Gamla Reykjavík gegn úthverfunum

Sitjandi meiri­hluti í borg­inni ásamt Viðreisn nýtur fylgis um 60 pró­sent kjós­enda og sækir miklu meira fylgi í gömlu hverfi borg­ar­innar en til þeirra nýju. Flokk­arnir í minni­hluta og aðrir með sam­bæri­legar áherslur mæl­ast með tæp­lega 40 pró­sent fylgi.

Sitjandi meiri­hluti í borg­inni ásamt Viðreisn nýtur fylgis um 60 pró­sent kjós­enda og sækir miklu meira fylgi í gömlu hverfi borg­ar­innar en til þeirra nýju. Flokk­arnir í minni­hluta og aðrir með sam­bæri­legar áherslur mæl­ast með tæp­lega 40 pró­sent fylgi og njóta mest stuðn­ings í efri byggð­unum.

Ný skoð­ana­könnun sem Félags­vís­inda­stofnun vann fyrir Morg­un­blaðið um fylgi flokka í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar stað­festir mjög skýra víg­línu sem dreg­ist hefur upp í höf­uð­borg­inni. Og hefur verið nær óhreyfð til staðar frá því í kosn­ing­unum 2014. Sú víg­lína er dregin á milli úthverfa borg­ar­innar, hinna svoköll­uðu efri byggða, og þétt­ari hluta hennar, því sem kalla má eldri hverfi Reykja­vík­ur­borgar. Tvær fylk­ingar stjórn­mála­flokka hafa orðið til sem sækja aðal­lega fylgi sitt til sitt hvorar hliðar þeirrar víg­línu.

Fylgið fær­ist á milli flokka sem til­heyra fylk­ingum með sam­bæri­legar áherslur í borg­ar­málum en lítið sem engin færsla er á fylgi milli fylk­inga. Þannig er Sam­fylk­ing nú orðin stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík og mælist með nán­ast sama fylgi og hún fékk í kosn­ing­unum 2014, eða 31,7 pró­sent. Það við­bót­ar­fylgi virð­ist vera að færa sig frá þeim flokkum sem sitja með Sam­fylk­ing­unni í meiri­hluta í borg­inni í dag. Hún hefur til að mynda tekið til sín um helm­ing þeirra sem kusu Bjarta fram­tíð fyrir fjórum árum, þegar sá flokkur fékk 15,6 pró­sent atkvæða, og fylgi sem verið hefur hjá Vinstri grænum und­an­farin miss­eri.

Í hinni fylk­ing­unni er turn­inn Sjálf­stæð­is­flokkur. Hann mælist með 27,4 pró­sent fylgi og sam­kvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar er ein­fald­lega um kjarna­fylgi flokks­ins að ræða. Hann missir lít­inn hluta kjós­enda frá síð­ustu kosn­ingum yfir til Við­reisnar ann­ars vegar og Mið­flokks­ins hins vegar en að öðru leyti virð­ast flestir sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn 2014 ætla að gera það aftur.

Und­an­farin fjögur ár hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verið í minni­hluta með Fram­sókn­ar­flokknum sem bætti óvænt við sig tölu­verðu fylgi á loka­metrum síð­ustu kosn­inga og náði inn tveimur borg­ar­full­trúum. Samkvæmt könn­unum nú bendir fátt til þess að Framsókn nái inn manni og að þeir sem kusu flokk­inn síð­ast munu að mestu kjósa Mið­flokk­inn eða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í kom­andi kosn­ingum.

Þá er ljóst að langstærstur hluti kjós­enda vill fá annan hvorn leið­toga turn­anna tveggja í Reykja­vík, Sam­fylk­ingar eða Sjálf­stæð­is­flokks, sem næsta borg­ar­stjóra. Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar kom fram að 464 pró­sent aðspurðra sem tók afstöðu vildu Dag. B. Egg­erts­son áfram í emb­ætti borg­ar­stjóra en tæp­lega 29,5 pró­sent aðspurðra vildu Eyþór Arnalds í borg­ar­stjóra­stól­inn. Næsti odd­viti á lista var Vigdís Hauks­dóttir, sem leiðir Mið­flokk­inn, með 7,1 pró­sent stuðn­ing í emb­ættið.

Snjókornin bæta við sig

Líkt og kom fram í frétta­skýr­ingu Kjarnans í febr­úar þá má segja að önnur fylk­ingin, sú sem er nú við völd, sam­an­standi af flokkum sem skil­greina sig annað hvort sem frjáls­lynda eða til vinstri. Þeir hafa lagt hafa áherslu á þétt­ingu byggðar, auknar almenn­ings­sam­göngur á borð við Borg­ar­línu og greið­ari umferð fyrir hjólandi veg­far­endur, jafnt út frá lífs­gæða­sjón­ar­miðum sem umhverf­is­legum. Innan þessa hóps er það nokkuð almenn skoðun að Reykja­vík­ur­flug­völlur eigi að víkja úr Vatns­mýr­inni fyrir byggð. Fylk­ingin er með sterkar félags­legar áherslur sem end­ur­spegl­ast meðal ann­ars í útþenslu stjórn­kerf­is­ins og upp­kaupum á félags­legu hús­næði langt umfram það sem þekk­ist í nágranna­sveita­fé­lög­unum.

Lif Magneudóttir er oddviti Vinstri grænna í Reykjavík. Mynd: Vinstri græn
Lif Magneu­dóttir er odd­viti Vinstri grænna í Reykja­vík. Mynd: Vinstri græn

Þessi fylk­ing sam­anstendur nú af Sam­fylk­ingu, Vinstri grænum, Pírötum og Viðreisn, sem hefur fyllt inn að hluta í það tóma­rúm sem Björt fram­tíð skildi eftir sig. Þannig segj­ast 23,5 pró­sent þeirra sem kusu Bjarta fram­tíð síð­ast nú ætla að kjósa Viðreisn en ein­ungis 5,2 pró­sent þeirra sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn 2014 ætla að kjósa Viðreisn, þrátt fyrir að um klofn­ings­fram­boð úr Sjálf­stæð­is­flokknum sé að ræða. Það sýnir að áherslur Við­reisnar eru að höfða mun betur til ann­arra en þeirra sem hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík.

Þegar póli­tískir and­stæð­ingar þessa hóps vilja alhæfa um hann þá kalla þeir hann „góða fólkið“. Í Banda­ríkj­unum er sami hópur ítrekað kall­aður „snjó­korn“ (e. snowflakes) vegna meintrar við­kvæmni hans. Orða­til­tækið er tekið úr skáld­sög­unni Fight Club eftir Chuck Pala­hniuk og er notað á niðr­andi hátt um þá sem móðg­ast fyrir hönd ann­arra, telja sig sér­stak­ari en aðrir og eru ekki jafn harð­gerir og fyrri kyn­slóð­ir.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem birt var fyrir helgi mælist sam­an­lagt fylgi „snjó­korna-flokk­anna“ 59,5 pró­sent. Það er nán­ast saman fylgi og þeir flokkar sem nú mynda meiri­hluta í Reykja­vík: Sam­fylk­ing, Píratar, Björt fram­tíð og Vinstri græn, fengu í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2014. Þá fengu þeir flokkar 61,7 pró­sent atkvæða.

Ef gert er ráð fyrir því að Viðreisn muni taka stöðu Bjartrar fram­tíðar í stjórn­mála­mynstri borg­ar­innar, sem verður að telj­ast lík­legt í ljósi líkra póli­tískra áherslna flokk­anna tveggja og þeirri stað­reynd að fólk sem áður bauð fram undir merkjum Bjartrar fram­tíðar er nú á fram­boðs­lista Við­reisnar, þá virð­ist því mik­ill stöð­ug­leiki í fylg­inu. Í könnun sem Gallup gerði fyrir Við­skipta­blaðið gerði sum­arið 2017 mæld­ist það 61,4 pró­sent. Í könnun sem Gallup gerði fyrir sama miðil í byrjun febr­úar 2018 mæld­ist fylgið 61,1 pró­sent. Í mars var það 59,9 pró­sent Og nú, líkt og áður sagði, tæp­lega 59,5 pró­sent.

Vigdís Hauksdóttir ætlar sér að verða næsti borgarstjóri. Af þeim sem tóku afstöðu í könnun Félagsvísindastofnunnar vildu 7,1 prósent fá hana í starfið.
Vigdís Hauks­dóttir ætlar sér að verða næsti borg­ar­stjóri. Af þeim sem tóku afstöðu í könnun Félags­vís­inda­stofn­unnar vildu 7,1 pró­sent fá hana í starfið.

Í dag er sitj­andi meiri­hluti í Reykja­vík­ur­borg með níu af 15 borg­ar­full­trúum. Þeim verður fjölgað í 23 eftir næstu kosn­ingar og sam­kvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar munu Sam­fylk­ingin, Vinstri græn, Píratar og Viðreisn fá 15 þeirra. Raunar er staðan þannig að Sam­fylk­ing gæti myndað þriggja flokka meiri­hluta með ein­hverjum hinna tveggja flokk­anna ef vilji væri fyrir því.

Fylking föst með undir 40 prósent fylgi

Hin fylk­ingin, sem sam­anstendur af íhalds­sam­ari flokkum og nýjum flokkum sem náðu inn á þing í síð­ustu þing­kosn­ingum, hefur lagt meg­in­á­herslu á betra umferð­ar­flæði þar sem einka­bíll­inn er í fyr­ir­rúmi, bygg­ingu stór­tækra umferð­ar­mann­virkja á borð við mis­læg gatna­mót, frek­ari upp­bygg­ingu hús­næðis í útjaðri borg­ar­innar, straum­línu­lögun rekstrar, lækkun skulda og skatta. Þar er nokkuð almenn and­staða við það að Reykja­vík­ur­flug­völlur víki og Borg­ar­línu­verk­efnið er veru­lega tor­tryggt. Henni finnst að meg­in­á­herslan eigi að vera á að bæta grunn­þjón­ustu á borð við dag­vistun barna og betri umhirðu í borg­ar­land­inu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er óum­deil­an­lega stóra stoðin í þess­ari fylk­ingu. Henni til­heyra þó líka Mið­flokk­ur­inn, Flokkur fólks­ins og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Sam­an­lagt fylgi þeirra flokka úr þessu mengi sem náðu inn manni í kosn­ing­unum 2014 var 36,4 pró­sent. Í könnun Gallup fyrir Við­skipta­blaðið í mars mæld­ist það 39 pró­sent og í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar fyrir Morg­un­blaðið sem birt var fyrir helgi mæld­ist það 38,2 pró­sent.

Það að flokk­arnir sem skipta á milli sín fylg­inu séu nú fjórir í stað tveggja, og að nær algjör end­ur­nýjun hafi orðið á lista Sjálf­stæð­is­flokks með kjöri m.a. Eyþórs Arnalds sem leið­toga og upp­still­ingu Hildar Björns­dóttur í annað sæti list­ans, hefur litlu sem engu breytt um hverju flokk­arnir sópa til sín. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist t.d. nú 27,4 pró­sent sem er 1,7 pró­sentu­stigi meira en hann fékk í kosn­ing­unum 2014.

Samtals mælist þessi fylk­ing með átta borg­ar­full­trúa í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar. Þar af myndi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fá sjö en Mið­flokk­ur­inn, með Vigdísi Hauks­dóttur í broddi fylk­ingar, einn. Hvorki Framsókn né Flokkur fólks­ins næði inn full­trúa.

Vert er að taka fram að þegar hefur verið til­kynnt um fram­boð sem eru ekki farin að mæl­ast í könn­unum sem neinu skiptir. Það gæti þó breyst þegar líður að kosn­ingum. Annað þeirra er fram­boð Sós­í­alista­flokks Íslands, sem verður að telj­ast lík­legt að muni taka fylgi fram vinstri­flokkum ef vel gengur, og hitt er Höf­uð­borg­ar­list­ann sem til­kynnti um fram­boð seint í mars og erf­ið­ara er að stað­setja innan fylk­inga.

Mikill munur milli austurs og vesturs

Könnun Félags­vís­inda­stofn­unar stað­festir einnig til­finn­ingu sem hefur verið mjög sterk á meðal þeirra sem rýna í borg­ar­málin: að fylk­ing frjáls­lyndu miðju­flokk­anna og vinstri­flokka sæki fylgi sitt í „gömlu Reykja­vík“ en að íhalds­sam­ari flokkar njóti mun meiri stuðn­ings í úthverf­unum.

Í könn­un­inni kemur til að mynda fram að Sam­fylk­ingin njóti stuðn­ings 36-42,6 pró­sent kjós­enda í Vesturbæ, Hlíð­ar­hverfi, Laug­ar­dal og Miðborg. Í Graf­ar­holti, Úlf­arsár­dal og Kjal­ar­nes mælist stuðn­ingur við flokk­inn hins vegar 20- 22,3 pró­sent.

Að sama skapi nýtur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yfir­burð­ar­stuðn­ings á meðal íbúa í Graf­ar­vogi, Graf­ar­holti, Úlf­arsár­dal, Kjal­ar­nesi og Árbæ. Þar segj­ast 36-42,1 pró­sent ætla að kjósa flokk­inn. Í Vesturbæ ætla hins vegar ein­ungis 12,1 pró­sent að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn og 17,9 pró­sent í Hlíð­ar­hverfi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn mælist líka með mun meiri stuðn­ing í efri byggð­unum en í þétt­ari byggðum borg­ar­innar. Sem dæmi segj­ast 1,1 pró­sent íbúa Mið­borg­ar­innar ætla að kjósa Framsókn og 3,4 pró­sent Mið­flokk­inn. Í Graf­ar­holti, Úlf­arsár­dal og á Kjal­ar­nesi er fylgi Fram­sóknar hins vegar 6,8 pró­sent og Mið­flokks­ins 9,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið undanfarið ár