Gestur þáttarins er að þessu sinni Kári Pálsson, þjóðfræðingur. Kári er fróður um ýmislegt sem tilheyrir fortíð okkar og sögu en hann var ungur þegar áhugi hans á þjóðsögum, Íslendingasögunum og norrænni trú kviknaði.
Kári segir okkur frá efni BA ritgerðarinnar sinnar sem fjallaði um „hlautbolla“ en orðið sjálft er eitthvað sem við heyrum ekki á hverjum degi. Kári segir okkur frá því hvaða fyrirbæri þetta er og hvernig fornleifar og frásagnir geta sagt okkur ýmislegt um heim sem er okkur fjarlægur.
Í meistararitgerð sinni kafaði Kári ofan í Gísla sögu Súrssonar og leit þá sérstaklega til þess hvaða heimildir er þar að finna um trúarheim og helgisiði heiðinna trúarbragða. Eru þetta heimildir sem gætu hafa varðveist í munnlegri geymd og lýsa trúarheimi og siðum sem eitt sinn tíðkuðust eða eru þær frekar birtingarmynd á hugmyndum sagnaritarans um fortíðina? Kári segir okkur frá þeim þemum sem hann skoðaði sérstaklega; fóstbræðralagi, draumkonum, helskóm og þeim sið að binda skip. Kári bar heimildir Gísla sögu saman við aðrar heimildir; fornleifafræði, miðaldabókmenntir, þjóðsögur og þjóðtrú seinni tíma og dró upp mynd af þeim siðum sem um ræðir. Einnig segir Kári okkur frá sérstakri persónu sem má finna í Gísla Sögu Súrssonar, honum Þorgrími nef sem lifði á jaðri samfélagsins og stundaði seið en hefndist fyrir það.
Kári hefur haldið áfram að skoða heimildir sem tengjast trúarhugmyndum fortíðar og hefur nýlega gefið út bókina The Galdrabók: Forbidden Icelandic Folk Magic en í henni má finna tvö handrit, annars vegar Galdrabók og hins vegar handriti sem Kári kallar Jarðskinnu, auk margvíslegra upplýsinga um galdra og samhengi þeirra. Kári segir okkur frá þessum dularfullu handritum en eitt þeirra virðist vera leiðarvísir að því hvernig má eiga í samskiptum við huldufólk.
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, kennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefðir hjá Þjóðminjasafni Íslands.
Handrit
5.034 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan
Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Kári og þjóðfræðin
Komið sæl og verið velkomin í Þjóðhætti. Ég heiti Dagrún.
Og ég heiti Sigurlaug. Með okkur í dag er Kári Pálsson þjóðfræðingur, sem þekkir Gíslasögu Súrssonar út og inn, eða það teljum við, og gaf nýlega út gamalt galdrahandrit. Velkominn, Kári.
Kærar þakkir fyrir.
En við byrjum á byrjuninni. Hvernig kom það til að þú ákvaðst að læra þjóðfræði?
Já, þetta er skemmtileg spurning. Ég var einu sinni í jarðfræðinámi og við ferðuðumst um landið. Þar var jarðfræðikennari að segja okkur frá hinum og þessum jarðlögum og svona, og svo var hann alltaf að segja þjóðsögu þess á milli. Þá hugsaði ég: „Já, ég hef nú alltaf haft gaman af þjóðsögum, þjóðháttum og slíku.“ En þarna kviknaði meiri áhugi hjá mér, þannig að ég skipti úr jarðfræði yfir í þjóðfræði. En ég náði þó að taka jarðfræði sem aukagrein með náminu á sínum tíma. Þannig að í stuttu máli er þetta svarið, og líka það að ég hafði mikinn áhuga á norrænni trú hjá Tryggva Vana og vildi fara á það námskeið. Og kannski tengist þetta örlítið jarðfræðinni og þjóðfræðinni, jú.
Þegar við lítum til ýmiss konar jarðhræringa, jarðskjálfta, eldgosa eða hvernig náttúrufyrirbæri virka svona yfirleitt, þá er oft að finna einhverjar skýringar í norrænni goðafræði eða norrænni trú yfir höfuð. Til dæmis í Hallmundarkviðu, þegar hún er lofkvæði fyrir jötuninn Surt. Það er þekkt kvæði í varðveittum heimildum, og í Bergbúaþætti er að vera talað um einhvers konar eldvirkni.
Hvað eru hlautbollar
Svo færðirðu þig nú yfir í, hvað má segja, eitthvað dálítið ótengt í bíórannsókninni. Þar skrifaðirðu um hlautbolla. En hvað eru þeir, Kári? Til hvers voru þeir notaðir?
Já, mér finnst þetta mjög gaman. Þegar ég var ungur drengur fór ég stundum með fjölskyldunni minni í Goðdal í Bjarnarfirði. Þau eiga einhvern hluta af dalnum og ég fékk að heyra frá þeim að þarna hefði fundist hlautbolli. Mér þótti þetta nafn athyglisvert og spennandi. Ég vissi af þessu og vissi að hann væri geymdur af Galdra.
Svo þegar árin líða fer ég alltaf að hugsa meira og meira um þennan bolla: Hvað er þetta? Til hvers er þetta? Hvernig var þetta notað? Hvað segja heimildir okkur? Þannig að ég ákvað að fara beint í rannsóknina.
Þá hófst þessi leit að því hvað hlautbollar eru, hvað íslenskar heimildir og íslenskar fornbókmenntir segja um hlautbolla og hvað fornleifafræðin segir.
Fornleifafræðin er mjög merkileg heimild líka. Hún setur hlutina í samhengi, en hún er kannski án orða, ólíkt bókmenntunum. Svona ætlaði ég að tína til eitt og annað, eins og úr þjóðháttum eða þjóðtrú og þess háttar: Hvað segir hún? Þannig hófst í rauninni rannsókn mín á því hvaða bolli þetta er og hvað hlautbollar eru.
Ef menn skoða heimildir frá 19. og 20. öld, þá voru menn að finna svona hlautbolla víða um land, oftast í kringum staði sem tengjast hoförnefnum.
Þarna ætla ég að menn verði að gera sér grein fyrir því líka að á 19. öld var ákveðinn sjálfstæðisbaráttuandi. Norðmenn höfðu fundið ógrynni af fornleifum, eins og Gauksstaðaskipið og svo Osebergsskipið árið 1904. En við Íslendingar vorum svolítið í einhverri svona tilvistarkreppu. Við eigum fullt af sögum en fáar fornleifar, þannig að menn mættu oft bara á söguslóðir með söguna í annarri hendi og skóflu í hinni og, innan gæsalappa, fundu allt sem þeir vildu finna. Mér hefur alltaf fundist íslensk fornleifafræði á seinni hluta 19. aldar og byrjun 20. aldar stórmerkileg, út af því að þetta varð svo merkileg heimild. Hvernig...
Hvernig hugarheimur fornleifafræðinga er á þessum tíma: þeir sjá söguna í landslaginu og fara reglulega til fólks ábúendasvæðisins og spyrja nánar út í hitt og þetta. Oftar en ekki er hægt að finna upplýsingar um landslagið sem er ekki að finna í sögunni, sem mér þykir líka mjög merkilegt. Þannig að þessar fyrstu fornleifaskýrslur eru merkilegar fyrir það að þar má finna alls kyns munnmæli.
En aftur að því: hvað er hlautbolli? Það er nú góð spurning. Það eru til nokkrar heimildir sem ræða um hlautbolla í forníslenskum heimildum. Það er ákveðinn bolli, kannski úr steini eða kopar eða einhverju slíku, og menn hafa safnað þar fórnarblóði og notað það til að bleyta eða til spádóma. Í Völuspá í Eddukvæðum er talað um: „Hristu teina og hlaut af.“
Það virðist vera að menn hafi notið fórnarblóðs og sett teina til kannski trégreina eða eitthvað og hrist á vegg, lesið upp spádóm úr því.
En svo er spurningin hvort þessir hlautbollar sem fundust á nítjándu og tuttugustu öld hafi í rauninni verið þessir hlautbollar eða ekki. Það finnst mér nú ólíklegt, sko. En engu að síður er hlautbollinn sem fannst í Góðdali í Bjarnarfirði á Galdrasafninu merkilegur fyrir þær sakir að á hann var gerð blóðleifarannsókn, blóðferlarannsókn, og þar fannst fornt dýrablóð. Ég spurði annan rannsakandann þegar þessi grein var birt í American Journal of Forensic Sciences: „Getur verið að þið fáið sömu niðurstöðu ef þið hefðuð geymt kjöt eða fitu eða lýsi?“ Hann sagði: „Nei, blóð í fljótandi formi.“ Þannig að kannski var þessi bolli notaður undir slíkt.
Það eru til fleiri svona bollar sem við vitum ekki alveg hvort hafi verið notaðir. Mér finnst, já, þar til einn sem er í Þjóðminjasafninu í Danmörku. Hann heitir Gundestrupketillinn. Hann er mjög stór ketill og ef menn skoða ofan í hann sjá menn naut sem er svona deyjandi naut. Þannig að mér finnst ekki ólíklegt að hann hafi verið notaður undir slíkt, en þó þori ég ekki að segja.
Gíslasaga og rannsóknir
Og eru þá kannski, svona að þú varst að tala um fornleifafræðinga á Íslandi í lok nítjándu aldar og byrjun þeirrar tuttugustu, þarf maður að fara svolítið varlega með þær túlkanir? Var einhver þjóðernisbarátta svolítið fólgin í fornleifafræðinni á þessum tíma? Ég hugsa að þetta sé tímalaust, og líka bara að þetta er náttúrlega langt á undan því þegar fornleifafræðin fór að þróast sem nútímafræðigrein.
Menn voru miklu meira að spá í gripunum sem slíkum, heldur en samhenginu, því sem fannst. Þetta var svona smá Indiana Jones-fílingur, kannski.
Og hvers vegna Gíslasaga? Hvers vegna valdirðu þessa sögu? Já, það er vegna þess að Gíslasaga er bara svo skemmtileg. Það er einfaldasta svarið, sko. Ævinlega hef ég haft áhuga á íslenskum fornsögum. Ég man nú bara eftir því, því þá dró ég Egils sögu úr hillu afa míns og spurði: „Hvað í ósköpunum er þetta?“ og reyndi að garfa í gegnum fyrstu blaðsíðuna.
En eins og svo gafst ég upp. Svona ætlaði áhuginn að kvikna, en meira seinna meir, þegar ég fór að lesa Íslendingasögur í grunnskóla og í menntaskóla. Einhvern tímann á unglingsaldri las ég Gíslasögu við
Þótti mér hún svona skemmtileg og forvitnileg. Svo eftir það sá ég myndina Útlaginn og mér fannst hún líka mjög skemmtileg, þannig að ég fór aðeins að pæla í þessu. Þetta var á þeim tíma eftir að ég var búinn að taka námskeið í norrænni trú hjá Terry Gunnell.
Ég sá þarna atriði hér og þar sem mér þóttu merkileg, eins og fóstbræðralagið, eða þegar Þorgrímur bindur Helga og Véstein, eða þegar Gísli festir skip Þorgrímsnef með steini, eða seiðskrattinn Þorgrímur nef, sem fer fram með sinn seið og alla sína ergi og fjölkynngi í kringum sig. Svo koma þarna draumkonur Gísla Súrssonar, sem birtast honum alltaf á vetrarnóttum.
Mér þótti þetta sérstakt og ég sá ákveðið tækifæri: það er hægt að rannsaka eitthvað þarna, þótt eitthvað hafi auðvitað verið rannsakað áður. En auðvitað er gott að koma með kannski nýja, ferska sýn. Það var í rauninni það sem ég og Terry settum upp; þá bjuggum við bara til svona ákveðin case studies.
Við tókum þetta í fjóra parta, tókum hvert fyrirbæri út af fyrir sig og rannsökuðum það hvert fyrir sig. Kannski förum við bara aðeins í gegnum þessi fjögur fyrirbæri. Eitt af því var fóstbræðralagið, ekki satt? Hvað er fóstbræðralag, svona fyrir okkur sem ekkert vitum?
Fóstbræðralag og eiðar
Ef ég kannski ber á byrjuninni hvernig fóstbræðralagið er myndað, þá er samkvæmt Gíslasögu rist svokallað jarðarmenni. Þá er torfinu lyft upp og það sett á spjótsodd, og svo ganga þessir svokölluðu svarabræður í gegnum þetta jarðarmenni, sem þeir ganga sérstaklega undir.
Þeir vekja blóð og hræra blóðinu saman á moldina. Eftir það falla þeir á kné og sverja að hvor skyldi annars hefna sem bróður væri, og nefna goðin sem vitni. Þannig að þetta er mikil táknræn athöfn. Þú getur sagt að þetta sé ákveðin helgistund.
Þegar þú sverð eið um að vera fóstbróðir og segir já, þá er það miklu þýðingarmeiri athöfn, sérstaklega eftir að þú ert búinn að sverja eið í viðvist manna og guða. Þannig verða til nýjar skyldur ef menn þurfa að hefna, ef annars skyldi vopnvegin verða.
Þetta breytir einu og öðru í tilvist manna sem verða að svona fóstbræðrum. Það er í rauninni í stuttu máli það. En það sem ég var helst að rannsaka er að þetta segir sagan, en hún er alltaf skrifuð á 13. öld. Spurningin mín er því: hversu góð heimild er þetta fyrir athafnir frá kannski 10. öld á Íslandi, sem Gísla saga gerist náttúrlega á 10. öld?
Og áttu sér einhverja samsvörun, eða er þetta úr lausu lofti gripið? Oft á tíðum í þessum athöfnum er gert ráð fyrir því að fólk viti hvað er í gangi. Það er ekkert verið að útskýra til dæmis þetta með svörðinn nákvæmlega, hvað er gert, eða það er svona lauslega útskýrt, en samt sem áður er gert ráð fyrir því að fólk viti hvað felst í þessari athöfn.
Það er eitthvað sem ég hef afskaplega gaman af þegar ég skoða íslenskar fornbókmenntir: eitthvað er nefnt og það er ekkert útskýrt nánar, hvað er í gangi hérna. Ég hef rosalega gaman af slíku. Þannig að ætlast er til að áheyrandinn eða lesandinn viti hvað er í gangi. Í stuttu máli eru þetta rannsóknarspurningarnar mínar í þessari ritgerð: að svara þessum spurningum.
Er þetta tilbúningur sagnaritarans eða er hérna einhver hefð að baki? Og ef svo er, á hún sér heiðnar rætur eða ekki? Komstu að einhverri niðurstöðu með það í tengslum við forspáratriði?
Til dæmis er til heimild um að mönnum hafi verið gerð gerviútför og svo eru menn endurbornir aftur. Þetta er þegar þú ert að endur… þú ert nýr einstaklingur, og svona ætlaði ég í forspáratriðinu.
Þannig að blóð kemur við sögu og eiður. Og við vitum það að eiðar voru svarðir; til dæmis í Júlíusarlögum Íslendinga er talað um eið, lögeið, og svo eru til eiðar sem heita griðamál eða tryggðarmál, þegar menn eru inni að semja um sættir sín á milli, tilvist manna og hins kristna guðs. En þetta er náttúrlega á þeim tíma sem ritaðir samningar voru ekki til, þannig að það var rosalega merkingarþrungið að sverja eið viðurvist manna og guðlegra vera.
Og ef þú nú ætlar að svíkja þann eið, þá er eins og Jón Hnefill sagði: þú ert ekki aðeins að svíkja hinn veraldlega eið heldur líka hinn guðlega.
Þetta er, já… Ég hef nú heyrt þig segja frá þessu valdi í forspáratriðinu, og þetta er miklu meira bras en maður hérna, eins og þetta lítur út fyrir að hafa verið í Gíslasögu, að ganga stundum þennan eina…
Já, það er hérna… Ég hugsaði síðan meira um þetta í Laxdælasögu og Vatnsdælasögu. Þá eru jarðamenn líka nefndir, nema það er notað í öðrum tilgangi. Þá er verið að sanna sekt eða sakleysi, til dæmis, og þá voru jarðamennirnir ekki eins háir og þá þurfti að beygja sig, og þá þótti kannski ekki eins mikil sæmd í því.
Helskór og skipsfesting
Svo ferðu líka ofan í það að binda helskó, líkt og þú nefndir áðan, og að binda skip. Geturðu kannski útskýrt þetta fyrir okkur sem vitum ekki mikið um þetta? Hvað er þetta?
Þetta er ákveðin helgiathöfn þar sem ákveðnir skór eru bundnir á fætur Vésteins. Og eins og sagan segir, það eru þau orð lögð í munn Þorgríms að það sé tíska að binda mönnum helskó, þeir skulu ganga á til Valhallar. En í annarri gerð Gíslasögu segir að það sé tíska að binda mönnum helskó, þeir skulu ganga á til Heljar.
Og þá má spyrja sig af hverju verið er að tala um Hel í annarri gerðinni en Valhöll í hinni. Það eru kannski ýmsar ástæður fyrir því, en mér finnst líklegra að Hel hafi verið viðkomustaður Vésteins. En í annarri gerðinni segir sagan Valhöll, og þá er hún auðvitað jafngild þannig lagað. En það að binda mönnum skó fyrir hinn næsta heim er eitthvað sem ég tel alveg vera nokkuð táknrænt.
Til dæmis er í Svíþjóð að finna ákveðna sokka sem heita dauðasölstrumpar. Menn voru bundnir ákveðnum sokkum fyrir framhaldslífið eða til að vera krafnir í, eða jarðskyrtur, jarðskyrta.
Það þurfti alltaf að undirbúa hina látnu fyrir framhaldslífið eða framhaldsheiminn, í rauninni. Það er bara hluti af ákveðnu, mannlegu eðli og félagslegu, þjóðfræðilegu eðli að gera ykkur helgiathöfn. Þú þarft að undirbúa eitthvað, gera eitthvað til þess að athöfnin komist til skila og verði alvöru athöfn, sko. En eins og Terja hefur bent á, þá voru ákveðnir skór sem hefnast kross… messuskór til á Íslandi, og það er til þess orð, tiltæki eða…
Var á dánarbyggðinu, þá var stundum sagt: „Hann er farinn að gera sér krossmessuskóna.“ Þannig að þetta er eitthvað mjög forvitnilegt.
Ef fornleifafræðin er skoðuð, eða ef til er skoðað með tilliti til fornleifafræðinnar, þá má oft finna steina í bátum eða skipum. Til dæmis, ef við skoðum Ásubells skipið í Noregi, er það mikið og veglegt skip. Þá má sjá að steinar voru hreinlega kastaðir í skipið og það er hengt með eða þegjum hest með akkeri, og er henni alveg rammfest niður.
Við sjáum líka önnur dæmi hérna á Íslandi, og jafnvel hér á Íslandi, þegar skiporðurinn er svona rammlega stillt upp og steinar raðaðir í kring eða settir á annan endann í kjölinn. En Gísli sagði, segir Gísli, hafi sagt: „Ekki kann ég skipa festa ef þetta tekur veður upp.“ Eins og það passaði að veðrið tæki skip ekki út.
En sko, margir hugsa til þess að útfarir á víkingaöld hafi verið á þann hátt að menn hafi verið settir í skip og svo hafi skipinu verið ýtt úr vör og kveiktur eldur í skipinu. En þegar fornlögreglan er skoðuð má oft sjá að skipin voru hreinlega bara kyrrfilega fest upp á landi.
Og ég tel að hver hugsunin sé á bak við það. Jú, jú, hverjir sjá um matjörðina? Það eru afkomendur, og þeir vilja líka passa upp á það kannski að þetta skip sé fyrir þessa manneskju. Með því að brjóta skipið, þá geturðu í rauninni ekki notað skipið. Það er ekkert að grafa upp svolítið eins og væri grafið í porsinum sínum.
En í rauninni þarna var ég að spyrja spurninga: Af hverju er þarna minni um stein og skip og að festa skipið? Er þetta á lausu lofti gripið? Og er inni fornlega frá henni? Styður það að mörgu leyti til.
Og við náttúrlega eigum þessar bátagrafir hér á landi, sem styðja þetta líka, kannski ekki alveg allar, en einhverjar, já, já. Og allavega var líka athyglisvert að skoða Íslensk sjávarhættir eftir Lúðvík Kristjánsson. Þar má finna svona hluti sem tengjast þessu kannski. Það er kannski einhver svipuð hugsun á bak við það. Það eru til ákveðnir steinar sem heita festarsteinar, sem voru notaðir til að festa í hróf og þess háttar.
Draumkonur Gísla
Og í rauninni má segja að þetta séu hin fornu áramót, þar sem veturinn byrjaði undan sumrinu. Og í rauninni, þegar í upphafi vetrar, þá koma þessar konur, eða það dreymir Gísla þessar konur. Önnur þeirra er betri við hann en hin er verri við hann.
Þessi betri spáir honum góðu, er góðlynd og svona ljúf. Hin hræðir hann svolítið og er að rjóða með blóði og hræðan. En þær spá honum um að hann eigi eftir sjö vetur ólifaða, sem síðan auðvitað rættist.
En ég var í rauninni að velta fyrir mér: Hvaða konur eru þetta? Eiga þær einhverja samsvörun úr öðrum heimildum, eða eiga þær sér heiðnarætur eða kristnarætur? Það er náttúrlega, þegar skilaboð þeirra eru skoðuð, þá…
Þær hafa oft kristinn siðaboðskap, svona: „Vertu góður við fátæka, fáráða og eitthvað slíkt.“ En þegar tímasetningin er skoðuð, hvenær þær koma og hvernig þær birtast honum, þá birtist önnur þeirra honum í draumi þar sem hún ríður gráum hesti og býður honum á bak í einhverja höll sem er þakin bekkjum og hægindum.
Þegar þetta er skoðað, þá finnst mér þetta alveg líka forn-norrænt, kannski heiðið að sumu leyti. Þannig að ég myndi segja að það sé kannski ákveðin blöndun í gangi, að kristnar hugmyndir blandist heiðnum. Mér finnst ekki ólíklegt að þær hafi öðlast ákveðið framhaldslíf út af því að þær eru með kristinn boðskap en heiðna eiginleika, ef svo má að orði komast.
Að sumu leyti minna þær menn á ákveðnar guðlegar kvenlegar verur, það eru dísir sem birtust oft á vetrarnóttum líka. Þótt þær séu aldrei beinlínis sagðar vera dísir, þá minnti þetta mig óneitanlega á að áslingarverur, dísir, birtast í draumum hins bjarna hetjukappa í Bjarnarsögu Hítdælakappa. Þar eru þessar dísir með svipaðan boðskap, og mér finnst ekki ólíklegt að þær eigi einhverjar slíkar rætur.
Dísir eru einhverjar guðlegar verur sem menn blótuðu eða færðu fórnir til á vetrarnóttum til að seðjast um betri forlög. Hver átti sér sínar dísir, og ef þær voru þér óliðhollar þá varstu feigur. Hún vill helst halda dísunum góðum.
En þessar eru svona ólíkar, þegar ein hljómar eins og hún sé skárri en hin. Að minnsta kosti hefur Gísli eitthvað að segja um þetta, eða eru þær bara forspáar og hafa algert vald?
Ég held það. Hann hefur í raun ekkert um þetta að segja nema það hvað hann hræðist sérstaklega aðra þeirra og er inni.
Já, já, hann hefur í raun ekkert um þetta að segja. Geturðu ekkert blíðkað neitt?
Seiður og Þorgrímur nef
Nei, ég man ekki til þess að hann hafi reynt það neitt sérstaklega. En svo er það seiðskrattinn Þorgrímur nef. Hvaða fyrirbæri er það í þessari frásögu?
Já, hann á heima þarna í Haukadal, á öðrum stað, og Nefstaðir heitir það. Hann var sagður seiðskratti sem mesti mátti verða á og framdi seið með allri sinni ergi og fjölkynngisskap. Hann er nefndur á nafn, en fjölskylda hans eða ætt er ekkert nefnd, þannig að hann virðist vera einhver svona hornkarl í dalnum, ef svo má að orði komast.
Já, svona öðruvísi. En hann er samt sem áður svona eitthvað sem fræðimenn kalla „lítit spesíalist“, svo hann er trúarbragðasérfræðingur. Þeir kaupa af honum seið til að láta þann sem vó Þorgrím eiga hvergi ró á landi. Þar næst Gísli frá Hergilseyjum; hann gleymir öllum úteyjum, heldur bara meginlandinu. En þeir fá hann líka til að smíða grásíðubrot.
Þannig bæði hagur og járn, og við það stundar seið. En jú, hann er svolítið sérstakur og hann er kallaður seiðskratti. Skrattinn í fornu máli fyrir henni þýðir sá sem er háðsgjarn í því læti, frekar en kannski einhver punki sem hann beri úr sænsku, að skratta það er svona „ha ha ha ha“, hlátur sko. Hann er svona undarlegur í háttum þess að vera argur, sem er einhvers konar mannleysa, svona ekki eins og allir hinir kannski.
En já, hann sko, mun það sem ég er kannski helst að ræða með hvað er seiður, til hvers seiður er stundaður. Seiður var oft stundaður af kvenfólki, þar sem maður var að spá fyrir um forlög manna og þess háttar oft.
Á vetrarnóttum, á þessum fornu áramótum. En Þorgrímur nef er nú ekki mikið að spá og spekúlera, hann er nú meira að breyta kannski náttúrunni, að breyta forlögum Gísla, svo á systur sem heitir Auðbjörg. Hún virðist vera svona svipuð, fremur einhver gjörningur með að labba rangsælis í kringum hús og veifra nefinu í allar áttir, og þá verður aurskriða.
Þannig að hún er að breyta landslagi frekar en að spá fyrir um einhver forlög og örlög af slíku. Þannig að svona í grunninn er hægt að segja að þetta sé ákveðin þróun á hugmyndum manna um kannski seið eða galdramenn eða eitthvað slíkt. Kannski á ég ofsi hér einhvers staðar einhver þróun, en allavega er litið hornauga á hann í Gíslasögu.
Hann er sagður vera sérstakur og kannski ekki mesti virðingarmaðurinn í sögunni, enda endar á því að hann og systir hans, þau eru hér inni barin grjóti í hel, eins og sagan segir. Og það er til meinstrengings kálfsbelgur og haus Þorgríms. Af hverju kálfsbelgur, spyrja menn sig? Jú, þá er það svo að hann geti ekki notað augun, það er til hin illu augu galdramanna og seiðmanna, þau voru oft talin hættuleg.
Þau gátu breytt einhverju, sett álög á einhvern eða breytt landslaginu eða slíkt. Þannig að þú setur eða bindur fyrir augu eða setur kálfsbelg fyrir augun, þá getur hann ekki notað augun sín þegar þau urðu handsaman. Svo urðu börn grjóti í hel og hlutu grimm örlög. Já, heldur betur. Og þess vegna áhugaverð atvik, þegar það er svona, hljómar eins og ýmislegt svona yfirnáttúrlegt sé til staðar í sögunni.
En þeirra einhvern veginn kannski nálgun á þetta yfirnáttúrulega er ekki talin rétt, eða að minnsta kosti myndi ég ekki segja að þau séu eitthvað vitlaus. Ég myndi segja að þetta sé merkileg heimild fyrir hugarheim Íslendinga á 13. öld, hvernig þeir hafa haldið að heiðni hafi verið. Þeir héldu að heiðin seiðir væru svona, og vissulega þróast þessar hugmyndir, en eitthvað á sér fornar rætur. Það er einhver svona samsullukjarni innst inni, finnst mér.
En sumt er svona sett í smá kristinn búning eða eitthvað slíkt, en eins og að botninum til er þetta ekki úr lausu lofti gripið, tel ég. Enda er líka mjög áhugavert dæmi um hvernig ertu að nýta bara svona eina heimild eins og Gíslasögu, sem er þó til í fleiri útgáfum, sem svona þunga miðju, en nota svo annað efni til samanburðar: hvernig það myndist annars staðar. Þú veist, já, bæði fornleifafræði, aðrar Íslendingasögur eða fornbókmenntir, annað, lög, lagabókstafi, fornleifafræði og þjóðhætti og þjóðtrú, til dæmis.
Það er úr ýmsu að taka oft. Hún setur það í svona ákveðið samhengi.
Handritið Jarðskinna
Málfræðingar og þjóðfræðingar voru mikið í akademíunni, en þau voru orðalega kolvitlaus af því að þau þurftu að bíða eftir að greinarnar yrðu ritrýndar áður en þau gætu gefið eitthvað út og sáu enga peninga í þessu. Þau hugsuðu bara: „Tökum málin í okkar eigin hendur, gerum þetta bara sjálf.“ Þannig að þau stofnuðu bókaútgáfu sem heitir Hildýr.
