Flækjusagan

„Við brenndum, drápum, lögðum allt í rúst“

Frakkar fóru fram með hrottaskap og grimmd í Alsír. Skiptir það máli á vorum dögum?
Hlustaðu · brot17:20 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.908 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Frakkar leggja Alsír undir sig

Við brenndum, við drápum, við lögðum allt í rúst.

Frakkar fóru fram með sannkölluðum hrottaskap og grimmd í Alsír. En skiptir það máli á vorum dögum?

„Þannig, kæri vinur, verðum við að heyja þetta stríð. Við verðum að drepa alla karlmenn sem náð hafa 15 ára aldri og hirða konur þeirra og börn. Í einu orði sagt skulum við útrýma öllum þeim sem ekki skríða fyrir fótum okkar eins og hundar.“ Þessi ofangreindi texti er ekki úr tölvupósti sem njósnastofnanir nútímans hafa fiskað upp úr ljósvakanum, úr skeytasendingum milli meðlima Íslamska ríkisins, eins og mætti kannski ætla.

Þetta er sem sagt ekki til marks um viðurstyggilegt hugarfar sem fylgi íslamstrú. Þetta var skrifað af rammkaþólskum manni, Lúsíen nokkrum dög Montagnía, og hann var ofursti í franska hernum. Þeir sem hann taldi að þyrfti svo nauðsynlega að drepa voru íbúar í Alsír árið 1843.

Sú grein sem hér fer á eftir var skrifuð í lok nóvember árið 2015. Þá höfðu nýlega átt sér stað hræðileg hryðjuverk í París í Frakklandi og í ljós kom að þar voru að verki íslamskir hryðjuverkamenn sem töldu sig vera að framfylgja boðum hins svonefnda Íslamska ríkis.

Eins og oft bæði fyrr og síðar kom í ljós að hluti hryðjuverkamannanna átti sér uppruna eða ættir að telja til Alsír. Af því tilefni fór ég þá að kanna sögu Frakklands og Alsír. Tæp 200 ár eru nú liðin síðan Frakkar gerðu tilefnislausa innrás í Alsír og hófu það stríð sem Montagnía háði af svo mikilli áfergju.

Af orðum hans, sem allt eins gætu verið höfð eftir mönnum Íslamska ríkisins á vorum dögum, má til dæmis sjá að það eru þó ekki trúarbrögð sem slík sem blása mönnum í brjóst þá grimmd sem í orðbragðinu birtist. Montagnía var að sjálfsögðu, eins og ég sagði, virðulegur kristinn og kaþólskur maður.

Það tók Frakka mörg ár að brjóta Alsíringa undir sig og þeir sýndu mikla hörku. Montagnía skrifaði til dæmis líka: „Við brenndum, við drápum, við lögðum allt í rúst. Við eltum þá uppi, hvort sem þá var að finna, hrifsuðum konur þeirra, börn, búfénað. Við höldum nokkrum kvennanna í gíslingu en skiptum á hinum fyrir hross og afganginn seljum við á uppboði eins og múlasna.“

Þessir Alsíringar höfðu þó ekkert til saka unnið nema í hæsta lagi að reyna að verja land sitt fyrir innrásarher Frakka, sem hafði tekið land í Alsír upphaflega árið 1830.

Eftir að hafa brotið alla andstöðu á bak aftur beittu Frakkar sér svo fyrir miklu landnámi Evrópubúa í Alsír. Alsíringar sjálfir voru sviptir löndum sínum svo Evrópumennirnir kæmu í staðinn. Þessir Evrópubúar voru seinna kallaðir svartfætlingar eða pieds-noirs, af óljósum ástæðum.

Upphaflega voru þeir fyrst og fremst franskir, en seinna komu Spánverjar, Ítalir, Grikkir, Maltverjar og fleiri Evrópubúar til sögunnar. Til svartfætlinga töldust einnig Gyðingar, en þeir höfðu raunar verið búsettir í Alsír lengi og, satt að segja, fallið ágætlega inn í samfélagið.

Þótt alls ekki allir svartfætlingar hafi verið vel stæðir þá má segja að þeir hafi verið svokölluð yfirstétt í Alsír, ekki ósvipað og hvítir menn í Suður-Afríku á tímum aðskilnaðarstefnunnar.

Frönsk yfirvöld kúguðu Alsíringa mjög markvisst á ýmsan hátt, skattpíndu þá og neituðu þeim um pólitísk réttindi sem smátt og smátt voru færð svartfætlingum. Frakkar lögðu til dæmis niður skóla Alsíringa sjálfra á 19. öld, svo læsi, sem hafði verið mjög almennt, hrundi niður úr öllu valdi. Í kringum aldamótin komu Frakkar hins vegar upp nýju menntakerfi þar sem áhersla var lögð á að kenna Alsíringum frönsku og einleiða...

Franska menningu meðal þeirra. Þannig hugðust þeir smátt og smátt laga alsírsku þjóðina, eða réttara sagt tiltekinn minnihluta hennar, að Frökkum. Þessi hópur var kallaður évolués og svo kaldhæðnislega vildi til að þeir og afkomendur þeirra urðu einmitt með tímanum helstu forystumenn sjálfstæðisbaráttu þeirra gegn Frökkum, sem hófst í Alsír þegar nokkuð var liðið á 20. öldina og óx mjög fiskur um hrygg á fjórða áratugnum, og ekki síst í síðari heimsstyrjöldinni.

Sjálfstæðisstríðið hefst

Á hinn bóginn sýndu sveitir Alsíringa, sem voru teknir í franska herinn, Frakklandi oft og tíðum alveg ótrúlegt trygglyndi. Alsíringar börðust með Frökkum í stríðinu við Þjóðverja árið 1870 og síðan í báðum heimsstyrjöldunum á 20. öld. Meira að segja þegar sjálfstæðisstríð Alsíringa braust út voru þessar hersveitir oftar en ekki tryggar Frökkum. Þá gengu þessir alsírsku hermenn undir nafninu harkísar.

Eftir heimsstyrjöldina síðari mátti flestum vera ljóst að nýlenduveldi evrópsku stórveldanna voru á fallanda fæti. Í sumum tilfellum viðurkenndu stórveldin greiðlega og veittu nýlendunum sjálfstæði fremur fyrirhafnarlítið, en í sumum tilfellum þurfti blóðug stríð. Svo var því miður, og ekki síst í tilfelli Alsír. Frakkar sýndu engin merki þess að ætla að veita athygli æ háværari sjálfstæðiskröfum Alsíringa og þá fóru baráttusamtök þeirra, FLN, að safna vopnum.

Alsírstríð hófst svo á allra heilagra messu, 1. nóvember 1954, þegar skæruliðasveitir FLN gerðu 30 samræmdar árásir á margvísleg skotmörk. Sjö manns létu lífið og voru fimm þeirra af frönskum uppruna. Jafnframt voru birtar heitstrengingar frá FLN um að nú væri hafin barátta sem ekki yrði látin niður falla fyrr en Frakkar væru allir á burt frá landinu. Franska ríkisstjórnin brást mjög hart við.

Frakkar voru nýbúnir að gefa nýlendur sínar í Suðaustur-Asíu upp á bátinn eftir að hafa tapað stríði við Víetnama og þeir ætluðu sér ekki að missa Alsír úr höndunum líka. Því var lýst yfir að Alsír væri óaðskiljanlegur hluti Frakklands og ekki kæmi til nokkurra mála að slíta sambandi milli landanna. Næstu átta árin geisaði svo grimmilegt skæruliðastríð í landinu.

Frakkar höfðu yfirburði í mannafla og búnaði og smátt og smátt náðu þeir að þjarma mjög illilega að FLN og forystusamtökunum. En þá fengu Frakkar að reyna það sem alltaf verður á endanum reynsla þeirra sem reyna að berjast við skæruliðahreyfingu sem nýtur stuðnings almennings. FLN var eins og skrímslið Medúsa úr grískum goðsögum: um leið og Frakkar töldu sig vera búnir að höggva haus skrímslisins af, þá spruttu upp tveir nýir hausar í staðinn.

Og þannig, með öllum sínum hernaði, gerðu Frakkar á endanum ekki annað en að efla stuðning Alsíringa við FLN og um leið vekja æ meiri andstöðu við þennan stríðsrekstur heima fyrir. Margir Frakkar voru að vísu sammála því að Alsír hefði verið svo lengi undir franskri stjórn og þar væru svo margir íbúar af frönsku eða evrópsku þjóðerni að það væri mesta synd að veita landinu sjálfstæði. En með tímanum jókst þó stuðningur við Alsíringa, ekki síst meðal menntamanna sem höfðu mikil áhrif í Frakklandi.

Rithöfundurinn frægi Albert Camus lenti þar milli steins og sleggju. Nóbelshöfundurinn hafði samúð með málstað Alsíringa en tilheyrði sjálfur svartfætlingum, enda fæddur í Alsír, og hann reyndi lengi að tala fyrir einhvers konar millibilslausn sem fæli í sér sjálfstjórn Alsírs en þó ekki fullt sjálfstæði. En eftir því sem stríðið dróst á langinn kom æ betur í ljós að einhver millibilslausn kæmi alls ekki til mála.

Stríðsreksturinn varð á endanum tilefni svo mikilla vandræða í Frakklandi að hið svonefnda fjórða lýðveldi féll árið 1958. Af því að stjórnvöld voru þar engan veginn þess umkomin að reka þetta stríð, þá tók…

Stríðslok og hefndaraðgerðir

Við fimmta lýðveldið, en aukið vald forsetaembættisins átti þá að auðvelda stjórnvöldum að leiða stríðið til lykta. Forsetinn var sjálfur hershöfðingi og framan af ætlaði hann sannarlega ekki að veita Alsír sjálfstæði.

Franski herinn vann mikil grimmdarverk í Alsír og þegar 30.000 Alsíringar í París fóru í mótmælagöngu í október 1961 lét lögreglustjóri borgarinnar skjóta á gönguna. Þar létu líklega 200 manns lífið. En FLN stóð líka fyrir viðbjóðslegum hryðjuverkum.

Það má nefna að í júlí 1962 var ráðist að svarta fætlingum í Oran og þúsundir manna týndu lífi í skelfilegu blóðbaði. Þá var þó séð fyrir endann á stríðinu. En þegar FLN hóf hryðjuverk í Frakklandi hafði de Gaulle ákveðið að nú væri komið nóg og hafið friðarsamninga við Alsíringa.

Þeir gengu ekki beinlínis hratt fyrir sig og mættu reyndar gífurlegri mótspyrnu innan franska hersins. Franskir herforingjar hófu sjálfir hryðjuverk í Frakklandi og stóðu fyrir morðtilræði gegn de Gaulle, en allt kom fyrir ekki. Stríðsreksturinn í Alsír naut ekki lengur stuðnings frönsku þjóðarinnar.

Fréttir um mjög umfangsmiklar pyntingar á föngum, sem franski herinn og leyniþjónustan höfðu stundað, vöktu til dæmis sannkallaðan viðbjóð í Frakklandi og víðar. Það var því árið 1962 sem stríðinu lauk og Alsír hlaut sjálfstæði.

Tæp milljón svarta fætlinga flúði þá frá Alsír til að forðast hefndaraðgerðir FLN og hinna nýju stjórnvalda í landinu. Frakkar reyndu að taka við þeim öllum, þótt lítt undirbúnir væru. Á hinn bóginn skeyttu Frakkar lítt eða ekkert um harkísana, sem höfðu barist með þeim gegn Alsíringum, löndum sínum.

De Gaulle beitti sér meira að segja sérstaklega gegn því að harkísarnir fengju að flytjast til Frakklands. Um 90.000 harkísar komust engu að síður til Frakklands, en talið er að allt að 150.000 hafi týnt lífi í ægilegum hefndaraðgerðum FLN gegn harkísum, nú þegar þeir nutu ekki lengur verndar franska hersins.

Harkísum og ættingjum þeirra var til dæmis smalað út á jarðsprengjusvæði til að hreinsa þau, eins og kallað var. Einnig var vinsælt að drepa harkísa með því að neyða þá til að gleypa orður sem þeir höfðu fengið hjá frönskum yfirmönnum sínum í hernum.

Alsír eftir sjálfstæðið

Bæði Frakkland og Alsír voru lengi í sárum eftir þetta grimmilega stríð, þótt sár Frakka hafi reyndar fyrst og fremst verið á sálinni. Þeir áttu erfitt með að horfast í augu við hegðun stjórnvalda sinna og hers í Alsír og í áratugi var Alsírstríðið feimnismál í Frakklandi.

Í Alsír hefur gengið á ýmsu eftir að sjálfstæðið vannst. Landið var beinlínis í rúst, bæði eftir stríðsátökin og flótta svarta fætlinganna, sem höfðu hvað sem öðru leið verið driffjaðrir atvinnulífs í landinu. Ben Bella, leiðtogi FLN, varð forseti Alsír. Honum var svo steypt af stóli eftir tvö ár.

Aðrir einræðisherrar tóku þá við hver af öðrum og reyndu að byggja landið upp úr rústum stríðsins. Það gekk hægt, en í lok níunda áratugarins var reynt að endurreisa menntakerfi landsins. Þeir höfðu hins vegar breitt út bókstafstrú.

Í kosningunum 1991–1992 var einsýnt að íslamistaflokkur næði völdum. Þá voru sett neyðarlög og borgarastríð braust út. Það varð verulega grimmilegt og bæði íslamistar og hermenn stjórnvalda frömdu ægileg hryðjuverk.

Eftir tæpan áratug var þróttur íslamista þorrinn að mestu og borgarastríðið dó út. Abdelaziz Bouteflika hefur verið forseti Alsír frá 1999. Skrifaði ég í greininni frá 2015: Þar á að heita lýðræði, en það stendur nú varla undir nafni.

Þokkaleg kyrrð ríkir þó og lífskjör almennings eru yfirleitt viðunandi. Róstrin í kjölfar arabíska vorsins 2011 urðu ekki

Alsírskur uppruni í Frakklandi

Verulegar í Alsír. Stór hluti Frakka er nú af alsírsku bergi brotinn. Sumir telja að fimm til sex milljónir Frakka geti rakið ættir sínar til Alsír. Það þýðir að um er að ræða hátt í 10 prósent frönsku þjóðarinnar.

Framan af var einkum um að ræða afkomendur harkísanna, en fljótlega eftir að Alsír fékk sjálfstæði fóru venjulegir Alsíringar líka að streyma til Frakklands í atvinnuleit. Margir kusu að setjast að í landinu. Og hvað sem líður öllu frjálslyndi Frakka, víðsýni þeirra og upplýsingu, þá fór svo að fólk af alsírskum uppruna situr flest allt í lægri stigum fransks samfélags.

Aðeins einn Frakki af alsírskum ættum hefur orðið sannkölluð þjóðhetja í Frakklandi. Það er fótboltamaðurinn Zinedine Zidane, sem leiddi Frakka til heimsmeistaratitils í fótbolta árið 1998. En nú er að vísu kominn fram á sjónarsviðið annar og kannski ekki síðri fótboltamaður, sem er líka á góðri leið með að öðlast sess þjóðhetju í Frakklandi. Það er hinn ungi Kylian Mbappé, sem átti mestan þátt í að Frakkar urðu heimsmeistarar árið 2018.

En hann er líka af alsírskum ættum, því móðir hans er þaðan.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar