Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Þegar einhver elskar einhvern í sex ár heitir það sykurbrúðkaup. Ég veit þessa hluti. Ánægðustu viðskiptavinirnir sjötta árið í röð eru hjá Hringdu.
Staðan er ennþá stig þrjú. Við erum með eilítið lægri tölu innlagna af bráðamóttökunni þennan morgun, Hildur, og við höfum verið með þær fjörutíu manns sem bíða. Það eru í heildina komnir sextíu og fimm þarna. Litlar fréttir af Landakoti, svo að við erum með eitt pláss á K-á-inu sem búið er að ráðstafa fyrir mann á B-tveimur. Við höfum ekki heyrt frá K-tveimur.
Við eigum ekki von á breytingum þar í dag. Það verða ekki útskriftir að hvorki L-einum né L-tveimur í dag, og deildir Landakots eru allar fullar samkvæmt stigi þrjú. Af biðplássum er það að frétta að ég ætla að nota pláss á Vífilsstöðum sem kona á hverfisskurðdeildinni á, innan gæsalappa, en hún er ekki tilbúin að fara í það. Þannig að ég ætla að finna einhvern sjúkling til að fara í það í dag.
Þarna heyrðum við brot úr daglegum fundi flæðisdeildar Landspítalans, þar sem allt gengur út á að koma sjúklingum af bráðadeildinni í legupláss á spítalanum og að sama skapi að finna pláss fyrir sjúklinga á legudeildum sem hafa lokið meðferð og eru tilbúnir til útskriftar. Akkúrat þarna kristallast vandi bráðamóttökunnar: það eru ekki til pláss fyrir sjúklingana sem hafa lokið læknismeðferð og eru tilbúnir til útskriftar af legudeildunum. Þá safnast upp sjúklingar á bráðamóttökunni sem þurfa að leggjast inn á legudeildir. Hér heyrum við í Margréti Guðjónsdóttur, verkefnastjóra flæðis Landspítalans, og Hildi Helgadóttur, deildarstjóra flæðisdeildarinnar.
Gengur í þessari stöðu hjá okkur er að vinna svona bara skref fyrir skref, mann fyrir mann, eina útskrift og næstu útskrift, og rýna hvert einasta pláss. En auðvitað búum við ekki til pláss þar sem það er ekki til. Það er ekki til, þannig að þú heyrir að þetta er snúið.
Þeir sem við erum fyrst og fremst að sinna núna eru fólk sem er fætt á fjórða og fimmta áratugnum og eðlilega elsta fólkið. Þetta er hérna heilmikill hópur með alls konar flóknar þarfir.
Ég heiti Jóhannes Kr. Kristjánsson og þetta er þátturinn Á vettvangi, sem er unninn í samstarfi við Heimildina.
Í lok síðasta þáttar heyrði ég mömmu, sem þurfti að dvelja á bráðamóttökunni í rúma hundrað klukkutíma þar sem ekkert tiltekið legupláss var fyrir hana á spítalanum. Á þessum tíma var hún áttavillt um stund, stað og ástand sitt.
Hér heyrðuð þið í henni þegar hún er nýkomin á legudeild. Hún er bara á Borgarspítalanum í Reykjavík.
Mamma dvaldi í tæpa viku á Landspítalanum og var allan tímann áttavillt. Hún nærðist illa, grenntist mikið og ég áttaði mig á því að leiðin til bata yrði henni erfið. Hún var svo flutt á hjúkrunarheimilið.
Þar hefur hún búið síðustu ár. Hér er hún nýkomin í herbergið sitt. Ég átti að vera hérna kannski nokkrar vikur, já.
Á meðan ég er að skána.
En er mér þá að skána eða er þetta bara áfram svona? Eins og þú áttir þér að skána, þú ert alltaf að verða...
...betri og betri hérna í fætinum þar sem þú brotnaðir. En þú þarft bara að æfa þig til þess að labba aftur. Þú ert hægt og rólega að verða betri og þú átt þetta...
...herbergi bara. Þú býrð hérna og ert búin að búa hérna í þrjú ár.
Við fylgjumst meira með mömmu síðar í þættinum, en nú höldum við áfram ferð okkar um ganga bráðamóttökunnar með Hjördisi Kristinsdóttur, bráðahjúkrunarfræðingi og deildarstjóra bráðamóttökunnar. Þá erum við núna að komast inn á það...
...sem er B-hluti, svona B-stöðin. Og við erum hérna með vinnustöðuna hérna í horninu, sem heitir því skemmtilega nafni „barinn“. Þetta er bara eitthvað sem búið er að heita barinn í gríðarlega mörg...
...ár.
Arndís, hvenær heldurðu að barinn hafi fyrst verið kallaður barinn? Það getur verið gríðarlega mikil hjúkrunarþyngd í sjúklingunum sem eru hér. Elva er hjúkrunarfræðinemi sem vinnur á bráðamóttökunni. Hún hefur talsverða reynslu af því að vera sjúklingur á deildinni og hefur legið á miðjunni.
Þetta var ótrúlega óróleg reynsla, því að þú liggur hérna og þú ert veikur, þú ert að reyna að hvílast og það eru læti hérna úr öllum...
...hornum. Fólk hérna veit ekkert hvað tímanum líður. Það veit ekki hvort það er nótt eða dagur. Það eru engir gluggar, sérð ekki á klukku.
Þetta er bara uppskrift að óráði og ruglingi. Það er mikið af eldra fólki sem liggur hérna, sem er kannski með einhver minnisvandamál eða rugl fyrir. Það kemur hérna, liggur hérna tímunum saman...
...og veit ekkert hvað tímanum líður. Svo kallar það hérna úr öllum hornum og ruglaður svarar rugluðum. Þetta er svolítið hættulegt, blindan hérna.
...svara hvert öðru. Enginn veit neitt, þannig að þetta er bara eintóm „halló“ og „hvar er ég?“ og enginn fær nein svör. En það er gott að þú ert mjög verðmætur starfsmaður að hafa prófað.
Já, mér finnst þið geta tengt miklu betur við sjúklingana núna eftir þetta. Ég skil hvernig þeim líður að liggja hérna og hringja og spyrja: „Er eitthvað hægt að minnka þessi læti?“ Er ekkert hægt að minnka lætin? Þú verður bara að liggja hérna í látunum.
Það er einmitt verið að færa rúm hérna út af deildinni áfram, og við erum hérna á milli. En svo er verið að reka rúminu utan í það, þannig að þú finnur fyrir því þegar þú ert hérna sem sjúklingur innan á miðjunni.
Var eitt rúm að fara út og strax komið annað rúm til þess að annar sjúklingur komi hérna.
Alls ekki. Ég hef nú meira að segja lent í því að mamma mín lá hérna og ég kom og sat með henni. Hún bara: „Hvernig geturðu verið hérna á ganginum?“ Við miðjuna liggja sjúklingar sem eru oft, eins og Hjördís sagði rétt áðan, hundlasnir.
Hér erum við á einni vaktinni á ganginum rétt við miðjuna þegar þetta gerist.
Það er eins og maðurinn, þetta var bara mjög óánægður.
Fólk og óheflað og dónalegt og þvælst við allt og alla og trúlega bara allt í lífinu, en sýndi okkur alveg ótrúlegan yfirgang og dónaskap. Handtekinn maður, segir Kristjana vaktstjóri, og hér er Laufey hjúkrunarfræðingur, sem var á vaktinni B-megin og varð vitni að látunum. Þessi læti hérna áðan, þú ert búin að vera B-megin. Segðu mér aðeins frá því hvernig hefur verið með sjúklinga.
Þetta var bara alveg hliðina á rúmi sjúklings, aðstandandi var hjá, og henni var bara mjög brugðið.
En öðrum hefur eitthvað verið að þurft að róa einhverjar niður? Já, þetta var náttúrlega glundroði um alla bráðamóttökuna og það var alveg fólk bara sem maður myndi segja væri langt frá og það heyrðu allir og það voru allir að spyrja.
Svo gengur maður til fólks og það er allir bara: „Guð minn góður, er þetta alltaf svona?“ Og svona bara, þú veist, já, þetta er náttúrlega eitthvað sem betur fer gerist ekki oft. Hann var bara sagt fólki að þetta væri algjör undantekning.
Alexander sérnámslæknir var á vaktinni þegar lætin byrjuðu.
Metta hjúkrunarfræðingur reyndi að skýla sjúklingnum sem Alexander sagði frá hér á undan, konu á níræðisaldri sem lá í rúmi innan við tvo metra frá látunum. Ég bara stóð yfir einum sjúklingnum mínum, eldri konu sem var svo stjarnfræðilega hrædd. Hún bara titraði því lögreglan var farin á. Þá stóð ég bara yfir henni og sagði bara við hana: „Þú ert örugg.“
„Þú ert örugg,“ og endurtók það bara alveg mörgum sinnum. Við horfðumst bara djúpt í augun. Var hún alveg virkilega hrædd? Hún var stjarnfræðilega hrædd, bara alveg, já.
Ég get bara sagt í öll mín ár hérna þá er þetta hræddasta kona sem ég hef séð hérna, sem er bara hrædd út af aðstæðu, ekki út af einhverjum veikindum eða slysi eða aðstandendum eða eitthvað. Já, það er innan bara á henni. Þetta er einfaldlega ekki gott.
Að svona koma upp á bráðamóttöku, þetta er bara ömurlegt. Þetta er náttúrlega algjörlega óboðlegt. Þarna var fólk, eins og maður myndi segja, svo móðir átti að vera fullorðin kona með ... kunna hvernig maður hegðar sér inn á sjúkrastofnun. Þetta var algjörlega óboðlegt.
Ég er að tala við starfsfólkið sem er hinum megin og það er bara búið að vera að vinna í því að róa niður fólk, sjúklinga, eftir þetta. Já, ég trúi því vel. Þegar maður finnur það bara sjálfur, ég sem vakst á þessari vakt og þurfti að vera í kringum hann, ég er bara búinn að nötra.
Og svo náttúrlega líka, það sem er sérstakt orðið núna, það er að við getum ekki fært fólk burtu. Veistu, hvert áttum við að færa þessa frú sem var á ganginum þar sem þessi maður var alveg tjúllaður? Við gátum ekkert fært það, því það var bekkurinn, rúm, alls staðar. Þetta gerist líka svo snöggt.
Þetta var nú búið að vera pínu svona aðdragandi eiginlega, þú veist, á einhverju leiðindastigi, einhver leiðindi. En meira að segja fram í biðstofu að fá á fólk sem var að fara, þegar þú heyrir læti. En svo er maður sjálfur sem starfsmaður svo hræddur þegar gerist eitthvað svona, vegna þess að fólk bara slær til þín, hendlar hlutum, æðir af þér. Þú veist ekkert, já, hann henti stól.
Alla, þú veist, ekkert nema fólk geti mögulega verið með eitthvað vopn, stunguvopn, þú veist, og við erum bara kannski föst í einhverju litlu rými og ekki mikla undankomu.
Sjúklingurinn var handjárnaður og leiddur út af deildinni af lögreglumönnum. En það er líka aðstöðuleysið sem er sláandi á bráðamóttökunni. Hér heyrum við sögu af eldri frú sem lá á ganginum rétt við neyðarstæðin. Sara, læknaritari, aðstoðaði konuna.
Ég tók einmitt eftir þessu á ganginum fyrir framan fjarskiptinu hérna á neyðarstæði, sem er notað núna þegar það eru svo margir sjúklingar. Þetta er eldri kona sem var bara hreinlega að afklæða sig á ganginum.
Og þú fórst og hjálpaðir henni? Já, hún var raunar ekki að sjá þig að hún væri á gangi og væri komin úr fötunum. Nú, svo heyrir fólk vera að gera svona þarna, bara spjalla við það, reyna að komast að því hvað er að gerast og af hverju.
Þú hefðir einmitt sett svona sængina kringum hana, til þess að hún gæti ... og gleymt sér aftur. Ég bara gæti sjálfur ekki ímyndað mér að þetta skuli vera svona, þessi gamla heldri frú skuli þurfa að vera hérna við þessar aðstæður. Lífið úti er hrikalegt og eins og hún sagði sjálf, hún er aldrei að fara að geta sofnað hérna meðan hávaðinn og ljósin og stanslausa pípið í bjöllunum.
Svo er hún að stikna úr hita og snörla glas úr. Þetta eru bara ömurlegar aðstæður. Er hún ekki ... skynjarðu að hún er svona dálítið hrædd? Já, hún er mjög hrædd. Hún skilur ekkert hvað er í gangi og vill komast heim til sín, en treystir sér ekki heim. Þá er staðan okkar bara: látum skoða sig. Hún er svona alveg eins og mamma þessi kona, og manni svona fær bara að stinga í hjartað.
Á einni vaktinni sá ég að eldri sjúklingur hafði legið á bráðamóttökunni í 153 klukkustundir og Hjördís, deildarstjóri, segir að það sé að verða æ algengara. Við sjáum það, tölurnar eru að aukast um sjúklinga sem eru hjá okkur yfir 100 tíma og því miður eru það mjög oft aldraðir einstaklingar sem eru í þessu. Við vitum það samkvæmt öllum rannsóknum að það er engum sjúklingi, sérstaklega ekki eldri einstaklingum, í hag í sinni meðferð að vera lengi á bráðamóttöku.
Það eru bara margir þættir sem koma þar að. En við reynum alltaf á hverjum morgni, þá flökkum við þeim einstaklingum sem við höfum mestar áhyggjur af, því við erum að reyna að passa upp á að þeir fari ekki í óráð, byltuhættu, þrýstingssáravarnir og ýmislegt sem er mjög snúið í þessu umhverfi.
Það er lífshættulegt fyrir fólk eldra en 75 ára að dvelja við nótt á bráðamóttöku á meðan það bíður eftir plássi á legudeild. Þetta kemur fram í grein sem birtist í læknaritinu JAMA í nóvember 2023. Rannsóknin náði til 97 bráðamóttaka í Frakklandi þar sem bornar voru saman niðurstöður hjá tæplega 1.600 sjúklingum sem voru lagðir inn á legudeildir.
Fljótlega eftir komu á bráðamóttöku og þeim sem þurftu að dvelja á bráðamóttöku yfir nótt, það er meiri hætta á að þeir deyji á sjúkrahúsi samanborið við sjúklinga sem stoppa stutt við á bráðamóttökunni og fá samdægurspláss á legudeild.
David þekkir þessa rannsókn vel, en hann er bráðalæknir frá Frakklandi og hefur starfað sem slíkur í heimalandinu, Nýja-Sjálandi og Kongó, og starfar núna á bráðamóttökunni.
Listarið er við tóking um að frænstarið sjóði að ef yfirleitt er yfirleitt persón þarf að hafa 74 ár steyrt í baknum fyrir nægastrætja þessi en innkvisirisk af komplikasi en deðfreitist. Innkvist by fjóttí til 50 prósent ef ég stey inn á kórræði og 4 ár ef ég stey fyrir nægastrætti, svo þetta er bæði tíðaríkt fór eldelli pípur og sendi fætur og steig inn í ír ofanet.
En þegar grænma verður komfús, þegar umvætumenn verður verið að.
Óvegast tímilisins óvegis lætst og tekið kyrr á óvissa um það. Það er vantraflum við þetta ísíða við að við kannt að slípa um það karítur þó.
Við því að við þáttum hér innframt við þeim að ég hef notmælgisperun hér vegna ég náði um það við því að við því að við þáttum.
Við það um það við sitjum við sjónina frels ír department en að í Íslandi department.
Voru ég á vopninu plötsa á 98 plöts, ég ál beysund komin hér innframst við þessum þeim, en ef ég á vann próflum en ég á 64 ég tekst vann vika úr túr í karíó eða ef ég á 81 ég tekst tvík þú á nættíu og fæð tekst vann vika og fæð.
Þeim prófum er óvism og kompleks við því spesínsku trú á málfræði þegar aðstoðið er sjóðlegt. Ef ég stend í kórríði og ég á óvölduðu sjöfnum við mig og ég á tjensíð af.
Hafði verið dilaríum við ingum fjósðs í krúðs í krúðsíðs dramatíkli bylægisvæstengð er en not bein í júgurlendvægis næthæfing í venju viðju nöfn æfing.
Innan konfólgið og jólinvagamynd líka, en já nei, það er bara mjög erfitt.
Og ég er ennþá að geta spilað eða fljótandi eða hvað hún þarf.
Nú geturðu dálítið sagt mér hvernig þetta kerfi virkar? Það er að segja, af því að við búum við það hérna að þessi deild er alltaf full, af því að það er svo mikið af sjúklingum á legudeildunum uppi sem fá hvergi pláss úti í samfélaginu. Hvernig er þetta kerfi úti í Svíþjóð, Saga mín?
Í gennum fóðu í nægja káriði við höfum fjögur los þar til fjóla af tvö mæron en heilkærastrist prófærir byr eða kolt regjúfnar landsþingbatt.
Pípuð í eldilífi var námslíkt tekin kærra af bæði kommúniti smolajunit sofasíðegi hafði í ofurroðaldi við sponsubiliti en til reglulegtis vístu prýðislegi undan ingdís losunarliðsþætti í regluleitöld.
Svo pípur kunni að beetta til háskóla indefnilega eins og er þetta keis hérna á Íslandi, á því því að pólitískan regluleitir þessu eftir þrír dags en háskóla og kominútvegs hafði strax pening fóðurberðs.
Innan á háskóla eða gestur svo mikið ogður en sendir fóðurðu kominútvegs til tek þegar í hafnmetisdeg kjöfum undirði svo til spik, þannig að hvatinn til þess að sveitarfélagið tæki við sjúklingunum var mjög mikill.
Annars ef þú hefðir þurft að borga þessa dagsetningu, þetta var víst indíanda bankamálið í náttúru móðurtelum tímum, að minnsta kosti við steiköldur sem við sýsjameikar, sem sagðist þetta var svo sér veitir þú þarft prófmót.
Þú vel fóðurkomunni til að taka til peysunni bakta og ávíslý þau séu málalsponsubilið í þessu verðlum, en þau væru mjög heppir til að taka þar t barn við fóður, ekki námi keðla ísenti ef það var svo svona svona svona svona svona fóður ekki tilegur.
En hvernig líst þér á ástandið hérna á bráðamóttökunni ef við hugsum bara um þetta, hvað er erfitt að koma sjúklingum upp á legudeildina? Hvernig líst þér á það hér? Ég mun neinnast.
Sinnabellisins við semlauprófnum sparna og í neði steyvöldu tveir og fjórar árs hér og við erum upp til sjöfn dags hérna, en það er alls staðar tveir og þetta er einn afslitin.
Nætmiður, en þetta er bein prufun bjón rísnbólda át mold. Ég sá að mamma mín var í hundrað klukkutíma á miðjunni.
Níutíu og eins árs og henni fór mjög aftur að vera hérna. Ég meina, mörgum íslenskt englisstarfi og birtisstarfi sjóðar oft við sex árum um að telja til starfsþröngvísi og þú veist að pysent spenntsdegis.
Er þetta eitthvað því pólitískan en óðsóði háskólanemanumennistak nýtistu stig fyrir íslíkri hvort voru ekki til íkontrúða til pípuðagöngja?
En hvernig líkar þér að vinna hérna og bara við Ísland?
Elvar fæddist á Íslandi en ólst upp í Noregi og Íslandi. Hann útskrifaðist úr læknisfræði árið 2019 og hefur eftir útskrift unnið bæði á Íslandi og í Noregi. Elvar er í sérnámi í heimilislækningum.
Nú erum við að tala um eldra fólkið okkar og það hvernig bráðamóttakan er oft þegar það er allt fullt uppi og allir gangar hérna teppast. Oft er þetta eldra fólk sem er að teppa stofurnar uppi, það er að segja legudeildirnar. Hvernig er þetta í Noregi?
Bráðamóttökukerfið er allt öðruvísi í Noregi. Þetta er nú ætlað sem tilvísunarmóttaka; það er ekki biðstofa, allavega ekki það sem ég var í, í Haugesund, með upptökusvæðið, 220.000. Allir sjúklingar sem koma eru annaðhvort búnir að vera metnir af lækni á læknavakt og þurfa bráðamóttöku eða koma með sjúkrabíl.
Þeir eru þá metnir á bílnum, en flestir sjúkrabílar fara samt annaðhvort á læknavakt og þar ákveða þeir hvort þeir þurfi að koma á bráðamóttöku.
Biðtíminn er náttúrlega ekkert langur og það er talið óeðlilegt ef sjúklingur er meira en fjóra tíma á bráðamóttöku. Þar á ekki að teppast, þar sem stórslasaðir og mjög veikir einstaklingar koma inn og það þarf mikinn mannafla til að sinna þeim. Hvað gerist ef sjúklingur teppist lengur en fjóra tíma? Verður það eitthvað mál?
Það væri ekki úrræði til að sinna málinu, það er að segja, hann kemst ekki heim með einni stofnun og þess vegna er svo mikill fjöldi hérna niðri á bráðamóttökunni. Hvernig er þetta á spítalanum þar sem þú varst við? Við lentum aldrei í vandamálum með að útskrifa fólk.
Almennt séð treysti fólk sér ekki heim. Þá er það á ábyrgð sveitarfélaganna; sveitarfélagið rekur heimahjúkrun og hjúkrunarheimili og þá var jafnvel sett bara inn á bráðpláss eða fékk heimahjúkrun sinnum sem.
Varla styðjum við svona fyrst þegar þeir komu heim, það er að segja sex sinnum á dag. Í Svíþjóð eru dagsektir lagðar á sveitarfélagið ef þeir finna ekki úrræði fyrir fólk sem búið er að veita meðferð og hægt er að útskrifa. Hvernig er þetta í Noregi þá?
Það var svipað. Það var sem sagt þannig að ef einstaklingur er kominn á ábyrgð sveitarfélaganna þá greiða þeir fyrir innlögnina ef þeir finna ekki úrræði fyrir einstaklinginn. En ég lenti aldrei í því að við gátum ekki útskrifað sjúkling. Á mannamáli, hver er munurinn á bráðamóttökunni hér og því að vinna á ...? Það eru kostir og gallar í öllum kerfum, en ég myndi segja að helsti munurinn þar sé að sjúklingar leggjast inn. Það er ekki verið að teppa gangana með rúmum, bekkjum og veikum einstaklingum.
Það er kannski aðallega plássleysi sem við áttum að tala um. Kannski já, það er kannski aðallega plássleysi og jú, reyndar mönnun líka. Við unnum á bráðamóttökunni þarna í Haugesund í eitt ár og unnum ekki einn dag undirmönnuð, því það var plan A, B og C fyrir mönnun. Ég man sjaldan eftir að hafa unnið hér fullmannað.
Oft á dag eru starfsmenn bráðamóttökunnar að þjónusta eldra fólkið okkar og sum málin eru starfsfólkinu sérstaklega erfið. Hér segir Elína, hjúkrunarfræðingur, frá einu slíku máli sem sat í henni. Elína, þú varst hérna í löngu símtali áðan og þú tókst þetta nærri þér. Um hvað snýst þetta mál?
Þetta eru sem sagt vel fullorðin hjón. Konan kemur hingað við óviðráðanlegar aðstæður heima og þau eru bara búin að mæta svolítið lokuðum dyrum á heilsugæslustöðvum. Það er ekki búið að nást í færni á heilsumat hjá eiginkonunni og þar af leiðandi er enginn bolti farinn að rúllast af hvað varðar pláss á hjúkrunarheimili eða einhverja hvíldarinnlögn.
Háaldraði maðurinn er bara að sjá um allt heimilið og er hennar umönnunaraðili. Þetta er bara ömurlega ljótt og erfitt. Varstu að reyna að hvetja hann í þessu símtali?
Eiginmanninn, já. Og hann var nú alveg afskaplega jákvæður, sko, en sagðist alveg orðinn langþreyttur og þorir ekki að sofa því hann er hræddur um að missa hana út og hún veit ekki lengur hvar hann á heima, sko. En hvað segir þetta okkur um heilbrigðiskerfið okkar góða og fína?
Það væri rosa gott ef eitthvað væri gert í þessum málum. En þetta er ekki í fyrsta skipti sem þú upplifir svona sögu, eða hvað?
Nei, því miður. Það er ótrúlega leiðinlegt að fá svona mál hingað, þar sem við getum svo sem ekki mikið gert í þessu hér. Ef þú ætlar að fara að leysa málið á bráðamóttökunni, við erum bara með alla bráðavandamálin. En þetta er bara já...
En þetta er kynslóðin sem er á svipuðum aldri og mamma mín, kynslóðin sem hafði byggt upp landið eftir seinni heimsstyrjöldina, sem bjó til þessa velsæld sem við búum við í dag og svona. Tökum við...
Þú hefur farið heim svona? Henni leið vel og mér líður ótrúlega vel að heyra þetta.
Þrótturinn hjá mömmu hefur verið að minnka síðustu daga og hún hefur nærst illa. Við fjölskyldan höfum öll miklar áhyggjur af henni. Ég var á kvöldvakt á bráðamóttökunni við upptökur þegar þessi melding frá sjúkrabíl barst í gegnum talstöðina.
Þetta er mjög...
Slökkt.
Þórunn, mamma, mamma. Hæ, þetta er ég, Jóhannes. Hvað segjum við? Hvernig líður þér? Líður þér allt í lagi? Bara, heyrðu…
Þú ert bara komin hérna á bráðamóttökuna. Þeir eru að fara að hjálpa þér. Lækkanir, ha? Komin í góðar hendur.
Hún er búin að vera að taka slöpp í bílnum.
Það var erfitt fyrir mig að sjá mömmu koma svona veika inn á bráðamóttökuna og mig langaði að fara afsíðis og gráta. Ég var hræddur en lét á engu bera, og það sem bjargaði mér var að ég reyndi að gleyma mér í upptökum á deildinni. En hugurinn var samt alltaf hjá mömmu. Um miðnætti leit ég til hennar á miðjuna.
Þú ert komin upp á spítala að verða hjálpuð, en ég hérna… Þú ert í rosa góðum höndum hérna og ég ætla bara… Ég er búinn að vera hjá þér í kvöld. Nú ætla ég bara að fara heim að sofa. Og ég kem svo aftur seinnipartinn á morgun. Það er komin nótt, þannig að þú færð að hugsa þig hérna um hjúkrunarfræðingana og læknana. En hvernig líður þér? Þú þarft heldur ekki að vera hrædd fyrir að hugsa svo vel um þig hérna. Já, og það biðja allir rosalega vel að heilsa.
Ég var að fara frá mömmu þegar Þórdís, læknir á vegum þvagfæraskurðlækna, bað mig að ræða við sig. Er hún vegna ein…
Jóhanneskipað, er hún eitthvað núna? Hún er einn dagur upp á skurðdeild, blaðran, en ef hún gefnir sér leið, svo sagði ég kerfinu á mér á fullri nefnd þarf aflyktun.
Mamma vildi hvorki öndunarstuðning né gjörgæslumeðferð. Hún hefur verið skýr með þessar óskir í nokkur ár. Hún vill fá að deyja þegar tíminn kemur. Hér útskýrir Jón Eyjólfur Jónsson, öldrunarlæknir, hvað „ekki endurlífga“ eða full meðferð við endurlífgun þýðir.
Ekki endurlífga er, til þess að einfalda það, til þess að tryggja það að heilbrigðisstarfsfólk setji ekki gang endurlífgun ef einstaklingurinn fær… Þá erum við oftast nær að hugsa um hjartað hættir að slá, en það getur margt annað komið upp á að það sé vilji einstaklingsins.
Það er mjög þarft að ræða þessa hluti og það er mun auðveldara að ræða um það hvernig maður vill eyða sínum dögum eða hvaða meðferðarmarkmið maður hefur ef…
Að maður geri það í rólegheitum og sé, innan gæsalappa, fullfrískur og ekki þjáður af sjúkdómum og kannski bráðveikindum. Það er voðalega erfitt að ræða svona djúpa hluti við fólk við slíkar aðstæður.
En kjarninn er að gera þetta. Mér finnst að það megi gera meira; ég veit að heilsugæslan gerir þetta að einhverju leyti og skráir það.
Að ræða þetta, þó að ég sjái nú ekki fyrir mér í eftirmiðdagskaffi hjá ömmu að maður rabbi mikið við hana um það hvort hún vilji verða endurlífguð eða ekki.
En ef þú ert, eins og við vorum að ræða, komin á enda lífsins, þá finnst mér persónulega verið að ræna mann góðum dauða með því að reyna endurlífgun. En það er samt sem áður þannig að einstaklingurinn sjálfur, og jafnvel trúarbrögð, geta skipað manni fyrir.
Það er sama hvað maður er gamall, maður velur sjálfur. Ef maður vill fulla meðferð þá er hún veitt, eins skynsamlega og hægt er. Svo við tökum ekki dýpra í árinni: Það er sem sagt aldrei hægt að krefja heilbrigðiskerfið um að veita aðra meðferð en maður telur skynsamlega og muni duga einstaklingnum.
Það þýðir í reynd að ef þú ert með, á lokastigi til dæmis, valsamur viki og ert kominn á dýræðisaldur og hefur verið þar árum saman, eins og við sögðum nú í gamla daga, kannski mánuðum eða jafnvel árum saman, þá grípur heilbrigðiskerfið inn í og segir: Það er ekki skynsamlegt að endurlífga einstaklinginn.
Þá tekur eiginlega kerfið ákvörðun fyrir hönd einstaklingsins án þess að leita eftir samþykki hans, eins og maður myndi gera ef hann væri með fullu viti.
Ellen Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur starfað á bráðamóttökunni í 45 ár og hún vildi ekki að öldruð móðir sín yrði flutt á bráðamóttökuna til að deyja. Við höfum talað um það þegar þú sérð þetta háaldraða fólk sem er að koma inn á deildina og kannski dagar það uppi og jafnvel deyr.
Hvað á maður að segja þegar það ferli er að hefjast, að fólk sé að kveðja? Að það sé tekið við þessu samtali og jafnvel búið að taka samtalið áður en það hefst? Hvað vill fólk, og jafnvel að fólkið sjálft taki ákvörðun þegar það kemur til dæmis inn á þetta öldrunarheimili?
Þetta eru svo ofboðslega erfiðar ákvarðanir og sárar oft fyrir fólk, þannig að það er svo gott ef einstaklingurinn er búinn að ákveða hversu langt hann vill láta stíga inn í þetta ferli.
Vegna þess að ef við tölum bara um hjartastopp og það á sér stað úti í bæ, í heimahúsi eða jafnvel á öldrunarstofnun, og viðkomandi er sendur til okkar í hjartastoppi, þá er oft mjög átakanlegt að horfa upp á það.
Kannski náum við oftast ekki þessu fólki í gang, ef maður getur orðað það þannig. Plús það að mínu mati hefði átt að búa þannig um að fólk fengi bara eðlilegan dauðdaga, með virðingu og ástvini sína hjá sér, ef það er hægt, þannig að allir séu sáttir.
En ég hef tekið þátt í svona, og þegar viðkomandi kemur inn til okkar er það vægast sagt erfitt. Þegar fólk hérna skilur ekkert í því að við höfum ekki komið 95 ára gamalli konu aftur í gang, þá bara dokum við og hugsum með okkur: „Sko, má enginn deyja? Það má enginn deyja, skilurðu?“ Þótt við vitum öll að við deyjum, það eina sem við vitum…
Fæðumst inn í þessa veröld. Ég er búinn að segja það fyrir mörgum árum síðan, en mér finnst þetta eiga að vera spurning sem er eiginlega eingöngu spurning, til dæmis á öldrunarheimili, þegar fólk er þokkalega skýrt og getur tekið sjálft þessa ákvörðun. Það er oft mjög erfitt að leggja þetta á aðstandendur, að þeir eigi allt í einu að fara að taka ákvörðun: „Hvað geri ég við mömmu og pabba? Eigum við endurlífgun eða ekki?“ Ég meina, guð minn góður, þetta er erfitt.
Ég veit bara, eins og með mína mömmu, þá fékk hún hjartaáfall og þeir ætluðu að fara að flytja hana á bráðamóttökuna. Ég sagði: „Í guðsbænum, ekki gera það. Nú skulum við bara láta henni líða vel, gefa henni súrefni og passa hana.“ Svo komum við fjölskyldan og verðum hjá henni. Ég segi fyrir mína parta að ég er rosalega þakklát fyrir að hafa verið í þessu tilfelli hjúkrunarfræðingur, og systur mínar sem stóðu þarna líka voru alveg sammála mér.
Við fengum að vera hjá henni þegar hún ... Þetta skiptir máli, finnst mér, í staðinn fyrir að vera inni í látunum og hávaðanum og öllu á bráðamóttökunni, hávaðanum og látunum og oft á tíðum þrengslunum og alls konar uppákomum sem þar geta orðið. Það er ekki spurning að fólk ætti að hugsa þetta betur.
Alveg eins og fyrir nokkrum árum var líffæragjöf sett bara inn í eitthvað heilsuverndarkerfi, og ef þú mótmælir ekki, þá veistu það að ef viðkomandi deyr, þá er hægt að nota líffæri. Ég skil ekki af hverju ekki er hægt að koma þessu á einhvern svipaðan stað, þannig að fólk þurfi ekki að sitja uppi með samviskubit yfir að hafa sagt að mamma ætti ekki eða pabbi ætti ekki að fá fulla meðferð.
Það er akkúrat mánuður síðan mamma var síðast á bráðamóttökunni og ég hitti hana þegar hún var flutt þangað með sjúkrabíl. Hér er hún í herberginu sínu á hjúkrunarheimilinu og hefur hrakað mikið. „Hvað segirðu gott, mamma? Hvernig hefurðu það? Hvernig líður þér?“
„Hvernig líður þér? Hvernig líður þér, mamma?“ „Mér líður ágætlega.“ „Ég er að passa upp á þig.“
Ég er að passa upp á þig og við erum að passa upp á þig.
„Ha, ertu þreytt? Viltu drekka smá? Viltu smá súpu? Viltu drekka? Ég ætla að gefa þér smá að drekka. Viltu drekka smá? Ertu þyrst?“
Þú heldur dálítið fast í hendina mína. Þú heldur dálítið fast í hendina. Þú ert þreytt núna.
Ertu?
Þreytt, var kannski aðeins hressari en í dag. Ég veit það ekki alveg. Erfitt að sjá hana svona og mér finnst hún alveg þekkja mig og svara. Hún var bara orðin erfið með mál, en hún er virkilega að slappast.
Það sem hefur hjálpað mér kannski núna er að hafa mikið að gera. Ég get rætt þetta við starfsfólkið uppi á bráðamóttöku, því að þau þekkja þetta. Þau sjá ákveðna eiginleika eldra fólks sem eru vandamál við komu. Vaxandi slappleiki er það sem er að gerast með mömmu.
Sem endar með andláti, því miður. Ég veit ekki hvað ég á að segja meira, nema það að ég er ekki að hleypa sorginni að. Ég er ekki að gefa henni tíma til þess að koma. Ég er að halda mér uppteknum núna, en ég ætla að vera hjá henni á morgun.
Öldruðum fjölgar á Íslandi og því fjölgar þeim sem þurfa að leggjast á spítala. Hér erum við aftur í Hildi og Margréti á flæðisdeildinni og svo í Hjalta Má, öðrum af tveimur yfirlæknum bráðamóttökunnar.
Þeir sem við erum fyrst og fremst að sinna núna er fólk sem er fætt á fjórða og fimmta áratugnum, eðlilega okkar elsta fólk. Þetta er heilmikill hópur með alls konar flóknar þarfir. En þegar maður leiðir hugann að kynslóðinni sem kemur á eftir, fólki sem er fætt á sjötta og sjöunda áratugnum, þá erum við að horfa á rosalega stóra árganga eftir „baby boom“-fólkið.
Þetta er fólk sem við erum svona byrjuð að sjá koma hér inn, en þau eru svo stór hópur að hérna við höldum stundum að við séum einhvern veginn að sjá einhvern topp. Það er alls ekki. Við erum rétt að klífa upp brekkuna, þannig að þetta verður ærin áskorun þegar þessar kynslóðir eru komnar inn í kerfið hjá okkur. Þurfum við ekki að horfa á þetta í miklu lengri tímaskeiðum? Það þarf að segja hvað þarf að gera til að ástandið sé viðráðanlegt í framtíðinni.
Það er alveg klárt, en við þurfum líka úrræði, svo vitum við nú alveg. Við erum með um 80–90 manns sem eru að bíða hér eftir færni- og heilsumati, sem hafa fengið samþykkt að þeir hafi þörf fyrir hjúkrunarrými. Þeir bíða á Landspítalanum eftir að komast í slíkt rými.
Það hefur tafist mjög uppbygging á hjúkrunarheimilum. Þannig að ef ég gæti fengið — sko, við fengjum eitt 90 rúma rými á morgun, eða hjúkrunarheimili með 90 rúmum, þá gætum við losað um stífluna kannski í svona hálft ár. Þá færi hún aftur að byggjast upp.
Þannig að þetta þarf alltaf að haldast í hendur. Við þurfum að geta sent fólk á réttan stað og aðbúnaðurinn þarf að vera í lagi. Þegar það er í lagi, plús ýmislegt annað, þá er auðveldara að draga til sín fólk. Við tölum aftur um að við lendum í manneklu, en aðbúnaður bæði starfsfólks og sjúklinga, því betri sem hann er, og við höfum tilfinningu fyrir að við séum að gera réttu hlutina á réttum stað, hjálpar okkur alltaf í því að fleiri sæki til okkar í vinnu.
Hvað þarf að gerast til þess að ástandið á þessari deild breytist? Það þarf að opna fleiri rými til þess að fólk fái viðeigandi þjónustu á réttum stað. Hér vantar hjúkrunarrými og hér vantar legudeildarrými til þess að taka við þeim einstaklingum sem ættu ekki lengur að vera til meðferðar á bráðamóttöku.
Ég fann það að starfsfólkið hérna á deildinni var virkilega að reyna að koma mömmu upp á deild. Það var bara ekkert pláss og þeim leið bara illa, hún komst ekki upp. Hvernig fer þetta með starfsfólkið að vinna við þessar aðstæður? Þetta er mjög andlega lýjandi. Við getum alveg, ég díla við veikindi og…
Það er hægt að fást við annað sem kemur hérna upp, en það er svo andlega lýjandi að horfa upp á þjáningar sem þyrfti ekki að vera, sem við sem kerfi og samfélag eigum að geta komið í veg fyrir. Nú erum við að tala um vanda fortíðarinnar þegar við tölum um þennan aldurshóp. Ef þú horfir nokkur ár fram í tímann, kannski kynslóðirnar sem maður fær rétt fyrir 1950, hverju megum við búast við þá þegar sá hópur þarf á hjúkrunarheimilum að halda? Sko, þarna erum við komin út í kannski lýðheilsufræðin, sem er komið svolítið út fyrir mína sérgrein sem bráðalæknir.
En það blasir við að það voru mjög stórar kynslóðir sem fæddust þarna á árunum eftir stríðið og þær kynslóðir eru núna að verða aldraðar. En síðan hef ég ekki síður meiri áhyggjur af minnkandi hreyfingu, meiri félagslegri einangrun og meiri yfirþyngd fólks af yngri kynslóðum, sem fyrirsjáanlega muni auka álag í heilbrigðiskerfinu umtalsvert.
Guðbjörn Ragnarsson er 93 ára og er kominn á bráðamóttökuna í fylgd Guðmundar, sonar síns. „Honum svelgdist eitthvað á við matborðið í kvöld, bara sem ég kemlaði, og við erum búin að bíða hérna einn af þremur tímum. Og hér eru allir á þönum. Þetta er bara rosaleg aðstaða sem fólk er að vinna við. Þetta var að segja sig sjálft, mér finnst það bara rosalegt sko. Ástandið er bara mikið verra en maður heldur þegar maður er að sjá fréttir af þessu, þó að það sé slæmt. Það er rosalegt álag á fólki og við erum núna hérna bara í endanum á húsinu.“
„Það heldur úr sjúkrabílunum hverjum á fætur öðrum og fólk þarf bara að leysa þetta.“ „En pabbi þinn er hress?“ „Já, já, hann er svona hressastur. Hann hefur lítið þurft að nota þetta heimiliskerfi og er svona frekar… Hann er nú pólitískur sko, þú getur prófað að spjalla við hann á eftir.“
„Undanfarin ár hafa bæði ríkisstjórnir og auðvitað sveitarfélög sofið á verðinum með það að byggja hjúkrunarheimili.“ „Og það er eins og þeir hefðu ekki áttað sig á því, miklu síður en almenningur úti í þjóðlífinu, að þjóðirnar eldast. Það var bara köllun á því að halda áfram að byggja öldrunarheimilin.“
„En þú varst að sjá það í fréttunum að það væru svo margir á ganginum hérna og allir gangar fullir?“ „Já, ég geri það. Ég sá það.“ „Svo kemurðu hérna í kvöld og þá er ég sjónarvottur að því líka. Það er auðvitað það sem mér blöskraði, þó ekki þegar ég var búin að hlusta á fréttirnar. En mig langar að spyrja þig, því að ég veit að þú ert 93 ára gamall og þú ert svo helvíti ern. Hvernig fer maður að því? Hvaða ráð ertu með?“
„Það er málið, það er einfalt. Ég byrjaði ákaflega strax þegar ég var barn og gat staðið að vinna. Ég hafði alltaf áhuga á því að vinna og sleppti aldrei vinnu nema ég var tvo mánuði, held ég, hérna atvinnulaus í lífinu. Það var stóra togaraverkfallið 1950 sem kallað var.“
„Ég hætti aftan til tveggja ára vinnu og konan líka, en ég missti hana í vetur, í janúar. Hún dó 30. janúar og ég hef verið einn heima svona að sjá um mig sjálfur.“
„Ég fæddist í torfbæ og ólst upp í torfbæ sem barn langt fram eftir aldri. Árið 1943 flutti ég inn á þá, gagnvart skólanum sem við þurftum. Ég var í farskóla áður og það var kennt kannski einn mánuð, sex vikur. Ég ólst upp á Skálum á Langanesi, á sunnanverðu nesinu, í hinu gamla kunnuga sjávarþorpi sem hér var áður.“
„En mig langar að spyrja þig svona, af því að ég veit að læknirinn ætlar að koma að tala við þig: Hvernig líst þér á íslenskt samfélag í dag miðað við það sem áður var?“ „Mér finnst það hafa búið að eyðileggja það að mörgu leyti, og ég kenni þessum síma sem krakkarnir eru með í vasanum og hanga í honum kannski sex, átta tíma á dag. En þegar ég var varla þá gekk allt út á að láta okkur gera eitthvað, vinna eitthvað, hlaupa á milli bæja. Þetta var nú aðallega fiskur, að stokka upp og beita og annast saltfisk.“
Fór í pökkun og það gekk allt út á að vinna. En ég fermdist 1945 um vorið, en sumarið í júní. Ég var aldrei spurður eftir ferminguna, um sumarið, af fólkinu að neinu: „Í hvaða skóla ætlarðu í vetur?“ En ég var spurður: „Er pabbi þinn búinn að ná þér í vertíðarpláss?“ Og ég er kominn suður í Keflavík fimm, sex mánuðum eftir fermingu.
Þetta eru góð ráð. Ég bara þakkaði greinilega fyrir. Ég ætla að taka í hendina á þeim.
Ástand mömmu var orðið mjög alvarlegt og við fjölskyldan vorum kölluð á fund með læknum á hjúkrunarheimilinu, þar sem hún lá sofandi í herberginu sínu. „Þórunn á orðið stutt eftir, og hvort þetta gerist núna í dag eða eftir viku eða tvær vikur eða einn mánuð, auðvitað vitum við það ekki alveg. En ég myndi nú telja að það væri svona nokkuð hámark kannski tveir mánuðir sem hún eigi eftir, þó að það sé alltaf erfitt að spá. En ef hún er virkilega að nærast, þá getur hún verið eitthvað svona.“
Ef þú hefur áhyggjur af heilsu þinni er bent á vefinn Heilsuveru eða að hringja í símanúmerið 1700. Í neyðartilvikum er mikilvægt að hringja í neyðarnúmerið 112. Halldór Gunnar Pálsson hannaði hljóðheim og stef þáttarins. Ef að einhverjir vilja koma ábendingum til mín, þá er netfang þáttarins avettvangi@heimildin.is. Og að lokum vil ég hvetja þig sem ert að hlusta á þáttinn, þér að kostnaðarlausu, að gerast áskrifandi að Heimildinni, því svona þáttagerð er dýr og hver áskrifandi skiptir máli.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styrkti gerð þessarar þáttar.
Athugasemdir