Þau koma reglulega til Íslands og ég kynntist þeim hérna á Íslandi út af því að ég hafði nú verið í sambandi við eitthvað áður, út af því að hann reddaði mér grein eða eitthvað slíkt. Ég man ekki hver þetta var, en ég og konan mín hittum þau og á milli okkar varð mikill vinskapur.
Svo komu þau aftur og þá fórum við bara yfir í bústað til mín og fórum að pæla yfir því að gera eitthvað saman. Þá nefndi hann: „Hvað með að skrifa um galdrabók?“ Þetta handrit nefnist Galdrabók og er geymt í Svíþjóð, ritað af þremur Íslendingum og einum Dana, sem notar íslenskar heimildir. Þetta eru íslenskir galdrar, íslenskt handrit geymt í Svíþjóð.
Ég sagði: „Jú, hví ekki það?“ Þannig að ég sló til og gerði það. Svo benti hann mér á annað handrit sem mér þótti eiginlega mun merkilegra. Það er handrit sem ber safnmarkið AM 434 fol.
Þetta handrit hefur aldrei verið gefið út í heild sinni. Það hefur bara verið gefið út svona part úr því.
Jón Samúelsson gaf út ákveðinn part af þessu og Ólafur Davíðsson gerði það líka, en þetta handrit hefur aldrei verið gefið út frá upphafi til enda. Þegar handritið er skoðað má sjá…
Og enn forvitnilegra þótti mér, því ég las blaðsnepil sem fylgdi þessu handriti. Árni Magnússon fékk þetta handrit árið 1707 og með þessu handriti stóð: „Ég, færeyður, í góðri trú, kálfskynskver, afa gamalt, þar innifalið hvernig þeir í fyrri tíð hafi komist í munnráð við semihominum, eður huldufólk.“ Mér finnst þetta kallað þannig að verið sé að tala um: „Ég er að fara að hrana kálfskynskver…“
…sem geymir upplýsingar um hvernig fólk hafi hagað sér oft í ræðu við huldufólk eða álfa, huldufólk í fyrri tíð. Þegar handritið er skoðað segir á fyrstu síðunni: „Margt er ungum mönnum frítt að fremja gaman, þessa eftirfarandi lyf fyrst hafa þeir gömlu brúkað, þótt nú fáir kunni.“ Síðan byrjar þetta bara: Sérðu mynd af þessum forvitnilegu verum? Þá stendur: „Sæl, jarðbúi, segðu mér fréttir. Ég á þig kalla upp, upp stattu, ég vil finna þig, láttu mig sjá.“
Þetta er mjög forvitnilegt og mjög sérstakt. Þetta er svolítið öðruvísi en öll hin galdrahandritin sem við eigum, sem geyma oft kannski…
Þú sérð kannski þar hvernig á að fá ást stúlku, eða hvernig skal láta kú halda, eða hvernig skal gera norðanmynd. Þá ertu með einhverjar upplýsingar: já, þá þarftu að gera þetta og þetta, rista þennan staf og setja hann út hér, og þá virkar það. En í þessu handriti er enga svona leiðbeiningu að finna. Hér er bara komið sér beint að efninu og hérna er aftur svolítið ætlast til þess að lesandinn, eða ritarinn, viti hvað er í gangi. Það er ekkert verið að útskýra neitt.
Það er bara komið sér beint að efninu og þú ert að ákalla einhvern jarðbúa, segja honum fréttir, já, í draumi. Svo kemur það seinna, þegar ég er sofnaður, þá vill ákallandinn að huldufólk komi í drauminn og segi fréttir. Við sjáum oft kannski bæði í forníslenskum heimildum og í þjóðtrú seinni tíma að draumar hafi skipt verulega miklu máli.
Í matnum þennan daginn heyrði ég einhvern mann segja að hann ætlaði nú að byggja eitthvað hús, eitthvað fjárhús. Svo nóttina áður eða kvöldið áður fór hann að þessum stað og mælti: „Hér ætla ég að byggja fjárhús. Ef einhver landvættir eru hér, komi þeir í drauminn minn og segi mér af hverju ég eigi ekki að byggja hér.“ Þannig að fá einhverja þekkingu og vitneskju í draumum. Þetta er eldra en marga hefur grunað.
Svolítið áhugavert. Þetta er þá kannski eins og leiðarvísir að því hvernig maður getur átt samskipti við huldufólk? Já, eða allavega fengið fréttir frá því.
En að sama skapi er þetta handrit illæsilegt. Ég var svona tvo eða þrjá mánuði að garfa í gegnum það. Þetta er pínulítið handrit, þetta er ekki stórt, og ég var svona tvo eða þrjá mánuði að garfa í gegnum það. Ég tók nú handritaáfanga hjá honum Róberti og Þórdísi Eddu á sínum tíma, en hann er nú kannski ekkert sérfræðingur í handritalestri.
Þannig að ég spurði Ara Björnin hvort ég gæti fengið hjálp eða svona ábendingar. Ég fékk einhverjar ábendingar og svo lét hann Hauk Þorgeirsson lesa yfir textann og athuga hvort hann myndi myndast. En það sögðu samt allir hreinlega að það væri oft erfitt að sjá hvað væri verið að segja í handritinu, því það eru alls konar styttingar og persónulegar styttingar.
Þannig að mér finnst ekki óeðlilegt að sá sem skrifar þessa orðsendingu til Árna Magnússonar hafi bara verið ritarinn sjálfur. Mér finnst alls ekki ólíklegt.
Galdrar og hugmyndir fólks
Og hvað finnst þér svona, nú ertu búinn að vera að garfa í þessum handritum: Hvað geta svona handrit eins og þessi sagt okkur um viðhorf eða hugmyndir fólks á…
Á þessum tíma, já. Þetta er merkilegt, sko. Fólk hefur vissulega trú á þetta, þótt yfirvöld hafi kannski ekki verið jafn hrifin af því. Ef galdramál eru sko við hann Atla, erum við nótt teknir fyrir ykkur tákn eða eitthvað sem menn báru á sér, þannig að það væri, og voru alls konar varaskona hjátrú tengd þessu, sko.
Og þessir galdrastafir, náttúrulega, eiga sér kannski að mestu leyti séríslenskar rætur, en þeir eru náttúrulega settir í íslenskan búning til minnis: hvernig á að gera norðanveður, eða hvernig skal varna, verja féðgangartófun, eða hvernig skal láta kú halda kálfi. Þetta er svona sett í skemmtilegan íslenskan búning. Og svo ekki talað um þetta handrit sem ég hef núna kallað Jarðskinnu, út af því að jörðin er oft sett í samhengi í öllum göldrum.
Það er til dæmis talað um hvernig á að gera smyrsla og á að taka úr jörðinni ákveðin strá og safna þar saman dögginni, og svo á að lesa þar orð. Þar eru Þór og Óðinn ákallaðir og eitthvað slíkt, sko. Eða það er verið að gera eitthvað svokallað jarðarmerki, sem hann kallar terramsykilatam. Þannig að ég nefndi handritið Jarðskinnu og er þar að vísa til svona þessara hefða að nefna handrit „skinn“ eitthvað: Skinnrauðskinna, Fagurskinna, Morkinskinna. Ég vísa í Jarðskinnu, hví ekki?
Þetta er kannski bara einhver svona aðferð til að fást við kvíða líka.
Bókin er til sölu hjá Þjóðminjasafninu, eða ég hef nokkur eintök fyrir skáldu.
Og já, svona, jú, Hrafnagaldur Óðins. Sneri bæ til að missa nýbúð fyrir ofan þarna, æi, gamla kofa Tómasar frænda. Það er svona hérna, ég er að reyna að koma henni, jú, Galdrasafni.
Hálmar.
Kaffirís, þau eru líka með eintök. Ég er svona að reyna að koma þessu þar, og það er mikill áhugi fyrir þessu. Ferðamenn eru sérstaklega kolvitlausir í íslenskan galdur. Þetta er þriðja prentun; hinar eru uppseldar.
Næsta bók um galdrastafi
Að fara og fjárfesta í galdrabókinni Jarðskinnu. En hvað er svo næst á dagskrá?
Já, nú um þessar mundir er ég og konan mín, fjörutíu árum síðar, að skrifa nýja bók sem ber heitið Galdrastafir. Það eru galdrar frá nítjándu öld. Þetta sem ég var að ræða hérna rétt áðan, Galdrabók og Jarðskinna, það eru galdrar frá sautjándu öld. En þetta er frá nítjándu öld og er eitthvað sem er óútgefið handrit sem Jónas á Hrafnagili skráði og safnaði.
Sumir stafir hafa alltaf komið út í öðrum bókum, en handritið sem heild hefur aldrei verið gefið út. Þar er ég að ræða líka um samhengi galdra á nítjándu öld, hvernig þú hefur til mín prestar kvartað undan því að finna svona hjátrúarblöð og þetta fer í taugarnar á þeim. Þeir eru alltaf að taka þetta af fólki.
Og svo er ég að tala um eitthvað svona, já, hvernig þetta var lifandi, sko. Að lesa bágu, sem er hérna prófessor í rúnafræðum, hún skrifar inngang og setur þetta líka aðeins í svona samhengi, hvaðan þetta kemur, hið evrópska samhengi. En þetta kemur út bara eftir kannski…
Tvo mánuði. Frábært, þetta er bara ofboðslega áhugavert að fræðast um þessar rannsóknir, Kári. Sannarlega, takk kærlega fyrir að koma.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir