Svæði

Ísland

FréttirHvarf Friðriks Kristjánssonar

Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunnarsson, Sveddi tönn, sem í nóvember árið 2012 var dæmdur í 22 ára fangelsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þúsund e-töflum og er talinn einn af höfuð­paurunum í alþjóð­legum smygl­hring, virðist vera horfinn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er samstarfs­maður Sverris og talinn hafa mikil­vægar upplýsingar um hvarf Friðriks Kristjáns­sonar, Guðmundur Spartakus Ómarsson, fór af landi brott á dögunum.
FréttirÁstandið á Sólheimum

Alvarlegar athuga­semdir gerðar við starfsemi Sólheima

Réttinda­málum fatlaðra er verulega ábótavant á Sólheimum, ef athuga­semdir réttinda­gæslumanns fatlaðs fólks á Suður­landi eiga við rök að styðjast. Réttinda­gæslu­maðurinn tilkynnti velferðar­ráðuneytinu um málin í fyrra­haust. Lítið var gert til að bregðast við gagn­rýninni, enda vísaði framkvæmda­stjóri Sólheima henni nær alfarið á bug og taldi með því málinu lokið.

10 mín. lestur

Fréttir

Segir fugla Ísfugls hafa verið aflífaða með útblæstri úr bíl

Maður sem starfaði á Reykja­búinu í Mosfellsbæ skömmu eftir aldamót lýsir atviki þar sem hænur sem átti að aflífa voru drepnar með því að tengja útblástur úr bíl inn í hús til þeirra. Langan tíma hafi tekið fyrir fuglana að drepast en vélin hafi verið látin ganga í þrjá daga. Framkvæmda­stjóri Ísfugls kannast ekki við umrætt tilvik. Hann segir að á sínum tíma hafi tíðkast að aflífa fugla, sem smitaðir voru af salmónellu, með útblæstri úr bílum.
FréttirKosningar 2016

Birgitta: „VG ákvað að taka sleggju og lemja sundur brúna“

Talskona Pírata, Birgitta Jóns­dóttir, hrósar formönnum hinna flokkanna og er þakklát fyrir tækifærið til að reyna að mynda ríkis­stjórn. Hún er ósátt við yfir­lýsingar Vinstri grænanna eftir viðræðu­slitin og segir Katrínu Jakobs­dóttur í raun hafa slitið viðræðunum. Hún segir enga stjórnar­kreppu vera, og að það sé lýðræðinu á engan hátt skaðlegt þó það sé þingræði.
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynjólfs­dóttir reynir að bjarga húsinu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfirvöld að klára samkomulag landanna á milli varðandi framtíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyrirgert rétti sínum í Noregi með því skilyrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­verndar­yfirvöld vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyldunnar.

Mest lesið undanfarið ár