Unnið úr hljóðinu með talgreiningu og gervigreind og getur innihaldið villur.
Heimsveldi í fjöllunum? Nú ætla ég að fjalla um þá undarlegu tíma þegar Afganistan, af öllum ríkjum heimsins, gerði sig líklegt til að verða stórveldi í Asíu.
Í meira en 40 ár hef ég horft á fréttamyndir frá Afganistan og aldrei hef ég séð á þeim svo mikið sem stingandi strá. Gráfjöll, grjóthrúgur, í hæsta lagi leirlitað. Sums staðar á sendnum, skraufþurrum óhrjóstrum blæs út úr þessum myndum í augum okkar. Hvergi er neitt grænt, ekki einu sinni gulnað strá, hvergi.
Fólkið alltaf klætt í hólkvíð föt til að standa af sér gróðurvana vindinn. Þannig eru allar fréttamyndir frá Afganistan sem ég man eftir þessa fjóra áratugi og maður hugsar með sér: Um hvað er eiginlega verið að berjast? Eftir hverju er að sækjast í þessari hrjóstrugu eyðimörk?
Nú skilst mér að vísu að einhvers staðar sé gróður í Afganistan. Stundum berast fréttir af því hvernig valmúinn hafi brotið út í ár og hverju megi þá búast við á eiturlyfjamörkuðum heimsins næstu misserin, en það er líka eiginlega allt og sumt sem maður heyrir af atvinnulífi í landinu. Á fréttamyndunum er fátt að sjá nema þurrt, gróðursnautt, ríkt mikið og harðneskjulega karlmenn með misjafnlega gömul skotvopn.
Það kemur því óneitanlega svolítið á óvart þegar maður uppgötvar það: Fyrir ekki svo löngu munaði ekki nema því sem munaði að Afganistan yrði miðdepill í nýju heimsveldi og hefði kannski getað orðið miðpunktur sameiningar milli austurs og vesturs í Asíu. Svo eitthvað hlýtur að vera í þessu landi annað en ryk.
Nú verð ég að vísu að taka fram að orðalagið „fyrir ekki svo löngu“ er hér notað með mælikvarða eilífðarinnar í huga. Í rauninni eru 250 ár síðan, en saga Durraní-ríkisins sýnir, hvað sem öðru líður, að Afganistan getur leynt á sér í nútímasögunni, sem sé til upphafs.
Á 18. öld hafði Afganistan þá lengi verið fylgihnöttur öflugra ríkja í Persíu og rétt undir miðja öldina var hálfþrítugur piltur frá Afganistan kominn inn í hóp helstu lautinanta persakeisara. Persakeisari hét þá Nadir Shah og var mikill herforingi. Nadir Shah hafði meðal annars ráðist inn í Indland og haft þaðan mikið herfang og þar á meðal stærsta demant í heimi, Koh-i-Noor, sem Nadir kallaði svo fjall af birtu.
Nú gerðist það árið 1747 að Nadir Shah var myrtur af lífvörðum sínum í borginni Khorasan. Hann var orðinn óður af máttsýki og grimmari en boðlegt var. Upplausn varð í ríki hans þegar hann var drepinn og ungi lautinantinn frá Afganistan sá sér þann kost vænstan að koma sér heimleiðis, en hann hafði á brott með sér 4.000 úrvalshermenn sem voru hvort tveggja af afgönsku bergi brotnir.
Síðasta verk hans í Khorasan var að fjarlægja af líki Nadirs demantinn stóra. Þegar heim til Afganistan kom notaði pilturinn dýrð demantsins óspart til að fá ættarhöfðingja í fjalllendinu til að sverja sér hollustu. Pilturinn hét Ahmad Khan, en hann lýsti sig nú keisara í fjöllunum. Það fylgdi sögunni að þaðan í frá gæti hann, Ahmad Shah, kallað sig konung.
Fjallamennirnir í Afganistan höfðu allt frá dögum Alexanders mikla verið kunnir fyrir harðlyndi og hermennsku. Alexander þurfti að eyða meiri tíma í að brjóta undir sig fjallamennina í Afganistan en að sigra sjálfan persakóng með öllum hans liðsafla. Nú tókst Durrani að snúa hópi afganskra stríðsmanna frá því að verjast bara í sínum gróðurvana fjöllum, heldur tóku þeir nú að sækja.
Æ meira niður á slétturnar, bæði í vestri og austri. Í vestri náði Durrani stórum svæðum af Persum, sem vissu ekki sitt rjúkandi ráð eftir morðið á Nadir Shah.
Í Mið-Asíu spornaði afganski keisarinn gegn áhlaupum frá Kína, en mestum sögum fór af herferðum hans suður og austur á bóginn, inn á Indlandsskaga. Herferðir hans þangað hafa reynst, þegar að er gáð, eiga sinn þátt í því að nú, löngu síðar, skuli litið á Afganistan sem bitbein stórvelda sem aldrei skuli láta í friði, þótt þangað virðist heldur fátt að sækja af auðlindum.
Um miðja 18. öld voru liðin rétt rúm 200 ár frá því að Mongólar frá Úsbekistan höfðu ansi óvænt brotist yfir afgönsku fjöllin frá Mið-Asíu og náð völdum á Indlandi.
Í munni Indverja breyttust Mongólar í Mógúla, og á hátindi þeirra stóðu engir Mógúlar að sporði að glæsileik og dýrð. Sá fimmti þeirra var til dæmis Shah Jahan, sem hóf byggingu grafhýsisins Taj Mahal árið 1632 og skreytti sig líka mjög oft með demantinum Koh-i-Noor.
En þegar komið var fram á 18. öld var veldi Mógúla á Indlandi farið að hnigna. Kóngar í ríkinu Maratha þjörmuðu mjög að Mógúlum og höfðu brátt náð flestum héruðum þeirra á sitt vald, þar á meðal höfuðborginni í Delí.
Þegar Durrani hafði hrist saman og þjálfað nógu öflugan her til að treysta honum gegn Indverjum og kom svo askvaðandi ofan úr afgönsku fjöllunum með byssur sínar og sverð, þá voru það Maratha-menn sem hann fór að herja á.
Nú er frá því að segja, eins og þegar hefur verið gefið í skyn, að fjöllin í Afganistan eru ekki sérlega frjósöm og þar er ekki margt auðlinda. Durrani blés mönnum sínum eldmóði í brjóst með því að höfða til trúarinnar. Hann var múslimi, eins og flest allir Afganar, og hélt því fram að það væri íslam þóknanlegt að herja á og drepa hindúana sem á Indlandi bjuggu.
Durrani veifaði meira að segja hinu víðfræga hugtaki heilögu stríði gegn hindúum, og dugði það vel. En þótt Durrani hefði á merkilega skömmum tíma myndað öflugt ríki þar í fjöllunum og stefndi óhikað til stórveldis, þá var Afganistan einfaldlega ekki nógu ríkt svæði eða fjölmennt til að standa undir stórveldisdraum hans.
Herferðir Durranis og Afgana til Indlands voru því ekki síst ránsferðir. Hann náði að leggja undir sig svæði í Indusdals, sem nú heitir Pakistan, en virðist hafa verið beggja blands um það hvort hann langaði virkilega að leggja undir sig allt Indland, eins og hann virtist þó stundum færa í tal.
En Durrani var ekki aðeins herforingi og keisari yfir nýju og vaxandi stórveldi. Hann var líka skáld, og mér skilst að hljómur kvæða hans sé býsna góður á frummálinu.
Eitt kvæðanna orti hann til heimabyggðar sinnar, Afganistans, og þar kemur fram ást hans til fjallanna, hvað sem líður gróðurleysi þeirra. Honum finnst hlíðin fögur, þótt þar séu engir bleikir akrar.
Í kvæðinu segir: „Í blóðinu berum við ást okkar til þín. Unga fólkið ræður sér ekki vegna þín. Ég kem til þín og hjarta mitt fær ró. Fjarri þér bítur sorgin sig fasta við hjartað. Ég gleymi krúnunni sjálfri í Delí þegar ég minnist fjallatindanna í Afganistan. Ef ég verð að velja milli heimsins og þín, þá hika ég ekki við að kjósa mér hrjóstrugar eyðimerkur þínar.“
En meðan allt lék í lyndi var reyndar ekki útlit fyrir að Durrani, afganski keisarinn, þyrfti endilega að velja milli heimsins og þín. Ekki varð betur séð en honum gæti vel hlotnast hvort tveggja. Í blábyrjun ársins 1761 stefndi nefnilega í það. Þá nálgaðist hann Delí með gríðarmikinn her Afgana og bandamanna sinna, en Maratha-menn tefldu fram hverju mannsbarni sem þeir gátu til varnar.
Og við hina fornu borg Panipat, ekki allfjarri Delí, var blásið til einhverrar fjölmennustu og blóðugustu orrustu sögunnar, þótt við hér á Vesturlöndum þekkjum lítt eða ekki til hennar.
Þeir fáu sem hafa heyrt hennar getið telja hana frekar lítilsverða. En um þær mundir voru íbúar í breskum nýlendum í Norður-Ameríku að búa sig til sjálfstæðis. Þeir áttu ekki nema áratug
síðar eftir að heyja orrustur við Breta sem eru víðfrægar í sögunni. En í svonefndu frelsisstríði Bandaríkjanna áttust þó aldrei við nema örfá þúsund manns í hvert sinn, en við Panipat börðust
mörg hundruð þúsund manns. Úrslit orrustunnar myndu ekki aðeins ráða örlögum Marathaveldisins eða því hvort hið fátæka Afganistan kæmist til frambúðar í hóp öflugri stórvelda, heldur
fylgdust gráðug augu með gangi mála bæði í norðri og suðri. Suður á Indlandi voru Bretar nefnilega að búa sig undir að ganga á lagið ef fótunum yrði kippt undan Marathaveldinu. En
í norðri voru Rússar byrjaðir að velta fyrir sér hvort þröngar slóðir um hið afganska fjalllendi myndu á endanum færa þeim óendanleg auðæfi Indlands. Það var því mikið á úrslitum
einnar orrustu og eftirköstum hennar, en það er ekki tími til að segja frá því hér. Um það fjallar annar pistill.
Athugasemdir