Aðili

Alþingi

FréttirAksturskostnaður þingmanna

Sig­mundur Davíð þiggur hús­næð­is­greiðslur þrátt fyrir til­vitnuð orð hans um annað

Nýbirtar upp­lýs­ingar um greiðslur til þing­manna stang­ast á við svör Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, sem birt voru í DV. Sagðist hann aldrei hafa þegið hús­næðis- og dval­ar­greiðslur. Alþingi hefur birt á vef sínum upp­lýs­ingar um fastan kostnað þing­manna auk þing­far­ar­kaups. Til stendur að birta óreglu­legan kostnað, þar með talið end­ur­greiðslur vegn ferða­kostn­aðar, og upp­lýs­ingar tíu ár aftur í tím­ann.
Fréttir

Þingmenn umgang­ast end­ur­greiðslu­kerfið frjáls­lega þrátt fyrir afdrátt­ar­laus fyr­ir­mæli siða­reglna

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, rukkar Alþingi fyrir akst­urs­kostnað vegna próf­kjörs­bar­áttu og þátta­gerðar á ÍNN. „Þingmenn skulu sjá til þess að end­ur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í full­komnu sam­ræmi við reglur sem settar eru um slík mál,“ segir í siða­reglum þing­manna.
FréttirAkstursgjöld

Úrskurð­ar­nefnd vís­aði frá beiðni Stund­ar­innar um upp­lýs­ingar um akst­urs­gjöld þing­manna

Stundin kærði þá nið­ur­stöðu skrif­stofu Alþingis að veita Stund­inni ekki upp­lýs­ingar um akst­urs­gjöld þing­manna. Skrif­stofa Alþingis hafn­aði sams konar beiðni frá Stund­inni og for­seti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, sam­þykkti að veita upp­lýs­ingar um í síð­ustu viku á grund­velli spurn­ingar frá Birni Leví Gunn­ars­syni.

Mest lesið undanfarið ár