Flokkur

Rasismi

Fréttir

Nýnasista­síðan hýst af huldu­félagi á Klappar­stíg í eigu skatta­skjóls­félags

Nýnasista­síða með íslensku léni dreifir hatursáróðri gegn gyðingum og öðrum þjóð­félagshópum. Tónlistar­maðurinn Stevie Wonder og stjórn­mála­maðurinn Anthony Weiner níddir á síðunni vegna uppruna síns eftir að hún fékk íslenskt lén. Slóð síðunnar á Íslandi er dularfull og var hún meðal annars vistuð hjá meintu fyrirtæki á Klappar­stíg sem enginn virðist kannast við.
Erlent

Óttast að falskar fréttir grafi undan lýðræðinu í Evrópu

Svokölluðum fölskum fréttum hefur fjölgað verulega í Þýska­landi á nýju ári. Facebook hefur gert samning við rannsóknar­fjöl­miðilinn Correctiv um að sannreyna þýskar fréttir. Svipaðir samningar hafa verið gerðir í Banda­ríkjunum. Frönsk og þýsk stjórn­völd óttast að falskar fréttir geti haft veruleg áhrif á kosninga­úrslit í löndunum tveimur. Stjórn­málamenn nýta sér orðræðuna um falskar fréttir í þeim tilgangi að grafa undan gagn­rýninni umræðu.
Fréttir

Vill að þeir sem sýna af sér „óæskilega hegðun“ verði tilkynntir til stjórn­valda svo hægt sé að „grípa til fyrir­byggjandi aðgerða“

Ólöf Nordal, innan­ríkis­ráðherra og oddviti á lista Sjálfstæðis­flokksins í Reykja­víkur­kjördæmi suður, telur að fram undan séu tímar þar sem grípa þurfi til aðgerða í þágu öryggis og friðar sem fólk kunni að upplifa sem takmörkun á mann­réttindum sínum. Vaxandi útlendinga­hatur sérstakt áhyggju­efni.
Fréttir

Boðist til að falla frá málsókn gegn þögn um fram­bjóðanda Framsóknar­flokksins

Lögfræð­ing­urinn Sævar Þór Jónsson, sem er í þriðja sæti á lista Framsóknar­flokksins í Reykjavík, sendi Stundinni innheimtu­kröfu upp á 7,5 milljónir króna vegna birtingar mynda af Arnþrúði Karls­dóttur sem Útvarp Saga notaði til kynningar á dagskrár­liðum. Fulltrúi Sævars bauðst til þess að fallið yrði frá kröfunni gegn því að Sævari yrði haldið fyrir utan umfjöllun blaðsins um útvarps­stöðina.

Mest lesið undanfarið ár