Handrit

679 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Donald Trump: Afinn var innflytjandi og rak hóruhús meðan á gullæðinu stóð í Klondike. Donald Trump virðist óstöðvandi, en hvaðan kemur þessi maður?

Þessi grein er skrifuð í upphafi ársins 2016, þegar Trump fór mikinn í prófkjörum Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2016. Og það var orðið brýnt fyrir fólk á Vesturlöndum að reyna að átta sig á því hver þessi maður eiginlega væri, og það geri ég í þessum pistli.

Árið 1869 fæddist piltur í smáþorpinu Kallstadt við Rínarfljót í Þýskalandi. Hann var af alþýðufólki; foreldrar hans unnu við vínekrurnar sem hvervetna eru í hlíðunum upp af fljótinu fræga. Drengurinn var skírður Friedrich og bar ættarnafn föður síns, Trump.

Þegar Friedrich Trump var 16 ára lét hann heimdragana og hélt til Bandaríkjanna í leit að betra lífi. Þar gerðist hann rakari, en árið 1885 flutti hann til Seattle og setti upp það sem var svo smekklega kallað siðlaust veitingahús.

Næstu árin færði Trump út kvíarnar. Hann setti upp þó nokkur veitinga- og gistihús og þegar gullæðið svokallaða hófst í Klondike í Kanada árið 1896 komst hann í feitt. Þúsundir manna streymdu til Klondike til að freista gæfunnar við gullleit og Trump sá þeim bæði fyrir gistingu og skemmtun.

Trump sagði sjálfur í blaðaviðtali um eitt gistihúsa sinna að það væri mjög hentugt fyrir einhleypa karlmenn, en bætti við: „Ég myndi ekki ráðleggja siðprúðum konum að leita þar gistingar, því þær gætu þurft að heyra þar ýmis hljóð sem mundu vekja þeim viðbjóð og koma frá siðspilltum einstaklingum af hinu kyninu.“ Og þurfti ekki að fara í grafgötur með hvað hér var átt við.

Trump gerðist nú bandarískur ríkisborgari og kallaði sig síðan Frederick en ekki Friedrich. Árið 1901 var gullæðinu að linna og merki var á lofti um að yfirvöld í Kanada og Bandaríkjunum ætluðu að skera upp herör gegn vændishúsum og melludólgum. Þá seldi Trump öll sín hús og hélt aftur til Þýskalands.

Heima í Kallstadt gekk hann í hjónaband. Kona hans hét því skemmtilega nafni Elisabeth Christ. En þeim var svo vísað úr landi árið 1904; yfirvöld í Þýskalandi höfðu þá skoðað mál Trumps og komist að því að hann hefði farið frá Þýskalandi til að sleppa undan bæði sköttum og herskyldu.

Trump og hin ófríska Elisabeth fóru þá aftur til Bandaríkjanna og settust að í Queens-hverfinu í New York. Þýskalandsdvölin hafði étið upp stóran hluta af því fé sem Trump hafði önglað saman með því að halda úti vændiskonum í gullæðinu. Hann gerðist nú aftur rakari en fór síðan að fást svolítið við fasteignakaup og sölu í Queens í New York. Drykkjuskapur var þá farinn að há honum og hann dó svo í spænsku veikinni árið 1918, 49 ára gamall.

Þegar Frederick Trump dó höfðu hann og Elisabeth eignast tvo syni, Frank, sem var 13 ára, og John, sem var 11 ára. Elisabeth hélt nú áfram fasteignaviðskiptum eiginmannsins sáluga og reyndist forkur í bisness. Það var í rauninni hún sem kom fótum undir fjölskylduna fjárhagslega.

Þegar synir hennar urðu myndugir tóku þeir smátt og smátt við rekstrinum, en fljótlega kom í ljós að þeir áttu ekki skap saman á þessu sviði. Frank keypti því John út úr fyrirtækinu, en sá síðarnefndi gerðist rafmagnsfræðingur og eðlisfræðingur og var víst býsna merkilegur á sínu sviði.

John Trump gerði til dæmis ýmsar uppgötvanir sem skiptu verulegu máli í þróun röntgentækni, ratsjár og þess háttar. En Frank Trump reyndist hins vegar eins og fiskur í vatni í fasteignaviðskiptum og auðgaðist stórlega eftir að hann tók við fjölskyldufyrirtækinu af móður sinni og bróður.

Á fjórða áratugnum var hann búinn að reisa og kaupa mörg fjölbýlishús í Queens og rakaði inn leigutekjum. Þegar leið á seinni heimsstyrjöldina var reyndar svo komið að Trump þrætti fyrir þýskan uppruna sinn, heldur sagði Fred Trump ævinlega að hann væri ættaður frá Svíþjóð. Ástæðan fyrir þessari lygi var einfaldlega sú að í húsum Trumps bjuggu margir leigendur af gyðingaættum og hann óttaðist að þeir myndu stökkva burt ef þeir vissu að leigusali þeirra væri sonur þýsks innflytjanda.

Það var þessi Fred Trump sem eignaðist árið 1946 soninn Donald, sem nú er að gera allt vitlaust í Bandaríkjunum.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ja hérna, þetta verður að teljast býsna ævintýralegt og tilefni að sögu til næsta bæjar!
    0
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar