Aðili

Orka Energy

FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Illugi neitar að gefa upp hvort fyr­ir­tæki hans fékk greiðslu frá Orku Energy

Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra seg­ist hafa svarað öllu í Orku Energy mál­inu þrátt fyrir að hann hafi ekki svarað mörgum spurn­ingum fjöl­miðla um málið. Hann seg­ist per­sónu­lega ekki hafa fengið greitt meira frá Orku Energy en vill ekki ræða 1,2 millj­óna greiðsl­una til eign­ar­halds­fé­lags síns.
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Fékk 1,2 millj­ónir frá Orku Energy 2012

OG Capital fékk greiðslu frá Orku Energy árið 2012. Illugi Gunn­ars­son hefur sagt að „megin hluti“ vinnu hans fyrir Orku Energy hafi farið fram árið 2011. Illugi hefur sagt að hann hafi ekk­ert unnið fyrir Orku Energy eftir að hann sett­ist aftur á þing í októ­ber 2011. Illugi hefur jafn­framt sagt að hann hafi ekki fengið frek­ari þókn­anir frá Orku Energy en 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una sem verið hefur til umræðu síð­ustu daga.
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Spurn­ingar sem Illugi hefur ekki svarað: Óút­skýrðar greiðslur til fyr­ir­tækis hans

Ráð­gjafa­fyr­ir­tæki Illuga Gunn­ars­sonar var með 1.700 þús­und króna tekjur árið 2011 og greiddi út laun fyrir tæp­lega 1300 þús­und. Illugi hefur sagt að hann hafi bara fengið greitt per­sónu­lega frá Orku Energy, 5.6 millj­ónir króna. Inni í ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu er auk þess rekstr­ar­kostn­aður upp á tæpa milljón.
Fréttir

Orku­fyr­ir­tæki sem styrkti Ólaf Ragnar er í sendi­nefnd hans í Víetnam

Fyr­ir­tækið Arctic Green Energy, áður Orka Energy, er í við­skipta­nefnd for­seta Íslands í opin­berri heim­sókn til Víetnam í næsta mán­uði. Fyr­ir­tækið styrkti Ólaf Ragnar um 200 þús­und krónur í síð­ustu for­seta­kosn­ingum. Ólafur Ragnar hefur stutt dug­lega við bakið á Orku Energy á liðnum árum og marg­sinnis fundað með fyr­ir­tæk­inu og for­svars­mönnum þess.
FréttirIllugi Gunnarsson og Orka Energy

Illugi lét þess ekki getið að hafa selt yfir­veð­setta íbúð yfir fast­eigna­mati

Útskýr­ingar Illuga Gunn­ars­sonar mennta­mála­ráð­herra á sölu hans á íbúð sinni benda til að við­skiptin hafi falið í sér „íviln­anir“ fyrir hann. Þingmenn bera að geta ívi­iln­ana sem nema meira en 50 þús­und krónum sam­kvæmt reglum um hags­munskrán­ingu þing­manna. Illugi valdi að selja stjórn­ar­for­manni Orku Energy íbúð­ina og leigja svo af honum í stað þess að selja íbúð­ina á mark­aði.
Rannsókn

Svona eign­ast maður virkj­un­ar­kost: Keyptu af Orku­veit­unni á 34 millj­ónir

Eyþór Arnalds og Eiríkur Bragason keyptu Haga­vatns­virkjun af Orku­veit­unni þegar fyr­ir­tækið stóð í stór­felldri eigna­sölu. Opinbert fyr­ir­tæki fékk rann­sókn­ar­leyfið en eink­að­ilar eign­ast það svo. Eyþór Arnalds kom að þremur verk­efnum sem tengd­ust raf­orku á Suð­ur­landi á sama tíma, ann­ars vegar sem fjár­festir og hins vegar sem sveit­ar­stjórn­ar­maður. Reynt að koma virkj­un­ar­kosti sem ekki er nægj­an­lega vel rann­sak­aður í gegnum Alþingi.

Mest lesið undanfarið ár