsóknHeimavígi Samherja

Áhrif Namibíu­málsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“

Hvaða áhrif hefur það á 20 þúsund manna samfélag á Íslandi þegar stærsta fyrir­tækið í bænum, útgerð sem veitir rúmlega 500 manns vinnu og styrkir góð málefni um allt að 100 milljónir á ári, er miðpunktur í alþjóðlegri spillingar- og sakamála­rannsókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akureyrar að þessari spurningu og kannaði viðhorf íbúa í Eyjafirði og á Íslandi öllu til Samherja­málsins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal annars Samherja­mönnum og embætti héraðs­saksóknara og skatt­rannsóknar­stjóri eru með málið til meðferðar á Íslandi.

37 mín. lestur

Fréttir

Sjávar­útvegs­ráðherra hefur ekki svarað hvort hann hafi verið í laxveiði í boði Samherja

Útgerðar­félagið Samherji hefur stundað það um árabil að bjóða starfs­mönnum sínum og velunnurum í laxveiði. Eitt slíkt holl hefur Samherji verið með í Rangá í ágúst og hefur Stundin undir höndum ljós­myndir úr einni ferð þangað. Stundin hefur heimildir fyrir að Kristján Þór Júlíusson hafi verið í boðsferð í veiði á vegum Samherja.

Mest lesið undanfarið ár