Svæði

Ísland

Viðtal

Studdi eigin­manninn í sjálfs­víginu

Steinar Pétursson tók ákvörðun um að deyja í heima­landi eiginkonu sinnar, Sviss. Á brúðkaups­daginn þeirra, í byrjun mars 2013, héldu þau utan, þar sem hann lést eftir að hafa tekið banvæna lyfja­blöndu hjá stofnun sem veitir löglega dánar­aðstoð. Steinar var orðinn mjög veikur vegna illkynja heila­æxlis og kaus að fara þessa leið til þess að deyja á meðan hann vissi enn hver hann var. Ekkja hans, Sylviane Lecoultre Pétursson, ákvað að styðja hann í þessu ferli, sækja um dánar­aðstoðina, afla nauðsynlegra gagna, kaupa fyrir hann flug og koma honum út, þar sem fjöl­skyldan sat hjá honum á meðan hann var að deyja. Hún efnir nú loforð við hann með því að vinna að því að opna umræðuna í gegnum Lífs­virðingu - félag um dánar­aðstoð.

16 mín. lestur

Fréttir

Ríkis­stjórnin eykur ekki framlög til LÍN þrátt fyrir gagnrýni Bjartrar framtíðar fyrir kosningar

Ríkis­stjórnin hefur sömu stefnu í náms­lánamálum og seinasta ríkis­stjórn, ef marka má fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar 2018-2022. Sömu markmið eru í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar og í LÍN-frumvarpi Illugi Gunnars­sonar, fyrr­verandi mennta- og menningar­mála­ráðherra, sem lagt var fyrir á seinasta kjör­tímabili. Björt framtíð gagnrýndi frum­varpið harðlega og í aðdrag­anda kosninga sagði Óttarr Proppé, heilbrigðis­ráðherra, að frum­varpið væri óréttlátt og bitnaði mest á tekju­lægri einstak­lingum og konum.

Mest lesið undanfarið ár