Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Tsar Bomba. Hér ætla ég að rifja upp að tilraunir með kjarnorkuvopn eru ekkert grín.
Hér ætla ég að rifja upp að tilraunir með kjarnorkuvopn voru sannarlega ekkert grín. Það var nokkru eftir dagmál mánudaginn 30. október 1961. Átt uppi í fjalli á Breiðholtsskaga milli Mjaðarlingsfjarðar og Laxafjarðar, nyrst í Noregi, var Klemetti Keskitalo einn á ferð. Það hafði frést af hreindýrstarfi sem var sagður illa særður eftir úlfa og hafði hrakist út á nesið.
Keskitalo hafði lagt af stað úr sömu byggðinni og þefaði fljótlega uppi slóð tarfsins, en var nú orðinn úrkula vonar um að finna hann á lífi. Fyrst dýrið var komið svona hátt upp í fjall var það bersýnilega viti sínu fjær og eflaust dauðvona. Blóðið varð sífellt dekkra í sporum tarfsins í snjónum þar á fjallinu.
Þá hrökk Keskitalo allt í einu í kút. Í norðaustri hafði skyndilega kviknað undarlegur ljósglampi niðri við sjóndeildarhring. Það var ekki orðið að fullu bjart, þó sólin ætti að heita komin upp og skini í suðaustrinu, en þessi glampi, hann var eitthvað allt annað. Já, eitthvað allt, allt annað en sólin. Keskitalo hafði aldrei áður séð svona skrýtna ljósagöngu á himninum og var hann þó kominn á sextugsaldur.
Þetta var eitthvað verulega ónáttúrlegt og Keskitalo stóð heillengi sem steinilostinn og rýndi út í fjarskann þar sem blossinn logaði enn. Og þá var allt í einu eins og eitthvað dökkt kæmi æðandi að honum. Hann fékk mikinn og snöggan vindsveip upp í fangið, svo hann hentist aftur á bak og féll loks um koll.
Niðri við minni Mjaðarlingsfjarðar, nánar tiltekið á Makareyju, þar sem heitir Kameyjaver, er eitt minnsta þorp heimsins, bara fáein hús sem sneru móti Íshafinu í norðvesturátt. Greta Jakobsen var á tákningsaldri, dóttir fiskimanns sem hafði farið í róður í bítið. Dætur fiskimanna var siður og heilagt að líta til sjávar til að gá hvort nokkuð væri óveður í aðsigi, og nú leit hún einmitt út um gluggann.
Og í norðvestur, þarna niðri við sjávarmál, bar minna á ljósbjarmanum sem Klemetti Keskitalo uppi í fjallinu var einmitt þá að furða sig á, svo Greta átti sér einskis ills von. Svona hefur rúðan sem hún horfði út um sundrast allt í einu og glerbrotin þyrlast yfir hana. Þykkur og þungur gustur ruddist inn í húsið, svo þar lék allt á reiðiskjálfi og það hitnaði merkjanlega í lofti.
Greta grenjaði hástöfum og beygði sig í keng, þótt hún væri svo heppin að hafa ekki skorist illa á glerbrotunum. Þannig hnipraði hún sig saman löngu eftir að þessi höggþungi gustur var farinn leiðar sinnar. Uppi í fjallinu á Breiðholtsskaga var Klemetti Keskitalo að skreiðast á fætur, en bjarminn var enn á sínum stað í fjarskanum, þótt hann væri kannski ekki alveg eins bjartur og áðan.
Það sem þarna hafði gerst árið 1961 var að íbúarnir nyrst í Noregi höfðu orðið óviljandi vitni að svakalegri sprengingu. Tilræðið átti sér stað yfir eyjunni Novaya Zemlya, sem var í þúsund kílómetra fjarlægð frá byggðunum í Norður-Noregi, þar sem rúður brotnuðu og fólk hentist til jarðar þegar höggbylgjan frá sprengingunni reið yfir. Ef slík sprengja hefði verið sprengd yfir Reykjavík, þá hefðu rúður brotnað í Glasgow í Skotlandi. Slík var fjarlægðin.
Haustið 1961 stóð kalda stríðið sem hæst og bæði Sovétríkin og Bandaríkin reiknuðu með að allsherjarkjarnorkustríð gæti fyrirvaralaust brotist út milli ríkjanna. Í slíku stríði fælist að
Þurrka sem allra flestar borgir andstæðinganna út í þeirri fánýtu von að hægt yrði að knýja óvininn til uppgjafar.
Sovétmenn sáu vitanlega í hendi sér að landafræðin var Bandaríkjamönnum hliðholl. Þá voru langdrægar eldflaugar sem báru kjarnorkusprengjur varla enn komnar til sögunnar, svo sprengjuflugvélar yrðu enn um sinn
það vopn sem Sovétmenn myndu helst notast við til að koma kjarnorkusprengjum að skotmörkum sínum í Bandaríkjunum.
Vélarnar yrðu að fljúga mjög langa vegalengd til að komast frá Sovétríkjunum inn yfir bandaríska grund og búast mætti við að meirihluti þeirra yrði skotinn niður á leiðinni. Bandaríski flugherinn var ekkert
lamb að leika sér við; kannski kæmust aðeins örfáar sprengjuflugvélar á leiðarenda.
Bandaríkjamenn gátu hins vegar komið sínum kjarnorkusprengjum fyrir í meðaldrægum eldflaugum og flugvélum sem hefðu aðsetur nálægt landamærum Sovétríkjanna og mjög erfitt yrði fyrir sovéska flugherinn að skjóta þær allar niður í
tæka tíð. Því var niðurstaða Sovétmanna að þeir yrðu að smíða risastórar sprengjur. Ef mjög fáar sprengjur næðu alla leið til Bandaríkjanna, þá yrðu þær að vera þeim mun stærri til að valda nægjanlega miklu tjóni
til að skjóta Bandaríkjunum verulegum skelk í bringu og jafnvel knýja þá til uppgjafar.
Sovétmenn ákváðu því rétt fyrir 1960 að smíða 100 megatonna vetnisprengju sem átti síðan að verða aðalvopnið í kjarnorkuvopnabúri þeirra. 100
megatonna vetnisprengja var engin smásprengja. Hún var hvorki meira né minna en 6.600 sinnum öflugri en sprengjan sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Hiroshima 15 árum fyrr.
Svo fóru Sovétmenn að ákveða að minnka aðeins við sig. Þeir voru ekki vissir um að þeir kynnu neitt með slík ógnarvopn að fara, því var ákveðið að smíða í bili aðeins 50 megatonna sprengju.
En sú var þó ekkert smásmíði. 50 megatonna sprengja yrði samt sem áður þrisvar sinnum öflugri en sterkasta kjarnorkusprengja sem Bandaríkjamenn höfðu nokkru sinni sprengt, en
það var hin svonefnda Castle Bravo-sprengja árið 1954. Sú var 15 megatonn. Hin 50 megatonna sprengja sem Sovétmenn smíðuðu að lokum var
8 metra löng og 2 metra breið þegar hún var tilbúin og hún vó 27 tonn, hvorki meira né minna. Hún var svo stór að þegar henni var komið fyrir í Tupolev Tu-95-sprengjuflugvél, tegund sem á Vesturlöndum
var kölluð Björninn, þá þurfti að fjarlægja sprengjuhlera og eldsneytisgeima svo hún rúmaðist í sprengjuhólfi vélarinnar. Vélin var máluð með sérstakri hvítri ofurmálningu
sem átti að endurkasta sem mestu af þeim ógurlegu hitageislum sem myndu skella á vélinni þegar hvellurinn yrði.
Síðan var flogið með sprengjuna í rúmlega 10 kílómetra hæð og þar var henni sleppt í fallhlíf. Til að bera ferlíkið þurfti 800 kílóa fallhlíf sem sá um að vagga sprengjunni niður í 4,5 kílómetra
hæð yfir sjávarmáli. Tíminn sem það tók sprengjuna að svífa þessa vegalengd í fallhlífinni átti að duga flugmanni Bjarnarins, sem hét Dúrnovtsev, til þess að komast í 45 kílómetra fjarlægð, en það var
talið nægjanlegt til að hann og áhöfn Bjarnarins slyppu lifandi frá sprengingunni.
Litlu munaði reyndar að Dúrnovtsev færist þegar sprengjan sprakk. Þá elti höggbylgjan vélina uppi á svipstundu og Dúrnovtsev missti vald á vél sinni. Vélin hrapaði um
kílómetra á örskotsstundu, en eftir mikla baráttu náði Dúrnovtsev að rétta hana við um síðir og fljúga flugvélinni burt og lenda í her
Eldkúlan af sprengingunni varð 8 kílómetrar í þvermál. Allt sem lenti hefði innan þeirrar
Eldkúla hefði einfaldlega leyst upp í ægibálinu. Allar byggingar innan 35 kílómetra radíus hefðu eyðilagst, bara allar byggingar, sama hversu traustar og vel byggðar þær hefðu verið.
Hvert einasta hús í þorpinu Severny á Novaja Semlja hrundi, bæði steinhús og timburhús. Raunar splundruðust timburhús í mörg hundruð kílómetra fjarlægð undan höggbylgjunni sem kom í kjölfar sprengjunnar, og þök rifnuðu af steinhúsum í álíka fjarlægð. Hitinn sem myndaðist var svo mikill að hann hefði valdið þriðja gráðu bruna hjá fólki sem stóð í 100 kílómetra fjarlægð. Slík sprenging yfir Reykjavík hefði sem sé skaðbrennt fólk og sennilega gengið að dauðu austur á Hellu, og hvert einasta hús við Faxaflóa hefði hrunið.
Austur í Síberíu, í 700 kílómetra fjarlægð frá Novaja Semlja, þar sem sprengjan sprakk, sáu menn höggbylgjuna trylla hjá í andrúmsloftinu þennan mánudagsmorgun árið 1961. Og í þorpum í Norður-Noregi og Finnlandi, sem voru 1.000 kílómetra frá Mityushikha-flóa, brotnuðu rúður undan högginu. Ég bjó að vísu til persónurnar Klemetti í Kæskitala og Grete Jakobsen, en lýsingar á því sem henti þau eru samt sannverðugar og byggðar á lýsingum raunverulegra sjónarvotta að sprengingunni.
Sveppaskýið fræga sem fylgir kjarnorkusprengingum reis í 65 kílómetra hæð. Þá er komið hálfa leið út í geiminn. Niðri við jörð var skýið 40 kílómetrar í þvermál, en toppurinn var tæpir 100 kílómetrar á breidd og höggbylgjan fór þrisvar kringum jörðina áður en hún dó út.
Sovétmenn sprengdu aldrei framar neina kjarnorkusprengju í líkingu við Tsar Bomba. Þeir sögðu við sjálfa sig að vopnið væri, þrátt fyrir allt, ekki mjög praktískt, því stærstur hluti af hinni ógnarlegu orku sem losnaði hefði tæst út í loftið án þess að koma að gagni, eins og það var orðað: koma að gagni sem eyðileggingartól.
En í og með þá blöskraði sovéskum vísindamönnum og stjórnmálamönnum einfaldlega sá hryllilegi eyðingarmáttur sem þeir höfðu leyst úr læðingi. Einn af helstu sprengjusmiðunum var eðlisfræðingur að nafni Andrei Sakharov. Eftir að Tsar Bomba sprakk hætti hann störfum og hóf að berjast gegn þeirri ríkisstjórn sem hafði látið sér til hugar koma að smíða slíkt vopn.
Kannski eru menn núorðið svolítið farnir að gleyma hvað kjarnorkuvopn voru, hvað þau eru og hvað þau verða alltaf brjálæðisleg vopn, og því er hollt að rifja upp söguna af Tsar Bomba. Við skulum því leggja allt kapp á að kjarnorkutilraunir hefjist ekki á ný. Bara aldrei. Það er ekki, það er það, það er það.
Athugasemdir (1)