Flækjusagan

Blóðið í jörð­inni við Panipat - Seinni hluti

Illugi Jökulsson fjallar um tvær orrustur á Indlandi en þessi þáttur er framhald síðasta þáttar.
Hlustaðu · brot12:38 ·
· Umsjón: Illugi Jökulsson

Handrit

1.379 orð · Smelltu á tíma til að hlusta þaðan

Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.

Panipat og fyrri orrustan

Blóðið í jörðinni við Panipat. Þessi pistill er framhald af þeim næsta á undan, sem ég las inn á og heitir „Heimsveldi í fjöllunum“. Þar sagði frá Durrani-keisara nokkrum í Afganistan, sem sótti suður á Indland og bjóst þar til orrustu við Maratha-veldi lítið, sem þar hafði lengi ráðið mestu.

Það búa svo margir á Indlandi að borgin Panipat telst bara vera smáborg. Hún er raunar í 151. sæti yfir indverskar borgir að mannfjölda nú á tímum. Samt búa þar rúmlega 300 þúsund manns, nærri jafnmargir og Íslendingar allir, nærri því. Þetta er lágreist borg sem upphaflega óx upp í kringum blómlegan teppaiðnað en þjónar einnig frjósömu landbúnaðarhéraði þar í kring.

Afurðir eru flestar fluttar suður á bóginn til ferlíksins Nýju Delí, höfuðborgar Indlands, ellefu milljóna manna skrímslis sem er í 100 kílómetra fjarlægð frá Panipat. Eina 120 kílómetra í norðaustri ber hins vegar Himalajafjöll við himin. Rætur Himalajafjalla eru álíka langt frá Panipat og Hvolsvöllur er frá Reykjavík.

Og því er ég að eyða tíma hér í að segja frá borginni Panipat? Jú, það vill svo til að við þessa kyrrlátu borg, þar sem yfirleitt ber nú fátt til tíðinda, hafa verið háðar tvær af sögulegustu orrustum á Indlandi. Gríðarlegir bardagar sem réðu málum á svæðinu í áratugi og jafnvel aldir á eftir. En það er til marks um hve lítið við á Vesturlöndum vitum um sögu Indlands að í bókum sem við skrifum um örlagaríkustu orrustur sögunnar er aldrei minnst á orrusturnar við Panipat.

Sú fyrri var háð á 16. öld, árið 1526. Þá hafði hreiðrað um sig í borginni 15 þúsund manna innrásarher norðan úr Mið-Asíu. Hann laut stjórn manns sem yfirleitt er kallaður Babúr og var af mongólskri ætt, fæddur í hinum fagra Ferganadal, sem nú tilheyrir Úsbekistan, Kirgistan og Tadsjikistan. Babúr taldi sig afkomanda hins mikla Tímúrs, sem hafði lagt undir sig Mið-Asíu og Miðausturlönd laust fyrir aldamótin 1400. Og Babúr þessi var staðráðinn í að feta í fótspor hans. Hann kom sér upp öflugum her en var þó að lokum hrakinn frá Mið-Asíu af bandalagi fjanda sinna og þá ákvað Babúr að leita fyrir sér suður á Indlandi.

Indland skiptist þá í nokkur sjálfstæð smáríki, ef smáríki er rétta orðið um landflæmi sem flest voru bæði víðáttumeiri og mun fjölmennari en stærstu ríki Evrópu, svo dæmi sé tekið. En í Indusdal og í norðurhluta Indlands, þar á meðal í Delí, hafði ríki Lódíættar verið við lýði í 70 ár. Lódíarnir röktu ættir sínar til Afganistan og voru múslimar. Babúr lagði nú allt undir þegar hann einsetti sér að knésetja Lódí-ríkið með einu hnitmiðuðu höggi.

Hann leiddi her sinn yfir afgönsku fjöllin og til Panipat og beið þar eftir gagnaðarás Íbrahíms Lódí soldáns, sem þótti djarfur herforingi en kannski helst til óþolinmóður. Og Lódí mætti brátt frá Delí til Panipat, þann 21. apríl 1526. Hann hafði þrisvar sinnum fjölmennari her en Babúr frá Ferganadal. Og sér í lagi skal vakin athygli á því að Lódí tefldi fram allt að 1.000 stríðsfílum, rétt eins og tíðkast hafði í indverskum herjum allt frá því Indverjar vörðust Alexander mikla nærri 2.000 árum fyrr.

En Babúr átti heldur betur svar við fílunum, því hann beitti stórskotaliði og byssuskyttum með framhlaðninga í meiri og markvissari mæli en nokkurn tíma hafði áður sést í veröldinni þarna.

Í upphafi 16. aldar hafði Evrópa nefnilega alls ekki neitt frumkvæði eða forystu í hernaðartækni. Ekkert Evrópuríki átti um þær mundir byssusveitir sem hefðu staðist skyttum Babúrs snúning, og þá ekki heldur Lódí eða fílum hans. Fljótlega eftir að orrustan hófst við Panipat brast flótti í liði Delímanna og riddaralið Babúrs rak svo flóttann.

Og riddaralið Babúrs rak svo flóttann og britjarliði Babúrs rak svo flóttann og britjar tjaði niður skelfingu losna dátanna á flóttanum.

Uppgangur og hnignun Mógúla

Meðal þeirra sem féllu var Ibrahim Lódí sjálfur og var nú ættarríkið á svipstundu úr sögunni. Með þessari einu orrustu við Panipat gerbreyttist saga svæðisins. Babúr varð fyrsti keisarinn í veldi mongóla, sem náði brátt yfir mestallt hið mikla flæmi Indlands og kallaðist í munni fólks þar Mógúlaríkið. Eru af því stórfenglegar sögur og var veldi Mógúla áreiðanlega hið öflugasta í sögunni á 17. öld.

Hefðu öflugustu Evrópuríkin ekki átt séns í stórskotalið mógúlakeisaranna þegar her þeirra var fjölmennastur. Á 18. öld fór hins vegar allt að breytast. Æ fleiri demantar söfnuðust í kórónur Mógúlanna en þróttur og frumkvæði í ríkinu fóru minnkandi. Stöðnunar fór að verða vart.

Á sama tíma óx þróttur Evrópuríkja í kjölfar aukinna siglinga og uppgangs kapítalismans, sem sleppti margvíslegum kvikindum lausum, bæði til góðs og ills. Alla öldina sljákkaði í hinum múslímsku Mógúlum en nýtt veldi hindúa teygði sig æ lengra út frá upphafsstöðvunum í Maratha á miðju Indlandi.

Svo var komið um miðja 18. öld að keisarar Mógúla í Delí voru kjarnaðir demantsskreytar silkihúfur en leiðtogar Maratha fóru í raun með stjórnina. Framgang sinn áttu þeir að hluta til að þakka andstöðunni við útlendinga sem farnir voru að krækja í æ fleiri spildur við sjóinn. Langt fram á öldina voru Maratha-menn engir eftirbátar Englendinga í sjóhernaði.

En einmitt þegar segja má að Indverjar hefðu þurft mest á öflugu og samstæðu Maratha-veldi að halda til að sporna gegn ásælni útlendinganna, þá fór allt í handaskolum. Nánast upp úr þurru reis nýtt og herskátt stríðsveldi í Afganistan upp úr miðri 18. öld og það var undir forystu Ahmad Shah Durranis.

Blóðbaðið við Panipat

14. janúar 1761 stefndi hann herjum sínum til úrslitaorrustu gegn Maratha-ríkinu. Líkt og fyrir 235 árum var enn barist við Panipat norður af Delí og þetta varð engin smáræðisorrusta. Kannski hafði annar eins mannfjöldi aldrei áður tekist á á einum degi í sögunni. Áttatíu þúsund börðust daglangt á frjósömu flatlendinu kringum Panipat.

Foringi Maratha-manna hafði verið tregur til að leggja til orrustu en menn hans grátbáðu um að fá að berjast. Afganíski herforinginn Durrani hafði rofið birgðaleiðir Maratha-manna mánuði fyrr og þeir voru að deyja úr hungri. Þá töldu þeir skárra að berjast og verða vopndauðir.

Og vissulega varð ótrúlega mörgum þeirra að ósk sinni. Eftir hræðilega stórskotahríð og hjaðningavíg fótgönguliðs réði riddaralið Afgana að lokum úrslitum og flótti brast á í liði Maratha-manna. Allt að 80.000 féllu í orrustunni sjálfri, en eftir að henni lauk tóku við ægileg fjöldamorð. Stríðsfangar af trú hindúa, sem höfðu gefist upp, voru hlekkjaðir saman og síðan afhausaðir í tugþúsundatali.

Margir þeirra fengu vatnssopa og lúku af hrísgrjónum áður en þeim var slátrað. Líklega átti það að vera til merkis um miskunnsemi. Hermenn Afgana gengu svo berserksgang langt inni í borginni Panipat. Börn allt niður í 14 ára voru hálshöggvin fyrir framan foreldra sína, konum var nauðgað í þúsundatali og ótal margar steyptu sér í brunna eða gengu með öðrum hætti fyrir ætternisstapa til að sleppa.

Við þau orðlög giskaði breskur blaðamaður, sem horfði á blóðbaðið, á að rúmlega 70.000 manns hefðu týnt lífi í fjöldamorðunum eftir orrustuna. Það er eins og nálega hver einasti kjaftur á troðfullum fótboltavelli á borð við Old Trafford, svo eitthvert dæmi sé nefnt, um 70.000 manns.

22.000 konur og börn voru svo reidd í þrældóm til Afganistans í bambuspúrum. Og þar var ekki að orðlengja: á leiðinni þangað norður í fjöllin hafa ótal margir hinna verðandi þræla látið lífið.

Ahmad Shah Durrani, sem orti fögur ástarljóð í frístundum, lét sér þetta vel líka. Og hér vitum við fátt um þennan hrylling.

Afleiðingar orrustunnar

Á endanum þornaði blóðið í moldinni við Panipat eða seig niður í svörðinn. Þessi seinni orrusta við Panipat varð afdrifarík, ekki síður en sú fyrri. Hið öfluga ríki Durrani í fjöllunum í Afganistan varð að vísu ekki langlíft og hörfaði fljótt frá Indlandi, en Maratha-ríkinu hafði nú verið greitt þungt högg, mjög þungt.

Þaðan í frá var ekkert ríki á Indlandi þessu umkomið að sporna gegn innrásum Breta, sem færðu sig æ meira upp á skaftið uns þeir réðu öllu Indlandi um miðja 19. öld.

En Bretar þóttust líka hafa sína lexíu að læra af orrustunum við Panipat. Þótt þeir næðu Indlandi gleymdu þeir ekki sögunni um innrásarherina tvo, sem komið höfðu að norðan úr afgönsku fjöllunum og sótt til Delí. Varnarlínan við Panipat hafði brugðist í bæði skiptin og ekki síst þess vegna gátu Bretar ekki látið Afganistan í friði á 19. öld, von á hverri stundu.

Rússar, sem brutu undir sig Mið-Asíu á 19. öld, höfðu líka tekið eftir því að um fjalladalina í Afganistan var leið suður til Indlands.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
    Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
    Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1
    Þjóðhættir #74 · 51:48 ·

    Þjóð­hættir á Vöku þjóð­list­há­tíð #1

    Reynsla ungs fólks í Evrópu
    Fréttir25:58 ·

    Reynsla ungs fólks í Evrópu

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku
    Menning22:28 ·

    Bubbi og Hrefna Lena ræða íslensku

    Pressa í borginni: Kappræður Heimildarinnar
    Áskrift
    Pressa · 1:39:47 ·

    Pressa í borg­inni: Kapp­ræður Heim­ild­ar­innar