Flækjusagan

Stór­veldi Atatürks

Ill­ugi Jök­uls­son fjallar um Mu­stafa Kemal Atatürk sem var stór­merk­ur stjórn­mála­mað­ur í Tyrklandi og sann­kall­að­ur „fað­ir Tyrkja“. En nú þeg­ar Er­dog­an for­seti ætl­ar að stíga næsta skref og koma Tyrkj­um aft­ur í hóp stór­velda ger­ir hann það ekki síst með því að snið­ganga arf­leifð Atatürks.
Hlustaðu · brot15:09 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.802 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Atatürk og Tyrkir á alþjóðavettvangi

Stórveldi Atatürks. Í þessum pistli fjalla ég um Mustafa Kemal Atatürk, sem var stórmerkilegur stjórnmálamaður í Tyrklandi og kallaður faðir Tyrkja.

En nú þegar Erdoğan forseti virðist vera að reyna að stíga næsta skref og koma Tyrkjum aftur í hóp stórvelda, þá gerir hann það reyndar ekki síst með því að sniðganga arfleifð Atatürks.

Undir árslokaárið 2015 skutu Tyrkir niður rússneska orrustuþotu yfir Sýrlandi. Þetta var einhvers konar slys, en eftir að í ljós kom að Tyrkir voru svo sannarlega hvorki bljúgir né iðrandi eftir atburðinn, heldur þvert á móti mjög borubrattir, og Erdoğan forseti þeirra virtist þess albúinn að fara í harða stóreykjakeppni við Pútín, Rússlandsforseta, þá urðu menn hissa.

Því við erum ekki vön að líta á Tyrki sem verulegt afl í heiminum, jafnvel ekki í Mið-Austurlöndum. Yfirbragð Tyrkja í huga okkar hefur verið frekar gamaldags. Tyrkir hafa virkað dálítið glámskyggnir, eins og þeir væru ekki alveg með í samtímanum. Þeir væru eins og fjarskyldir, þungbúnir ættingjar aftarlega á fjölskyldumyndinni, kannski rammir að afli en furðulega hikandi og kynnu ekki að beita afli sínu.

En sú mynd af Tyrkjum varð til á seinni hluta 19. aldar, þegar hið forna stórveldi Ottómanna í Istanbúl, eins og þá var farið að kalla Konstantínópel, var orðið staðnað og fársjúkt. Gjarnan er sagt að Tyrkjum hafi þá verið haldið uppi fyrst og fremst af erlendum lánardrottnum, af því að evrópsku stórveldin gátu ekki komið sér saman um hvað ætti að verða um líkið eftir að loks væri búið að veita Ottómanaveldinu náðarstunguna.

En sannleikurinn er sá að þeir sem raunverulega þekkja til hafa lengi átt von á að Tyrkir hristu af sér hlédrægnina og slenið og færu að berja sér á brjóst á alþjóðavettvangi. Þetta er jú gríðarlega fjölmennt ríki, menntunarstig þeirra er hærra en margir halda og Tyrkland býr yfir miklum möguleikum. Þeir eru til sem telja að um miðja þessa öld verði Tyrkland komið í hóp öflugustu stórvelda.

Svo það var bara í samræmi við forna sögu að Tyrkir bæru sig mannalega framan í Rússa þarna í lok árs 2015. Síðan hafði nú ýmislegt breyst, en langt fram á 19. öldina voru Rússar og Tyrkir sífellt að keppa um völd og áhrif á Krímskaga, á Balkanskaga og í Kákasus.

Hnignun Ottómanaveldis

En þá fór ríki Tyrkja að hnigna. Soldánar þeirra í Istanbúl urðu valdalausir leiksoppar embættiskerfisins. Stjórnsýslan gerðist makráðin og spillt og óhæf, og þegar leið á öldina voru endalokin í sjónmáli. Síðasti soldáninn sem tók sér raunveruleg völd í Istanbúl var Abdülhamid II, sem tók við árið 1876.

Tæplega hálfþrítugur í upphafi ferils síns sýndi Abdülhamid ýmis merki þess að vilja nútímavæða landið og hefja umbætur. Hann setti landinu stjórnarskrá sem þótti furðuframsækin og lýðræðisvæn miðað við afturhaldið sem hafði verið svo lengi við lýði í Istanbúl. En svo runnu tvær grímur á Abdülhamid. Honum fannst vestræn áhrif aukast of hratt og hann fór að óttast um völd sín.

Þá nam hann stjórnarskrána einfaldlega úr gildi og stýrði sem einvaldur þaðan í frá. Þá fór allt í handaskolum. Ríki á Balkanskaga gengu sífellt á lendur Tyrkja og mikill órói var í Mið-Austurlöndum, en sjálfstæðisviðleitni Armena og annarra þjóða í Tyrklandi sjálfu var mætt með mikilli hörku og blóðugu ofbeldi.

Árið 1908 var framið valdarán í Istanbúl. Ungir herforingjar, sem einfaldlega hafa verið kallaðir ungtyrkjar, mettu Abdülhamid af og gerðu bróður hans að soldáni. Þeir höfðust við að koma á lýðræði og þingbundinni stjórn, soldáninn fékk að lafa sem valdalaus silkihúfa. Fljótlega urðu frjálslynd öfl þó undir í hópi ungtyrkja og árið 1913 tók lítil og herská klíka í raun öll völd í landinu.

Tyrkir í fyrri heimsstyrjöld

Árið áður höfðu Tyrkir beðið slæman ósigur í stríði við flestar allar Balkanþjóðirnar og misst öll þau svæði í Evrópu sem þeir áttu eftir, nema örlitla spildu vestur af Istanbúl. Valdahlíkan hóf svo í ágúst 1914 þátttöku í fyrri heimsstyrjöldinni við hlið Þjóðverja og Austurríkismanna. Ástæðan var aðallega rökstuddur ótti klíkunnar við áform Breta, Frakka og Rússa um að styðja enn frekari sundurlimun Tyrkjaveldis.

Rússar voru til dæmis ákveðnir í að taka Istanbúl af Tyrkjum strax og færi gæfist, en borgina höfðu þeir lengi litið hýru auga. Framan af stríðinu gekk Tyrkjum vel og þeir hreinsuðu til dæmis burt heldur misráðna innrás Breta og Frakka sem gerð var á útmánuðum 1915, þar sem heitir Gallípóli við Hellusund.

Hið sama ár hófu Tyrkir hins vegar hrottalegar ofsóknir á hendur Armenum sem bjuggu í austurhluta ríkisins og höfðu ekki farið dult með að þeir vildu losna undan tyrkneskum yfirráðum. Sú saga er öll hin hræðilegasta. Armenar voru reknir á vergang út í gróðurvana eyðimörk þar sem þeir hrundu niður úr hungri og þorsta. Aðrir voru settir í fangabúðir við ömurlegan aðbúnað og margir hreinlega drepnir.

Talið er að að minnsta kosti ein og hálf milljón Armena hafi látið lífið í þessu þjóðarmorði, sem Tyrkir hafa alla tíð síðan neitað að horfast í augu við. En í dag á fólk á hættu að vera fangelsað í Tyrklandi ef það rifjar upp þennan viðurstyggilega þátt í tyrkneskri sögu. Á hinn bóginn var þetta þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Adolf Hitler mikill innblástur, ef svo má að orði komast, þegar fyrir dyrum stóðu fjöldamorð nasista á gyðingum.

Þá spurði einhver hvort alþjóðasamfélagið myndi ekki rísa upp þegar athæfi Þjóðverja tæki að spyrjast út, en Hitler minnti þá á að í raun hefði öllum verið sama þegar Tyrkir myrtu Armena í hrönnum og því þyrftu Þjóðverjar ekki að óttast mikla hneykslun.

