Svæði

Ísland

Fréttir

Innflytj­endur eiga undir högg að sækja í skólum landsins

Charmaine Butler hefur búið á Íslandi í níu ár og langar að starfa sem sjúkra­liði. Hún segist hafa mætt skilnings­leysi af hálfu skóla­stjórnenda þegar hún reyndi að sækja sér menntun hér á landi, sem varð til þess að hún hrökklaðist úr náminu. Forstöðu­maður Fjöl­menningar­seturs segir innflytj­endur eiga verulega undir högg að sækja í framhalds­skólum landsins.
ViðtalBörn fanga

„Mér leið eins og pabbi minn hefði dáið nema hvað ég sat uppi með skömmina“

Emma var tíu ára gömul þegar bankað var upp á og henni tilkynnt að faðir hennar hefði verið hand­tekinn. Næstu árin sat hann í fangelsi en eftir sat hún, uppfull af skömm og sektar­kennd sem var ekki hennar. Á meðan hún glímdi við umtal og dóma samfélagsins, þar sem fólk hringdi heim til hennar til að níðast á fjöl­skyldunni og kennari í mennta­skóla kallaði hana aðeins föður­nafninu, reyndi hún allt til að sanna að hún væri góð manneskja.

21 mín. lestur

Fréttir

Börn fanga, afskipt og einmana

Börn fanga glíma við marg­víslega erfið­leika í uppvextinum sem getur haft mikil og lang­varandi áhrif á líf þeirra og geðheilsu. Hvergi virðist vera gert ráð fyrir þessum börnum í kerfinu og engin úrræði standa þeim til boða. Þvert á móti eru þau jaðarsett, stimpluð og glíma við skilnings­leysi. Í stað þess að veita ungum dreng stuðninginn sem hann þurfti þegar faðir hans fór í fangelsi var hann settur í hlutverk vandræða­gemlings, þar til hann gekkst við því sjálfur og var sendur í skóla fyrir vandræða­unglinga.

15 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár