Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
„Hei Hitler, mér datt svolítið í hug.“ Hér fjalla ég um múftann svonefnda í Jerúsalem, en Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir að hann hafi gefið Hitler hugmyndina að helförinni.
Mannkynssagan er spegill okkar. Ætli mér sé ekki óhætt að segja það? Jú, segjum það: skarpur spegill og skýr. En svo birtist fyrir einhverri viku í fréttunum dæmi, og það skelfilegt dæmi, um hve þessi spegill okkar er líka brothættur.
Maður kastaði grjóti í mannkynssöguna og hún hefði getað sundrast, og það var líka ætlun þess manns, því hann ætlaði beinlínis að nota eitt spegilbrot hennar sem vopn gegn andstæðingum sínum. Hann ætlaði að bregða hárbeittu brotinu á háls fjanda sinna og rista snöggt. Ég á að sjálfsögðu við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels.
Netanyahu var að flytja ávarp þar sem hann fann hjá sér þörf til að segja að Amin al-Husseini, múfti múslima í Jerúsalem, hefði gegnt lykilhlutverki við að hleypa af stokkunum lokalausn þýskra nasista á gyðingavandamálinu, eins og komist var að orði í eina tíð. Lokalausn á þessu vandamáli fólst, eins og menn vita, í því að drepa þá einfaldlega alla, þá gyðinga sem drepa átti, alla í milljónavís, alla þá sem Hitler og kumpánar hans komu höndum yfir.
Hingað til hefur verið talið að Hitler hafi verið fullfær um að koma morðverksmiðjum lokalausnarinnar sjálfur á koppinn, en Netanyahu hafnaði því alveg í ávarpi sínu. Hann sagði að þegar múftinn í Jerúsalem hefði flogið á fund Hitlers hafi nasistaforinginn alls ekki ætlað sér að drepa gyðinga, hann hafi bara ætlað að gera þá burturæka.
Þá segir Netanyahu að Amin al-Husseini hafi sagt við Hitler: „Ef þú rekur þá burt, þá koma þeir bara allir til Palestínu.“ Hitler spurði þá múftann, að sögn: „Hvað á ég þá að gera við þá?“ Og þá sagði múftinn: „Brenndu þá.“ Þótt sagan hjá Netanyahu hafi ekki orðið lengri í þessu tiltekna ávarpi var áheyrendum greinilega ætlað að draga þá ályktun að þarna hafi fyrst hvarflað að Adolf Hitler sú hugmynd að drepa einfaldlega alla gyðingana. Líklega hefði hún bara alls ekki dottið slíku ósvíni í hug ef Amin al-Husseini hefði ekki stungið henni að honum.
Rétt er að taka fram að fullyrðingar af þessu tagi eru ekki alveg nýjar af nálinni. Síonistar í Ísrael hafa löngum hamrað á heimsókn múftans til Hitlers, sem merki um mannvonsku hans og hatur í garð gyðinga. En enginn hefur áður gengið svo langt að nánast fría Hitler ábyrgð á upphafi helfararinnar en koma henni á herðar múftans í staðinn. Og væri sú kenning tekin gild sem Netanyahu bar fram í ávarpi sínu, þá væri í rauninni allur sá mannkynssöguspegill, sem bæði gyðingar og Ísraelsmenn, fyrr og síðar, hafa almennt speglað sig í eftir helförina, úr sögunni.
Tilgangur Netanyahus var augljós. Hann hatar Palestínumenn, en ég held að það sé alveg óhætt að segja það, og Netanyahu er svo umhugað um að sverta hlut þeirra í erjunum þrotlausu í Palestínu að hann er meira að segja til í að slaka á ábyrgð af Adolf Hitler, sem hingað til hefur nú ekki þótt góð latína hjá ísraelskum stjórnmálamönnum. En sannleikurinn er sá að sú útgáfa af samtali Hitlers og múftans sem Netanyahu flaggar nú á sér enga stoð í raunveruleikanum. Alls enga.
En hver var hann, þessi múfti, og hvað var hann að fást við á fundi Hitlers? Því þangað fór hann sannarlega. Jú, Amin al-Husseini fæddist árið 1897 í Jerúsalem og var af mikilli múfta- og virðingarfjölskyldu þar.
Múfti er eiginlega helsti lögspekingur múslima og eiginlega dómari á hverjum stað. Múftanum ber náttúrlega að úrskurða ævinlega í samræmi við boðorð íslams og því er þetta eins konar sambland af trúarlegum og veraldlegum leiðtoga. Eftir að Bretar tóku Palestínu af Tyrkjum í fyrri heimsstyrjöld réðu þeir hver gegndi múftastarfinu í Jerúsalem og þeir völdu Amin al-Husseini árið 19…
Árið 1921 var hann þar með aðeins 24 ára gamall helsti virðingarmaður íslamskra Palestínumanna.
Staða mála í Palestínu var þá mjög flókin, en hér skiptir aðeins máli að Amin al-Husseini hóf þegar harða baráttu gegn þeim sívaxandi innflutningi gyðinga til Palestínu sem byrjaði þegar síonismi kom til sögunnar laust fyrir 1900.
Bretar reyndu um tíma að fara bil beggja, en eftir því sem oftar skarst í odda milli araba og gyðinga varð stuðningur Breta við gyðinga eindregnari. Árið 1936 gerðu arabar blóðuga uppreisn sem Bretar bældu niður af mikilli hörku. Múftinn fór þá í útlegð.
Árið 1939 reyndu Bretar að friðmælast við arabíska íbúa í Palestínu og lögðu fram svokallaða hvítbók. En í henni fólst að miklar skorður yrðu settar við innflutningi gyðinga og þegar Palestína fengi sjálfstæði eftir vissan tíma yrðu gyðingum tryggð full réttindi, en ríkið yrði þó arabískt. Hugmyndum um tvö ríki araba og gyðinga var algjörlega sópað út af borðinu.
Þessu athyglisverða tilboði hafnaði múftinn, því þegar þarna var komið sögu vildi hann ekkert vita af gyðingum í Palestínu. Síonistar börðust reyndar líka ákaft gegn hvítbókinni fyrrnefndu, enda fannst þeim Bretar draga þar mjög taum araba.
Ef hugmyndir hvítbókarinnar hefðu verið samþykktar af Evrópuríkjum er ekkert víst að Ísraelsríki hefði orðið að veruleika í þeirri mynd sem raun varð árið 1948, þótt ógerningur sé reyndar að fullyrða um það, því heimsstyrjöldin og framgangur hennar breyttu ansi miklu.
Þar á meðal gerði múftinn Amin al-Husseini útaf við allan mögulegan trúverðugleika sinn eftir stríðið með óskoruðum stuðningi sínum við Hitler og stefnu Þýskalands meðan á styrjaldarárunum stóð. Því sá stuðningur var ótvíræður og fyrirvaralaus, það verður að viðurkennast, þótt hinni nýju söguskoðun Netanyahus hljóti menn samt að hafna algjörlega.
Þar á meðal var það að frumkvæði múftans sjálfs sem hann fór á fund Hitlers 28. nóvember 1941.
Erindi múftans var að biðja um opinberan stuðning Hitlers við sjálfstæði og frelsun Palestínu og að upprætt yrðu heimalönd gyðinga í Palestínu. Hitler neitaði að gefa slíka opinbera yfirlýsingu. Ástæðan sem hann gaf Amin al-Husseini upp var sú að hann vildi ekki styggja frönsku leppstjórnina sem lengi var kennd við Vichy.
Vichystjórnin réði málum í Frakklandi og mátti ekki heyra minnst á sjálfstæðistilburði araba. Ugglaust var hitt líka haft bak við eyrað, að hann ætlaði hersveitum sínum að ráðast yfir Kákasusfjöll og inn í Miðausturlönd. Þegar hakakrossinn væri farinn að blakta þar vildi hann ekki fá í bakið yfirlýsingar um stuðning við sjálfstæði araba, þótt Hitler fullyrti raunar við múftann að hann mætti gera ráð fyrir slíkum stuðningi þegar þar að kæmi.
Hitler masaði svo heilmikið á fundinum, að venju sinni, um nauðsyn þess að leysa gyðingavandamálið og yrðu Evrópuþjóðirnar fengnar til þess hver af annarri og síðan þjóðir í öðrum heimshlutum líka. Fullljóst var auðvitað um hvað hann var að tala og ekkert í vitnisburði manna af þessum fundi, ekki einu sinni vitnisburður múftans sjálfs, styður að hann hafi með einhverjum hætti stungið þeirri áður óþekktu hugmynd að Hitler að brenna gyðinga.
Múftinn var vissulega illmenni, það er alveg óhætt að segja það, en þegar fram í sótti vissi hann fullvel að Þjóðverjar voru að drepa gyðinga í milljónavís. Hann hitti til dæmis Heinrich Himmler, foringja SS, sumarið 1943, þar sem þetta var beinlínis rætt, og múftinn sagði opinberlega að múslimar ættu að fylgja fordæmi Þjóðverja með endanlegri lausn á gyðingavandamálinu.
Múftinn lagðist mjög eindregið gegn hugmyndum sem voru á kreiki seint í stríðinu um að 4.000 gyðingabörn frá Búlgaríu, Ungverjalandi og Rúmeníu fengju að sleppa undan útrýmingarbúðum með því að fá fararleyfi til Palestínu. Í Berlínarútvarpinu ávarpaði múftinn múslima 1. mars 1944.
Og fjögur og sagði meðal annars: „Arabar, rísið upp sem einn maður og krefjist heilagra réttinda ykkar. Drepið gyðinga hvar sem þið finnið þá. Það gleður Guð, söguna og trúna. Það bjargar heiðri ykkar. Guð sé með ykkur.“
Var sem sé eindreginn stuðningur múftans við Hitler, og stuðningsyfirlýsingin var ekki bara af hugmyndafræðilegum ástæðum. Hann þáði líka gífurlega peninga af Þjóðverjum á stríðsárunum. Samkvæmt Wikipedia nam upphæðin sem svarar 1,5 milljörðum króna á ári. Eftir að stríðinu lauk með sigri bandamanna reyndi múftinn að verða að nýju forsvarsmaður múslíma í Palestínu.
En stuðningur hans við Hitler olli því að eftir það tóku fáir mark á honum. Fram á þennan dag kunna múslímskir Palestínumenn illa við að gagnrýna múftann opinberlega, því þrátt fyrir allt sé litið á hann sem mikilvægan þátt í að efla þjóðarvitund Palestínumanna milli heimsstyrjaldanna tveggja. En minning hans er að eilífu flekkuð, því verður ekki neitað, með fundinum með Hitler.
Múftinn lést í útlegð árið 1974. En þótt múftinn hafi stutt Hitler dyggilega og verið hæstánægður með helförina, þá átti hann ekki hugmyndina að henni. Ömurleg tilraun Netanyahus hófst til að varpa sök af helförinni á hann og þar með palestínsku þjóðina. Er hins vegar til marks um að sagan er hættuleg og brothætt, og til þess að hún sé ekki notuð til áróðurs og illra verka þá verðum við að þekkja hana.
Við verðum að þekkja hana vel. Að æðsti valdamaður í ríki þar sem sagan skiptir jafn miklu máli og í Ísrael skuli geta hugsað sér að misnota hana svo vandlega, það sýnir að menn skulu alltaf vera á varðbergi. Það er…
Athugasemdir (1)