Svæði

Frakkland

Reynsla

Snæbjörn Brynjarsson

Rokk, krútt og íslenskt popp í París

Hátíðin Air d'Islande hefur verið haldin ár hvert í París frá árinu 2007, en í ár voru tón­leik­arnir vel sam­sett sýn­is­horn af því besta úr tón­list­ar­sen­unni í Reykja­vík. Þakið ætl­aði að rifna af Point Ephemere þegar einn tón­list­ar­mað­ur­inn hróp­aði: „Fuck the Icelandic prime mini­ster, fuck the Pana­mapa­per-people,“ sem fólk tók upp eftir honum og æpti aftur og aftur.
Erlent

Maðurinn sem hætti við að sprengja sig

Hann djamm­aði, not­aði dóp, átti kær­ustu en líka ævin­týri á homma­börum. Salah var langt frá því að vera strang­trú­aður múslimi. Nýverið láku upp­tökur af fyrstu yfir­heyrslu yfir honum eftir hand­töku út, en þær hafa leitt til mik­illar gagn­rýni á belgísk stjórn­völd. Frönsk dag­blöð birtu slitr­ótta og þver­sagna­kennda frá­sögn hryðju­verka­manns­ins, sem stang­ast á við veru­leik­ann en gefur okkur smá inn­sýn í hug­ar­heim manns sem ekki veit hvort hann vill lifa eða deyja.
Skýring

Panama-skjölin: Hörð við­brögð stjórn­valda í Frakk­landi

Franskir ráða­menn hafa lýst Panama-skjöl­unum sem einu stærsta og mik­il­væg­asta máli síð­ari tíma. Skatta­svik eru talin eitt alvar­leg­asta efna­hags­vanda­mál Frakk­lands og Evrópu og nú verði að beita öllum vopnum til að reyna upp­ræta slíkt. Nóg sé til að auð­æfum og fjár­munum í álf­unni – þeir eru bara geymdir ann­ars staðar og ekki nýttir. Frönsk stjórn­völd eru komin í hart og...
FréttirWintris-málið

Leynd­ar­mál Sig­mundar Davíðs

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir stefndi pabba sínum Páli Sam­ú­els­syni í des­em­ber 2006. Sumarið 2007 samd­ist um málið utan dóm­stóla og hún fékk rúman millj­arð króna sem end­aði í Wintris Inc. í skatta­skjól­inu Tortólu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra hefur þagað um pen­ing­ana á Tortólu síðan sem og upp­kaup Wintris Inc. á kröfum í bú föllnu bank­anna. Einn þekkt­asti skatta­skjóls­sér­fræð­ingur Evrópu, Torsten Fensby, segir að mál Sig­mundar Davíðs sé eins­dæmi í sögu Evrópu en bendir jafn­framt að engar sann­anir um lög­brot hafi komið fram þó spyrja mega spurn­inga um sið­ferði íslenska for­sæt­is­ráð­herr­ans.

20 mín. lestur

Erlent

Kakka­lakk­arnir í frum­skóg­inum

Þúsundir ein­stak­linga halda til í flótta­manna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bág­bornar aðstæður í „frum­skóg­inum“ eins og búð­irnar eru kall­aðar hefur íbú­unum tek­ist að byggja upp sam­fé­lag sem þeir til­heyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjón­ustu í þorp­inu, svo sem bóka­söfn, menn­ing­ar­mið­stöðvar, veit­inga­staði, moskur, kaffi­hús og kirkjur. Frönsk yfir­völd rifu hins vegar niður stóran hluta búð­anna og óvissa ríkir um fram­haldið.

15 mín. lestur

Fréttir

Rekinn úr landi með fullan maga af sprengju­brotum

Afganskur flótta­maður hefur, eftir ára­langar hrakn­ingar sótt um dval­ar­leyfi á Íslandi, og fengið höfnun. Nú á að flytja hann til Frakk­lands, þar sem hann var áður á göt­unni. Hann þarf á lækn­is­hjálp að halda vegna áverka sem hann hlaut á ung­lings­aldri, þegar upp­reisn­ar­menn í Afganistan reyndu að drepa hann. Þráir hann heit­ast af öllu að fá tæki­færi til að lifa frið­sömu og eðli­legu lífi hér, en ekk­ert bendir til þess að stjórn­völd verði við þeirri bón.

Mest lesið undanfarið ár