Hitnandi heimur versnandi fer

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins höfðu 188 hita­met verið slegin, þurrk­arnir í Evrópu í sumar voru þeir verstu í 500 ár og í Pakistan hafa að minnsta kosti 1.300 manns látið lífið vegna flóða.

Milli­ríkja­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) hefur það hlut­verk að taka saman upp­lýs­ingar um lofts­lags­breyt­ingar af manna­völd­um og upp­lýsa stjórn­völd um stöðu og afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga. Nefndin hefur bent á að nauð­syn­legt sé að halda hlýnun jarðar undir 1,5°C að með­al­tali fyrir árið 2100, miðað við með­al­hita­stig við upp­haf iðn­væð­ing­ar­innar, ann­ars muni það hafa skelfi­legar afleið­ingar. Ríki heims hafa, með und­ir­ritun á Par­ís­ar­sátt­mál­anum, skuld­bundið sig að ná þessu mark­miði. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hefur hins vegar ekki dreg­ist saman á und­an­förnum árum eins og vonir stóðu til og án taf­ar­lausra aðgerða er úti­lokað að stand­ist mark­mið um að halda hlýnun jarðar undir 1,5°C.

Ófullnægjandi loftslagsmarkmið

Rann­sóknir hafa sýnt fram á að ef öll ríki myndu stand­ast lofts­lags­mark­miðin sem þau sjálf hafa sett sér mun hlýnun jarðar þó ekki hald­ast undir 1,5°C. Sam­drátt­ur­inn í losun væri það lít­ill að hlýn­unin yrði að öllum lík­indum 2,4 gráður. Með öðrum orðum, lofts­lags­mark­mið ríkja eru langt frá því að vera nógu metn­að­ar­full til að stand­ast mark­mið Par­ís­ar­sátt­mál­ans. Hér er einnig um að ræða stórt ef, en flest ríki heims eru fjarri því að ná mark­miðum sem þau sjálf hafa sett sér.

Climate Action Tracker
Climate Action Tracker

Til að stand­ast mark­miðið um 1,5 gráðu hlýnun þarf heimslosun að drag­ast saman um 45 pró­sent fyrir árið 2030. Fátt bendir til að svo verði. Þvert á móti er áætlað að losun muni aukast um 14 pró­sent fyrir árið 2030. Þetta þýðir ein­fald­lega að mark­mið um að halda hlýnun jarðar undir 1,5 gráðu - fyrir árið 2100 - mun renna okkur úr greipum fyrir árið 2030.

Það er nokkuð ljóst að án taf­ar­lauss sam­dráttar í losun stefnir heim­byggðin í tveggja til þriggja gráðu hlýnun á innan við 80 árum og því við hæfi að fara yfir það hvernig slík fram­tíð lítur út.

„Enginn lifir við meðalhita jarðar“

Mik­il­vægt er að hafa í huga að þegar talað er um að jörðin muni hlýna um tvær eða þrjár gráður er um að ræða með­al­hlýnun. Raun­veru­leik­inn er sá að mis­mun­andi svæði jarð­ar­innar eru að hitna mis­mikið og mis­hratt. Líkt og lofts­lags­vís­inda­menn segja gjarnan: „Enginn lifir við með­al­hita jarðar.“ Frá árinu 2000 hefur til dæmis Norð­ur­heim­skautið hlýnað rúm­lega tvisvar sinnum hraðar en aðrir staðir á jörð­inni. Sval­barði er sá staður á jörð­inni þar sem hita­stig hefur hækkað hrað­ast. Síðan 1971 hefur hita­stigið hækkað um 4°C, en það er fimm sinnum hraðar en hnatt­ræn hlýnun. Ef ekk­ert breyt­ist er áætlað að hita­stigið í Longye­ar­byen, sem er stærsta byggðin á Sval­barða, muni hækka að með­al­tali um 10°C fyrir lok þess­ara aldar, með til­heyr­andi afleið­ingum á sam­fé­lagið.

Hitabylgjur eru orðnar tíðari, heitari og vara lengur

Þegar hita­bylgjan skall á í Englandi fyrr í sumar sagði Claire Nullis, tals­maður Alþjóða veð­ur­fræði­stof­unn­ar „Við höfum sagt það áður og við segjum það aft­ur: Vegna lofts­lags­breyt­inga munu hita­bylgjur byrja fyrr, þær eru að verða algeng­ari og ákaf­ari vegna þess að magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í and­rúms­loft­inu hefur aldrei verið meira. Það sem við erum að sjá núna er hinn óheppi­legi for­smekkur að fram­tíð­inn­i.“

Hita­bylgjur geta vissu­lega átt sér stað óháð lofts­lags­breyt­ingum, en hita­met hafa á und­an­förnum árum verið slegin á met­hraða. Hita­bylgjur eru orðnar tíð­ari, heit­ari og vara lengur.

Með­al­hita­stig jarðar milli áranna 2011 og 2020 var hærra en nokkru sinni síðan síð­ustu ísöld eða fyrir 125 þús­und árum síðan. Frá miðri tutt­ug­ustu öld hefur sum­arið á norð­ur­hveli jarðar lengst úr 78 dögum í meira en 95 daga. Fyrir lok þess­arar aldar er gert ráð fyrir að sum­arið á norð­ur­hveli jarðar muni vara helm­ing af árinu.

Árið 2003 var heitasta sumar í Evrópu í rúm­lega 500 ár og 70 þús­und manns létu lífið vegna hita. Í kjöl­farið var gerð rann­sókn þar sem reiknað var út hversu lík­legt það væri að hita­bylgjan hefði átt sér stað, ann­ars vegar með og hins vegar án hlýn­unar jarðar. Nið­ur­staðan var sú að hlýnun jarðar af manna­völdum gerði það að verkum að hita­bylgjan árið 2003 var tvisvar sinnum lík­legri en ef engin hlýnun af manna­völdum hefði átt sér stað. Önnur sam­bæri­leg rann­sókn leiddi í ljós að hlýnun jarðar hefur valdið því að hita­bylgjur í Evrópu eru nú um tíu sinnum lík­legri en ella. Einnig voru flóðin í Evrópu árið 2021 níu sinnum lík­legri til að eiga sér stað heldur en í heimi án hlýn­unar.

Þau sem munu mest finna fyrir afleið­ingum hækk­andi hita­stigs á kom­andi árum eru við­kvæmir hópar í lág­tekju­löndum og þau sem ekki hafa aðgang að loft­ræst­ingu. Einnig mun hit­inn verða hlut­falls­lega hærri í stór­borgum m.a. vegna steypu og mal­biks, meng­unar, skorts á gróðri og afgangs­hita frá athöfnum manna. Flest dauðs­föll, af þeim 70.000 sem áttu sér stað sum­arið 2003, áttu sér stað í borgum þar sem þau sem eldri og við­kvæm­ari voru gátu ein­fald­lega ekki flúið hit­ann.

Ákafar hita­bylgjur eru ekki eina afleið­ing lofts­lags­breyt­inga. Með hækk­andi hita­stigi munu jöklar bráðna, sjáv­ar­mál hækka, gróð­ur­eldar verða algeng­ari og sama má segja um flóð og öfga­fulla þurrka.

Bráðnun jökla og hækkun sjávarmáls

Bráðnun jökla er ein helsta birt­ing­ar­mynd hækk­andi hita­stigs. Talið er að Norð­ur­heim­skautið muni verða með öllu íslaust yfir sum­ar­mán­uð­ina fyrir árið 2050 og að bráðnun jökla Græn­lands sé nú þegar komið að svo köll­uðum vendi­punkti, þ.e. óaft­ur­kræfra breyt­inga. Bráðnun jökla er, líkt og önnur lofts­lagstengd vanda­mál, dæmi um snjó­bolta­á­hrif. Það er að segja, því meira sem jörðin hitn­ar, því meira bráðna jökl­arnir og því minni er end­ur­speglun sól­ar­geisla frá jöklunum, og því meiri hitnar jörð­in.

Bráðnun jökla leiðir m.a. til hækk­andi sjáv­ar­máls en fyrir hverja einnar gráðu hlýnun er talið að sjáv­ar­mál geti hækkað um 2,3 metra. Þetta þýðir að jafn­vel þótt við tak­mörkum hlýnun jarðar við 1,5 gráðu mun hækkun sjáv­ar­máls verða meiri en nemur þremur metrum til langs tíma litið - en óvíst er hversu langan tíma það mun taka nákvæm­lega fyrir sjáv­ar­mál að hækka.

Bráðnun jokla leiðir til hækkandi sjávarmáls. Mynd: Aðsend
Bráðnun jokla leiðir til hækk­andi sjáv­ar­máls. Mynd: Aðsend

Nýleg rann­sókn sýndi fram á að bráðnun jökla Græn­lands fram til þessa mun leiða til að minnsta kosti 27 senti­metra hækkun á sjáv­ar­máli. Höfundar rann­sókn­ar­innar segja að með áfram­hald­andi losun á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum, bráðnun jökla og varma­þenslu er ekki ólík­legt að sjáv­ar­mál hækki um nokkra metra.

Tveggja til þriggja metra hækkun sjáv­ar­máls þýðir að borgir eins og Amster­dam, New York og Jakarta munu glíma við óvið­ráð­an­leg flóð­ og eyjar eins og Maldíveyjar munu ein­fald­lega sökkva í sæ. Jakarta er að að sökkva um 10 senti­metra á ári en það er tutt­ugu sinnum hraðar en meðal hækkun sjáv­ar­máls. Maldíveyjar liggja að með­al­tali 1,2 metrum yfir sjáv­ar­máli og ef hlýnun jarðar heldur áfram eins og spár gera ráð fyrir er áætlað að 80% af eyj­unum verði óbyggi­legar árið 2050.

Skógareldar

Skóg­ar­eldar hafa geisað um Evrópu í sumar, líkt og und­an­farin ár. Samkvæmt Evrópsku skóg­ar­elda-upp­lýs­inga­stofn­un­inni (EFFIS) brunnu 660.000 hekt­arar af landi í Evrópu á fyrstu sex mán­uðum þess árs. Það eru mestu skóg­ar­eldar sem skráðir hafa verið hjá stofn­unni á þessum árs­tíma, allt frá því að mæl­ingar á gróð­ur­eldum hófust árið 2006.

Hlýnun jarðar hefur und­an­farna ára­tugi ýtt undir stærri og kraft­meiri skóg­ar­elda sem verður sífellt erf­ið­ara að ná tökum á. Segja má að afleið­ingar skóg­ar­elda hafi tvö­föld nei­kvæð áhrif á lofts­lagið en skóg­ar­eldar eyði­leggja ekki ein­ungis stór land­svæði, sem ann­ars hefði bundið kolefni, heldur losa skóg­arnir einnig kolefni þegar þeir brenna. Árið 2021 sam­svar­aði losun frá skóg­ar­eldum tvö­faldri losun Þýska­lands á einu ári.

Fordæmalaus flóð og þurrkar

Þar sem heit­ara and­rúms­loft inni­heldur meira vatn í formi gufu, hefur úrkoma og tíðni alvar­legra flóða auk­ist eftir því. Fyrir iðn­bylt­ingu átti úrhelli (e. extreme rain­fall) sér stað á tíu ára fresti. Í dag eiga slíkir atburðir sér stað á sjö og hálfs árs fresti og ef losun heldur áfram að aukast eins og spár gera ráð fyrir munu þeir eiga sér stað á þriggja til fjög­urra ára fresti.

Í sept­em­ber 2021 lýsti New York-borg, í fyrsta skipti, yfir neyð­ar­á­standi vegna úrhellis og flóða. Vatn flæddi niður í neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöðvar og nokkrir drukkn­uðu þegar vatn flæddi of hratt í kjall­ara­í­búðir til að fólk náði að flýja.

Flóð hafa geisað í Pakistan síðan í lok ágúst á þessu ári og talið er að um 33 millj­ónir manna séu þegar á ver­gangi vegna þeirra. Minnst 1.300 manns hafa farist í flóð­unum, þar af hátt í 450 börn. Rúmlega milljón heim­ili eru í rúst og inn­viðir lands­ins í lama­sessi. Á Twittersíðu sinni sagð­ist Antonio Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, aldrei hafa séð afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga af sömu stærð­argráðu og flóðin í Pakistan.

Á meðan mörg svæði á jörð­inni munu þjást af úrhelli og flóðum með hækk­andi hita­stigi munu önnur þjást af þurrkum vegna of lít­illa rign­inga. Þurrk­arnir í Evrópu í sumar eru þeir mestu í 500 ár og hafa þeir meðal ann­ars ýtt undir skóg­ar­elda, valdið upp­skeru­bresti og skorti á drykkj­ar­vatni. Sumarið 2022 ríkti neyð­ar­á­stand vegna vatns­skorts í Frakk­landi, og reyndar í fleiri Evr­ópu­löndum, vegna vatns­skorts og var fólki meðal ann­ars meinað að vökva garða og þvo bíla sína sökum vatns­skorts­ins. Þá gátu bændur ekki vökvað hluta af rækt­ar­löndum sínum.

Hungursneyð, vatnsskortur og átök

Langstærsti hluti rækt­aðs lands í heim­inum er háður reglu­legri úrkomu og munu útbreiddir þurrkar í fram­tíð­inni því að öllum lík­indum hafa skelfi­legar afleið­ingar á mat­væla­fram­leiðslu í heim­inum. Í nýrri bók „Hothouse Earth“ rekur vís­inda­mað­ur­inn Bill McGuire hvernig heit­ari heimur mun líta út og segir hann m.a. fátt skýra afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga betur en sam­bandið milli þurrka, upp­skeru­brests, hung­ursneyða, fólks­flutn­inga og átaka. Í heit­ari heimi munu þurrkar, óum­flýj­an­lega, hafa aukin áhrif á land­búnað, sem leiðir til upp­skeru­brests og hung­ursneyðar í stórum hluta heims­ins. Í hinu hnatt­ræna norðri munu áhrifin fyrst og fremst birt­ast í vöru­skorti og hærra verð­lagi.

Í heitari heimi munu þurrkar, óumflýjanlega, hafa aukin áhrif á landbúnað, sem leiðir til uppskerubrests og hungursneyðar í stórum hluta heimsins.
Í heit­ari heimi munu þurrkar, óum­flýj­an­lega, hafa aukin áhrif á land­búnað, sem leiðir til upp­skeru­brests og hung­ursneyðar í stórum hluta heims­ins.

Samkvæmt Mat­væla­á­ætlun Sam­ein­uðu þjóð­anna voru 41 milljón manns í 43 löndum á barmi hung­ursneyðar árið 2021, sam­an­borið við 27 millj­ónir árið 2019. Eftir því sem hlýnun jarðar verður meiri og öfgar í veðri verða algeng­ari, mun fólki sem lifir við hung­ursneyð fjölga.

Sex vendipunktar í hættu

Þrátt fyrir að vís­inda­menn geti spáð fyrir um - með þó nokk­urri vissu - hvað ger­ist þegar jörðin hitnar, ríkir ákveðin óvissa svo kall­aða vendi­punkta (e. tipp­ing points), það er að segja óaft­ur­kræfra breyt­inga á vist­kerfum jarðar.

Lítið er til dæmis vitað um hvort Golfstraum­ur­inn muni stöðvast, hvað ger­ist við slíkar aðstæður og ef svo er, hvenær það muni eiga sér stað. Sama má segja um sífrerin í Síberíu. Ef sífrerin þiðna er hætta á svo köll­uðum snjó­bolta­á­hrifum. Undir sífrer­inu er mikið magn metangass sem losnar þegar sífrerin þiðna með hækk­andi hita­stigi, sem leiðir til enn meiri hlýn­unar, sem leiðir til enn meiri þiðn­unar osfrv. Nýleg rann­sókn sýndi fram á að miðað við núver­andi losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eru sex „vendi­punktar“ í hættu, m.a. bráðnun Græn­lands­jök­uls, dauði kór­al­rifa og þiðnun sífreris.

Í bók sinni segir McGuire lær­dóm­inn ein­fald­lega vera þann að í heit­ari heimi geti losun koltví­oxíðs í and­rúms­loftið af nátt­úru­legum ferlum mögu­lega haldið áfram, jafn­vel þótt við drögum úr losun. Jafn­framt sé lofts­lagið að breyt­ast tölu­vert hraðar en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Það þurfi því að taka öllum spám um hækkun hita­stigs sem algjöru lág­marki – „við þurfum að und­ir­búa okkur undir það versta, á meðan við vonum það besta,“ segir McGuire.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár