Svæði

Ísland

FréttirPanamaskjölin

Grafarán, hórmang og smygl: Auður Dorritar Moussaieff

Uppruni fjölskyldu­veldis Dorritar Moussaieff er reifara­kennd saga. Aðal­persóna hennar er faðir Dorritar, Shlomo Moussaieff. Nýlega kom út bókin Unholy Business þar sem ólöglegur flutningur og verslun á fornmunum fyrir botni Miðjarðar­hafs er skoðaður í kjölinn, og er hlutur föður Dorritar þar mjög fyrirferðar­mikill. Skattaleg fimleika­stökk Dorritar á milli landa til þess að halda fjármunum utan seilingar skatta­yfirvalda höggva svo í sama knérunn og faðirinn.

10 mín. lestur

ViðtalForsetakjör 2016

Mistökin eru leið til þroska

Halla Tómasdóttir er eina konan með teljanlegt fylgi af fram­bjóðendum til forseta Íslands, en hún mældist með tæplega níu prósenta fylgi í nýlegri könnun MMR. Hún segir mikilvægt að konur þori að bjóða sig fram í forystu­stöður í samfélaginu og hyggst setja siða­reglur fyrir forseta­embættið nái hún kjöri. Halla ræðir hér um sýn sína á forseta­embættið, fortíð sína í viðskipta­lífinu og föður­missinn sem setti lífið í samhengi í miðju efnahags­hruni.

23 mín. lestur

RannsóknPanamaskjölin

Panama-skjölin: Systkinin fjögur með félög í skatta­skjóli

Skatta­yfirvöld á Tortóla reyndu að fá upplýsingar um fjárhags­stöðu félags Karls Wernerssonar á Tortólu. Karl segir skatta­yfirvöld á Íslandi hafa skoðað skattskil fyrir­tækisins án frekari aðgerða. Þrjú af systkinum Karls stofnuðu fyrirtæki í gegnum Mossack Fonseca en eitt þeirra, Ingunn Wernersdóttir, fékk tæpa fimm milljarða króna þegar hún seldi Karli og Steingrími Wernerssonum hlut sinn í Milestone árið 2005. Skúli Eggert Þórðarson ríkis­skattstjóri segir upplýsinga­skipta­samninga við lágskatta­ríki hafa gert mikið gagn.

17 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár