Mynd: Bára Huld Beck

Tekjur Reykjavíkurborgar vegna fasteignaskatta aukast þrátt fyrir að skattprósentan lækki

Reykja­vík­ur­borg fékk rúm­lega tveimur millj­örðum krónum meira í inn­heimta fast­eigna­skatta í fyrra þrátt fyrir að hafa lækkað fast­eigna­gjöld á íbúð­ar­hús­næði um tíu pró­sent og aukið afslætti aldr­aðra og öryrkja.

Reykja­vík­ur­borg inn­heimti 18,4 millj­arða fast­eigna­skatta á síð­asta ári. Það var rúmum tveimur millj­örðum krónum meira en á árinu 2017. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi borg­ar­innar sem birtur var í gær.

Þrátt fyrir að hafa lækkað fast­eigna­skatta í fyrra þá hafa tekjur vegna þeirra, ann­ars vegar fast­eigna­gjöld vegna íbúðar- og atvinnu­hús­næðis og hins vegar lóða­leiga, auk­ist.

Ástæðan er ein­fald­lega sú að fast­eigna­verð í höf­uð­borg­inni hefur hækkað mikið og þar sem álagn­ingin er hlut­fall af fast­eigna­mati þá fjölgar krón­unum sem fast­eigna­eig­endur í Reykja­vík borga þrátt fyrir að skatt­pró­sentan hafi lækkað.

Tekjur Reykja­vík­ur­borgar af fast­eigna­sköttum voru þannig 11,6 millj­arðar króna árið 2013 og hafa því hækkað um 58,6 pró­sent frá því ári. Frá árs­byrjun 2013 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 77 pró­sent.

Jákvæður rekstur síðustu ár

Í árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að rekstr­ar­hagn­aður A-hluta hennar, þess hluta sem rek­inn er fyrir skatt­tekjur, hafi verið 4,7 millj­arðar króna í fyrra. Það er svipuð nið­ur­staða og var árið áður, þegar afkoman var jákvæð um tæpa fimm millj­arða króna. Árið 2016 var líka hagn­aður, upp á 2,6 millj­arða króna.

Árið 2015 var A-hlut­inn rek­inn með 13,6 millj­arða króna tapi. Ástæða þess var að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar borg­ar­innar juk­ust um 14,6 millj­arða króna á árinu 2015 vegna nýrra trygg­inga­fræði­legra for­sendna. Þær voru allar gjald­færðar á því ári.

Í fjár­hags­á­ætl­un Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2019 er gert ráð fyrir að borg­ar­sjóður skili 3,6 millj­arða afgangi á þessu ári.

Sveit­­ar­­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­­tekju­­stofna. Ann­­ars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­­ar­­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­­eigna­skatt.

Slík gjöld eru aðal­­­lega tvenns kon­­ar. Ann­­ars vegar er fast­­eigna­skattur (0,18 pró­­sent af fast­­eigna­mati á íbúð­­ar­hús­næði og 1,65 pró­­sent af fast­­eigna­mati á atvinn­u­hús­næði) og hins vegar lóð­­ar­­leiga (0,2 pró­sent af lóða­mati á íbúð­­ar­hús­næði og eitt pró­­sent af lóða­mati á atvinn­u­hús­næð­i). Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­­hirð­u­­gjald og gjald vegna end­­ur­vinnslu­­stöðva sem hluta af fast­­eigna­­gjöldum sín­­um.

Fast­eigna­skattur á íbúð­ar­hús­næði var lækk­aður um tíu pró­sent á árinu 2017 úr 0,20 í 0,18 pró­sent. Auk þess voru afslættir aldr­aðra og öryrkja af slíkum gjöldum aukn­ir. Í sátt­mála þess meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur sem tók við völdum í júní 2018 kom fram að til standi að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði á kjör­tíma­bil­inu úr 1,65 pró­sentum í 1,60 pró­sent. Það hefur þó enn ekki verið gert.

Lægri skattprósenta en meiri tekjur

Á síð­ustu árum hafa fast­eigna­skattar skipað æ stærri sess í þeim tekjum sem Reykja­vík­ur­borg aflar. Árið 2013 námu tekjur borg­ar­innar vegna þeirra 11,6 millj­örðum króna. Sú skatt­heimta skil­aði því 6,8 millj­örðum krónum minna í kass­ann það árið en í fyrra.

Á milli áranna 2017 og 2018 juk­ust tekjur vegna fast­eigna­skatta um tæp­lega 2,1 millj­arð króna. Það þýðir að hlut­falls­leg hækkun milli ára er 12,7 pró­sent þrátt fyrir að skatt­pró­sentan hafi lækkað.

Katrín Atla­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram til­lögu í borg­ar­stjórn síðla árs í fyrra um að lækka fast­eigna­skatta á atvinnu­hús­næði úr 1,65 pró­sent í 1,60 pró­sent. Sú til­laga var felld með atkvæðum borg­ar­full­trúa meiri­hlut­ans í Reykja­vík, sem sam­anstendur af Sam­fylk­ingar, Vinstri grænna, Pírata og Við­reisnar. Samkvæmt stefnu meiri­hlut­ans stendur þó til að lækka skatta á atvinnu­hús­næði niður í 1,6 pró­sent fyrir lok kjör­tíma­bils­ins, sem lýkur árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

reykjavíkurborg

Mest lesið undanfarið ár