Svæði

Ísland

Fréttir

Auglýsa bjór í þjóðhátíðar­myndbandi

Í myndbandi við þjóð­hátíðar­lagið Þjóðhátíð bíður má margoft sjá Tuborg bregða fyrir. Auðunn Blöndal segir ekki ætlunina að auglýsa áfengi heldur sjáist bara ekki að um léttöl sé að ræða. Forstjóri Ölgerð­ar­innar þvertekur fyrir að um auglýsingu að ræða, en Auðunn stað­festir að þeir hafi fengið hjálp frá þeim við gerð mynd­bandsins, auk þess sem Tuborg fékk sérstakar þakkir við birtingu þess.
Fréttir

Fjöl­skylda brotaþola Roberts Downey ringluð eftir nýjar upplýsingar í málinu

„Við erum bara venjulegt fólk sem vill fá hrein­skilin og eðlileg svör,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, faðir Nínu Rúnar Bergs­dóttur, einnar stúlkunnar sem Robert Downey braut á. Feðginin hafa ítrekað kallað eftir svörum frá Bjarna Benedikts­syni um málið, án þess að fá nokkur viðbrögð. Bjarni svarar núna leiðara­höfundi Frétta­blaðsins, og í svörum hans kemur fram að hann hafði enga aðkomu að málinu, sem var afgreitt áður en hann tók við ráðuneytinu.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár