Flokkur

Kynferðislegt ofbeldi

Pistill

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir

Opið bréf til Jóns Steinars Gunnlaugs­sonar

Þórdís Elva Þorvalds­dóttir fyrirgaf nauðgara sínum en svarar hér fyrr­verandi hæstaréttar­dómara og lögmanni Roberts Downey sem fullyrti í viðtali við Eyjuna að þolendum Roberts myndi líða betur ef þeir fyrirgæfu kynferðis­brotin sem hann framdi gegn þeim, og sagði að fólk ætti að skammast sín fyrir framgöngu gagnvart lögmanninum eftir að hann fékk æru sína uppreista af yfir­völdum.

9 mín. lestur

Fréttir

Jón Steinar segir að þolendum Róberts myndi líða betur ef þeir fyrirgæfu brotin

Jón Steinar Gunnlaugsson segir að þolendum kynferðis­glæpa líði betur ef þeir fyrirgefa brotin í stað þess að „ganga sinn æviveg uppfullir af hatri“. Fólk eigi að skammast sín fyrir framgöngu sína gagnvart Róberti Downey og láta hann í friði. Svo virðist sem það sé jafnvel betra að tapa dómsmálum sem tengjast kynferðis­brotum vegna viðbragða almennings. Sjálfur hafi hann verið sakaður um annarlegar hvatir gagnvart unglings­stúlkum í umfjöllun um málið.
Viðtal

„Við ætlum ekki að leyfa honum að vinna“

Nína Rún Bergs­dóttir var fjórtán ára þegar Róbert Árni Hreiðarsson braut á henni. Ofbeldið hafði gríðarlegar afleiðingar í för með sér, en það var ekki fyrr en Nína reyndi að kveikja í sér inni á salerni á barna- og unglinga­geðdeild Land­spítalans að hún fékk aðstoð við hæfi. Hér segir Nína, ásamt foreldrum sínum og stjúpmóður, frá afleiðingum kynferðis­ofbeldisins, barátt­unni fyrir viðeigandi aðstoð og óréttlætinu sem þau upplifðu þegar gerandinn hlaut uppreist æru.

20 mín. lestur

Viðtal

„Mér fannst lítið gert úr minni upplifun“

Halla Ólöf Jóns­dóttir kærði Róbert Árna Hreiðarsson fyrir kynferðis­brot árið 2007, en þrátt fyrir að hafa verið dæmdur var honum ekki gerð refsing. Róbert Árni beitti blekkingum í gegnum „Ircið“ og samskipta­forritið MSN til þess að ávinna sér traust Höllu þegar hún var á tánings­aldri, fékk hana til þess að eiga í kynferðis­legum samskiptum við sig í gegnum netið og síma og braut síðan gegn henni á tjaldsvæði á Akureyri þegar hún var sautján ára gömul.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár