Flokkur

Fátækt

Fréttir

Þor­steinn Víglunds­son svarar Mikael Torfa­syni: Allir á þingi „brenna fyrir hug­sjónum sínum“

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, Þor­steinn Víglunds­son, segir Mikael Torfason hafa eytt mestum tíma í að lýsa megnri andúð á núver­andi rík­is­stjórn en minni í að benda á hvað megi gera til að bæta úr. Hann kallar á eftir upp­byggi­legri umræðu um fátækt án þess að talað sé með niðr­andi hætti um núver­andi fyr­ir­komu­lag eða þá sem við það starfa.
Úttekt

Nið­ur­læg­ingin: Þau verst settu eru skilin eftir

Öryrkjar eru brot­hættur hópur fólks á jaðri fátæktar. Flókið almanna­trygg­inga­kerfi, lágur örorku­líf­eyrir, nið­ur­læg­ing og skömm er raun­veru­leiki okkar allra við­kvæm­ustu ein­stak­linga. Vegna kerf­is­ins geta þeir neyðst til að senda barn sitt út af heim­il­inu eða skilja við maka sinn á gam­als aldri til að forð­ast skerð­ing­arnar. Þingmenn hafa fengið fimmt­án­falda kjara­bót á við öryrkja á kjör­tíma­bil­inu.

31 mín. lestur

Úttekt

Fátæku börnin

Sautján ára stúlka sem býr við sára fátækt seg­ist finna fyrir for­dómum frá jafn­öldrum vegna aðstæðna hennar. Hún á aðeins eitt par af skóm og götótt föt. Samkvæmt skýrslu UNICEF má gera ráð fyrir að 6.100 börn líði skort hvað varðar fæði, klæði og hús­næði hér á landi. Þar af líða tæp­lega 1.600 börn veru­legan skort. Barna­fá­tækt stafar af því að for­eldrar hafa ekki fram­færslu sem dugar til að mæta grunn­þörfum barna sinna – og þar standa líf­eyr­is­þegar verst. Erfiður hús­næð­is­mark­aður setur einnig stórt strik í reikn­ing­inn en meg­in­þorri örorku­líf­eyr­is­þega býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað og flestir eru á leigu­mark­aði. Stundin ræddi við ein­stæðar mæður á örorku­líf­eyri um bar­átt­una við að tryggja börnum þeirra áhyggju­lausa æsku.

13 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár