Gestur þáttarins er Katla Kjartansdóttir, doktorsnemi í menningarfræði við Háskóla Íslands. Katla segir frá leið sinni í þjóðfræðina og meistaranámi í þjóðernisfræðum við Edinborgarháskóla en þjóðernisfræðin er systurfag þjóðfræðinnar þar sem alþjóðasamskipti og þjóðernissjálfsmyndir eru veigamikill þáttur.
Katla hefur fengist við sjálfsmyndir þjóða og norðurslóða í rannsóknum sínum í gegnum árin en í doktorsrannsókn hennar fæst hún hlutverk og merkingu dýra við framsetningu á þjóðerni. Hún skoðar sérstaklega hvernig lundinn hefur orðið þáttur í að markaðssetja Ísland og hvernig geirfuglinn og aldauði hans hefur áhrif í samtímanum. Einnig horfir Katla til þess hvernig ólíkir listamenn hafa tekist á við samfélags – og umhverfisáskoranir í verkum sínum en þar hefur lundinn spilað stórt hlutverk.
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, kennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefðir hjá Þjóðminjasafni Íslands.
Handrit
3.001 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan
Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Kötlu leið inn í þjóðfræði
Komið sæl og velkomin í Þjóðhætti. Ég heiti Dagrún og ég heiti Sigurlaug. Gestur þáttarins í dag er Katla Kjartansdóttir. Hún er um þessar mundir að leggja lokahönd á doktorsnám sitt í menningarfræði við Háskóla Íslands, en …
Katla hefur í gegnum fræðastörf sín horft á ýmsa þætti sem tengjast þjóðfræði, söfnum, dýrum, náttúrunni og ímyndum norðursins. Velkomin, Katla, og takk fyrir að vera með okkur hérna í dag. Já, takk fyrir að bjóða mér.
Kannski höfum við byrjað bara á spurningunni sem við spyrjum alla sem hingað að koma: Af hverju ákvaðstu að fara í þjóðfræði? Já, ég byrjaði í bió-nómi í íslensku hérna við Háskóla Íslands, en var ekki alveg nógu ánægð með það, svo fór ég til Köben í smá svona sumarvinnu.
Og var að hugsa dálítið málið. Þar gekk ég inn í gamla fornbókabúð og sá dálítið spennandi bók sem hét, hérna, „Menneskesaga i hverdagen“ á dönsku, eða „Saga manneskjunnar á hátíðastundum og hversdags“.
Þá fór svona svolítið þetta þjóðfræðidæmi bara að malla dálítið í hausnum á mér. Ég fór að hugsa hvort þetta væri ekki bara nákvæmlega það sem mig langaði að læra meira um í mínu háskólanámi, beinast sér sjónum að manneskjunni og hvernig mismunandi menning mótar hana.
Og þá ekki síður kannski hvernig við mannfólkið mótum menningu, hefðir og siði. Þetta kemur líka á mismunandi hátt og á mismunandi stöðum, í mismunandi samhengi.
Og já, mér fannst þetta bara vera mjög spennandi viðfangsefni og ákvað síðan að skrá mig í þjóðfræðina þegar ég kom heim. Síðan þegar þú varst búin í þjóðfræðinni hérna heima, þá hélst þú út í meistaranám til Edinborgar í þjóðernisfræðum. Kannski geturðu útskýrt aðeins fyrir okkur hvað þjóðernisfræði er.
Já, sumir hérna, eða margir sem ég hef talað við, þeir segja: „Þjóðernisfræði? Veit ekkert hvað það er.“ Og svo var þetta ennþá vandræðalegra eiginlega þegar ég segi á ensku að það heiti „nationalism studies“.
Ég hef svona tamið mér hérna síðari tímum að segja bara í gríni að þjóðfræðin sé einhvers konar frænka þjóðernisfræðanna, af því að þetta er alveg náskylt að mörgu leyti. Þannig að í þessu námi vorum við að læra ýmislegt sem líka er kennt í þjóðfræðinni núna.
Það var til dæmis hvernig svona þjóðernisímyndir og sjálfsmyndir verða til og hvernig þeim er viðhaldið. Síðan er kannski greinarmunurinn sá að í þjóðernisfræðunum var meiri áhersla lögð á pólitík, alþjóðapólitík og alþjóðatengsl.
Samnemendur mínir sumir voru þá bara hálfir á kafi í mjög djúpum pólitískum málefnum, eins og deilum Ísraela og Palestínu, í sínum verkefnum. En ég hafði kannski aðeins meiri áhuga á menningarpólitík og hvernig menning er oft nýtt sem drifkraftur á bak við þjóðernispólitík, en líka til að styrkja tengsl á milli þjóða og fleira þess háttar.
Ímyndir norðursins og þjóðernis
Og já, mér fannst bara alveg rosalega gaman að spá í þetta allt saman. Já, þetta er mjög áhugavert. Og þú hefur síðan tekið þátt í ýmsum rannsóknarverkefnum sem meðal annars snúa að ímynd norðursins. En geturðu sagt okkur í grófum dráttum af hverju er svona áhugavert að skoða ímyndir svæða?
Já, þessi áhugi kviknaði þarna dálítið í náminu og ég fór að sjá svona margvísleg líkindi, til dæmis við þessa ímyndasmíð sem er að finna við bara það sem er áberandi bæði var og er áberandi í Edinborg og Skotlandi.
Þar, eins og hér, þá hefur þessi ferðaþjónustuiðnaður ýtt dálítið mikið undir ákveðna tegund af þjóðernisímynd, þar sem ákveðnar frásagnir og þemu eru í forgrunni. Svo eru ákveðnir lykilgripir sem við könnumst við og tákn, á borð við til dæmis skotapils og sekkjapípurnar.
Dálítið svona klisjur kannski, en eru þarna mjög áberandi og enginn sleppur undan þeim sem gengur þarna með bæinn, ekki frekar en lundanum hér og lopapeysunni. Þannig að mér fannst mjög áhugavert að skoða svolítið þessa dýnamík sem ég sá einhvern veginn vera í gangi þarna.
Og pæla hvort þessi sviðsetning sé nægilega fyrirferðarmikil, og svo til samanburðar hvernig heimamenn fara að því að iðka eða skapa þjóðernisímyndir, sjálfsmyndir, samkennd og sameiginlega vitund. Ég hafði þá meiri áhuga á svona þessu hversdagslega samhengi þjóðernisiðkunar og sköpunar. Ég hafði síst…
Ég fékk mjög dýrmæta bók í gjöf frá pabba mínum áður en við fluttum til Edinborgar, sem er hérna Kvæðasögur og ættjarðarljóð Jónasar Hallgrímssonar. Mér fannst líka áhugavert að kafa dálítið ofan í það hvernig ákveðnir munir og gripir, í raun og veru efnismenning, tengja okkur við ákveðin svæði og í þessu tilviki til dæmis sögurnar við mitt föðurland.
Á þessum tíma vorum við Kristinn, maður minn, hérna, sem ég þekkti úr þjóðfræðinni, og þáverandi samnemandi minn líka að sækja svona viðburði á vegum Íslendingafélagsins úti. Það voru þorrablót, sem voru haldin, 17. júní-samkomur og þess háttar. Á endanum varð það dálítið okkar rannsóknarefni, sem við fórum að kafa dálítið dýpra ofan í: sameiginlegar þjóðernishátíðir og siði Íslendinga sem voru, eins og við, búsettir erlendis.
Lundinn og geirfuglinn í rannsókninni
Já, en svo við færum okkur svona erlendis frá hingað heim, hvað kemur í ljós þegar ímynd Íslands er til dæmis góð við köllum? Já, það er alveg rosalega margt og margt áhugavert.
En ég þarf fyrst að segja að ímynd Íslands er mjög síbreytilegt fyrirbæri sem tekur stöðugum breytingum. Ímynd Íslands í dag er auðvitað ekki sú sama og hún var til dæmis þegar ég var að alast upp. Bara sem dæmi, það voru ákveðnar þjóðernishetjur á borð við Vigdísi Finnbogadóttur og Jón Pál og fegurðardrottninguna Hófí, sem voru hérna að bera uppi hróður þjóðarinnar á erlendum vettvangi.
Svo kom Björk og sigraði heiminn og gerði auðvitað mjög mikið fyrir bæði ímyndina og landkynningu almennt. Fyrir hrun voru það útrásarvíkingarnir sem spiluðu stóra rullu og við munum öll hvernig það fór. En hérna, í seinni tíð þá er það fyrst og fremst náttúran og kannski ákveðin dýr á borð við lunda sem eru hvað mest áberandi þegar rýnt er í ímynd Íslands. Ég er einmitt að fjalla dálítið um það í doktorsrannsókninni minni.
Já, einmitt. Doktorsrannsóknin er mjög spennandi, en þar ertu að greina birtingarmyndir tveggja náskyldra fuglategunda, lundans og geirfuglsins. Þetta er annars vegar fugl sem var útdauður og hins vegar fugl sem er í útrýmingarhættu. Geturðu sagt mér aðeins af hverju þú valdir þessa fugla?
Já, ég verð að viðurkenna það: ég vissi ekki að þessir fuglar væru svona náskyldir til að byrja með. Ég er nú bara þjóðfræðingur að rannsaka, ég er ekki líffræðingur, en ég hef verið að færa mig dálítið yfir á þetta svið. Þeir eru svo náskyldir, báðir af álkuætt, bara svo það komi fram.
Ég fór fyrst af stað og var að skoða þá í doktorsnáminu mínu í safnafræðinni, svona framsetningu og hlutverk geirfuglsins á danska náttúruminjasafninu haustið 2018. Þá var ég fyrst að horfa á hann sem safngrip og fannst margt áhugavert í sögu hans, svo ekki sé meira sagt.
Þegar ég fór að kafa dálítið ofan í það, þá kom í ljós að rétt eins og lundinn núna þurfti hann að berjast mjög hatrammlega við loftslagsbreytingar og fæðuskort, og kannski ekki síst ágang mannsins. Vegna þessa flutti hann sig æ norðar í leit að fæðu og endaði svo hérna úti í Eldey, þar sem síðasta parið var veitt 3. júní 1844. Eins og margir vita blasa svipuð örlög við lundanum í dag ef ekki er varlega farið. Það fannst mér mjög sláandi staðreynd þegar ég fór að komast að því.
Og hvað er helst að koma í ljós í rannsókninni?
Aðeins einn flokkur eftir áður en komið er að fullri útrýmingu. Það sem mér finnst merkilegt er sú staðreynd að á meðan lundinn verður meira og meira áberandi sem einhvers konar þjóðernistákn og lykilgripur innan ferðaþjónustunnar, þá fækkar honum gríðarlega sem lifandi veru. Í ritgerðinni rannsaka ég meðal annars þessar gríðarlegu vinsældir fuglsins innan ferðaþjónustunnar.
Og þá hefur komið í ljós að það er kannski ekki hvað síst þetta krúttlega og aðlaðandi útlit fuglsins sem veldur því hjá sumum ferðamönnum að jafnvel þessi krúttlegheit virðast ná að stoppa þá frá því að borða hann.
En svo vilja margir meina að hann hafi yfir sér ákveðna og skemmtilega áru, enda hefur hann stundum verið kallaður trúður hafsins eða trúður himinsins líka. Svo er hann stundum kallaður munkurinn eða prófasturinn, þannig að það er kannski ekkert skrýtið að þessir ferðamenn sem koma hingað virðast ekkert gera sér neina sérstaka grein fyrir því hversu viðkvæm staða hans er í raun og veru um þessar mundir og fá sér bara grillað eða steikt lundakjöt að smakka á veitingastöðum og sjá ekkert sérstakt athugavert við það.
En í öllu þessu sjónræna kynningarefni sem ferðaþjónustan er að framleiða og þannig, þá sjáum við líka lundann alltaf bara í sínu besta formi, með litríkan og glansandi gogginn í fallegri íslenskri náttúru. Það birtast aldrei myndir af kannski dauðum lundum eða þeim sem hafa farið illa vegna olíu- eða plastmengunar í hafinu. En auðvitað er ljóst og allar rannsóknir hafa bent til þess að þessir þættir hafi auðvitað mjög mikil áhrif á lífsskilyrði lundans og ekki síst fæðuna sem hann er að leita í, sem eru sandsílin fyrst og fremst. Og að mínu mati vantar sárlega frekari rannsóknir í þessum efnum, til dæmis um hvernig þessar umhverfishamfarir og neikvæðu áhrif aukinnar ferðamennsku, eins og aukin umferð skemmtiferðaskipa, geta skaðað búsetusvæði og framtíðarhorfur villtra dýra og fugla á borð við lunda.
Listin og umhverfisáskoranir
En svo er það eitt af meginmarkmiðum og kannski gildum rannsóknarinnar hjá mér að sýna fram á og undirstrika vægi og hlutverk menningar og skapandi lista þegar kemur að því að fjalla um og takast á við þessar stóru umhverfisáskoranir okkar tíma, á borð við loftslagsbreytingar og útrýmingu dýrategunda. Rannsóknir mínar sýna það með margvíslegum dæmum, hvernig íslenskir samtímalistamenn hafa tekist á við þessar áskoranir í sínum verkum og hversu áhrifarík sú listræna nálgun getur verið þegar kemur að því að vekja upp knýjandi spurningar og umræðu um þessi málefni. Þessi listrænu verkefni sem ég tek til umfjöllunar sýna líka mjög glöggt hversu mikilvægur lundinn getur verið í raun og veru, sem meira en mennskur leikmaður eða „more-than-human actor“, þegar kemur að því að vekja athygli á núverandi vistfræðilegum áskorunum.
Listrænu verkefnin varpa líka sterku ljósi á og vekja umræður um hvernig mannleg áhrif, eins og fjöldaferðamennska, eiturefni í hafinu og ofnýting, hafa haft áhrif á núverandi lífsskilyrði lundans og framtíðarhorfur hans. Þau sýna líka að lundinn hefur mjög mikilvægu hlutverki að gegna sem einhvers konar fyrirboði og áminning um viðkvæmt vistkerfi og þverrandi lífslíkur villtra dýra hér á norðurslóðum. Ég sýni fram á í ritgerðinni hvernig þessi listrænu verkefni hafa sérstaklega verið miðlæg í því að draga fram þetta nýja og mikilvæga hlutverk lundans í rannsóknum mínum.
Þá nálgast efnið frá áherslum pósthúmanisma, þar sem reynt er að horfa á dýr sem gerendur í menningarlegu og sögulegu samhengi. Geturðu sagt okkur frá þessu, Katla?
Já, í þessu samhengi er ég að reyna að nýta mér dálítið kenningar pósthúmanískra fræðimanna, sem hafa núna verið að taka sér meira pláss innan fræðanna og þjóðfræðinnar þar með, sem er hið besta mál. Þessir fræðimenn líta sem sagt á dýr sem gerendur, eða meira en mennskar verur, sem geta haft margvísleg áhrif og völd. Þá er ég að nýta mér kenningar fræðimanna á borð við Donnu Haraway, sem talaði um dýr sem „companion species“, einhvers konar félaga okkar og jafnvel samstarfsfélaga.
Þetta pósthúmaníska sjónarhorn hafnar í raun og veru gamaldags módernísku tvíhyggjunni, sem lagði áherslu á andstæðupör á borð við manneskja versus náttúra eða manneskja versus dýr. Það lítur þá miklu frekar á umhverfið og náttúruna sem einhvers konar vefnað eða samofna þræði, þar sem tilvera okkar mannfólksins við önnur dýr og jafnvel plöntur líka fléttast og renna saman, eins og fræðimenn á borð við Tim Ingold, Jane Bennett og Bruno Latour og fleiri hafa fjallað mikið um. Ég þurfti að reyna að hverfa dálítið frá þessu mannhverfasjónarhorni sem…
Það hefur alltaf verið að setja manneskjuna og þarfir hennar og markmiðið í efsta sæti, bara ofar öllu öðru. Það er alveg ljóst að sú framganga er núna bara við það að tortíma öllu lífi hér á jörðinni, svo maður gerist nú bara dálítið dramatískur.
Lundinn sem þjóðartákn
Þannig er það nú bara, og þá er ekki aðeins líf villtra dýra og fugla heldur jafnvel líka okkar hérna sjálfra, mannskepnunnar. Já, þetta er rosalegt og ótrúlega áhugaverð rannsókn. Svo margt sem hérna er, því þú nefndir áðan líka lundabúðirnar og svona hvernig lundinn væri orðinn táknmynd í ferðaþjónustu. Hvernig kom það til að lundinn fór að verða svona einkennismerki eða jafnvel lukkudýr landsins, og hvernig horfir þú á stöðu lundans í samhengi við ferðaþjónustuna og ímynd Íslands?
Já, það er einmitt mjög áhugavert að sjá hvernig sú þróun hefur bara orðið hérna á síðustu áratugum. Það hefur komið mörgum á óvart, en þegar ég var að alast upp, til dæmis í kringum 1980, þá var lundinn eiginlega hvergi að sjá í þessu ferðaþjónustusamhengi. Flestir tengdu hann bara eitthvað svona við Vestmannaeyjar og eitthvað þess háttar. En svo kemur lundinn líka mjög sjaldan fyrir í þjóðtrú eða þjóðsögum, þar sem hrafninn er hins vegar frekar áberandi, og þá reyndar oft í tengslum við ólukku eða dauða eða eitthvað því líkt. Þannig að það er kannski ekkert skrýtið að hann hafi ekki verið valinn.
En svo var það þjóðfræðingurinn og fyrrum leiðsögumaðurinn Árni Björnsson, sem sýndi erlendum ferðamönnum í fyrstu ferðum sínum hérna um landið þessum fugli alveg sérstaklega mikinn áhuga strax í kringum 1970, en þá auðvitað í sérstöku lifandi formi. Svo var það nú ekki fyrr en í kringum 1995 sem íslenskur kaupmaður í miðbæ Reykjavíkur fór að flytja hingað inn svona fjöldaframleidda lundabása og selja þá í sinni búð. Þeir urðu strax alveg rosalega vinsælir meðal ferðamanna, og líka alls kyns aðrir lundagripir, lyklakippur og líklega svona kaffikrúsir og búsluspil og náttföt og bara Guð minn veit ekki hvað, eins og þið þekkið. Síðan hefur bara vegur hans verið að vaxa og dafna.
Í dag er hann bara orðinn langvinsælasti svona gripurinn, að því er virðist. Ég fór niður Laugaveginn fyrir stuttu síðan og var svona aðeins að fara aftur yfir sviðið, og mér sýnist þeim bara vera að fjölga. Varðandi stöðu lundans í þessu samhengi, þá virðist hún bara vera alveg ágæt. Persónulega er ég bara miklu sáttari í raun og veru við það að lundinn sé orðinn eitt af okkar helstu lykiltáknum þegar kemur að markaðssetningu fyrir ferðamenn, frekar en til dæmis fegurðardísir eða útrásarvíkingar eða eitthvað þess háttar. En til þess að táknið geti samt áfram talist trúverðugt, þá verðum við auðvitað að hlúa betur að fuglinum sjálfum sem lifandi veru og sjá til þess að hann eigi sér hér einhverja framtíðarvon, með öðrum orðum að það fari ekki fyrir honum hreinlega eins og geirfuglinum forðum daga.
Listamenn takast á við lundann
Einmitt. En svo við hverfum nú kannski aðeins frá lundabúðum og yfir í listina: Í ritgerðinni ertu að horfa líka á hvernig listamenn hafa tekist á við þessi margþættu tengsl sem við eigum við lundann. Geturðu lýst því aðeins fyrir okkur og hvernig þetta viðfangsefni snertir á þeim umhverfislegu áskorunum sem við stöndum frammi fyrir í dag?
Já, ritgerðin er einmitt að leggja sérstaka áherslu á skapandi og listræna nálgun þegar kemur að því að vekja fólk til vitundar um þessa viðkvæmu stöðu lundans, og er að skoða í því samhengi hvernig nokkrir samtímalistamenn okkar hafa verið að höndla með efni í gegnum sín verk. Ég er sérstaklega að fjalla um lundaverkin hennar Huldu Rós Guðnadóttur. Hún hefur verið að taka fyrir í sínum verkum hlutverk og margvíslegar birtingarmyndir lundans í svona um það bil 20 ár, eitthvað þar um bil.
Svo er ég líka að fjalla um verk eftir Sævar Þórðarson sem heitir „Slæsland: vesturspássíur inn í Evrópu“, langi titillinn, og síðan er það „Hótel Lundabúðin – Puffin Hotel“, sem er verk þeirra Ránar Flygenring og Elísabetar Bjartar Einarsdóttur frá 2001. Í þessum verkum eru þessir myndlistarmenn að takast á við þessi margræðu tengsl okkar við lundann með dálítið ólíkum hætti, og hvernig hann hefur síðan verið nýttur í gegnum tíðina, fyrst og fremst auðvitað sem einhvers konar veiðibráð og matvara eða fæða, en líka síðan á seinni tímum sem þessi hálfgerða klisjukennda táknmynd.
Til dæmis fyrir hreina og óspillta náttúru, íslenska náttúru, innan ferðaþjónustunnar, á sama tíma og hann á þá sjálfur í vök að verjast undan margs konar mengun og ágangi mannsins, eins og ég nefndi áðan í ritgerðinni. Er ég þá að beina sérstaklega sjónum að því hvernig verk þessara listamanna draga fram mikilvægt hlutverk lundans í þessu samhengi og þá kannski ekki síst í tengslum við þetta vistkerfishrun sem við stöndum frammi fyrir í dag og sem felur mögulega í sér útrýmingu íkonískra dýrategunda á borð við lundann sjálfan.
Rauði þráðurinn sem kannski sameinar þessi verk finnst mér vera ekki hvað síst áhersla þeirra á svona húmor og gleði og dálítið svona leikræn tilþrif. Þannig að í raun og veru verður, þrátt fyrir alvarlega undirtóna og fremur svona myrk umhverfisskilaboð þeirra um núverandi stöðu lundans, að listamennirnir vilja greinilega ekki tala ofan úr einhvers konar svona predikunarstól eða með of miklu svona yfirlæti gagnvart viðtakendum.
Áhorfandinn fær í raun og veru sjálfur dálítið svona rými til að hugsa málið og velta því fyrir sér og melta áður en einhver sérstök afstaða er tekin til lundans, honum til stuðnings eða ekki. Þessi dæmi sem ég tek fyrir í ritgerðinni sýna mjög vel, finnst mér, hvernig þessar listrænu og skapandi nálganir geta í raun og veru virkað sem svona öflugt hreyfiafl þegar fjallað er um stærstu umhverfisáskoranir okkar tíma, á borð við útrýmingu dýrategunda.
Í samanburði við upplýsingar, til dæmis, sem eru settar fram með hefðbundnum skýringarmyndum, kannski flókinni tölfræði eða einhverri svona vísindalegri greiningu, þá getur slík nálgun leitt til mun dýpri skilnings á viðfangsefninu og vonandi eflt vistvitund og næmi fyrir hugsanlegum lausnum. En þar að auki, eins og margir kannski þekkja á eigin skinni, getur slík nálgun líka kallað fram mun sterkari tilfinningaviðbrögð meðal viðtakenda.
Ef vel tekst til eykst skilningur, áhugi og þekking á þessum vanda sem við blöskrar og vekur stundum sterkar tilfinningar á borð við reiði eða jafnvel vanmátt eða áhyggjur yfir ástandinu, en líka jákvæðar tilfinningar á borð við umhyggju og samkennd og jafnvel þakklæti.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir