Mynd: Birgir Þór Harðarson

Svona eru líkur frambjóðenda á því að komast í borgarstjórn

Kjarninn og Dr. Baldur Héð­ins­son birta nú í fyrsta sinn í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna þær líkur sem hver og einn fram­bjóð­andi í efstu sætum á listum flokk­anna í Reykja­vík eiga á að kom­ast að.

Kjarninn og Dr. Baldur Héð­ins­son fram­kvæma kosn­inga­spá í aðdrag­anda hverra kosn­inga. Það hefur verið gert frá því í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir fjórum árum. Frá sumr­inu 2016 hefur spáin verið keyrð fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2016, þing­kosn­ingar 2016 og 2017 og nú kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Líkt og greint var frá fyrr í dag þá benda mæl­ingar hennar til þess að meiri­hlut­inn í borg­inni haldi.

Samhliða er keyrð sæta­spá. Hún er fram­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­inga­spánni sem birt var 23. maí,. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­ar­full­trúum og þar sem sýnd­ar­kosn­ing­arnar eru allar með inn­byggða óvissu þá getur fylgið í hverri ein­stakri sýnd­ar­kosn­ingu stundum hærra og stundum lægra, þótt með­al­tal kosn­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­inga­spánni. Fyrr í dag birtum við lík­leg­ustu sæta­skipan borg­ar­full­trúa skipt niður á flokka. Nú birtum við í fyrsta sinn í aðdrag­anda þess­ara kosn­inga hverjar líkur hvers og eins fram­bjóð­anda í efstu sætum þeirra lista sem mæl­ast lík­legir til að ná inn manni í borg­ar­stjórn eru.

Líkur á sam­an­lögðum fjölda borg­ar­stjórn­ar­full­trúa
Borg­ar­full­trúarBCDFJKMPSV
>=220.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=130.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=120.000.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=110.000.000.000.000.000.000.000.000.020.00
>=100.000.000.000.000.000.000.000.000.120.00
>=90.000.000.020.000.000.000.000.000.440.00
>=80.000.000.150.000.000.000.000.000.820.00
>=70.000.000.530.000.000.000.000.000.980.00
>=60.000.000.890.000.000.000.000.001.000.00
>=50.000.000.990.000.000.000.000.001.000.00
>=40.000.001.000.000.000.000.000.021.000.01
>=30.000.041.000.000.000.000.040.261.000.14
>=20.040.341.000.030.090.000.340.771.000.61
>=10.490.831.000.450.570.190.830.981.000.95

Rauða strikið í töfl­unni hér að neðan er sláin sem þarf að kom­ast yfir.

Þeir borg­ar­full­trúar sem mæl­ast inni eins og er, alls 23 tals­ins, eru merktir með app­el­sínu­gulum þrí­hyrn­ing. Með því að skoða síð­ast kjörna mann hvers flokks sést til að mynda að Magnús Már Guð­munds­son, átt­undi maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á 82 pró­sent líkur á því að ná kjöri, sem eru prýði­legar líkur. Örn Þórð­ar­son, sjö­undi maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á hins vegar 52 pró­sent líkur á því að ná kjöri sem eru mun síðri líkur.

Af þeim sem mæl­ast inni er Ingvar Mar Jónsson fall­valt­astur en ein­ungis 49 pró­sent líkur eru á því að hann nái sæti í borg­ar­stjórn sam­kvæmt sæta­spánni. Það munar sára­litlu á honum og Kolbrúnu Bald­urs­dóttur (45 pró­sent), odd­vita Fólks flokks­ins, og Rögnu Sig­urð­ar­dóttur (44 pró­sent), níunda manni Sam­fylk­ingar. Þar á eftir eru næstu menn inn þeir Pawel Bartoszek, annar maður Við­reisnar, og Baldur Borg­þórs­son, annar maður Mið­flokks­ins, en 34 pró­sent líkur eru á því að þeir nái inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár