Flækjusagan

Njósn­ar­inn á Hotel Klomser: Mesti njósn­ari 20. aldar?

Á út­mán­uð­um 2024 birt­ust í Heimildinni nokkr­ar Flækj­u­sög­ur um upp­haf fyrri heims­styrj­ald­ar sumar­ið 1914. En við þá sögu komu ýms­ir óvænt­ir að­il­ar og á óvænt­an hátt. Hér segir frá einum sérkennilegum anga málsins.
Hlustaðu · brot15:10 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.658 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Gildran á Hotel Klomser

Njósnarinn á Hotel Klomser: Var hann mesti njósnari 20. aldar? Á útmánuðum 2024 birtust í Heimildinni nokkrar Flækjusögur um upphaf fyrri heimsstyrjaldar sumarið 1914. En við þá sögu komu ýmsir óvæntir aðilar og á óvæntan hátt. Hér segir frá einum sérkennilegum anga málsins.

Leyniþjónustumennirnir tveir voru ógnarspenntir. Þeir sátu í anddyrinu á Hotel Klomser við Herrengasse 19 í miðborg Vínar og vissu að innan skamms kynnu þeir að standa andspænis stórhættulegum njósnara í þjónustu hins óvinveitta rússneska keisaradæmis; njósnara sem ef til vill hafði valdið austurrísk-ungverska keisaradæminu, sem þeir þjónuðu, ómældum skaða.

En nú væru dagar hans áreiðanlega taldir og leyniþjónustumönnunum tveimur hló hugur í brjósti. Þeim yrði þakkað afrekið, þeir fengju hrós í hnappagatið, ef laust stöðuhækkun og kannski, ef til, orðu sem sjálfur keisarinn í Austurríki myndi festa í jakkaboðung þeirra.

Þetta var síðdegis 24. maí 1913. Keisarinn var Frans Jósef, sem hafði setið á valdastóli í 65 ár. Ýmislegt hafði drifið á hans daga, en leyniþjónustumennina tvo grunaði að hinn gamli keisari hefði aldrei staðið frammi fyrir álíka svikum og nú yrði væntanlega ljóstrað upp um.

Þar sem þeir sátu og biðu í íburðarmiklu anddyri Klomser hugleiddu þeir hve litlu hafði munað að þeir misstu alveg af njósnaranum. Gagnnjósnastofnunin Evidenzbüro hafði fengið ábendingu frá kollegum sínum í Þýskalandi um að á tilteknu pósthúsi í Vín væri þykkt peningabúnt í umslagi og biði þess að vera sótt af einhverjum sem myndi kalla sig Nicon Nizetas.

Þjóðverjarnir höfðu komist að því að Nicon Nizetas væri sennilega dulnefni háttsetts embættismanns eða herforingja í Vínarborg sem njósnaði fyrir Rússa. Peningabúntið væri hluti af launum Nizetasar, eða hvað hann hét í alvörunni, launum fyrir mikilvæg hernaðarleyndarmál sem hann hefði afhent Rússum. Sennilega hefði þessi Nizetas unnið í mörg ár fyrir Rússana.

Evidenzbüro fór nú á fulla ferð. Þessi gagnnjósnastofnun hins fjölþjóðlega ríkis Austurríkis-Ungverjalands hafði lengst af verið heldur lítil og smeygandi stofnun og ekki komið að miklu gagni í valdapólitíkinni. En árið 1907 hafði nýr yfirmaður tekið við, rúmlega fertugur Þjóðverji frá Úkraínuhéraði, Alfred Redl, og Redl tók ærlega til hendinni og innleiddi allra nýjustu aðferðir hjá stofnuninni.

Allt í einu voru starfsmenn Evidenzbüro að rannsaka fingraför, taka myndir úr launsátri og stunda hljóðupptökur. Meira að segja, já, það var snemma.

En stundum dugði nú engin tækni til að leysa mál. Svo var það í þetta sinn. Leyniþjónustumennirnir biðu við pósthúsið þar sem peningaumslagið handa Nizetas beið. Þar birtist um síðir maður sem bað um og fékk umslagið feita.

Leyniþjónustumennirnir voru aðeins of seinir að góma hann. Hann var allt í einu horfinn upp í leigubíl þegar þeir ætluðu að stökkva af stað og handtaka hann. Og haldið ekki að dóninn hafi greinilega verið í dulargervi, svo þeir vissu í rauninni ekkert hver hann væri eða hvernig hann liti út.

En þá duttu þeir í lukkupottinn, kumpánarnir. Þeir fundu leigubílinn og bílstjórinn kvaðst hafa ekið Nizetas á Hotel Klomser þar skammt frá. Í bílnum fundu þeir forláta hnífslíður sem Nizetas hafði bersýnilega misst úr fórum sínum. Á hótelinu, sem var dýrt og fremur íburðarmikið, reyndust búa langdvölum alls konar mæktarmenn, en enginn sem lá í augum uppi að gæti verið njósnari fyrir Rússa.

Röhl og njósnarinn afhjúpaður

Þá létu evtlendisbúrómennirnir yfirmann sinn, Maximilian Ronge, vita. Fyrrnefndur Röhl, ofursti og fursti, hafði látið af störfum árið áður og var nú yfirforingi herdeildar þar í borginni.

Með hjálp Rongers, hins nýja yfirmanns, var nú spennt gildra fyrir njósnafólkið. Hótelstarfsmanni var fengið slíðrið og honum lagt á herðar að láta berast til gesta hótelsins að leigubílstjóri hefði komið og afhent það, einhver gestanna á Hotel Klomser hefði týnt því í bílnum sínum. Því sátu þeir þarna og biðu þess að einhver gæfi sig fram og gerði kröfu til slíðursins.

Þetta var skemmtilegt og spennandi verkefni og þeir ætluðu sannarlega ekki að missa af Nizetas öðru sinni. Verst fannst þeim bara að þeirra góði fyrrverandi yfirmaður, Röhl, fursti, stýrði ekki aðgerðinni og fylgdist með þeim afhjúpa þrjótinn. En hann myndi frétta af þessu, hugguðu þeir sig við, og kannski fara um þá viðurkenningarorðum.

Leyniþjónustumennirnir báðir dáðu Röhl takmarkalaust. Hann var snjall og skemmtilegur, kröfuharður en sanngjarn, og sýndi alþýðumönnum eins og þeim velvild og áhuga. Það var ekki sjálfgefið af háttsettum körlum í hinu vandlega stéttskiptaríki Habsborgaranna.

Enda var Röhl í rauninni einn af þeim. Hann var af alþýðufólki sem bjó við heldur kröpp kjör en komst til vegs og virðingar af eigin framlagi og kunni líka að ota sínum tota og spila á kerfiskallana. Röhl þurfti ekki að vera af aðalsættum til að auðgast verulega og komast til frama. Það var augljóst og þótt hvíslað væri um að hann væri helst til snokinn fyrir myndarlegum piltum þá hafði það heldur ekki komið í veg fyrir framgang hans.

Já, leyniþjónustumennirnir dauðsáu eftir Röhl þegar hann hætti og Ronge tók við af honum. Ronge var að vísu sérlegur skjólstæðingur Röhl og lærisveinn, en stóð honum þó hvergi á sporði, fannst undirmönnunum. Þó urðu þeir að viðurkenna að Ronge hafði staðið vel að málum við rannsóknina á Nizetas.

Þótt leyniþjónustumennirnir hefðu talið að þetta gengi ekki eftir í fyrstu, þá gaf sig brátt fram einn gestanna á Hotel Klomser og kvaðst eiga hnífslíðrið. Hótelstarfsmaður afhenti gestinum slíðrið eins og ekkert væri, en lét svo leyniþjónustumennina vita. Þessi gestur var á herbergi 304.

„Ha?“ sögðu þeir. „Og hver er hann?“ Þá datt af þeim andlitið. Þeir flýttu sér á fund Ronges til að segja honum þau ótrúlegu tíðindi að Nizetas, njósnarinn sem bersýnilega hafði selt hernaðarleyndarmál Austurríkis-Ungverjalands í hendur Rússa, væri enginn annar en...

Þegar Ronge frétti hver maðurinn var dugði ekki minna en að hafa samband við Konrad von Hötzendorf, marskálk og yfirmann herráðsins. Hötzendorf rann kalt vatn milli skinns og hörunds. Nizetas var Alfred Redl. Það yrði ægilegt hneyksli ef vitnaðist að sjálfur Redl, ofursti, væri föðurlandssvikari og njósnari. Það gæti haft mjög slæmar afleiðingar á viðkvæmt innanlandsástandið í fjölþjóðaríkinu.

Svo Hötzendorf ákvað að málið yrði að þegja sem best í hel. Háttsettir menn voru sendir á Hotel Klomser og börðu þeir að dyrum á herbergi 304 um miðja nótt.

Redl kom til dyra. Hann reyndi víst lítið að þræta, enda var það þýðingarlaust. Hann sagði gestum sínum að ástæða þess að hann ákvað að gerast njósnari Rússa hefði eingöngu snúist um peninga. Hann hefði fengið sand af seðlum fyrir svikin.

Þá stóðu gestirnir upp. Þeir yfirheyrðu Redl ekki frekar. Þeir gerðu ekki minnstu tilraun til að komast að því hvaða upplýsingum hann hefði fært Rússum, og að þeir gerðu það ekki átti eftir að hafa voðalegar afleiðingar. En þeir skildu eftir byssu á hótelherbergi Redls. Þeir gerðu honum ljóst að sóma hans vegna og vegna sóma ríkisins hlyti hann að skjóta sig. Það væri eina úrræðið.

Svo biðu þeir fram á gangi. Þeir biðu góða stund. Það var farið að grána af degi þegar loks heyrðist eitt byssuskot.

Franz Ferdinand, ríkisarfi Austurríkis-Ungverjalands, varð brjálaður þegar hann frétti að Hötzendorf hefði leyft Redl að svipta sig lífi án þess að hann væri fyrst yfirheyrður í þaula. Ríkisarfi hafði fulla ástæðu til að vera brjálaður, því einmitt það átti sennilega eftir að hafa beinlínis ógurlegar afleiðingar hversu lítið Austurríkismenn vissu um það hvað Redl og Furst höfðu upplýst Rússa um.

Redl í kvikmyndum Szabós

Þið munið hvaða ár þetta gerðist: 1913. Og þið munið hvað gerðist ári síðar, 1914. Jú, heimsstyrjöld skall á og bæði njósnir Redls og Fursts og dauði hans kunna að hafa haft meiri áhrif á gang þeirrar hörmungar en flestir ímynda sér. Ég ætla að ræða það í öðrum pistli seinna meir.

En Redl og Furst. Þekktasta bíómyndin er Redl og Furst, sem ungverski leikstjórinn István Szabó frumsýndi 1985 og hlaut fjölda verðlauna og tilnefninga fyrir. Þar lék þýski leikarinn Klaus Maria Brandauer Redl. Brandauer lék á árunum 1981 til 1988 í þremur sannsögulegum myndum sem Szabó gerði og fjölluðu á einn eða annan hátt allar saman um einstaklinga sem þurfa að hliðra til siðferði sínu þegar þeir standa andspænis alræðisríki sem krefst algjörrar hollustu.

Þessir þrír menn ganga allir í raun til liðs við alræðið af ýmsum ástæðum, með ýmsum fyrirvörum og með ýmsum afleiðingum. Auk Redls ofursta eru þetta myndirnar Mephisto, um þýska stórleikarann Gustaf Gründgens, og Hanussen, um samnefndan miðil eða skemmtikraft. Bæði Gründgens og Hanussen stóðu frammi fyrir nasistastjórn Hitlers á fjórða áratugnum, en í Redl ofursta er Habsborgararíkið í hlutverki alræðisins.

Athygli hlýtur að vekja að í mynd Szabós er í raun gert lítið, nánast ekki neitt, úr því að peningar hafi umfram allt rekið Redl til njósna. Í staðinn beinist athyglin að samkynhneigð hans og svo ekki síst að valdakerfi Habsborgararíkisins, þar sem spillt, auðug og grimm yfirstétt hafði tögl og haldir, en mjög flókið samspil þjóðverja í þessu fjölþjóðaríki hafi eiginlega enn fremur hrakið Redl til njósna.

Szabó fékk mikið lof og mörg verðlaun, meðal annars Óskarinn fyrir Mephisto. Þessar myndir hans, sem og Brandauer, þóttu merki um mikið hugrekki af hálfu Szabós að takast með þessum hætti á við baneitrað samband einstaklings og alræðis og þannig í raun og veru takast á við alræðið í sínu eigin landi. En í Ungverjalandi var þá enn við lýði harðstjórn kommúnista og hún virtist óbilandi.

Það kom því mörgum aðdáendum Szabós í opna skjöldu og olli miklum sársauka þegar í ljós kom árið 2006 að einmitt hann hafði á tímabili á yngri árum verið í þjónustu ungversku leynilögreglunnar og gefið upplýsingar, það að segja njósnað um stúdenta og kennara við kvikmyndalistaskólann þar sem hann nam. Þá bætti síst úr skák þegar Szabó reyndi að gera sem minnst úr þessum ásökunum og var þá staðinn að ýmsum bláköldum, vísvitandi lygum um sinn hlut. Szabó var svolítið hornauga lengi vel á eftir.

Árið 2020 leiddu þeir Brandauer saman hesta sína á ný í myndinni Sárógi Lendis, þar sem leikstjórinn reynir á heldur spaugilegan hátt að sýna fram á að þrátt fyrir ýmsa hnökra á ferlinum þá sé hann nú samt voða góður gæi og auk þess ómótstæðilegur í augum kvenna. Eða í þessu tilfelli persónan sem Brandauer leikur og er augljóslega hugsuð sem alter ego Szabós sjálfs.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar