Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Góðan daginn. Þetta er mannfræðihlaðvarpið Raddir margbreytileikans, þrítugasti og áttundi þáttur. Ég heiti Kristján Þór Sigurðsson og ætla að ræða við Þóru Björnsdóttur í dag. Þóra er fædd í Reykjavík árið 1986.
Hún lauk BA-námi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2009, MA-gráðu í þróunarfræðum frá sama skóla árið 2011 og hefur nýlokið doktorsprófi frá Háskóla Íslands árið 2023.
Doktorsrannsókn Þóru varpar ljósi á líf barna sem flytja að heiman á eigin vegum fyrir átján ára aldur í Gana, það er að segja svokallað flutningsferli þeirra, hugtak sem hún notar með áherslu á réttindi barnanna. Rannsóknin skoðar hvernig hefðbundin réttindi hagnast þessum börnum eða ekki og hvernig þau móta sín eigin réttindi, svokölluð lífsréttindi, þegar hefðbundnu réttindin eru ekki fullnægjandi.
Þessi hefðbundnu réttindi eru í samræmi við alls konar alþjóðasamninga og venjur. Áhersla er lögð á sjónarhorn þátttakenda, með raddir þeirra og atbeina í forgrunni.
Þóra hefur starfað með börnum og ungu fólki í fjölda ára og starfar í dag sem verkefnastjóri frjálsra félagasamtaka, þar sem hún meðal annars mótar og sinnir forvarnarfræðslu um ofbeldi gegn börnum. Hún hefur einnig starfað sem aðstoðarkennari og leiðbeinandi við Háskóla Íslands, verið sérkennslustjóri á leikskólanum Holti sem og verkefnastjóri Erasmus+-verkefnis sem snýst um andlega heilsu fólks.
Í dag starfar Þóra sem verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheill – Save the Children in Iceland, en það verkefni snýst um kynheilbrigði barna. Þannig að það eru verkefnisstjóri þessu börnin hér í öndvegi. Komdu sæl.
Blessaður. Það má sjá þig. Heyrðu, segðu mér eitt. Við byrjum alveg út af því að spyrja mig svona banal spurningar: Af hverju mannfræði og þróunarfræði? Af hverju fórstu í mannfræði?
Já, góð spurning. Ég er búin að hugsa það mikið. Þetta er svona eitt af þessum óræðu hlutum sem verða einhvern veginn í lífi manns. Ég ætlaði nefnilega ekkert að fara í mannfræði. Ég sá alltaf bara, þegar ég var í menntaskóla, fyrir mér að fara í sálfræði eða lögfræði, jafnvel hafa það efst í huganum.
Svo held ég að síðast þegar ég tók einn áfanga í menntaskóla, sem var kenndur af mannfræðingi, hafi áhugi minn á mannfræði kviknað. Ég var á sama tíma búin að hugsa mér að fara eitthvert erlendis í sjálfboðastarf. Ég ætlaði að fara til Indlands og dreif mig í að skrá mig í námið áður en ég myndi fara.
Svo var ég einhvern veginn komin hérna niður á skrifstofu og var eitthvað að pæla í þessu og ákvað einhvern veginn bara að fara í mannfræði á staðnum eiginlega. En þetta var eiginlega svolítið tilviljun, en samt eitthvað sem hafði verið undirliggjandi.
Og svo í mannfræðinni mótaðist meiri áhugi hjá mér. Ég fékk sérstakan áhuga á mannfræði barna.
Og svo seinna byrjaði svona alþjóðlegur áhugi líka. Já, ég fór að hugsa svolítið út í alþjóðastofnanir og samninga og vinnu barna, skoða það í BA-náminu, og þá kviknaði meiri áhugi á þróunarfræðunum. Þannig að ég vildi einhvern veginn skoða það betur og fór þá í meistaranám í þróunarfræðum í framhaldi af þessu.
Af hverju eru börn? Hvað var það sem heillaði þig svona við að fara að skoða líf og tilveru barna, sérstaklega í svona þróunarfræðilegu samhengi?
Það er nefnilega líka svolítið fyndið. Ég held að einhvern veginn hafi allt námið og líf mitt farið svolítið örlagaleiðina. Ég ætlaði nefnilega alls ekki að gera neitt tengt börnum. Ég sást alin upp af móður minni, sem er leikskólastjóri og hefur verið mikið í þessu umhverfi, og ég var svona: „Já, ég ætla ekki að fara þá leið í lífinu.“
En svo fór ég í mannfræði barna í BA-náminu og átti meðal annars frábæran kennara, Önnu Jónínu Einarsdóttur, og fleiri. Ég fékk bara ótrúlega mikinn áhuga á þessu viðfangsefni sem maður fjallaði um þar og ákvað að taka það síðan áfram í BA-ritgerðina mína. Og svo breyttist ég þar.
Áhuginn einhvern veginn, og bara þetta er ótrúlega margt áhugavert við að starfa með börnum og umhverfi og líf barna og þannig.
Þá fórstu svona yfir í þróunarfræðina meira. Svo gerðist eitthvað og ég fór sem sjálfboðaliði með AUS 2006 og átti að merkja við hvaða land ég vildi fara til. Það varð svolítið svona öðruvísi, að ég ætlaði að fara í styttri tíma. Yfirleitt var bara verkefni í hálft ár eða heilt ár og ég var allt í einu komin yfir til Afríku. Ég veit ekki einu sinni af hverju.
Ég átti bara að merkja við þrjú lönd sem ég hefði áhuga á að fara til og ég man ekki enn þá hvað verkefnið í hálft ár var. Í einu fékk ég bara boð um að fara til Gana, að það sem sagt væri verkefnið þar sem ég gæti, og ég bara tók því.
Jú, þetta átti minnst á sex og það var fyrsta ferðin mín sem ég fór þangað.
Já, þarna fór ég að tengjast Gana og var í þrjá og hálfan mánuð og starfaði á svona heimili fyrir börn og kynntist þeirri hlið þá.
