Aðili

Illugi Gunnarsson

FréttirOrka Energy-málið

Fékk 1,2 millj­ónir frá Orku Energy 2012

OG Capital fékk greiðslu frá Orku Energy árið 2012. Illugi Gunn­ars­son hefur sagt að „megin hluti“ vinnu hans fyrir Orku Energy hafi farið fram árið 2011. Illugi hefur sagt að hann hafi ekk­ert unnið fyrir Orku Energy eftir að hann sett­ist aftur á þing í októ­ber 2011. Illugi hefur jafn­framt sagt að hann hafi ekki fengið frek­ari þókn­anir frá Orku Energy en 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una sem verið hefur til umræðu síð­ustu daga.
FréttirOrka Energy-málið

Spurn­ingar sem Illugi hefur ekki svarað: Óút­skýrðar greiðslur til fyr­ir­tækis hans

Ráð­gjafa­fyr­ir­tæki Illuga Gunn­ars­sonar var með 1.700 þús­und króna tekjur árið 2011 og greiddi út laun fyrir tæp­lega 1300 þús­und. Illugi hefur sagt að hann hafi bara fengið greitt per­sónu­lega frá Orku Energy, 5.6 millj­ónir króna. Inni í ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu er auk þess rekstr­ar­kostn­aður upp á tæpa milljón.
FréttirOrka Energy-málið

Vilja upp­lýs­ingar um alla hugs­an­lega fyr­ir­greiðslu Orku Energy til Illuga

Þingkona Vinstri grænna, Bjarkey Gunn­ars­dóttir, lagði fram fyr­ir­spurn á Alþingi fyrir Illuga Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra. Til stóð að Bjarkey spyrði spurn­ing­anna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma en ekki gafst tími til þess. Spurn­ingar Bjarkeyjar eru í sex liðum. Illugi sagð­ist á þingi í morgun hafa greitt fyrir veiði­leyfi í Vatns­dalsá sum­arið 2014.

Mest lesið undanfarið ár