Þjóðhættir
Þjóðhættir #6228:02

Huldu­verur, safna­starf og köldu ljósin Hafna­firði

Gestur þáttarins er Svanhvít Tryggvadóttir þjóðfræðingur sem starfar um þessar mundir á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Svanhvít lýsir leið sinni í þjóðfræðina og segir frá BA ritgerð sinni þar sem hún rannsakaði sagnaheim Vestur Íslendinga, hvaða þjóðtrúarverur fluttust yfir hafið og hvernig þeim vegnaði á nýjum stað.
Hlustaðu · brot28:02 ·

Svanhvít lýsir leið sinni í þjóðfræðina og segir frá BA ritgerð sinni þar sem hún rannsakaði sagnaheim Vestur Íslendinga, hvaða þjóðtrúarverur fluttust yfir hafið og hvernig þeim vegnaði á nýjum stað.

Svanhvít stofnaði fyrirtækið Jaðarmiðlun með vinkonum sínum í háskólanum þar sem nýjasta tækni og hulduheimar renna saman. Markmið verkefnisins er að lífga þjóðsögurnar við með sýndarveruleika og setja á svið hulduverur á Íslandi.

Nú starfar Svanhvít á Byggðasafni Hafnarfjarðar, þar hefur hún fengist við fjölbreytt verkefni, setti meðal annars upp sýninguna Köldu ljósin þar sem saga fyrstu rafmagnsljósanna í Hafnarfirði er sögð. Sýningin er á sérstökum stað, í undirgöngum undir Lækjargötunni, en Svanhvít segir okkur einnig frá færanlegum sýningum sem safnabíllinn Tukki færir Hafnfirðingum.

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir, kennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands og Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefðir hjá Þjóðminjasafni Íslands.

Handrit

3.012 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Leiðin í þjóðfræðina

Komið þið sæl og velkomin í nýjan þátt af Þjóðþáttum. Ég heiti Sigurlaug og ég heiti Dagrún. Hjá okkur í dag er Svanhvít Tryggvadóttir, þjóðfræðingur og sérfræðingur á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Velkomin, Svanhvít.

Kærar þakkir, gaman að vera hér.

Við kannski byrjum hérna á svona klassískri spurningu: Geturðu sagt okkur aðeins frá því hvað varð til þess að þú ákvaðst að læra þjóðfræði?

Já, góð spurning. Ég var svona í eldri kantinum, búin að gera alls konar áður og langaði að breyta til í lífinu. Fór að skoða hvað var í boði í Háskóla Íslands.

Eftir mikið grúsk og spurningar til annarra fannst mér þetta bara það merkilegasta og mest spennandi sem var að gerast í Háskóla Íslands.

Úr varð að ég sótti um. Það voru bara svo margir kúrsar sem voru svo heillandi, alltaf með rosalega heillandi nöfnum. Þjóðfræðingarnir eru góðir í því.

Þetta var augljóslega skemmtilegasta námið. Ég var ekki mikið að hugsa: „Hvað ætla ég að verða?“ Eftir þjóðfræðina var þetta aðallega eitt skref í einu. Mér fannst námið bjóða upp á svo margt.

Þangað fór ég og sé ekki eftir því. Í kjölfarið langar mig svolítið að spyrja þig út í BA-ritgerðina þína í þjóðfræði, en í henni varstu að skoða draugasögur.

Er það ekki?

Jú, akkúrat. Draugasögur sem fólk tók með sér til Vesturheims. Mér fannst það áhugavert efni. Þjóðsögurnar eru náttúrlega bara ótrúlega skemmtilegar og áhugaverðar.

Ég vildi auðvitað þrengja efnið, og þá fannst mér draugasagnirnar og sögurnar skemmtilegastar. Þetta er bara svo áhugavert: hvernig mótar umhverfið þessar sögur? Við erum á þessum tímum í myrkrinu og hrjóstrugu náttúrunni, og áhrif umhverfisins búa til sögurnar.

Mér finnst umhverfið móta þetta. Ég fór að hugsa: Hvernig fara þessar sögur svo þegar þú flyst eitthvað annað, í annað umhverfi?

Þannig að ég fór af stað að rannsaka hvernig þær ferðast.

Þá varstu svolítið að bera saman sögurnar sem Vestur-Íslendingar sögðu þegar þau voru komin vestur og hvaða sögur er hægt að finna hér, er það ekki?

Jú, akkúrat. Og hverjar svona lifðu af, má segja það þannig. Ég komst að því að mórar og skottusögurnar voru lífseigastar. Þær virðast hafa fylgt fólki, en umhverfið hafði ekki sömu áhrif.

Ég komst líka að því að indjánadraugasagnir urðu miklu sterkari. Það komu bara nýjar sagnir í kringum umhverfið; þar voru indjánagrafir oft nálægt árbökkum. Beinin komu upp úr grafarstöðunum og út frá því urðu náttúrlega krassandi draugasögur.

Þjóðsögur í sýndarveruleika

Þannig að já, nákvæmlega. Svo heldur ferðin áfram í hagnýta menningarmiðlun.

Ekki satt? Geturðu sagt okkur aðeins frá því?

Já, ég get það. Mig langaði að miðla því sem ég var búin að læra. Þetta nám snýst um það.

Við vorum nokkuð mörg úr þjóðfræðinni, og það er ekkert óalgengt. Það eru margir þjóðfræðingar sem vilja fara í meistaranám í menningarmiðlun. Þar var nefnilega fullt af skemmtilegum námskeiðum. Mér finnst rosalega gaman að gera heimildarmynd eða stuttmynd.

Sem fórum við á Skjaldborg og bara rosalega margt skemmtilegt og óskemmtilegt sem kom út úr því námi. Eitt af því er að við vorum í svona nýsköpunarkúrs og þar var ég með fræknum konum, Úlfu og Kristínu og Sólrúnu. Við vorum saman í hóp og áttum að búa til verkefni, sem varð svo fyrirtækið Jaðarmiðlun.

Þetta var fyrst náttúrlega bara lítil svona skólaverkefnishugmynd og fengum nú bara mjög góða einkunn fyrir þetta verkefni í skólanum. Sáum bara að þetta gæti mögulega verið eitthvað sem við gætum hrint í framkvæmd. Við fengum þennan styrk hérna frá háskólanum til þess að stækka hugmyndina, eða þú skalt fá að vinna að þessari hugmynd og reyna að gera hana að veruleika.

Og sem sagt, vildum við... Viltu kannski útskýra hvað fyrirtækið er að gera eða hvað það var að gera, einmitt? Því nú liggur þetta í dvala vegna tækni sem við ætlum að nota. Hún er í vissri stöðnun og svona, þetta er svolítið stórt og þarf mikið fjármagn, sko. En við vildum lífga þjóðsögurnar við í raun og veru í gegnum tækni sem kallast blandaður sýndarveruleiki.

Okkur langaði til þess að undir þetta ætla alveg risastórt rými, alveg ofboðslega stórt, og þar ætluðum við að smíða inn bara hulduheima og bara risastóra... Þú veist, bara taka þjóðsögurnar í raunveru, byggja þetta sem leikmynd. Þú setur á þig gleraugun þegar þú gengur hérna inn og þar getur þú snert á því að þú ert bæði að nota öll skynfærin. Þú getur snert og þú finnur lykt og þú sérð og þú heyrir.

Og þú hefur notað hljóðheiminn rosalega mikið líka. Þú gengur í raun og veru svolítið svona ýkta leið; í raun og veru ertu svolítið leidd áfram. Þú gengur inn í kletta og þú gengur í gamlan torfbæ og þú sérð árstíðirnar líka. Þú endar þarna á áramótunum, sko, þar sem gerast svo margar geggjaðar þjóðsögur.

Og með gleraugun á honum þá er svona hulunni svipt af hulduheimum, sko, og þá áttu í raunveruleikanum að sjá allt sem þú sérð ekki í raunveruleikanum. Þannig að við vildum nota þessa blönduðu sýndarveruleikatækni og fórum til Miami og töluðum við... Vorum í samstarfi við fyrirtæki þar sem var svo bara kippt af Google-hlátla og voru að umbylta sér að heilbrigðisgeiranum og eitthvað svona. Alltaf er menningin skilin eftir því.

Þannig að þetta er ennþá... Við gerðum svona litla útgáfu af þessu inn í gám. Vorum bara með einn helli og bjuggum til kontentið, sem sagt, sem var huldukonan, og gerðum í raun eina litla sögu sem var ótrúlega flott. En um það leyti fór tæknin annað og við erum svolítið bara í biðstöðu með þetta. Auðvitað er fjármagn líka erfitt að fá í menningargeiranum, svo við mörg þekkjum.

En þetta er brjálæðislega áhugaverð og skemmtileg hugmynd. Ég man eftir þegar þið voruð að ræða þetta á kaffistofunni í Odda; maður alveg lagði við hlustir. Þegar manni fannst það, já, þessi blendun tækni og þjóðfræði svo áhugaverð. Einmitt, þetta er svo þvert á öll fög í raunveru og við getum gert svo mikið með því að blanda öllu saman, þú veist.

Og þetta er líka bara ein tegund af miðlun, í raunveruleikanum að miðla þjóðfræðinu með þessum hætti. Algjörlega. Og svo mörg svona tækifæri felast í svona samstarfi, einhvern veginn að blanda saman þjóðfræðinni og miðluninni og tækninni.

Og svona líka þetta, því að nú þekkjum við þjóðsögurnar kannski úr þjóðsagnasöfnunum og bókum, en þær voru náttúrlega sagðar og voru svona meira lifandi kannski áður fyrr. Einmitt, það var leikrænna í raun og veru, þú veist, og svona skemmtun.

Tímanátla, og ennþá fyrir okkur sem var gaman að hafa neitað.

Köldu ljósin í Hafnarfirði

Já, svo sannarlega, já. Það er rosalega gaman að vinna á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Áður en ég byrjaði þar hafði ég ekki unnið á safni, þannig að ég var bara með vissa hugmynd um hvað það væri.

En það er svo miklu, miklu meira og miklu, miklu skemmtilegra meira að segja heldur en ég hefði gert mér í hugarlund, sko. Ég veit ekki hvort það sé bara Byggðasafn Hafnarfjarðar, en þarna er rosalega fjölbreytt og ofboðslega skemmtilegt.

Ég kom fyrst inn sem sumarafleysing bara, og mér fannst það fullkomið fyrir mig til þess að kynnast þessu starfi og svo kannski geta nýtt mér það í söfnum annars staðar, eða hvernig sem það myndi vera. En svo, sem betur fer, fékk ég bara áframhaldandi framlengingu á þessum tímabundna samningi, af því að Byggðasafnið var að setja upp rosalega stóra sýningu sem heitir „Köldu ljósin“.

Ég fékk það verkefni upp í hendurnar að koma því á koppinn. Þetta er sýning um fyrstu almenningsrafvæðinguna á Íslandi, sem var í Hafnarfirði. Þetta var orðið stórt og skemmtilegt verkefni að takast á við. Ég fékk alveg að byrja frá bara teikningu á blaði, sem ég lagði undir yfirmann minn, Björn bæjarminjavörð, og fékk samþykki, og svona ætlaði ég bara að taka þetta alla leið, þú veist, að fá alla sem þarf í svona stórt verkefni til að koma að því.

Hún er á dálítið óvenjulegum stað, er það ekki, miðað við oft sýningar? Það var líka skemmtilegur þáttur í því að fá að gera þessa sýningu, að hún er í undirgöngum, í almenningsrými.

Þessi staður, þar sem glerið var þarna fyrir, og þarna inni sat rafallinn sem varðveittur hafði verið af Hafnarfjarðarbæ, átti einhvern veginn að vera auka skólastofurými, svona úti eða þannig, fyrir rafmagn.

Það var eitthvað svona bætt í kringum þetta, en svo, þú veist, einhver skólinn var ekki þarna lengur og það varð ekkert úr þessu. Þetta var bara mjög tómt og svona leiðinlegt rými. Þegar ekkert er að þarna, þá er engin virðing borin fyrir rýminu, þannig að það var svolítið svona sveitalegt bara.

En svo fær Byggðasafn Hafnarfjarðar þetta til umráða og þá ætlar það bara að faðma þetta rými, og það er hið glæsilegasta í dag. Ég mæli með að allir kíki á þessa sýningu. Hún er þarna í undirgöngunum, sem sagt bara undir Lækjargötunni í Hafnarfirði. Þú ferð í göngutúr meðfram Hamarskotslæk og fram hjá Lækjarskóla, og þá ertu bara sestur í undirgöngin.

Það er mikil umferð þarna, þannig að það eru allir krakkarnir sem eru á leiðinni í Lækjarskóla. Þetta er alveg stanslaust traffík þarna, þannig að það er rosa gaman að það skuli vera eitthvað svona flott sýning í almenningsrými. Það var líka pælingin, sko. Þetta er bak við gler, náttúrlega, svona glerlokaður glerkassi, og mig langaði svo að þetta yrði á einhvern hátt gagnvirkt, ekki bara svona lesaskilti, sko.

Ég reyni að vera svolítið með því að þú sért að toga í handfang, og þegar þú togar í handfangið fer af stað stórt vatnshjól sem byrjar að snúast. Eftir örfáar sekúndur kviknar ljós í þessum fyrstu sextán húsum sem fengu rafmagn í Hafnarfirði.

Ég lét útbúa líkan af bænum frá þessum tíma, sagði nýkjendur og sex, þannig að fólk má taka þátt þegar það skilur þetta. Þetta er ekki bara að skoða þetta.

… er gagnvirt og mest að vera mikilvægur partur af sýningunni, sko, í hönnun.

Akkúrat, það hérna kemur bara frá því að ég sá þetta fyrst í tímaritsgrein frá þessum tíma, þegar verið var að ræða þennan merkaviðburð, að nú skyldi breyta um ljósgjafa. Það var auðvitað vanhættulega ljós; það voru olíulampar og lýsislampar og allir voru með ljós hjá sér, en allir þessir ljósgjafar gáfu hita.

Þannig að þegar það var kveikt á ljósaperunni, þá er dæmigert að ljósgjafinn sé í kaldri kúlu, glerkúlu, þannig að hún fékk á sig nafnið „köldu ljósin“. Mér finnst það bara svolítið flott. Ljósaperan er kalt ljós, allar aðrar ljósgerðir með kerti, þetta gefur frá sér hita, þú veist, en ekki peran.

Og í raun, sko, þegar ég var að vinna rannsóknarvinnuna, sko, vorum við að leita að öllu sem viðkemur rafmagninu í Hafnarfirði. Þá fannst mér svo ótrúlegt hvað var lítið skráð. Það var jú eitthvað, þú veist, það var alltaf fjallað um þetta í blöðum og það var eitthvað úr dagbókum og svona, en þá var þetta bara: „Já, rafmagnið kom,“ og við fórum að hugsa: Af hverju ætli það sé? Vatnsveitan var miklu stærra mál.

Þá voru allir bara: „Vá, heyrðu, hér er rennandi vatn í pípum.“ Sko, þetta er geggjað. En ég held að okkar ágiskun sé að það hafi verið út af því að það var hvort eð er ljós þarna. Þetta var bara, þú veist, rafmagnið þjónaði engum öðrum tilgangi. Í dag finnst okkur rafmagn lífsnauðsynlegt; við notum rafmagnið í svo margt, en þarna var það í raun og veru bara ljósgjafi.

Bara nýstárlegur ljósgjafi, sem var bara svona smá vesen líka, af því að það var sérstakur maður sem þurfti að kveikja á þessu og slökkva á þessu fyrir bæinn. Þannig að kannski sá fólk ekki fram í tímann hversu merkilegt okkur þykir þetta í dag.

Þannig að það voru kannski ekki einu sinni miklar blendnar tilfinningar, heldur var fólk bara ekkert sérstaklega að ræða um þetta. Jú, það virtist vera fínni húsin sem fengu rafmagnið.

Og já, þótti þetta kannski ekki eitthvað svona náttúrlega… Jú, daginn sem það var kveikt fyrst er talað um að fólk hafi hópast að virkjuninni og allir vildu sjá þetta kalda ljós verða. Þannig að jú, það hefur alveg þótt svolítið merkilegt, en það voru ekkert allir með rafmagn. Eins og sýningin sýnir, voru það þessi 16 hús og fjórir ljósastaurar sem fengu rafmagnið. En það var ekki mikið skrifað um það; við fundum ekki mikið skrifað.

Fjölbreytt safnastarf

En hvað ertu að gera núna í kjölfar þess að vera búin að setja upp þessa sýningu, og hvað tekur svo við hjá þér í Byggðasafni Hafnarfjarðar?

Það er bara stanslaust að gera í Byggðasafni Hafnarfjarðar. Við erum alltaf að vinna í einhverjum sýningum. Núna er alltaf þemasýning einu sinni á ári sem lifir í eitt ár í forsal Pakkhússins. Núna settum við upp sýningu í fyrra um stækkun Hafnarfjarðarbæjar, þegar bærinn stækkaði svo hratt á árunum 1960 til 1975.

Ég hef séð þessa sýningu. Það er mjög gaman að sjá þetta svona myndrænt sett fram eins og það er gert á þeirri sýningu, þessi gríðarlega stækkun.

Akkúrat. Hún er nefnilega alveg óvenjuleg, það var rosalegur fjöldi sem fluttist til bæjarins á þessum tíma og það varð að vera svo hröð uppbygging að það var bara, sko, norðurbærinn og allt þetta var að byggjast upp. Fólk var komið svo langt frá búðinni, til dæmis, að það var talin þörf á nýstárlegum leiðum til þess að bjarga sér. Þá var kjörbúðabíllinn settur í gang, þannig að fólk gæti í raun og veru…

Verslað í matinn þegar það var bara þá svo langt í næstu búð að það var bara bíll akstur á milli. Þannig að það var bara svona heimsending fyrir tíma heimsendingar eða núna netverslun fyrir þetta.

Hundrað ára afmæli Hraunbúa, skátafélags Hafnarfjarðar, og við erum bara búin að vera að vinna í undirbúningnum þess núna alveg í nokkra mánuði, sko, og meira en það. Já, og hérna, verður spennandi af því að það er svo mikið lagt í sýningarnar þarna og þetta er bara svo vandað og flott. Og það er gaman að vera partur af því, það er bara algjör unun að vinna þarna.

Svo er líka sett upp svona skiltasýning í Hellisgerði, sem er núna í maí. Það er hundrað ára afmæli KFM og KFK, eða Kaldársels, ekki samtakanna heldur, þú veist, Kaldársels sumarbúðanna. Það er hundrað ára afmæli og hérna, já, þannig að við erum búin að vera að skrifa upp þessi skilti og hanna þau.

Og svona, ætla, endalaust verkefni að skrá muni, taka á móti þeim. Hérna, við erum alltaf í endalausu skipulagi á lagernum, það er náttúrulega bara eilífðarverkefnið. Og hérna, já, það bara er stöðug vinna og gleði hjá okkur, og svona að taka á móti öllum hópum.

Í safnaheiminum er þetta einmitt fjölbreytt, eins og þú segir. Verkefnin algjörlega. Það sem mér finnst svo gaman við það að vinna þarna er að maður er ekki alltaf að gera það sama, þú veist.

Og við erum alltaf líka með sýningarbílinn Tukka, sem ég ber smá ábyrgð á líka, sem er svona lítill tuk-tuk-bíll hérna með svona sýningarkassa. Við setjum upp svona litla sýningu inni í honum. Vorum með leikfangasýningu síðast og verðum núna með útilegusýningu. Svo getum við keyrt hann um bæinn og hann er alltaf staðsettur einhvers staðar sem eitthvað er að gerast.

Það verður á sjómannadaginn og svo Hjarta Hafnarfjarðar og 17. júní, þá birtist hann alltaf þar sem eitthvað er að gerast í Hafnarfirði. Og ég bara keyri á þessu, þessi dúlla keyrir.

Strandst í innúð.

En þetta er svo skemmtilegt að þið hafið einmitt mikla umræðu um þessa hugmynd með opna safnið og færa það út að einhverju leyti, út úr safnhúsunum einhvern veginn. Þetta er einmitt það sem safnabíllinn Tukki gerir?

Nákvæmlega það. Við erum búin að færa þarna sýninguna í almenningsrými, Köldu ljósin, þá er Tukki líka svona hérna. Við erum í rauninni að setja svona litla sýningu út fyrir safnið og laga að því. Við sitjum líka hérna úti á höfn þegar skemmtiferðaskipin koma í Hafnarfjörð, svona til þess að láta vita af okkur að endilega kíkja á safnið, af því að því miður eru bara lítið af túristum sem koma til okkar.

Það eru alltaf einhverjir, en má alveg draga fleiri túrhesta að sér.

Já, þannig að það er meira heimafólk sem heimsækir? Já, eða þú veist, Íslendingar bara ofsalega mikið, alls konar hópar.

Einmitt, algjörlega. Og það er alveg svo mikilvægt, einmitt eins og Sívertsenshús, sem er bara elsta hús Hafnarfjarðar, og þar eru munir frá Bjarna Sívertsen, sem er faðir Hafnarfjarðar. Hérna, Bjarni ritari. Og það er svo óboðlegt í þessu húsi, og það er svo fallegt, venjulega með Siggubæ líka og Beggubúð sem er bakvið, sem er mjög skemmtileg.

Hún býður svolítið upp á þetta því hún er svona opin, með svona glugga á henni, þannig að það er hægt að horfa inn án þess að fara inn í hana beint. Já, einmitt, og við skiptum reglulega útstillingunni, sem sagt í stórum…

Gluggum til þess að sé hérna eitthvað nýtt fyrir fólk að skoða. Og svo sést einmitt vel inn í gömlu innréttingarnar og það er ótrúlega fallegt. Og svo, já, Sigurbæjars… er með bangaló hérna, búklus bangaló, sem maður…

…ætlar líka notaður mikið í fyrirlestra á ráðstefnum eða svona fundarhöld. Húsleysis veitir vel nýtt hús og margt að sjá og svona einkenni Hafnarfjarðar, þessi fallegu gömlu hús.

Akkúrat, algjörlega. Og já, þegar maður hugsar til Hafnarfjarðar þá hugsar maður svolítið…

…alltaf áður en ég byrjaði að vinna þarna, og flissa skelfta um þessi fallegu gömlu hús.

Frábært. Já, við höfum haft það fyrir vana að setja fólki fyrir. Við myndum því örugglega einhvern tíma núna, í síðustu þáttum, gera það þannig að við þurfum að standa okkur núna. En þá bara ætlum við ekki…

…að setja sem heimaverkefni að fara að skoða Byggðasafn Hafnarfjarðar og Köldu ljósin. Jú, það held ég. Hvetjum fólk til þess, finnst mér.

Ég bíð spennt eftir því. Og getið fylgst með samfélagsmiðlum Byggðasafns Hafnarfjarðar, af því að þar poppar hann oft upp líka og þá vitið þið hvar hann er. Já, mjög gott.

Mjög gott. Frábært. Takk kærlega fyrir að koma til okkar, Svanhvít, og takk fyrir mig. Gaman að sjá ykkur sömuleiðis.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar