Flokkur

Evrópusambandið

Erlent

Kakka­lakk­arnir í frum­skóginum

Þúsundir einstaklinga halda til í flóttamanna­búðum við Erma­sundið sem hefur verið lýst sem þeim verstu í heimi. Þrátt fyrir bágbornar aðstæður í „frum­skóginum“ eins og búðirnar eru kallaðar hefur íbúunum tekist að byggja upp samfélag sem þeir tilheyra. Þar til nýlega mátti finna ýmsa þjónustu í þorpinu, svo sem bókasöfn, menningar­miðstöðvar, veitinga­staði, moskur, kaffihús og kirkjur. Frönsk yfirvöld rifu hins vegar niður stóran hluta búðanna og óvissa ríkir um fram­haldið.

15 mín. lestur

Erlent

ESB vill að ríki opni landamæri á ný til að bjarga Schengen

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins vill að ríki sambandsins aflétti vegabréfa­eftirliti á innri landa­mærum fyrir lok þessa árs, til þess að bjarga Schengen-samstarfinu, einu helsta afreki Evrópu­samvinnu. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu frá framkvæmda­stjórninni, sem breska blaðið Guardian hefur séð og skrifar um í dag. Landamæra­eftirlit og ýmiss konar landamæri hafa birst innan Evrópu í tengslum við flóttamanna­vandann í álfunni. Frá...
ÚttektStríðið gegn ISIS

Við mættum brjáluðu hafinu, en erum nú komin í skjól

Þúsundir sýrlenskra flótta­manna koma til höfuð­borgar Þýska­lands í viku hverri. Kanslari Þýska­lands hefur gefið það út að engin takmörk séu fyrir því hversu mörgum flótta­mönnum landið getur tekið á móti. Þessir nýju íbúar Berlínar koma sumir hverjir saman í menningar­miðstöðinni Salam í úthverfi borgarinnar. Þar er spilað, sungið og skeggrætt um stjórnmál. Þrátt fyrir erfið­leika og óvissu eftir langt og strangt ferðalag er þakklæti ofarlega í huga þessa fólks.

16 mín. lestur

Erlent

Verkefni Tsipras: flóttamanna­vandi og endur­reisn hagkerfis

Alexis Tsipras sór embættiseið í annað sinn sem forsætis­ráðherra Grikk­lands eftir kosninga­sigur Syriza-flokksins um helgina. Tsipras hafði boðað til kosninga svo þingið og ríkis­stjórnin fengi endurnýjað umboð til að leysa úr vanda­málum Grikkja. Hann lofar að gera endur­reisn efnahags landsins að sínum „fyrsta bardaga“. Frá þessu er greint á vef Reuters. Syriza-flokkurinn fékk mest fylgi allra framboða til gríska þingsins,...
Erlent

Evrópu­sambandið samþykkir flutning á 120 þúsund flótta­mönnum

Innan­ríkis­ráðherrar Evrópu­sambands­ríkjanna hafa samþykkt samkomulag sem mun deila 120 þúsund hælis­leitendum niður á ríki sambandsins. Fólkið er að mestu leyti staðsett í Grikk­landi, á Ítalíu og í Ungverja­landi núna. Rúmenía, Tékkland, Slóvakía og Ungverja­land greiddu atkvæði gegn samkomu­laginu. Finnar sátu hjá við afgreiðslu málsins. Öll önnur ríki greiddu atkvæði með samkomu­laginu á fundinum í dag. Það er mjög óvenjulegt að...

Mest lesið undanfarið ár