Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Furðulegasti herforingi sögunnar. Dýrlingar kaþólsku kirkjunnar eru margir og ólíkir, en ég ætlaði satt að segja varla að trúa mínum eigin augum þegar ég las orð sem höfðu verið eftir einum þeirra, og einum þeirra dáðustu dýrlinga í þokkabót.
Fyrir mitt leyti segi ég ykkur hreinskilnislega að ef ég væri ekki bundin yfir stríðinu við Englendinga hefði ég fyrir löngu haldið á ykkar fund. En ef ég kemst að því að þið hafið ekki bætt ráð ykkar, þá gæti svo farið að ég hætti að berjast við Englendinga og héldi gegn ykkur, svo að með sverðinu, ef ekki með öðrum ráðum, gæti ég upprætt falska og illa hjátrú ykkar og svipt ykkur annaðhvort villutrúnni eða sjálfu lífinu.
Sá sem hér mælir er franskur herforingi. Bréfið er skrifað árið 1430. Ég myndi reyna að leyna því enn um sinn fyrir hlustendum hver herforinginn væri, byggja upp hægt og hægt spennu og svipta svo hulunni af því þegar hæst bæri, ef mig grunaði ekki að þið áttuð ykkur á því fljótlega. Sá sem skrifaði var Jóhanna d’Arc, sem kölluð var. Þegar hún skrifaði svo digurbarkalega til leiðtoga mótmælendatrúflokks hússíta í Bæheimi eða Tékklandi, þá var hún átján ára gömul. Hún var átján ára þegar hún hótaði því að koma og annaðhvort svipta þá með valdi villutrú þeirra eða hreinlega drepa þá.
Jóhanna þessi ber sannarlega með heiðri og sóma nafnbótina óvenjulegasti herforingi sögunnar, og frægur þáttur hennar í Hundrað ára stríðinu við Englendinga hefur fært henni ævarandi samastað í hjörtum Frakka. Stundum er talað um að hún hafi bjargað Frakklandi, en það er eflaust töluvert ofmælt. En á örlagaríku augnabliki í hinu langvinna stríði Englands og Frakklands skiptu eldmóður hennar og sannfæring vissulega verulegu máli.
Hundrað ára stríðið snerist í stuttu máli um það hvort Englendingar fengju að halda víðáttumiklum lendum sínum í Frakklandi og yrðu jafnvel einhvers konar herrar landsins, eða hvort þeir yrðu reknir öfugir út í sjó og upp á sína þokuslungnu eyju. Ég ætla ekki að rekja gang þess stríðs meira.
En árið 1429 horfði mjög illa fyrir Frökkum. Franski kóngurinn Karl sjöundi var á hálfgerðum hrakhólum um leifarnar af ríki sínu og komst ekki einu sinni til að láta krýna sig formlega, því bandamenn Englendinga héldu borginni Reims, þar sem Frakkakóngar höfðu verið krýndir frá fornu fari. Og meðan höfuð Karls hafði ekki verið smurt og krýnt á réttan hátt, þá gat hann varla talist sannur konungur.
En þeir höfðu formsatriðin á hreinu á fimmtándu öld, ekki síður en nú á dögum. Engar líkur virtust á því að Karl kæmist til Reims. Þá kom til sögunnar Jóhanna. Hún var sautján ára sveitarstúlka af fátæku bændafólki. Frá tólf ára aldri hafði hún séð sýnir um, kvaðst sjá engla Drottins, og sýnirnar voru svo fagrar að hún grét þegar þær gufuðu upp. Í byrjun höfðu englarnir svo sem ekkert óvenjulegt fram að færa. Þeir brýndu bara fyrir henni að vera þæg og góð og hlýðin foreldrum sínum.
En nú breyttust sýnirnar. Fréttir höfðu borist um að Englendingar hefðu setið um borgina Orléans í miðju Frakklandi, og ef þeir næðu henni myndu þeir verða í yfirburðastöðu í stríðinu. En englar Guðs fylgdu bersýnilega Frökkum að málum í þessu stríði, þótt það hefði ekki gagnast Frökkum mikið fram að þessu. En nú höfðu englarnir sest á rökstóla um hvað gæti bjargað Frakklandi, og haukfrán augu englanna höfðu staðnæmst við guðhræddu og góðu sautján ára stúlkuna í sveitaþorpinu. Hún væri rétta manneskjan til að sigra vígvél enskra, sögðu englarnir hver við annan. Og svo var fulltrúi þeirra sendur á fund hennar og birtist henni sem fögur sýn á himni. Engillinn sagði stúlkunni að hlutverk hennar í lífinu væri að hrinda um...
… að sátri Englendinga um Orléans og leiða síðan Karl VII til krýningar í Reims. Það skipti Guð miklu máli að þetta tækist.
Og Jóhanna sannfærðist um að þetta væri vissulega hennar hlutverk og hófst þegar handa. Hún gerði sér reyndar vel grein fyrir því sjálf að þetta var fáránleg hugmynd. Hún var ekki bara kona í niðurnjörfuðu feðraveldinu, ekki bara táningur á tíð þegar ekki var hlustað á unga fólkið, heldur var hún líka alþýðustelpa á tímum hins hátimbraða lénskipulags, þegar bændafólk hafði nánast, og stundum alveg, stöðu án ánægðugra þræla.
Og hún hafði auðvitað aldrei svo mikið sem lyft sverði, svo vitnað sé í söguna alla í grein frá árinu 2008. En ótrúlegt nokk tókst Jóhönnu að telja öðrum trú um að Guð hefði vissulega ætlað henni hlutverk í stríðinu. Hún var ekki ofsatrúarmanneskja af þeirri gerð sem froðufellir og veltist um og æpir. Þvert á móti var hún kurteis, hæglát í framkomu, en hún talaði af algjörri sannfæringu.
Hún bar óhikað fram sitt furðulega erindi við hvern sem hún taldi geta hjálpað sér við að komast til hirðar Frakkakóngs, sem þá var í bænum Sínon. Hún var ómenntuð með öllu, ef undan er skilinn sá biblíufróðleikur sem hún hafði viðað að sér í litlu sveitakirkjunni sinni. En mál sitt flutti hún skörulega og lét engan reka sig á gat. Að lokum tókst henni að komast til Sínon. Karl kóngur vildi lítið á hana hlusta til að byrja með, en það er sagt að það hafi breyst þegar hún fór að hvísla að honum einhverjum þeim leyndarmálum sem enginn átti að vita um nema hann.
Fór þar sem fyrr að ef Guð hefur tvær leiðir til að opinbera vilja sinn, þá fer hann jafnan flóknari leiðina. Nema hvað, nú fékk Jóhanna aðsetur í herráði konungs og hvatti hann eindregið til að gera grimmilegar árásir á umsátursliðið við Orléans. Frakkar þyrftu ekki að óttast ósigur. Englarnir lofuðu sigri.
Um síðir tókst að mjaka frönsku hersveitunum úr sporunum og, til að gera langa sögu stutta, gekk allt eftir sem englarnir höfðu lofað Jóhönnu. Frakkar sigruðu við Orléans og her þeirra tókst síðan að brjótast til Reims, þar sem Karl var krýndur, og snerist nú stríðskæfan öll Frökkum í hag.
Nokkuð er misjafnt hvaða trú virðulegir sagnfræðingar hafa á þætti Jóhönnu. Hin gamla dýrðarsaga er sú að hún hafi ævinlega verið fremst í flokki, bæði við að skipuleggja slagsmálin og leiða þau til lykta. En aðrir telja að hún hafi fyrst og fremst verið eins konar lukkudýr Frakka, enda þekktu orðið allir hermennirnir þessa kornungu, einbeittu stúlku sem klæddist brynju og var girt sverði eins og þeir.
Hver sem sannleikurinn er, þá er ómótmælanlegt að eldmóður Jóhönnu átti sinn ríka þátt í að efla baráttugleði Frakka og skipti að því leyti að minnsta kosti umtalsverðu máli.
Ekki hlaut hún miklar þakkir Frakkakóngs fyrir frumkvæði sitt. Karl gerðist leiður á henni og vildi brátt fátt af henni vita. Hún flakkaði þá um með svolítinn herflokk og vildi berja á fleiri Englendingum. En í maí 1430 féll hún í hendur Búrgundum, en þeir voru bandamenn Englendinga. Karlkóngur hefði getað borgað fyrir hana lausnargjald, en hann sinnti því engu.
Búrgundarmenn seldu hana því til Englendinga, sem brenndu hana á báli fyrir villutrú ári seinna. Þá var hún 19 ára. Þetta gæti verið svo hrífandi saga, og oft er hún líka túlkuð á þann hátt: hin guðhrædda stúlka sem fylgir orðum englanna og bregður sér hvorki við sár né bana, svo uppfylla megi vilja Guðs almáttugs á himnum.
Enda er Jóhanna af Örk ekki bara helst að þjóðhetja Frakka. Hún er líka dýrlingur kaþólsku kirkjunnar. Það þýðir að kaþólskir menn mega og eiga að líta svo á að hún sé í sérstöku sambandi við Guð sakir guðhræðslu hennar og kærleika.
Um guðhræðsluna er engin leið að efast, en kærleikur Jóhönnu af Örk er meiri spurning. Það kemur svo berlega fram í bréfinu sem ég vitnaði til í upphafi og Jóhanna skrifaði hússítum í Bæheimi á…
Á þeim tíma þegar hún flakkaði um sveitir Frakklands með herflokkinn sinn og reyndi að finna Englendinga til að drepa. Harkan og einstrengingsskapurinn, grimmdin, já, grimmdin og þröngsýnin drjúpa nánast af hverju orði þessa dýrlings kaþólsku kirkjunnar.
Í bréfinu er enn fremur að lesa þessi skilaboð til hússíta: „Þið eruð blindir, en ekki vegna þess að ykkur skorti augu eða sjón. Trúið því virkilega að ykkur verði sleppt án refsingar, eða vitið ekki að ástæðan fyrir því að Guð stöðvar ekki ykkar ólöglega hátterni og leyfir ykkur að halda áfram á ykkar villuráfandi stigum
er sú að því meira sem þið veltið ykkur í synd og sora, því meiri þjáningar og refsingar er Guð að undirbúa fyrir ykkur?“ Hvað var eiginlega orðið af góðu stúlkunni í sveitinni?
Athugasemdir