Heiða Helgadóttir

Ljósmyndari

Dagur í lífi verkalýðsleiðtoga: „Ég held að við vinnum þetta“
Nærmynd

Dagur í lífi verka­lýðs­leið­toga: „Ég held að við vinnum þetta“

Það er sjaldan logn í kringum Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar. Enda sæk­ist hún ekki sér­stak­lega eftir því, jafn­vel þótt hún þakki með­byr sam­fé­lags­ins. Sér­stak­lega und­an­farnar vikur, þar sem verk­föll, dóms­mál og harðar deilur hafa stýrt storm­inum beint í fang hennar. Blaða­maður og ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fylgdu Sólveigu Önnu eftir einn örlaga­ríkan föstu­dag.
„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við erum öll á lífi“

Úkra­ínsku flótta­menn­irnir Volody­myr Cherniavskyi og kona hans, Snizhana Prozhoha, búa ásamt tveimur dætrum sínum í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garðabæ. Fjöl­skyldan flutti til Íslands í mars í fyrra eftir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­innar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér þaðan yfir til Póllands og svo til Íslands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokkur skipti í byrjun jan­úar og kynn­ast lífi þeirra á Íslandi.
Samheldni og náungakærleikur áberandi í Eyjum
Myndir

Sam­heldni og náunga­kær­leikur áber­andi í Eyjum

Íbúar í Vest­manna­eyjum virð­ast bregð­ast við ástand­inu sem þar hefur skap­ast vegna COVID-19 með æðru­leysi og von um að allt fari á besta veg. Þar hafa meira en hund­rað íbúa greinst með kór­óna­veiruna og á þriðja hund­rað er í sótt­kví. Dagsferð Heiðu Helga­dóttur ljós­mynd­ara til Eyja breytt­ist í langa helg­ar­ferð þar sem hún varð veð­ur­teppt í Eyjum. Það kom ekki að sök, því Eyjamenn tóku henni opnum örmum og leyfðu henni að fylgj­ast með óvenju rólegu mann­líf­inu þar þessa dag­ana. Hún segir sam­heldni þeirra og sam­kennd áber­andi, eins og Hlynur lög­reglu­maður, sem fór með henni víða um Eyjarnar, sagði: „Þetta er afskap­lega létt og gott sam­fé­lag, allir eru mjög sam­huga. Við ætlum bara að klára þetta saman.“
Sálarsystur
Myndir

Sál­ar­systur

Innan um ilm­andi birki­trén í litlum kofa í Kjósinni dvelja tvær konur, Ágústa Kolbrún og Sara María Júl­íu­dóttir. Þær er bestu vin­konur og hafa búið saman í um eitt ár, lengst af í bústað uppi í Heiðmörk, þar sem þær þurftu að sækja sér vatn í læk­inn á hverjum degi. Þeim líkar vel við að búa í tengslum við nátt­úr­una og fá mik­inn inn­blástur þaðan í líf sitt. Þær eru nánar vin­konur, nán­ari en gengur og ger­ist, en þær lýsa sam­bandi sínu sem ást­ar­sam­bandi án þess að vera neitt kyn­ferð­is­legt, þær séu sál­ar­fé­lagar á náinn hátt. Hægt er að tengj­ast þeim á Facebook eða gegnum: Forynja á Instagram.
Reykjavík 104,5: Íslenska flóttafólkið í Laugardalnum
Myndir

Reykja­vík 104,5: Íslenska flótta­fólkið í Laug­ar­dalnum

Tjald­bú­arnir í Laug­ar­dal standa saman í bar­átt­unni fyrir mann­sæm­andi lífi. Einn flutti í tjald eftir hjarta­á­fall, annar skildi við kon­una, þriðji valdi hund­inn fram yfir her­bergið og flutti í jepp­ann sinn, fjórði lenti í slysi og missti húsið á nauð­ung­ar­upp­boði, enn önnur vék fyrir fjöl­skyldu úr íbúð og loks eru það þeir sem hríf­ast ein­fald­lega af þessu nýja sam­fé­lagi íslenskra flótta­manna í hjarta höf­uð­borg­ar­innar.

Mest lesið undanfarið ár