Hún ætlaði bara alveg að fjalla fyrir landinu og menningunni, fólkinu og öllu, og leið bara eins og ég væri heima hjá mér. Svo þegar ég kom heim til Íslands, þá einhvern veginn var bara hluti af mér eftir, þannig að ég fór að fara aftur og aftur og hef farið nánast á hverju ári síðan þá.
Svo bara einhvern veginn héldu örlögin áfram. Ég ætlaði í meistaraverkefninu mínu að fara eitthvert allt annað, og skoðaðist ég ætlaði að fara til Afríku og einhvers annars Afríkulands að gera meistaraverkefni um þátttöku barna.
Svo komst ég bara að því að það voru alveg ótrúlega mörg verkefni í Gana sem snerust um þátttöku barna, þannig að ég endaði þar aftur og hef einhvern veginn enn endað þar aftur og aftur síðan. Og bara fest þar. Þetta er svona orðið annað heimaland.
En segðu mér, síðan förum við aðeins að snúa okkur að þessu doktorsverkefni, sem er náttúrlega allt þetta hitt var náttúrlega bara einhver undirbúningur fyrir það, einstakt sem hann hérna, þegar ég fór að skoða þetta sem sagt. Ég var nú ekki á vörnin, en ég sá hana aftur á móti aðeins hérna bara á netinu, þar sem hún átti svona einhvern mestan áhuga hjá mér, fyrir utan bara líka þessa hluti sem þú ert að fjalla um. Það er þessi vettvangur, þessi aðferðafræði, sem að vera að gera rannsókn með svona ungum krökkum sem stundum eru átján ára. Þú ert beint að eltast við þessa krakka?
Hluti af þátttakendum voru einstaklingar sem höfðu tiltölulega nýflutt að heiman og voru þá undir átján ára, og svo var líka hluti sem voru fullorðnir sem fluttu þegar þau voru börn.
Jú, ég var vissulega að eltast við marga í gegnum þetta tímabil. Var ekki svolítið erfitt að henda reiður á bara hvar þeir voru? Og væntanlega hefurðu þurft að byggja svona traust á milli þín og þeirra til þess að yfirhöfuð fá aðgang að þeim.
Já, alveg algjörlega. Ég var með fólk sem aðstoðaði mig og ég hafði nú þessi tengsl við landið. Ég hafði verið þarna oft áður, sem hjálpaði mér mikið, og svo eru börnin mín hálfganísk og fjölskyldan þeirra er frá þessu svæði þar sem þessir þátttakendur koma.
Já, norður- og austurhlutann, þannig að allt þetta hjálpaði til að styrkja einmitt þetta traust og tengslin. Svo náttúrlega varð það þannig að ég vissi í rauninni ekkert þegar ég fór fyrst að ég myndi ná eða hvort ég myndi yfirhöfuð ná að hitta einhver af þeim svona oft eða ekki.
Það kom alveg upp á, hérna, ég hafði kannski bara heyrt af einhverjum sem var farinn eða rakst óvart á einhvern nokkrum árum seinna og svoleiðis. Þetta var oft bara svona alveg tilviljunarkennt, en aftur, með þessari aðstoð þá fékk ég líka aðstoð frá einhverjum sem þekkti einhverja og gat hringt og alls konar þannig. Þannig að ég náði einhvern veginn að hitta ákveðinn hóp mjög oft yfir þetta langa tímabil og aðra hitti ég kannski bara einu sinni.
Hann hætti að vera svona aðeins með sviðið, svona mold í sætisrannsókn, sem sagt. Þú hefur verið þarna, þú varst náttúrlega mikið niður í Accra eða, jú, ég var að mestu leyti þar, langmest. En svo einmitt fylgdi ég eftir þegar ég heyrði að einhver hefði flutt til baka eða farið til baka, þá fór ég sem sagt norður og leitaði uppi og fann einhverja og fór að spyrjast fyrir um af hverju eða hvernig lífið væri núna og svoleiðis.
En svolítið byrjaði rannsóknin líka á öðrum nótum. Ég hef til dæmis talað við foreldra fyrir norðan, sem var hugmynd á tímabili að hafa með, þannig að já, sem sagt, ég var aðallega í Accra og svo hluta þarna í norðausturhlutanum.
Segðu mér þetta, borgin, hvað er þetta stór bær, Bolgatanga? Ég veit ekki alveg, hún er alveg frekar stór og ég var ekki bara í Bolgatanga-borginni, heldur fór ég, ég elti þau í sveitirnar líka í kring, þannig að bara þar sem ég heyrði að þau væru í reynd, þar mætti ég. En þetta er kannski svipað svona eins og Tamale.
En hérna, þú varst þarna yfir þessa rannsókn, hvað aftur varstu á, þrettándu, sautján að mig minnir, en Tamale, og varstu allan tímann þarna eða komstu heim í millitíðinni?
Að einblína á að tala við stofnanir og samtök eins og UNICEF og við ráðuneyti og alls konar aðila sem gætu haft eitthvað um þetta að segja, þá var ég svona aðeins meira að hugsa um mannsalsvinkilinn á þessu verkefni. En hérna sneri ég mér svo bara í aðra átt, 2015, og vildi bara einblína á raddir þeirra sem tóku þátt og hvernig þau voru að upplifa sínar aðstæður og bara aðstæður barna sem flytja á svoleiðis. Já, að minnsta kosti fannst mér þetta svolítið áhugavert.
Og svona mannfræðilegur vinkill líka, að festast ekki í þessum klisjukenndu hugmyndum um að börn sem eru í sérstöðu séu fyrst og fremst bara fórnarlömb mansals og hættu, heldur að þetta séu líka einstaklingar með vilja og sjálfsvald.
Algjörlega, og ég komst alveg að því þarna 2013, þegar ég byrjaði, að það var bara eiginlega enginn áhugi á þessum hópi, börnum sem flytja. Það var áhugi á þessum hugtökum mansali og krökkum sem búa á mansalssvæðunum eða starfa á þeim svæðum, og hérna börnum sem eru í svona erfiðisvinnu og þessum konseptum sem eru innan kannski þróunarfræðinnar og innan þessa geira. En það var enginn sem var sérstaklega að hugsa um börn sem flytja, þannig að þau voru bara rosalega mikið ein og…
Þá fannst mér ekki einhvern veginn að ég ætti að taka þann vinkil á þetta. Þá þurfti ég bara að skoða þeirra sýn og hvernig líf þeirra var. Við ræddum að þau tækju sig upp, svona af eigin…
…eigin vegum. Krakkarnir fluttu nú alltaf mjög ung, þegar þau voru að fara, þú veist, tíu, ellefu, tólf ára, bara á eigin vegum að heiman. Og eru ekkert algjörlega…
Auðvitað ertu alltaf háður einhverju umhverfi og svoleiðis, en svona tiltölulega bara á eigin vegum.
Þessi áhugaverða hugmynd datt allt í einu í hug, sko, um það að fólk sé að ímynda sér einhvern kominn krakka sem fer í norðurhluta Ghana, stingur af bara án útvarða, og er að fara suður eftir. Það hljóti að vera rosalega hættulegt.
Þegar ég var hérna á sínum tíma niðri í Ghana, ég var bæði að þvælast í Accra og í einhverjum hverfum þar sem margir menntamenn eru. Það var ekkert, ekkert að vera að… Það var aldrei sú mínúta á þessum tíma sem ég var þarna að mér fyndist ég vera…
…óörugg. Mér fannst aldrei stafa nein ógn af umhverfinu á neinn hátt. Það var alltaf fólk tilbúið að styðja mann, eða hvern sem var. Aftur á móti að fara inn í bæ hérna í Reykjavík, sko, á þeim tíma, það var bókstaflega hættulegt.
Þannig að ég hugsa að margir ímyndi sér, þegar þeir heyra af svona hlutum, af því að þetta er í Afríku, að það verði rosalega hættulegt.
Ég held að það geti jafnvel verið miklu hættulegra að ferðast um Evrópu í dag, sem krakki. Já, ég meina, þetta er næstum bara fjarlægt fyrir marga. Ég er alveg sammála. Ég hef ferðast mikið í Ghana og verið mikið ein í Ghana og í Accra líka.
Ég fer alveg ein út á kvöldin hingað og þangað í Accra og mér finnst það ekkert mál. Varðandi hættur fyrir börn, þá er auðvitað alls staðar hægt að segja að það séu hættur, ef þú lítur þannig á það.
En það er líka fullt af tækifærum og möguleikum fyrir þá sem þurfa á því að halda. Það má ekki gleyma því að þessi börn hefðu kannski bara búið við, eins og þau töluðu um sjálf, miklu erfiðari aðstæður heima ef þau hefðu ekki farið neitt, heldur en með því að flytja.
Það má ekki heldur einhvern veginn bara ákveða það að flytja sé bara að stofna sér í hættu.
En heimurinn er eins og hann er. Mér datt í hug að þetta væri nákvæmlega staðalmyndin, sko, af Afríku: að þetta sé allt stríð og eitthvað óbótamál.
En það er hugtak sem þú notar í sambandi við þessar pælingar, sem þú átt að nota í sambandi við krakkana, sko. Þessir krakkar þurfa náttúrlega hugrekki. Þetta eru…
…hugrakkir krakkar sem taka þessa að því er virðist ákvörðun um að stinga af að heiman og fara í langt ferðalag og vita ekki hvað bíður þeirra. Sko, þetta krefst náttúrlega hugrekkis og svona…
…sjálfstæðis, og þess vegna er kallað þetta „agency“, sem er erfitt að þýða á íslensku.
Ég hef nú notað orðið sjálfræði, eins og að geta gert eitthvað sjálfur, og það skiptir ekki máli. En þetta…
Mér finnst þetta nefnilega skemmtilegt við söguna, þegar ég var að lesa þetta, að hafa ávöxtun á þessu. Þau töluðu um að þau væru kölluð ólögráða börn, en þau hafa sínar skoðanir og vilja.
Og hafa ákveðnar skoðanir á því hvernig þau vilja lifa sínu lífi.
Á meðan öll opinbera orðræðan gengur út á það að þau séu jafnóðum vernduð, sem er vissulega bara gott mál, þau eigi rétt á vernd foreldra eða aðstandenda. Það er meðal annars lagalegt, þannig að þau eru að brjóta af sér í rauninni líka.
Ef maður miðaði við það hversu mikið fólk, borgaralegir aðilar, pæla í einhverjum vestrænum lögum og þess háttar. En mér finnst þetta svona fascinerandi við þessa sögu, þetta ferðalag, að gefa þeim þetta.
Já, það er það. Allir gera sér grein fyrir, eða þú veist, fólk gerir kannski ekki grein…
Fyrir nema þeir sem hafa ferðast þarna. Þetta er rosalega langt ferðalag og ég hef verið allt upp í 18 klukkutíma í rútu þarna á milli. Þetta getur verið erfitt, sérstaklega þeir sem stinga af.
Þeir aðilar fóru oft bara á einhverjum svona kargóbílum eða sátu aftan á með geitunum, eða dýrunum sem var verið að flytja milli staða. Að gera það tíu, ellefu, tólf ára, þú þarft að hafa eitthvað í þér og þú þarft að vera svolítið hugrakkur til að gera það.
Atbeinið, einstaklingarnir, þau eru þarna að nýta það. Þau eru sjálf að taka þessa ákvörðun fyrir sig, af því að þetta er þeirra ákvörðun sem þau töldu best fyrir sig miðað við aðstæður. Ég var alveg svolítið lengi að tengja atbeinið eða sjálfsvaldið. Sjálfsvald er flott orð. Ég tengdi það alveg fljótt.
En svo koma inn lífsréttindin. Það eru réttindin sem þau búa sér sjálf til, sem við förum kannski eftir. En þetta sjálfsvald, þau eru svona bara að velja og taka ákvarðanir.
Og það er nú þá bara nákvæmlega sem ég er að gera.
Og það minnir mig á margt sem kviknaði hér þegar ég las þetta. Til dæmis umræðuna um flótta fólks til Evrópu, fólk sem er að reyna að komast þangað. Ég bjó í London einu sinni og þá var ég í viðtali við einhvern þekktan gæja. Hann var að ráða leiðtoga fyrir flott fyrirtæki og var spurður að því hvaða eiginleika hann væri að leita að hjá einhverjum leiðtoga.
Hann sagði frá ungum strák sem kom frá Vestur-Afríku sem flóttamaður. Hann lagði af stað frá einhverju litlu þorpi í Vestur-Afríku og yfir Sahara. Þetta var rosalega erfið ferð og hann lenti í alls konar hættum. Hann komst til London og kynntist þessum manni. Hann sagði: „Þessi maður hefur allt sem þarf til að bera. Hann er búinn að læra þetta allt, hann getur leyst öll verkefni, hann hefur lausnir á öllu.“
Þetta er rosalegt lærdómsferli og hvað þarf til þess að komast í gegnum bara daginn og lífið. Þau þurfa að vera rosalega klár og mynda tengsl. Það er svo margt sem þarf að gerast til þess að þau komist í gegnum daginn.
Það þarf mikið til þegar þau taka þessa ákvörðun.
Margir höfðu haft þetta í huga, jafnvel alla ævi, eða bara í langan tíma. Þessi löngun til að fara var ekkert endilega skyndiákvörðun, þótt þau hafi kannski strokið eða flúið að heiman, eða hvernig sem ég vil orða það. Þetta hafði oft grasserað í einhvern tíma.
Svo eru þau að eiga við og kljást við alls konar aðstæður sem eru alltaf að breytast. Þau koma alltaf inn í einhverjar nýjar aðstæður, bæði nýja staði og nýtt félagslegt umhverfi, nýtt fólk sem þau hitta. Þannig að þetta krefst rosalegrar hæfni.
Þau læra alveg eins og þessir krakkar geta allt þegar þau koma að þessu.
Það finnst mér svo flott, að einbeita sér að þessu, eins og ég sagði. Fókusinn er svolítið á þetta, heldur en að þau séu annaðhvort í mansali eða fari út í einhverja glæpi, sem sum lenda náttúrlega í, já, að sjálfsögðu. Það má ekki gleyma því. Ég fór þessa leið í minni rannsókn, en að sjálfsögðu eru fullt af börnum sem lenda í þeirri leið eða fara þá leið.
En mér finnst bara svo mikilvægt líka að við séum ekki að blanda þessu saman. Það var það sem mér fannst mikilvægt að vekja athygli á þegar ég byrjaði á þessum vinkli: að við séum ekki að blanda saman, af því að það eru vissulega börn sem verða fyrir mansali og upplifa alls konar erfiða hluti. Það má þó ekki kalla hina, sem eru að gera þetta til þess að lifa af eða vilja það, það sama og taka athyglina frá hinum. Þannig að við þurfum bara að vinna með hugtökin á réttum stöðum.
En við erum náttúrlega annars að skoða umgjörðina. Þar fer fólk náttúrlega að sjá fyrir sér alls konar hluti, sem er svona skilgreiningaratriði, hvort það sé glæpsamlegt eða ekki. Ég ætlaði á tímabili að einbeita mér líka meira að þeim hópi. Til dæmis ætlaði ég að tala við eina konu eða stelpu sem var vændiskona, sem ég sá hætta þessu.
Þessir aðilar eru að gera alls konar hluti sem eru einhvers staðar á gráu svæði og einhvers staðar yfir í ólöglega hluti. En ástæðan er sú að það þarf líka bara að horfa á þetta hlutlaust og fá að heyra: Af hverju er þetta svona? Og aftur, ekki gleyma hvernig staðan var áður og hvernig hún hefði verið ef þau hefðu ekki farið. Þetta er eiginlega þeirra val og vilji og það sem þau telja best fyrir sig sjálf.
Nákvæmlega. Og þarna getum við kannski komið aðeins inn á þessa sérstöðu sem þú ert að tala um í sambandi við þessi réttindi sem kallast lífsréttindi. Þetta er ákveðinn réttur sem börnin gefa sér sjálf. Það varð stundum að tala um þessi mannréttindi og fólk sagði: „Ég hef nú rétt á þessu og rétt á hinu.“ Þetta kom svolítið vel í ljós í COVID. Það þarf mannréttindabrot til að fara ekki til rakarans. En hérna er málið: það er ekki þannig.
Við höfum kannski dæmi um rétt á öllu, en í framhaldi af þessu, þessu sjálfsvaldi eða hvað við köllum þetta, skynja þessi börn að sá stofnanalegi og lagalegi rammi sem á að sinna þeim og gæta hagsmuna þeirra virkar ekki. Hann gagnast þeim ekki við þessar aðstæður. Þau búa sér til sína eigin stjórnarskrá, já, í rauninni. Þau vita bara hvað réttur á við, við getum orðað það þannig.
Þau voru alveg með það á hreinu, þó þau væru ekkert endilega á hreinu með hvaða lagalegu réttindi þau áttu. Þau vissu samt hvaða réttindi þau áttu, ekki endilega lagalega. Þau vissu að foreldrarnir áttu að sjá fyrir þeim og þau áttu rétt á að fara í skóla og alls konar svoleiðis, sem eru vissulega líka lagaleg réttindi, þótt þau hafi kannski ekki sett þau undir þann hatt. Að þeirra mati var þetta bara eitt af þeirra réttindum: að flytja að heiman og búa til betra líf fyrir sig, af því að öðrum réttindum var ekki sinnt þar sem þau bjuggu.
Það voru alls konar skýringar og ástæður fyrir því að þau fluttu þannig. Ástæðurnar voru, eins og ég segi, alls konar, en þeim fannst þetta bara vera þeirra eigin réttur: að fá að flytja. Þetta voru náttúrlega alls konar útgáfur af þessu, því að hver og einn átti sína sögu.
Þau voru mjög ólík og upplifðu flutningsferlið, lífið fyrir og lífið eftir með mjög ólíkum og einstaklingsbundnum hætti. Lífsréttindi þeirra voru auðvitað í grunninn þau að fá að flytja, en þau gerðu það með sínum hætti.
Það er mjög einstaklingsbundið hvernig þau upplifðu líf sitt og aðstæður eftir flutninginn, lífsréttindin og allt þetta. Sum voru meðvitaðri um hefðbundin réttindi sín en önnur, og réttindi yfir höfuð. Það var mjög misjafnt hvernig þau töluðu um lífsréttindi sín. Sum voru alveg hörð á því að þau ættu rétt á þessu og vissu hvað þau mættu og mættu ekki, á meðan önnur orðuðu það kannski öðruvísi.
Í grunninn er niðurstaðan sú sama: þau töldu sig eiga rétt á að flytja að heiman, því að aðstæður heima voru þannig að þau þurftu að gera eitthvað til að bæta líf sitt með einhverjum hætti.
En krakkarnir í Accra, sem þú varst að kynnast, þau komu þarna að norðan. Þetta er ekkert smátt samfélag. Jú, jú, þau eru í hópum, mjög áberandi, og þau tala um þetta sem svona Bolga kompáns, eða frá Pípúl, eða eitthvað þannig. Það eru ákveðin svæði í Accra þar sem fólk frá þessum svæðum býr.
Borgarfólkið, þú veist, og hinir frá einhverjum öðrum norðurhéruðum eða samfélögum; það er mögulega einhver blöndun, eins og Tamale og Bolga eru ekkert rosalega langt hvort frá öðru. En það er alveg klárt mál að þau hópa sig svolítið saman. Margir, eða nokkrir, sem tóku þátt byrjuðu á því að leita að fólki frá sínu héraði eða þaðan sem þau koma.
Þau styðja hvort annað, já, og tala náttúrlega sama tungumál, annað tungumál en talað er í Accra. Enska er náttúrlega opinbert tungumál, en það er náttúrlega líka tungumál að norðan. Þau upplifa sig kannski meira heima með því að vera í svona hópum, hjálpa hvert öðru, og það er stór þáttur í því að komast áfram og einhvern veginn komast í gegnum daginn.
Eftir flutninginn er mikilvægt að mynda þessi félagslegu tengsl. Þau töluðu mörg um hvað það skipti miklu máli að þau hjálpuðu hvort öðru. Ef einhver gat ekki fengið neina vinnu þann daginn og átti engan pening, þá fékk hann mat hjá vinum sínum, sem komu einmitt frá svipuðum aðstæðum og skildu þær.
En á móti kemur að sum töluðu líka um fordóma gagnvart þeim sem búa í Accra eða koma frá suðurhéruðunum; það væru ákveðnir fordómar gagnvart þeim sem koma að norðan. Það er margt ólíkt milli norðurs og suðurs, bæði sagan og trúarbrögðin. Það eru fleiri múslímar fyrir norðan og kristnir fyrir sunnan, og landið er þurrara fyrir norðan.
Þetta er svolítið eins og að koma bara í annað land, í rauninni, þannig að þetta er mjög ólíkt. Fólk frá Bolga eða frammi frá er svona stífara og nær ekki til fólksins, og það eru náttúrlega líka stéttbundnir fordómar.
Það er miklu meiri velmegun í suðrinu, ríkara svæði, vonandi. Hérna, byssusynir allir þar og peningarnir, og þetta eru einhverjir, eins og Íslendingar myndu segja, einhverjir afdalamenn fyrir norðan, sem eru eldri miðað við… Tölum svona sjálf.
En svo auðvitað má ekki gleyma því að það kemur alltaf fullt af flottu fólki, og auðvitað hafa þeir verið með forseta frá Norður-Gana núna. En þú veist, það er breyting. En vissulega, þú veist, er rosalegur munur ennþá og Norður-Gana er miklu fátækara, eins og þú segir, heldur en Suður-Gana, þannig að það er munur.
Og meiri svona hefðbundin, sko, eins og svona nornatrú og svoleiðis, svona trú og alls konar sem er meira þar. Þótt það finnist eins og annars staðar, svona sterkara einhvern veginn.
Já, en hérna, svo þegar þessir krakkar eru komnir þarna suður í stórborgina, hvernig hefur gengið að svona áætlanaverkið sitt, sem sagt, við förum náttúrlega með það í kannski í hug að safna sér peningum til skóla og mennta sig eða bara að öðlast betra líf? Hvernig hefur það gengið svona? Náttúrlega, alla vega, náttúrlega bara mjög einstaklingsbundið. Sumum hefur tekist, eins og ég, hérna, við vorum núna úti í janúar og ég reyndi að hafa samt, eins og ég geri alltaf, hérna, að heyra eitthvað af þeim sem ég hef talað við.
Þá hérna heyrði ég af einni stelpu sem hennar draumur var að vera hjúkrunarfræðingur. Ég hitti hana, hún var mjög dugleg að vinna og safna sér fyrir sinni eigin menntun. Hún hafði svolítið áhyggjur af því að hún komst á menntaskólaaldurinn, hvort þá yrði allt orðið dýrara, en hún hafði alltaf náð að halda áfram. Þannig að það var bara flott og hún var á þeirri braut sem hún ætlaði sér.
En svo eru aðrir sem hafa ekki náð þangað og alls konar hlutir komið upp. Ein stelpa sem ég hitti mjög reglulega í gegnum öll árin, öll tímabilin, hún hérna, til dæmis fyrst þegar ég hitti hana var alveg ótrúlega mikill metnaður í henni og hún ætlaði sér að vera hárgreiðslukona. Hún var að vinna og læra og alls konar, og svo varð hún ólétt.
Ári seinna, þegar ég kom til Gana, hafði hún fætt stúlku og þurfti að hætta í námi og fara að vinna. Barnsfaðir hennar flúði í burtu eða fór til Líbíu að leita starfa. Og þú sérð, það er alls konar sem kemur upp. Svo núna síðast þegar ég hitti hana hafði hún þurft að senda dóttur sína til tengdaforeldra sem bjuggu annars staðar í landinu, þannig að hún náði ekki að sjá fyrir henni og sjálfri sér.
Svona til þess að hún gæti mögulega átt einhvern sem kláraði það sem hún ætlaði að gera. Og hérna, já, þannig að það voru alls konar sögur, bæði jákvæðar og svona erfiðar og góðar. Þau áttu nú þarna bara sín tímabil og ég talaði töluvert um það. Þetta er nú þarna bara tilfinningalegur rússíbani sem þau ganga í gegnum, eins og maður þekkir bara í lífinu, hvers lífi, bara gerist alls staðar.
Einn hafði lent í því að ráðist var á hann og hann var stunginn nokkrum sinnum og þurfti að vera í mánuð á spítala. Hann forðaðist mig mjög þegar ég rakst á hann tilviljunarkennt, og svo hitti ég hann einmitt aftur daginn eftir að það kom upp og sagði mér hvað hafði gerst. Þannig að það voru alls konar sögur.
Svo frétti ég af einum sem hafði flutt til baka, sem ætlaði aldrei að flytja til baka. Ég ætla einmitt að tala við um það hérna, hvort einhverjir sem fóru til baka sneru við. Já, sko, á meðan ég gerði rannsóknina þá voru tveir sem höfðu farið til baka. Ein hafði farið í skóla í Tamale, þannig að hún fór ekki alla leið til baka en svona næstum því. Og svo einmitt þessi sem var harðastur á því að ég ætla sko aldrei að fara aftur. Hann var fullorðinn þegar ég talaði við hann, að vísu ekki barn, en hérna…
Hann var búinn að búa í Accra í mörg ár og átti mjög erfitt samband við fjölskylduna sína. Hann flutti ekki af efnahagslegum ástæðum. Hann var einn af fáum sem átti bara mjög efnaða foreldra, en samskiptin á heimilinu voru erfið. Hann flúði að heiman út af því að hann hafði lent í alls konar, meðal annars reyndi pabbinn síðan að senda einhverja menn til Accra á eftir honum, og það tókst einu sinni.
Þeir skipuðu honum að fara aftur til baka, en hann hélt nú ekki og stakk aftur af, og alls konar gerðist þegar hann var yngri. En þessi endaði sem sagt á því að fá vinnu fyrir norðan, sem hann hélt að hann myndi aldrei gera. Þannig að það voru einhverjir sem sneru aftur til baka, en það var hins vegar mikið talað um að þau gætu ekki farið aftur nema með eitthvað í höndunum eða hefðu eitthvað til að sýna fram á að þessir flutningar hefðu verið góð ákvörðun. Í rauninni var þetta líka eitthvað stolt í þeim; þau vildu ekki snúa tómhent til baka.
Og það var líka krafa, af því að það voru eiginlega allir sem töluðu um svona árangurssögur frá því áður en þau fluttu. Þau höfðu séð marga og heyrt um marga sem höfðu flutt fyrir þeirra flutning, sem höfðu bara meikað það og komu alltaf til baka í heimsókn og litu ótrúlega vel út og voru í flottum nýjum fötum, þannig að það leit út eins og þau hefðu ótrúlega gott líf í höfuðborginni. Já, og það kom svo í ljós að þetta voru eiginlega sögusagnir og þau áttu svolítið á hættu að gera það sama.
Þetta var líka það sem þau gerðu í rauninni þegar þau fluttu. Þau voru ekkert að ná þessum árangri sem þau ætluðu að ná, og þau vildu heldur ekkert fara heim í heimsókn og sýna að þau ættu erfitt líf í Accra. Þannig að þetta var svona sambland af þessu, og það var krafa hjá mörgum að þau myndu koma með eitthvað til baka, hvort sem það væri til þess að styðja fjölskylduna peningalega eða geta stofnað eða opnað eitthvað fyrirtæki fyrir norðan, eitthvað til þess að sýna fram á að þetta hefði ekki bara verið eitthvað bull til einskis.
Þannig að það var mjög mikilvægt fyrir þau. En á sama tíma veldur það því að þau telja sig oft ekki geta farið til baka, og það er það sem margir lenda í. Þeim finnst þau ekki geta snúið aftur til baka, þótt þau myndu kannski alveg vilja það. Þetta vekur upp flóknar tilfinningar, já, þegar kemur einmitt að því að hafa eitthvað í höndunum. Þau geta ekki bara farið til baka í sömu erfiðu aðstæður og þau voru í áður; þau þurfa eitthvað að gera.
Þau sögðu allavega flest að í höfuðborginni væri möguleiki á að fá vinnu og möguleiki á að gera eitthvað. Stundum væri það bara lítið og stundum aðeins meira, á meðan það var bara ekki neitt í boði í rauninni fyrir norðan. Sérstaklega þeir sem voru ekki búnir að mennta sig eða höfðu einhvern veginn engan bakvörð, þá var bara ekkert í boði í rauninni, miklu færri tækifæri. Þannig að þau festast svona pínu, eða pínu mikið, þau festast bara í höfuðborginni í rauninni.
Mér dettur í hug í sambandi við þetta allt saman, framtalið að vera svona streetwise, ég ætla ekki að þýða það yfir á íslensku. Það er þetta sem þessi börn verða. Þú ert að tala svolítið um það, sko, að við vorum að tala áðan um þessar hefðbundnu hugmyndir um að þetta væru austurlensk mansalsglæpi og þessi börn væru bara á glapstigum, sko, ef þau færu, hefðu ekkert um það að segja sjálf, sem magnar upp, eins og þín rannsókn sýnir.
Er ekki alveg rétt að þetta hugtak, götubörn, sem er stærra hér í heiminum, er hugsanlega hálfpartinn af verkum þessa götu? Og segir það, sko, að þú ert náttúrlega með mikilvægustu nálgunina, sem þú ert með, að nota þeirra raddir: Hvað eru þau að segja? Segjum við þetta, hvað og svo framvegis? Að þau hafna þessu hugtaki, eftir því sem þau segja. Þau segja: „Við erum ekki götubörn, heldur…“
„Erum við farandi fólk?“ Já, þau voru ekkert að skilgreina sig sem einhver götubörn eða…
Og bara, aldrei heyrði ég það frá þeim, og þau voru ekki til í það. Þau voru bara mjög stolt af því að vera frá Bolga og fraffra, þeir sem flokkurinn sagði komið frá, og skilgreindu sig þannig, ekki sem götubörn eða einhver krakka sem höfðu lent í einhverju erfiðu, þótt þau hafi vissulega mörg lent í alls konar. En þau voru mjög stolt af því hvaðan þau komu og hver þau voru. Þau voru einmitt bara krakkar sem flytja, en ekki einhver götubörn.
Svo segir hann að götubörn séu skilgreind sem börn sem búa við hættulegar aðstæður, einkum í borgum, án leiðsagnar og verndar fullorðinna. Mér finnst þetta svo áhugavert með þessa krakka, Viný, þína, hvernig þau eru svona… Það er svo skemmtilegt dæmi um þetta sjálfsvald.
Þau hafna þessum hegemonísku skilgreiningum á því hvað þau eiga að vera og hvað þau eru. Þau hafna því að þau séu götubörn og einhverjir… raunin er hætti. Þau hafa sitt sjálfsvald og þau stjórna að mörgu leyti sínu eigin lífi sjálf. Þau gefa sér þennan lífsrétt, mér finnst það eitthvað hugtak sem alþjóðlegir lögfræðingar hafa ekki mikið lært um í skóla.
Þannig að mér finnst þetta svo fáránlega áhrifaríkt, hvernig þessir krakkar skapa sér sínar eigin forsendur einhvern veginn.
Já, algjörlega. Og hvernig þau vilja bara að aðrir líti á sig, bæði það og hvernig þau upplifa sína veröld og sitt líf. Þeim finnst þau einmitt ekki vera bara einhverjir aumkunarverðir krakkar sem búa á götunni og vilja ekki fá þann stimpil á sig.
Hitt er svona meira, já, hvernig get ég orðað það, hetjulegt eða þannig, sem þeim finnst passa betur við sig. Já, en þau taka sér…
Þau taka sér þetta vald sjálf, að skilgreina sína stöðu. Svona, hver er krakka… skilurðu, eins og hún myndi segja, tólf ára, þú veist, fjórtán ára. Þannig að þetta sýnir manni kannski líka hvað manneskjan getur, hvort hún er ung eða ekki. Þegar fólk lendir í ákveðnum aðstæðum kemur það náttúrlega í ljós.
Hvað verður nú að… Við getum alveg… Ég held að allir þekki það, sama úr hvaða umhverfi þú lendir í. Þú þarft einhvern veginn bara að reyna að vinna úr því. Þú vinnur úr því sem þú hefur, og krakkar gera það líka alltaf og eru mjög klár.
Það þýðir ekkert að þú sért ekki nógu sterk eða nógu klár af því að þú sért krakki eða unglingur. Þau redda sér líka eins og aðrir og eru bara mjög góð í því.
En mér finnst einmitt alltaf gott kvót. Það var einn sem sagði: „Ég veit ekki hver réttindin mín eru, en ég veit hvað er rétt og rangt fyrir mig.“ Það lýsir þessu bara svo ótrúlega vel í grunninn.
Og heldur utan um einhvern veginn öll þessi hugtök og allt þetta konsept.
Já, af því að þau eiga þessi réttindi. Ghana er mjög framarlega meðal margra Afríkuríkja og skrifar undir alla mögulega sáttmála og samþykktir sem snúa að réttindum barna.
Það hefur verið það frá upphafi, sem fyrsta landið sunnan Sahara til að fá sjálfstæði og eitt fyrsta landið til að skrifa undir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það er með mjög flotta skrá yfir sáttmála, þessi hefðbundnu réttindi, og er með sérstakan réttindakafla undir stjórnarskránni. Þau eru bara með þetta allt á pappírum.
Algjörlega. En á sama tíma er þeim ekki endilega alltaf framfylgt. Þau eru einmitt að upplifa þetta, þessir krakkar heima og víða. Þá búa þau til sín eigin. Þetta er eitthvað svo flott testament fyrir einmitt þetta: hvað við getum verið þegar réttar aðstæður eru.
Þetta eru oft erfiðari aðstæður og þegar allt gengur mjög vel, þá dofnar þetta einhvern veginn. En segðu mér, sumt af þessu fólki hefurðu kynnst þegar það er orðið fullorðið í dag. Hvernig gekk þetta allt saman, kannski yfir lengri tíma?
Já, sko, ég náttúrlega hitti sum þeirra oft, jafnvel frá unglingsárum og yfir á fullorðinsárin, og svo hef ég líka fylgt eftir sumum fullorðnum. Það eru bara alls konar sögur og alls konar leiðir sem þetta gekk, en það sem er svona merkilegt við þetta er að þau eru öll alveg sammála því að þetta hafi verið rétt ákvörðun. Það finnst mér svona merkilegast við þetta, því að þótt þau hafi lent í einhverju rosalega erfiðu, sem mörg hafa lent í, þá finnst þeim þetta samt hafa verið rétt, í rauninni bara eina rétta ákvörðunin sem var í boði fyrir þau. Þau gátu alla vega búið sér til eitthvað smálíf sjálf, og það situr svolítið eftir hjá mér. Mér finnst alltaf alveg magnað að sama hvað þau hafa lent í, þá hafi þetta verið rétt ákvörðun að þeirra mati. Þetta eru alveg einstaklega flottir einstaklingar og alveg ótrúlegt. Mér finnst maður læra svo mikið af þessu, og það er svo flott að sjá krakka, hvort sem er þarna eða annars staðar, sem eru bara svo ákveðin í sínu og komast í gegnum ótrúlegustu hluti.
Það heillaði mig svona upprunalega við mannfræðina, þegar ég var fyrst að sitja mannfræðibraut og svona. Þetta er nú ekki þannig að öll börn í Afríku séu með stóra maga og deyi úr hungri, sko. Það er nú bara eins og annars staðar: þetta eru virkilega flottir krakkar þar og þau geta alveg gert alls konar hluti, eins og börn annars staðar.
Þá var kannski verið að tala um tækifæri. Maður getur næstum sagt að við svona erfiðar aðstæður fái þessir krakkar raunverulega meiri tækifæri til þess að læra á þetta, hvernig þau eiga að vera þegar þau eru svona. Ég spá oft í þetta hjá okkur, sko. Það er orðið svo mikið um vernd, það er svo margt sem er hættulegt þannig að það má ekki neitt. Ég er nú orðinn það gamall að þegar ég var krakki í Laugarnesinu, þá var maður ekki hræddur við hluti sem maður er bara bannaður í dag. Foreldrarnir eru kærðir fyrir barnavandamál, eða verða það, bara fyrir það sem maður var að gera þegar maður var krakki í Laugarnesinu. Ég fór út á sjó og svona, bara lærði það. Þetta er náttúrlega ótrúlegt tækifæri til þess að vaxa sem manneskja. Það er náttúrlega bara skóli lífsins líka, og þau, eins og ég sagði í byrjun, þurfa náttúrlega strax, ótrúlega ung, allt niður í...
Já, tíu, ellefu, tólf ára, bara að redda sér, hvort sem það er félagslega eða fjárhagslega, eða hvað, að finna sér leiðir í lífinu. Og vissulega eru þetta erfiðar aðstæður, ekki draumaaðstæður, og mörg þeirra búa, flest, á götunni, þótt þau vilji ekki skilgreina sig sem götubörn. Mörg búa við mjög, já, við getum sagt bara aðstæður sem ég held að fæstir Íslendingar myndu endilega sætta sig við að búa við.
En þau eru samt að stefna að einhverju í lífinu og þau eru að vinna sér inn, þau eru að fá þessi tækifæri þarna sem þau eru að leita að í raun. Sum, til dæmis, gátu ekki farið í skóla fyrir norðan; það voru mjög mörg börn sem fluttu til þess að geta borgað sína eigin menntun. Þau náðu þó allavega að gera það eftir að þau fluttu, að vinna sér inn einhvern pening og reyna, þótt það tæki kannski langan tíma, að sækja sér einhverja menntun eða þjálfun. Þannig að þau voru öll að búa sér til, með einhverjum hætti, það líf sem þau ætluðu sér, að stefna að; þau voru þá bara að búa til sín eigin tækifæri.
Já, eins og þú segir, þetta er skóli lífsins og þau læra margt af þessu. Þetta er ekki svona einhliða eins og margir sjá fyrir sér. Nei, ég meina, þessir krakkar hafa eflaust vaxið og dafnað; þau eru búin að læra að lesa alls konar ólíkar aðstæður sem allt í einu birtast. Þau eru búin að læra að umgangast alls konar fólk, varast alls konar hættur og sjá alls konar glufur og tækifæri. Þetta er náttúrlega alveg mjög dýrmætur skóli, þó svo efnisleg umgjörð og skilyrði séu kannski ekki góð.
Það er eiginlega ekki hægt að biðja um meira. Heldurðu að þú munir einhvern tíma flytja til Gana? Það er góð spurning. Það var náttúrlega alltaf planið einu sinni, og mig langaði að búa erlendis, en ég veit ekki hvort ég myndi vilja búa þar núna, kannski bara einhvers staðar.
En vissulega er Gana alltaf hluti af okkar lífi og mínu, þannig að við munum alltaf einhvern veginn fara þangað, hvort sem það er í stuttan eða langan tíma. Við stefnum aðeins í aðra átt núna í haust, í smátíma, til Asíu, þannig að við fengum að fara þangað í janúar í einn mánuð.
Og strákarnir mínir, mér er líka mikilvægt að þeir haldi tengslum við landið sitt og svona, einnig til að vera þessir strákar frá Gana. Já, algjörlega, þeir eru náttúrlega hálfir Ganabúar. Þeir hafa verið að flakka svona með mér á vettvang, alls konar, sem hefur líka einmitt hjálpað og styrkt tengslin við þátttakendur. Sérstaklega eldri strákurinn minn kom stundum með þegar hann var bara pínulítill.
Þannig að við erum... Það er hjarta okkar og líf líka, sko, það sem gerist í Gana. Þeir eiga stóran hlut í þessu; tengslin urðu sterkari af því að þeir voru með á staðnum.
Það var mjög gott að hafa þá með. Það er gott, heyrðu, börn eru besta fólkið. Já, þau eru alveg yndisleg.
Ég ætla ekki að segja að þau séu framtíðin, af því að það var eitthvað sem meistarar í meistaravörnum mínum skömmuðust út í. Þau eru nútíðin líka og framtíðin, þannig að þau eru bara þau mikilvægustu, vil ég meina. Besta fólkið.
Já, algjörlega. Heyrðu, Þóra, þetta er búið að vera skemmtilegt og ýmislegt sem maður gæti svo spjallað um áfram, en við bíðum bara með það þangað til næst. Kærar þakkir og áfram, krakkar, áfram, krakkar.
Það er.
Athugasemdir