En Armenar voru reyndar ekki einu fórnarlömb grimmdaræðis Tyrkja í fyrri heimsstyrjöldinni, því öldin öll af Grikkjum týndi líka lífi, einkum þeir sem bjuggu á Svartahafsströnd Tyrklands, og sömuleiðis ótalmargir Sýrlendingar.

Þegar leið á heimsstyrjöldina fór að halla mjög undan fæti hjá Tyrkjum. Arabar hófu uppreisn gegn þeim í Miðausturlöndum og nutu stuðnings Breta og Frakka. Tyrkneskar hersveitir biðu nú hvern ósigurinn af öðrum gegn bandamönnum og haustið 1918 rambaði ríkið á barmi gjaldþrots. Í lok október sömdu Tyrkir um vopnahlé sem í raun fól í sér algjöra uppgjöf.

Friðurinn í Sèvres

Tveimur árum seinna samþykktu svo fulltrúar Tyrkja friðarsamning sem sigurvegararnir í stríðinu höfðu lesið þeim fyrir í smábænum Sèvres í útjaðri Parísar. Samkvæmt honum var Tyrkjaveldi algjörlega limlest. Tyrkir misstu ekki einungis öll sín héruð í Miðausturlöndum, heldur var Tyrkland sjálft bútað niður og ekki nema um það bil einn fjórði af landinu stóð eftir.

Grikkir og Armenar fengu vænar sneiðar af landinu, auk þess sem Ítalir, Frakkar og Bretar fengu hver sitt verndarsvæði og lá í augum uppi að stór hluti þess kynni að endingu að falla í skaut Kúrda. Istanbúl, þetta djásn Tyrkja, átti að verða undir alþjóðlegri stjórn, sem kallað var.

Ef þetta hefði gengið eftir má búast við að Tyrkland hefði í raun verið úr sögunni sem öflugt ríki. Það hefði orðið fátækt og auðlindasnautt miðlungsríki á suðurströnd Svartahafs og erfitt að sjá hvernig það hefði getað náð sér á strik í fyrirsjáanlegri framtíð. Enda var það einmitt ætlun stórveldanna að kveða Tyrki í kútinn í eitt skipti fyrir öll.

Sjálfstæðisstríð Mustafa Kemals

En þau höfðu gengið of langt. Þótt Tyrkir væru beygðir og blankir eftir heimsstyrjöldina létu þeir ekki bjóða sér þá algjöru auðmýkingu sem fólst í samningnum frá Sèvres. Og þegar neyðin var stærst var hjálpin næst. Mustafa hét maður og hafði viðurnefnið Kemal, hinn þroskaði eða eitthvað í þá áttina, skilst mér.

Hann fæddist í þessari borg í Grikklandi árið 1881. Borgin var þá og enn hluti Tyrkjaveldis, en þar ríkti sannkölluð fjölmenning og evrópsk áhrif voru sterk. Mustafa var millistéttarmaður, gekk í herinn og tók þátt í byltingu ungtyrkja árið 1911. Þá vakti hann athygli.

Fyrir djarfa framgöngu í orustu í Líbíu, sem Tyrkir voru þá að tapa í hendur Ítala, og í fyrri heimsstyrjöldinni vann hann sig smátt og smátt ofar í metorðastiga hersins. Eftir að ljóst varð hve rækilega bandamenn ætluðu að skera Tyrki niður við trog blöskraði mörgum, og Tyrkir gripu til vopna gegn bandamönnum.

Í því stríði, sem Tyrkir kalla sjálfstæðisstríð sitt, varð Mustafa Kemal fljótlega innsti koppur í búri. Hann hratt sókn Grikkja, sem komnir voru langt inn í tyrknesk lönd, árið 1922 og rak þá að lokum að Ödu.

Þegar Tyrkir höfðu verið sigraðir kom í ljós að bandamenn voru ekki tilbúnir til að berjast við Tyrki um niðurstöðuna í Sèvres, og tyrkneski herinn náði brátt öllu landinu. Armenar fengu því ekki þau lönd í Austur-Tyrklandi sem um hafði verið samið og, eins og endranær, sameinuðust allir að lokum um að láta eins og Kúrdar væru ekki til. Í ágúst 1923 var lýst yfir stofnun lýðveldisins Tyrklands.

Umbætur Atatürks

Mustafa Kemal varð forseti. Það kom eiginlega enginn annar til greina eftir glæsilega frammistöðu hans í stríðinu. En nú reyndist Mustafa ekki aðeins hafa verið dugmikill herforingi; hann var líka heilmikill og sérlega djarfur hugsuður, sem var óhræddur við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd.

Á rúmum áratug gerbylti Mustafa tyrknesku samfélagi. Öllum fúnum innviðum Ottómanaveldisins var sópað út í hafsauga, og sérlega athyglisvert var að alveg var skorið á tengsl trúarbragða og ríkisins. Ottómanaríkið hafði alls ekki verið heittrúarríki, en íslam var þó auðvitað áberandi þáttur í því flókna gólfteppi sem stoðir samfélagsins hvíldu á.

Mustafa Kemal var hins vegar trúlaus með öllu og taldi trúarbrögð ævinlega vera til ama. Hann stóð fyrir nær algerri sekúlaríseringu, eins og það er kallað, tyrknesks samfélags. Íslamskir dómstólar voru lagðir niður og nýtt og nútímalegt lagasafn tekið upp. Konur fengu í einni svipan jafnrétti að lögum á við karla. Ótal margt fleira tók Mustafa sér fyrir hendur í tilraun sinni til að þrýsta Tyrkjum í einum vetfangi aftan úr miðöldum Ottómana og fram í vestrænan nútíma.

Víðtækar umbætur voru til dæmis gerðar á menntakerfinu og latneskt letur tekið upp í stað hins arabíska, sem notað hafði verið um aldir.

Arfleifð Atatürks og Erdoğan

Mustafa dó fyrir aldur fram árið 1938, þá kallaður Atatürk. Það nafn hafði hann sjálfur tekið þegar hann skipaði svo fyrir að Tyrkir skyldu taka upp ættarnöfn. Nafnið Atatürk hefur þá hógværu merkingu „faðir Tyrkja“. Á sinn hátt væri Atatürk sannarlega einn merkasti stjórnmálamaður 20. aldar, þótt hann væri ekki fullkominn. Hann hélt til dæmis uppteknum hætti að kúga Kúrda og þegja armenska þjóðarmorðið í hel.

En Atatürk má eiga það sem hann á: hann reyndi að koma á vestrænu lýðræði með fjölflokkakerfi og þótt það gengi ekki í fyrstu tilraun varð Tyrkland að lokum raunverulegt lýðræðisríki. Það hefur reyndar gengið á ýmsu og herinn oftar en einu sinni tekið völdin, yfirleitt náttúrlega í þeim yfirlýsta tilgangi að varðveita arfleifð Atatürks gegn ásókn stjórnmálamanna sem vilja hagnýta sér íslam til að sópa til sín völdum.

Það tók fleiri áratugi en Atatürk vonaði að koma iðnframleiðslu, lífsháttum og lífskjörum Tyrkja í átt að því sem tíðkast á Vesturlöndum. En kaldhæðnislegt má teljast að nú þegar Tyrkir telja sig loks orðna nógu mikla bóga til að ógna Rússum þá sé það gert undir forystu einræðissinnaðs forseta, sem markvisst sniðgengur hugmyndir Atatürks og daðrar til dæmis glaðlega við trúaröfgamenn til að styrkja völd sín. Það

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

Reynsla ungs fólks í Evrópu
Fréttir25:58 ·

Reynsla ungs fólks í Evrópu

Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
Menning22:28 ·

Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
Áskrift
Pressa · 1:39:47 ·

Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar