Þjóðhættir
Þjóðhættir #6648:08

Alþýðu­tón­list og Vaka - þjóð­lista­há­tið

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.
Hlustaðu · brot48:08 ·
· Umsjón: Dag­rún Ósk Jóns­dóttir, Sigurlaug Dagsdóttir

Gestir þáttarins eru að þessu sinni Alexandra Kjeld, umhverfisverkfræðingur og tónlistarkona og Atli Freyr Hjaltason, þjóðfræðingur og tónlistarmaður. Þau segja frá aðkomu sinni að þjóðlistum og starfi Vökufélagsins sem vinnur að eflingu þjóðlistamenningar á Íslandi  Á meðal tónlistarflytjenda eru, ásamt Alexöndru og Atla,  þau Bára Grímsdóttir, Chris Foster, Gabe Dunsmith, Guðrún Brjánsdóttir, Karl Friðrik Hjaltason, Þorsteinn Björnsson, Vegar Vårdal og Vegard Hansen.

Handrit

5.222 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Þjóðlistir og Vaka

Komið sæl, hlustendur góðir, og velkomin í hlaðvarp Þjóðhátta. Að þessu sinni eru það ég, Auður Viðarsdóttir, og Kristinn Schram sem sitjum með ykkur ásamt viðmælendum okkar, þeim Atla Frey Hjaltasyni og Alexander Keld.

Viðfangsefni þessa þáttar eru þjóðlistir eða alþýðulistir, á borð við alþýðutónlist, dans og handverk. Já, og við ætlum að setja þetta í samhengi við þjóðlistahátíðina Vöku, vikulangar hátíð sem haldin var með pompi og pragt nú um miðjan september. Það er Vökufélagið sem stendur að hátíðinni, en markmið Vökufélagsins er að stuðla að virku samtali og samstarfi milli einstaklinga, félaga og stofnana á sviði þjóðlistarmenningar á Íslandi.

Þjóðlistir, eins og segir á heimasíðu Vökufélagsins, samanstanda af fjölbreyttum hefðum tónlistar, söngs, handverks, verkkveðskapar, sagnamennsku, flutnings og svo framvegis. Þær eru í stöðugri mótun, byggja á samtali við fyrri kynslóðir og tengja fortíð við nútíð. Þetta endurspeglast heldur betur í dagskrá hátíðarinnar, sem var ótrúlega fjölbreytt, þjóðleg en ekki síður alþjóðleg, og höfðaði til fólks á öllum aldri.

En áður en við höldum lengra, Atli og Alexandra, getið þið sagt okkur frá ykkar þjóðlistaiðkun? Við getum nefnt hana svo. Hvernig hófst þetta eiginlega? Þú ert á undan í stafrófinu.

Já, ókei, þá skal ég hefja mitt mál. Já, ég er tónlistarmaður. Ég spila mestmegnið á bassa í dag, en ég lærði á fiðlu, var í tónlistarskóla og fór svona hefðbundna menntaleið þar. Ef ég kannski byrja þar, þá var þetta nú mikið til bara hefðbundið tónlistarnám.

Ég lærði Mozart og Bach og öll klassísku tónskáldin og tók þátt í svona hljómsveitarstarfi, kammertónlist og líka svona sinfóníuhljómsveitarstarfi. Mér fannst það allt mjög skemmtilegt, en mér þótti það alltaf pínulítið miður hvað það var ekkert, eða lítið — ég eiginlega fullyrði bara ekkert — aðgengi að annarri tegund tónlistar á öllum mínum námsárum. Það var bara ekki í boði í mínum tónlistarskóla.

Kennararnir mínir voru frábærir, en þeir voru að halda sig við námsskrána, og það voru skalar og arpeggíur og sónötur og konsertar og hljómsveitarverk. Á meðan þetta var allt mjög skemmtilegt var maður samt alltaf að horfa hýru auga til blásturshljóðfæranna. Það var miklu skemmtilegra hjá þeim; þeir voru að spila popplög og jazzstandarda og ýmislegt þannig.

Síðan, þegar ég varð eldri, fór ég smám saman í gegnum hljómsveitarstarfið að horfa alltaf meira og meira á bassann. Það var einhver svona þráhyggja sem blundaði með mér. Svo fékk ég lánaðan bassa einhvern tímann eftir eitthvað hljómsveitamót, og þá varð ekki aftur snúið. Þá allt í einu komu fram þessi tækifæri sem ég hefði alltaf viljað svo mikið.

Þá bauðst mér að taka þátt í að spila klezmer og smá einhverja gamla söngleikjastandarda og svo framvegis. Þannig að ég hef rækt þetta síðan á fullorðinsárunum.

Svo drógumst við saman, fjórar tónlistarkonur. Við höfðum verið að spila saman og syngja saman í hinum og þessum verkefnum, en við vorum allar með dálæti á gamalli tónlist og líka svona þjóðlegri tónlist. Þannig að við mynduðum hljómsveitina Umbra og erum enn að þvælast í tónlist í dag.

Já, það er í stuttu máli kannski minn bakgrunnur. Í gegnum þetta lærði ég líka tónlistarfræði, var erlendis og fékk svona breiða þekkingu þaðan úr því námi, bara etnomúsíkólógíu og pedagogík í tónlist, og fékk svona aðeins innsýn í hina ýmsu anga.

Alþjóðleg sýn á þjóðlistir

Já, ég sem sé hlaut líka svona íslenskt tónlistaruppeldi, var í tónlistarskóla og klassískur gítarleikari. Það er kannski ekki alveg jafn formfast og fiðlunámið, þar sem gítarinn er ekki jafn formfast hljóðfæri ennþá, og fékk að kynnast flamencótónlist.

Ég átti svona bara venjulega skólagöngu, en í samfélaginu var ég alin upp í Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Það félag er aðildarfélag að evrópskum samtökum eða norrænum samtökum sem starfa á sviði þjóðlista.

Fólk í KULTUR og þar frá unga aldri hef ég fengið að kynnast bæði amatörsenu og senufagi fólks, háskólamenntaðs fólks og fólks sem hefur verið alveg uppi í mjög lifandi samfélögum, þar sem lifandi hefðir eru í hávegum hafðar og einkenni fólks eru mjög bundin við sinn stað og sín einkenni og hafa jafnvel helgað lífi sínu að vinna með þann efnivið.

Samanburðurinn hefur alltaf verið mjög sýnilegur. Á Íslandi hefur líka mikil vinna verið unnin, en ekkert í samanburði við það sem þjóðir sem hafa meira bolmagn hafa gert. En þó var kannski þetta svona perspektíf, vinna Sigríðar Valgeirsdóttur og Jóns Ásgeirssonar og Helga Valdíssonar og Ólafs Davíðssonar, og svo mætti lengi telja, að hún hafði verið hluti af uppbyggingu Þjóðdansafélagsins frá 1950 og alltaf í beinu samhengi við þetta starf sem var unnið úti.

Þá voru þjóðlegar akademíur stofnaðar á Norðurlöndunum, en ekki hér. Fólkið sem kom þeim á var jafnvel hluti af þessu samtali sem fólkið á Íslandi var í, en við náðum ekki sama árangri. Þannig að bakgrunnurinn litast svolítið af því að vera fastur á Íslandi og horfa út.

Og fara út og kynnast fjölbreytninni og áherslunum og þessu sjónarhorni. Síðan þegar ég verð eldri þá tek ég að mér, eða er fengin inn í, svona sjálfboðavinnu fyrir samtök erlendis og síðar með meiri faglegum forsendum. Hef þar leiðandi fengið að taka þátt í þessari vinnu, að halda þessar hátíðir og ráðstefnur og námskeið og málþing og fleira.

Ég hef verið svolítið meðvituð um það hvað við erum bagalega stödd hérna á Íslandi hvað varðar alls konar stuðning, bæði fólk, fjármagn og aðstöðu og ríkisstyrki fyrir verkefnum. Margir hafa sagt mér að í Noregi sé vænlegra að vera þjóðlagatónlistarmaður heldur en klassískur vegna ríkisstyrkjanna, en svo auðvelt að fjármagna sig ætla ég ekki að fullyrða.

Í eitthvað bílæsla auðvelt. En þar hins vegar er Harðangursfiðlan hluti af þeirra þjóðernisréttlætingu að miklu meira mætti um langspilið segja fyrir okkur. Þar er líka lifandi hefð sem fylgir hljóðfærinu, og dansar og handverk og fleira með langspilinu. Kannski svona fjallið gleymsku og hefur ekki verið svona staðið dyr þeirra.

Já, ég heyri að þið hafið nú svona mjög alþjóðlega, jafnvel þverþjóðlega, sýn á þetta efni. Já, og en það er stofnað þetta félag, Vökufélagið. Er þetta einhvers konar þjóðræknisfélag? Já, nei, alls ekki. Ég held að þegar þetta er stofnað þá sé rúmlega helmingur stofnenda af erlendu bergi brotinn.

Vökufélagið og hátíðin

Það er stofnað bara í — var það ekki 2024, snemma árs? Við hittumst í janúar og stofnuðum það um sumarið, í júlí eða einhvern tíma. En þetta byggir á eldra starfi sem má rekja aftur til ársins 2014, þegar Guðrún Ingimundardóttir stofnar hátíð á Akureyri. Ég held að hún hafi ekki fengið nafnið Vaka fyrr en árið eftir.

Þar héldu þau, Rúna og Krist Póstir, Vöku í þrjú ár eða þrjú eða fjögur ár. Eftir það færðist hátíðin til Reykjavíkur og COVID-ið sitt að segja, þannig að hún hefur ekki verið haldin tíu sinnum í heildina. En þetta er svona tíu ára afmæli Vöku, sem var áður þjóðlagahátíðin en er í dag þjóðlistahátíð.

Já, og þessi hátíð sprettur kannski upp úr þessum mikilvægu markmiðum ykkar í Vökufélaginu. En við Auður reyndum að njóta hennar eins og hægt var og fórum á marga skemmtilega viðburði. Fyrsti dagurinn einkenndist kannski svolítið af rímum og kveðskap.

Hátíðin er haldin þennan dag eða þessa viku vegna þess að dagur rímnalagsins er 15. september og undanfarin ár hefur hátíðin verið svona hnýtt við dag rímnalagsins. Fyrra varð á sunnudegi, þá var hátíðin þá helgi. Núna varð á mánudegi og ákveðið var að hátíðin yrði þessa viku og tengdist þá líka.

Kvæðamannafélagið Iðunn hefur haldið þennan dag hátíðlegan undanfarin ár, síðan ég ætla ekki að koma, fimm, sex ár. Ég held allavega að það sé lengur en Vaka hefur verið haldin á þessum tíma og þar af leiðandi var ákveðið að sjá hvað Iðunn ætti að halda, bara sitt prógramm, í samvinnu við Vöku. En er í rauninni svona hvað, opið eða svona kollab eða samstarf, sjá? Það er það sem eitt af markmiðunum með Vöku er, að svolítið að sitja undir þennan hatt öll þau félög og alla þá starfsemi sem hefur verið í gangi í lifandi hefðum. Og eins og við höfum oft sagt, sko, við erum ekki að búa til neitt nýtt með Vökufélaginu, bara þvert á móti, við erum að hampa því sem fyrir er og hefur verið gert mjög lengi.

En er kannski bara ekki nú—við vorum ekki með úr, eða er kannski jafnvel búið að einangra sig einhvern veginn, þannig að þarna undir viljum við draga fram í dagsljósið starfsemi Kvæðamannafélagsins Iðunnar og annarra kvæðamannafélaga, endilega, og Heimilisiðnaðarfélags Íslands og Þjóðdansafélagið. Svo eigum við drauma um að fleiri og fleiri félagasamtök bætist í hópinn og geti sýnt hvað þau eru að gera og tekið þátt í dagskránni með okkur. En já, þannig að þessi dagur er svona byrjunin á hátíðinni, var svolítið þarna með formerkjum kveðskapar.

Rímur og danslög Jónasar

Krakkarnir teknir inn og barnarímnaskemmtun, alveg yndislegt þarna. Fjögurra til sex ára börn úr Kvæðabarnafélagi Laufásborgar bræddu öll hjörtu. Níu ára strákar úr Hjallastefnunni, Barnaskólanum Hjallastjörnunum. Já, en daginn eftir, á þriðjudeginum, þá var kannski meiri áhersla á fiðluna.

Veigar Vordal var hér staddur, getur þú sagt og greint frá því, Atli, hvað hann var að bauka hér? Erlendi norski fiðluleikarinn, já, viss um sé. Þema hátíðarinnar var bókaútgáfa á danslögum Jónasar, fiðluhandritið frá 1864, sirka þar um bil. Hluti af þeirri útgáfu var að miðla efninu til barna, tónlistarkennara og nemenda þeirra. Alexandra tók að sér að skipuleggja þennan lið útgáfunnar, sem var að smala börnum af höfuðborgarsvæðinu. Við höfðum glæstar vonir um allt Ísland, en það kemur. En hérna, við fengum 40 börn með fiðlur, rúmlega.

Og skiptum í þrjá hópa. Þú kannski getur betur sagt frá fyrirkomulaginu. Já, einmitt. Það var aðdragandi að þessu. Við, hérna fyrr í ágúst, þarna menningarnæturhelgina, þá kom hann Veigar til landsins og þá hitti hann fyrst kennarana, og við áttum gott samráð við þá. Þetta eru kennarar sem voru spenntir yfir viðfangsefninu og eru með fiðlunemendur hjá sér á öllum stigum. Hugmyndin var svo að semja—hann myndi svona fara yfir aðferðafræðina, hvernig þetta er yfirhöfuð kennt. Það er yfirleitt reynt að gera svolítið mikið nótnalaust og eftir eyranu og reynt að hafa mjög gaman, enda eru þetta skemmtileg danslög. Hann er sem sagt búinn að útsetja þau fyrir þau allra yngstu byrjendur, þannig að þau geta til dæmis bara spilað opna strengi eða plokkað eða stappað niður fótum. Þetta er síðan alveg yfir í miðlungsnemendur og síðan framhaldsnemendur, og þá er komið með útsetningar fyrir

Bransi, sko, flóknar útsetningar fyrir þá alla.

Þetta er líka svona að pína, brjóta upp bara svona, hvers vegna sprengja upp þessar hugmyndir sem við höfum um að þjóðlög séu einföld og þetta séu bara barnagælur og hérna þetta sé ekki eitthvað sem getur líka verið virt og ósýst og áhugavert og djúpt og margslungið. En hér vorum við sest að bjóða upp á þetta, og hérna það voru þá fiðlunemendur þessara kennara sem hann skráði út sér til leiks, og við vorum við þarna alveg...

Hvað voru, held ég, tólf á yngsta stiginu, algjörlega dúllur frá hvað fimm ára, held ég var sá yngsti, og stór hópur svona í miðstiginu. Og svo voru þarna nokkrir framhaldsnemendur sem voru ansi klókir, gátu stökkt sig á þessu allra flóknasta.

Og þetta var rosalega skemmtilegt, og hérna, hafði bara mjög gaman að finna fyrir hérna eins og spenningi meðal bæði kennara og nemenda.

Og þarna var verið að gefa út bók líka í tengslum við þetta. Getið sagt okkur frá því? Já, við vorum sem sé með útgáfuhóf á föstudeginum og þar gat fólk nælt sér í eintak.

Þetta, bókin inniheldur sem sé stutta svona hálffræðikafla um samhengi útgáfunnar og ljósmyndir af þessu handriti og uppskriftun nótna, auk aðgengis að upptöku um vegarsá í Ísmús núna. Og við erum ennþá að vinna í því hvernig við ættum að ganga frá þessum útsetningum og koma þeim frá okkur, hvort það fari í tónlistarbúðir eða í einkasölu eða hvort við gefum tónlistarskólum.

Það er ekki ennþá komið á hreint, já. En fyrir þá sem ekki ennþá þekkja þetta verkefni, þá er þetta um það bil 50 lög sem Jónas Helgason járnsmiður skrifaði upp 25 ára gamall hérna, af þeim lögum sem hann var mjög án efa að spila ásamt bróður sínum í Reykjavík.

Þannig að þetta líka er að sprengja upp þá okkar hugmyndir um Ísland og Reykjavík hérna hér fyrr á öldum, að við vorum öll þunglynd við mikil hljóðfæri og við dönsum sem ekki þú hefur Jónas, sem að hérna skrifar þessi danshljóð niður, var bæði vinsæll dansundirleikari í Reykjavík ásamt öðrum en líka svona einn af okkar fyrstu menntuðu tónlistarmönnum.

Hann stofnaði söngfélagið Hörpu, sem var hérna að mér skilst svona fyrsti, hvað segir maður, svona forpart harmoníkórinn eða já, eða karlakór. En já, þessi fjó... fjóradda kórsöngur samdi mikið og gaf út mikið af svona nótnakennslubókum og söngkennslubókum.

Og þetta er elsta handritið sem er til eftir hann, alveg munar einhverjum rúmum áratug á því næsta sem kemur, þannig að þetta er áður en hann fer og menntar sig og svona. Var búið að liggja ansi lengi í hillum Landsbókasafns ósnert þegar við fórum að skoða þetta og gáfum þetta út.

Já, en já, þetta var, þessi bók svona fáránlega var gefin út þarna á föstudeginum á Vökuhátíðinni og það var bara troðfullt hús. Það var mjög gaman að sjá í Bókasafni Kópavogs og ryðja allar hillur frá, og hérna öll börnin þarna samankomin til þess að spila nokkur lög fyrir gesti.

Það var æðislega skemmtilegt og við fengum að heyra þessi lög, lög lifna við í túlkun barnanna.

Einnig hans vegar við skulum fá að heyra sýnishorn af því, en...

Þjóðlagasamspil og söngvökur

Á þriðjudeginum var þá skelltir þú þér á þjóðlagasamspil, Auður, var það ekki skemmtileg upplifun? Mjög. Hvernig er að næsta þráð? Þetta hef ég farið einu sinni áður með nemendum í alþýðutónlist í fyrravor.

Þá bara mega stemning og ótrúlega svona töfrandi andrúmsloft, finnst mér. Þetta er svona samblanda af alls konar stílum, örugglega, og hefðum. En af minni upplifun, þá var ég ekki með að spila eða neitt, en bara sem áhorfandi þá var ég bara að taka inn stemninguna.

Já, við höfum ekkert farið í bæði hérna verkefni með þessum fiðlukennurum. Þá buðum við þeim að koma, en við fórum líka í Listaháskólann og vorum með fimm kennslustundir samtals og buðum nemendum að koma þarna líka. Þannig að það var fullt af fólki líka sem hafði kannski getað komið áður, sko, og var að spila þarna lög úr þessari útgáfu með Vegar þarna. Hún hélt að það hefðu aldrei verið jafn margar fiðlur á þessum litla stað. Þetta var alveg aðeins svo mikið alls staðar nefnilega.

Það gerir það líka svona, held ég, svona innilegt og einhvern veginn magnar þá stemningu. Og svo mörg hljóðfæri, tók líka eftir hvað hljóðfærin voru fjölbreytt. Kann nú ekki að nefna einmitt það, það varðar nikka, fiðlur, flautur.

Já, og það sem mér fannst svolítið gaman var hérna bæði að átt lag á hljóðfæraleikarnir voru allir að skemmta sér og gaula með. Þeir sem voru bara að hlusta og fá sér bjór, maður sá þá hérna, maður sá kátínuna í augum þeirra. Og það var þarna rétt hjá okkur, það var svona langborð með ungu fólki, einhverju fólki í heimsókn einhvers staðar frá. Og hérna, við vorum eins og mikil læti og þau voru svona að reyna að skemmta sér þar sem kom mér á óvart að þau bara voru þarna allt kvöldið, þau vildu ekki hreyfa sig. Ég nefnilega var að hugsa að því sumum datt í hug að sumir úr áhuga sem í salnum væru bara ferðamenn sem voru ekki endilega. En svo var nefnilega eitt lag þar sem þau voru tekin með. Það var lag sem var skálað, já, þá bara taka allir undir.

En já, þetta samspil var nokkuð að gerast í fyrsta skipti og er haldið ansi reglulega. Hvernig varð þetta til, þetta þjóðlega samspil, og eru þetta erlendar fyrirmyndir?

Já, ég held að það sé svona þrátt fyrir það, hvað eru samspil í hverri borg í heiminum, eða öllum árum stærri borgum, og Reykjavík. Og þetta hefur verið haldið jafnsi mörg ár. Ég kom ekki inn í þetta fyrr en það hafði verið í nokkur ár og hefur flakkað á milli, allavega. Ég held ég sé að byrja að mæta upp á tugustu, sextán, sautján, og við höfum verið ábyggð á fimm, sex, sjö stöðum síðan.

Núna erum við með svona langtímasamning við, ég segi við, ég skipulegg þetta ekki neitt, en hérna, ég skipulegg hins vegar aðra viðburði sem við vissum að við munum tala um á eftir. En hérna, núna er svona langtímasamningur við hennar stað, Ægi 101, sem er í gamla Kofa Tómasar, eða gömlu kjötbúð Tómasar, Laugavegi 2, kjallaranum. Og þetta já er bæði af erlendri fyrirmynd og er orðið ansi svona rótgróið miðað við í Reykjavík.

Og er haldið hálfsmánaðarlega. Tími var þetta vikulegt, síðan var þetta mánaðarlegt, nú hefur þetta verið í nokkur ár hálfsmánaðarlegt. Og þarna er, myndi ég segja, að meirihluti fólks eru ekki Íslendingar sem eru að mæta. Og þarna hljómar tónlist frá heimalandi fólks sem vill deila, en mest er þetta þó eitthvað bandarískt líka og eitthvað sænskt hefur verið svolítið. Og vonandi núna fer að fara í aukana, já, vonandi. Og síðan var á tíma líka svolítið um söng og kveðskap, þannig að þetta er voðalega lifandi og fljótandi og litað svolítið.

Bara af þeim sem mæta kennir ýmissa grasa. Daginn eftir var þjóðlistarspjall og tónlistarferðalag um Suður-Ameríku með Andra Sigur... Þá um kvöldið voru líka söngvökur og sagnavaka.

Þar voru flutt kvæðalög, tvísöngslög, sagnadansar og síðan fornkvæði sungin og víkivaki stiginn. Geturðu sagt okkur frá þessu?

Jú, Kvæðamannafélagið Iðunn heldur mánaðarlegar söngvökur. Ég held þær séu haldnar á miðvikudögum ennþá. Ég man ekki alveg hvar þær voru í Söngskólanum í Reykjavík.

Þar á undan voru þær annars staðar. Þarna gefst fólki tækifæri á að læra þjóðlög, að syngja tvísöng og kvæðalög og alls konar.

Þarna mætir maður og sest niður og fær söngbók. Það er bæði hlustað á upptökur og sungið fyrir fólk, og fólk lærir þetta voðalega rólega, þannig að enginn gengur heimavina, nema fólk vilji.

Þetta hefur bara verið ansi vel sótt, hef ég heyrt. Ég hef ekki átt gott með að komast á þessum kvöldum, maður er svo upptekinn. Ég mætti alveg reglulega endrum og eins. Þetta var líka í, hvað heitir þetta fína hús hérna í Grjótaþorpinu, Grundarhúsi, á tímabili.

Sagnavökurnar eru líka mánaðarlegir viðburðir, haldnir á laugardagskvöldum, þar sem hringdansar eru dansaðir og víkivakakvæði, sagnadansar og fleiri sungnir, ásamt góðum drykkjulögum, kvenskapi og tvísöngslögum.

Þetta eru ansi vinsælir viðburðir, svona samhliða þessu sessíunni eða þjóðlega samspilinu. Sem hluta af þessari hátíð, til að ná samvinnu við þessi félög, var líka ákveðið að einfalda þessa viðburði.

Söngvakan er, eins og ég sagði áðan, á vegum Kvæðamannafélagsins Iðunnar, og sagnavökurnar eru haldnar í nafni Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Þær hafa verið mjög alþýðlegir, eða svona opnir og óskipulagðir viðburðir hvað varðar formfestu og slíkt.

Fólk getur komið inn af götunni, þátttaka er ókeypis og hún hefur bara verið mjög góð, myndi ég segja. Stærstu sagnavökurnar hafa verið með vel yfir 100 þátttakendum.

Já, það verður ansi þröngt inn á þessum litla bar.

Fjölbreytni og aðgengi

Í góðum tímum, á ég að tala um gnístuðla? Eitthvað svona sem ég hafði ekki alveg áttað mig á, en ég skil núna að skiptir miklu máli. Á miðvikudeginum fengum við Andrés ... von, sem er alveg stórkostlegur tónlistarmaður og kennir í Listaháskólanum.

En hann rekur líka búðina Sanngjötamíu hérna í miðbænum, frábæra hljóðfærabúð. Hann er svo fróður og leiddi okkur sannarlega í gegnum hinar ólíku hefðir í ólíkum löndum Suður-Ameríku.

Okkur finnst við sérstaklega stolt af því að geta boðið upp á svona fjölbreytni, vegna þess að við sjáum að allar þjóðir, öll heimsins fólk, búa yfir lifandi hefðum. Það er það sem við viljum draga fram.

Auðvitað leggjum við áherslu á okkar eigin hefðir í þessu landi, en hér búa mjög margir sem eru af erlendu bergi brotnir og hafa tekið með sér sínar eigin hefðir. Við viljum heyra og sjá þetta, og þetta kemur jafnvel til með að blandast okkar eigin hefðum og úr verður eitthvað stórkostlegt.

Þannig hafa bestu tónlistarstefnurnar orðið til. Þannig hefur flottasta menningin skapast, þar sem tveir heimar koma saman og blandast.

Mikilvægið við að hafa þetta í hátíðarformi er líka að færa þessa hópa saman. Önnur nálgun væri að vera bara með tónleikaröð, en við höfum alveg fundið fyrir því að það er alveg bilað erfitt að fá fólk til að mæta á viðburði og tónlistarfólk til að mæta hjá hvert öðru.

En hvernig fannst ykkur takast upp þetta form núna?

Við eigum ennþá eftir að setjast niður og fara yfir tölur. Við þurftum náttúrlega svolítið að dreifa okkur á viðburðina, vegna þess að við vorum ekkert alltof mörg í þessum innsta hring skipulagsins, og ég...

Í mínu handverksnámskeiði voru þrjátíu plús manns, sem var verst af því að við lofuðum tíu, sko, þannig að kennarinn mætti í aumingja. Hún stóð sig ofboðslega vel og var alveg frábær, en ég held að þetta hafi kannski verið fullgjörn sótt, sko.

Hérna, frá krökkunum: „Hvenær mætum við næst?“ Þú veist, það var alveg yndislegt að heyra. Svo voru þarna námskeið með einmitt Vegari og Vegart, harmonikkuleikara, í svona norskum og íslenskum hljóðfæraleik.

Og þú veist, allt þetta var bara, það var ekkert nema bara jákvæðni og ánægja með það. Þannig að ég finn að það er þorsti eftir svona, og það sem var frábært var að við gátum boðið upp á alla sem við...

Þar sem mér fannst standa svolítið upp úr líka á þessari hátíð var fjölbreytnin af þessu fjölbreyttu formi og stemningum, hvort sem það voru vinnustofur eða tónleikar. Eins og tónleikarnir úr norðri þar sem Vegar Voggwart og Raggagröndald Hratskot komu fram.

En það er líka svo allt önnur upplifun að vera staddur í miðjum sagnadansi undir gleði og gaum, eða við borðhald meðan tvísöngur er sunginn, og á dansgólfinu þegar lög Jónasar eru spiluð á þílu og harmonikku. Það er allt öðruvísi upplifun að vera í glaumnum miðjum.

Mér finnst líka mjög gaman að sjá hvað þetta höfðaði líka til ólíkra aldurshópa og var einmitt yfirleitt ókeypis. Þetta virðist vera aðgengilegt flestum. Það er svolítið númer eitt í þessu, að gera þetta aðgengilegt og sýnilegt, þannig að bjóða öllum til leiks, vegna þess að það hefur ekki verið mikið framboð.

Vissulega hefur svona dúkkað upp hér og þar, en hér erum við svona að reyna á einni viku að bjóða upp á þetta allt. Það er reyndar eitt sem ég þarf núna að fara að ræða um, mér sko, hvort það sé gott að hafa svona hluti ókeypis, vegna þess að þá er maður ekki að gefa þeim mikið peningalegt gildi og fólk kannski líklegra til þess að mæta.

Ekki þannig að það séu alls konar svona hlutir, af því að auðvitað vill maður hafa möguleikann á að hafa hlutina ókeypis. En það er spurning hvort það skili sér meira ef fólk skráir sig og greiðir eitthvað formsatriðagjald, sko, hvort það mæti örugglega. Það er líka spurning um tímasetningar.

Erum við bara að eiga svona aukna meðvitund fólks um hvað er til og hvað er hægt? Við urðum alveg, á meðan við fengum ofboðslega jákvæð viðbrögð, þá urðum við líka vör við það að það voru mjög neikvæð viðbrögð líka. Hugmyndir um að eitthvað sem notar þetta forskeyti „þjóð“ tengist þá bara nasjónalisma eða þjóðernishyggju, og hérna, rasisma jafnvel, kynþáttafordómum og útlendingafordómum, jafnvel hatri.

Hugtakið þjóð og fordómar

Mér finnst leiðinlegt að missa af einhverju góðu orði út af því að það er einhver ákveðinn hópur sem er búinn að eigna sér þetta forskeyti í eitthvað allt aðra hugsjón. Hvað finnst ykkur, þáttastjórnendur?

Stjórnendum. Þetta er náttúrlega gríðarlega mikilvægt viðfangsefni fyrir svona fróðursnakkara eins og mig og Auði, sko, sem hérna erum um hringt og heilagt að skoða framsetningu á menningararfi og þjóðfræði.

En ég er sammála því að hugtakið „þjóð“ í merkingunni alþýða hefur gríðarlega marga og mikilvæga merkingarauka. Ég held að atriði sé samtal, eins og er að eiga sér stað hér núna, og því meira sem við getum talað saman um það, þeim mun færri trúa því að þetta sé fordómahátíð.

Já, ég er sammála því. Ég held að bara samtal og sýnileiki, og fólk komi saman, sem vinnur þá líka gegn fordómum þegar fólk hittist í raunheimum og deilir þekkingu og reynslu. En „þjóð“ þýðir bara fólk, en það kannski hefur fullt af öðrum skírskotunum núna, vitum við. En væri betra að nota „alþýðulistir“? Ég veit það ekki, við þurfum bara að sjá hvernig það þróast.

En þá langaði mig líka að spyrja ykkur hvað það er sem drífur ykkur áfram í að taka þátt í og byggja upp þetta starf, því ég heyri að þetta er mikil vinna. Mestu megnis held ég.

Þannig að það að geta, þú ert að hafa núna tækifæri á að bara bjóða einhverjum frábærum erlendum gestum eða þeim sem búa hér, halda vinnustofur í íslenska krossinum eða yfirleitt í hvað og geta boðið fólki upp á þetta. Þetta finnst mér bara frábært og það keyrir mig áfram að búa til einhvers konar samfélag, búa til einhvers konar vettvang þar sem fólk getur komið saman og spjallað og fengið sér kaffi.

Ég tek undir þetta að öllu leyti, en líka að, sko, hann sagði áðan að hafa verið síðan alinn upp í því að sjá þetta vel gert annars staðar og koma síðan heim. Þegar ég var lítill eða yngri þá vann enginn með neinum og allir í sínu horni. Jafnvel svona hugmyndir um þetta, sko, að það væru allir senuræningjar, eða þú veist, það var alltaf allir að, sko, ef einhver gerir eitthvað flott þá er hann að stela frá, þú veist, eins og það sé bara ákveðið mikið sviðsljós í boði.

Og það er líka rosalega jákvætt að geta verið leiðandi í svona ásýnd byggingu og reyna að styðja við það sem fyrir er. Kvæðamannafélagið í Iðunni, stofnað 1899, Heimilisiðnaðarfélagið 1913 og Þjóðdansafélagið 1951.

Félög, styrkir og menningararfur

Þetta eru rosa gömul félög, sko, og mörg þeirra eldri en lýðveldið. Hlutverk þeirra er í eðli sínu að þróast mjög hægt. Þau halda í hefðir, þau eru þetta kontinúítet. Síðan eru einstaklingarnir þeir sem eru að pönkast í félögunum, og síðan er það bara tíminn sem metur hvernig það er tekið inn. Það er ekkert hægt að ætlast til þess að þessi félög gegni neinu öðru hlutverki raunverulega. Þetta er svo mikilvægt.

Þetta er það sem skapar þetta samhengi og þetta samtal og viðheldur þessu samtali og þessum vettvangi, á meðan kannski eitthvað eins og Vökufélagið, sem byggir meira á hreinlega bara að færa þessa hópa saman og hjálpa þeim að setja sig í samhengi hvorn við annan og koma sér á framfæri. Þar er kannski meira verið að reyna að prófa eitthvað nýtt og vinna einhverja vinnu sem bara er ekki bolmagn í þessum félögum til að vinna að.

Prófa einhverja nýja sviðsframsetningu eða setja einhverja hópa saman í einhverju verkefni eða svoleiðis. Það væri gott að það sé einhver utanaðkomandi aðili sem sér bara um þá vinnu, sko, og hefur kannski líka borið þessa ábyrgð á því hvernig þetta fer til þess að létta á samskiptum milli hópa, til að labba í þessu og tala við bæði ráðamenn hér eða setja þrýsting á rétta staði og bara vekja athygli á að það þarf að sinna þessu, það þarf að beina augum sínum hingað.

Og tek undir með þér þarna, þessar erlendu fyrirmyndir. Nú hef ég verið heppin að ég hef getað ferðast aðeins með hljómsveit minni til Norðurlanda síðastliðin ár, og þar sér maður bara þetta er

Þetta er afrakstur áratuga af sen uppbyggingu. Hún er bara æðisleg, svo margt í boði og dásamleg samtöl í gangi. Maður mætir þarna svolítið með skottið milli lappanna.

Maður fellir hendur. Já, hún kemur heim og bara: „Jesús, þessi mikla vinna sem á eftir að vera unnin.“ En síðan er líka svolítið áhugaverð staða nú þegar við erum að skrifa styrki á næturnar, þegar við erum í dagvinnu og öðrum verkum.

Það er líka svolítið furðuleg staða þar sem maður á íslenskum markaði eða í þessum menningargeira á mun auðveldara með að fá styrki til að vinna með erlenda menningu eða menningu sem snertir á, já, bæði bragðhópum hérna sem eru kannski að fagna menningu annars staðar frá eða þá samtali milli íslenskrar menningar eða upplifaðrar íslenskrar menningar og þess sem er það ekki, sko.

Samkvæmt alþýðunni þá er svolítið furðulegt hvað það getur reynst erfitt að fá stuðning fyrir einhverju sem er kannski íslenskur menningararfur. Þetta er svolítið furðuleg staða, af því að maður upplifir þetta ekki jafn sterkt — eða ég ekki, sko — þegar ég hef verið að vinna í verkum í Noregi og Svíþjóð. Þar er þetta einhvern veginn kostur.

En hér er eins og það sé skilyrði. Það er líka svolítið furðuleg staða þegar maður er að vinna með svona þjóðlistahátíð, sem maður upplifir að sé ekki eitthvað sem áhersla er á að vinna með. Og bara þessi félög, hreinlega, sko, þessi félög sem starfa og hafa starfað á þessum óeigingjörnu forsendum í áratugi og byggt upp ómetanlega þekkingu. Vitið þið hver íslenska þýðingin á „know-how“ er?

Það er að gera mér erfitt. Hún átti að skrifa þetta á ensku, sko. En þessi þekking einstaklinganna, sko, sem byggja félögin og hafa mótað, sko, bara eins og Kvæðamannafélagið, er alltaf mjög gott dæmi um þetta, því þau söfnuðu eigin stemmum. Félagsmenn kváðu þarna í silfurplöturnar og segulböndin.

Það hefur einhvern veginn reynst erfitt að fá stuðning til að vinna með þetta, og líka kannski svolítið nútíma við þetta. En af því að áðan vorum við að tala um að það hefur þurft, og þarf ennþá, að leiðrétta ýmsar hugmyndir um að hér hafi ekki verið nein hljóðfæri, Íslendingar gátu ekki sungið og dönsuðu ekki, þá velti ég bara fyrir mér hvort þessar hugmyndir hafi ennþá áhrif á hversu mikið virði er sett á.

Alveg örugglega. Ég held að við séum stödd í ákveðnu þekkingargati. Fólk er ekki meðvitað um hver íslenskur menningararfur er. Ég get bara spurt kollega mína, tónlistarfólk: Hvað vitum við um tónlist á Íslandi á 17. og 18. öld? Við munum fá mjög fjölbreytt svör, og mörg hver byggð á ýmist röngum upplýsingum eða skorti á upplýsingum.

Það er mjög algengt þema þegar þetta kemur til tals, oft við matarborðið á svona hátíðum og sérstaklega þegar erlendir samstarfsaðilar heimsækja okkur í þessa viku. Þá kemur oft upp þessi hugmynd, sko: Því betur sem við meðhöndlum þá menningu sem hér er — hvort sem réttara er að flokka hana sem íslenska menningu í einhverjum þjóðernislegum skilningi, út frá fólkinu sem er hér, ímyndasköpun þjóðar eða hvað sem það er — því meiri virðingu getum við borið gagnvart menningu annarra, ef við skiljum þessar hugmyndir.

Við erum líka kannski meðvituð um að það er ekkert til sem er séríslenskt, og svona hugmyndir um að hlutirnir séu íslenskir af því að þeir séu ekki erlendir. Þessar gamaldagshugmyndir skulum við uppræta og byggja upp ábyrga menningarumfjöllun og iðkun. Þá ætti það samkvæmt öllu líka að létta á samskiptum milli hópa og útlanda og fleira.

Þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt: að setja peninga í þetta og vinna þetta á ábyrgan og góðan hátt. En þetta er hápólitískt allt saman.

Við skulum láta þessi hápólitísku orð vera þau síðustu í þessum þætti. Við Þjóðhætti, Auður Viðarsdóttir, höfum verið að tala við Alexander Keld og Atla Frey Hjaltason og við þökkum...

...okkur bara kærlega fyrir spjallið. Takk fyrir. Takk, sömuleiðis. Takk, Jóhann.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar